Morgunblaðið - 15.03.2017, Síða 27

Morgunblaðið - 15.03.2017, Síða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 um ráðagerðum kom ekki annað til greina en að leita til Eiríks frænda okkar eftir aðstoð. Fyrst lét Eiríkur mig keyra um Kópa- voginn og kíkja á nokkrar út- færslur á skjólveggjum sem gætu komið til greina. Eftir að ég hafði klárað efniskaup var hafist handa og unnið við framkvæmdir um sumarið að öðru leyti en því að Eiríkur tók sér um 10 daga frí til að skreppa til Sikileyjar til að halda upp á 80 ára afmælið. Það var ekki hægt að sjá þetta sumar að þarna væri áttræður maður á ferð, hvorki líkamlega né and- lega. Ég var að sjálfsögðu sá sem lærði mest á þessum samvistum okkar, hvort sem litið er til smíða- kennslu eða varðandi umhirðu og reglu við umgang um verkfæri og önnur verðmæti. Við Kristrún sendum Kristjáni, Gunnari Má, Eiríki Steinarssyni og fjölskyld- um þeirra samúðarkveðjur. Ingi Már Aðalsteinsson. Þegar ég nú minnist Eiríks Þorgrímssonar, sem verður kvaddur í dag, þá minnist ég fyrst og fremst smiðsins, enda vann hann mikið fyrir foreldra mína, og síðar mig. Allt var það hið vandaðasta verk. Því var hægt að treysta. Móðir mín þekkti hann frá æskudögum sínum á Breiðdals- vík, þar sem faðir hennar var fak- tor, auk þess sem ömmusystir mín var tengd Eiríki fjölskyldu- böndum. Móður minni fannst því sjálfsagt að fá Eirík til að aðstoða okkur við hvers kyns smíðar, þegar þess þurfti, og alltaf brást hann vel við og þótti það sjálf- sagt. Eiríkur var ákaflega skemmti- legur maður með góðan húmor, og sá fyndnu hliðarnar á hlutun- um, ef út í það var farið, og því alltaf gaman að fá hann í heim- sókn til vinnu. Það virtist líka flest leika í höndunum á honum. Hann hafði auk þess sínar ákveðnu skoðanir, bæði varðandi landsmálin en ekki síður, hvernig fólk vann sína smíðavinnu, enda var það auðsætt, að hann setti vandvirknina efst á listann í þeim efnum. Áreiðanleikinn kom þar næst. Hann vann alltaf hjá Pósti og síma við ýmsa viðhaldsvinnu. Einhvern tíma, þegar móðir mín hringdi þangað til þess að tala við hann út af einhverju verkefni, sem henni fannst betra að fá hann til að leysa af hendi, þá var spurt, hver maðurinn væri, þegar móðir mín bað um að fá að tala við Eirík. Þegar móðir mín gaf frekari lýs- ingu á honum, þá var svarað hin- um megin: „Ó, þú meinar hann Eirík, sem allt kann.“ Og móðir mín fékk strax samband við hann. En þetta var nákvæmlega lýsing- in á honum Eiríki, því að hann var svo handlaginn og flinkur, að hann virtist bókstaflega kunna allt mögulegt, og gat leyst ótrú- legustu hluti á skammri stund enda var það engin furða, eins og móðir mín sagði svo oft, því að þetta var mikil smiðaætt, sem hann var kominn af, þar sem bæði faðir hans og afi höfðu verið smið- ir, og Eiríkur var ekki einasti smiðurinn í systkinahópnum. Móðir mín vissi það, því að faðir Eiríks hafði einu sinni smíðað kommóðu handa henni, meðan hún var enn uppvaxandi ungling- ur á Breiðdalsvík, en sú kommóða er nú á safninu þar innan um aðra smíðagripi Þorgríms, og er hinn vandaðasti gripur. Það var mikil eftirsjá að hon- um, þegar hann hætti að geta unnið fyrir mig, en þegar ég nú sé á eftir honum yfir móðuna miklu, þá kveð ég hann með miklu og góðu þakklæti fyrir alla hans vinnu fyrir mig og foreldra mína, og góða vináttu við okkur fyrr og síðar, um leið og ég bið honum allrar blessunar Guðs, þar sem hann er nú. Fjölskyldu hans votta ég innilega samúð. Blessuð sé ævinlega minning Eiríks Þorgrímssonar. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. ✝ BrynjólfurGunnar Brynj- ólfsson fæddist á Auðnum á Vatns- leysuströnd 6. febr- úar 1930. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Suður- nesja 3. mars 2017. Foreldrar hans voru: Jóhannes Brynjólfur Hólm Brynjólfsson, f. 6. janúar 1903, d. 14. október 1979, útvegsbóndi í Minna-Knarr- arnesi á Vatnsleysuströnd og Margrét Þórarinsdóttir, f. 9. febrúar 1911, d. 27. júlí 1995, húsfreyja og bóndi á sama stað. Brynjólfur var elstur sjö systk- ina; í aldursröð: Þórarinn, El- ísabet Guðrún, Reynir, Ólafía Sigríður, Unnur Kristín Björg og Garðar. Brynjólfur kvæntist 13. maí 1951 Sesselju Sigurð- ardóttur, f. 18. október 1929, frá Akranesi dóttur Sigurðar Guð- mundssonar sjómanns og smiðs og Guðlaugar Ólafsdóttur hús- freyju í Deildartungu á Akra- nesi. Börn Brynjólfs og Sesselju: 1) Sigurður Jóhannes, f. 13.3. 1949, kvæntur Öldu Særúnu Guðbjörnsdóttur en hún á fjögur börn, Sigurður á tvö börn með Árið 1953 keyptu Brynjólfur og Sesselja Hellur á Vatnsleysu- strönd og bjuggu þar í áratugi og var Brynjólfur gjarna kenndur við þann bæ. Árið 2007 keyptu þau hjónin sér hús í Vogum. Frá því snemma á sjötta áratugnum vann Brynjólfur á Keflavík- urflugvelli, starfaði hann þar hjá Íslenskum aðalverktökum sem deildarstjóri Véladeildar í ára- tugi. Brynjólfur var jafnhliða yf- irmaður grjótnáms ÍAV. Hann var ekki langskólagenginn en hafði aflað sér ágætar mennt- unnar á námskeiðum í vél- fræðum hér heima og erlendis; svo sem í Skotlandi og Banda- ríkjunum. Brynjólfur var áhuga- maður um sagnfræði og landa- og jarðfræði og átti mikið bóka- safn, m.a. um Síðari heimsstyrj- öldina en hann bjó yfir yfirburða þekkingu um þann hildarleik. Þá átti hann gott safn fagur- bókmennta og voru Hemingway, Steinbeck og I.B. Singer í uppá- haldi en af íslenskum höfundum, Stefán Jónsson og Jónas Árna- son. Um skeið safnaði Brynjólfur gömlum myndavélum og einnig Biblíum á ýmsum tungumálum. Á árum áður ferðaðist fjöl- skyldan um landið en þegar börnin voru flogin úr hreiðrinu fóru þau hjónin til útlanda í auknum mæli, en ferðalög voru alla tíð yndi Brynjólfs. Útför Brynjólfs verður gerð frá Kálfatjarnarkirkju á Vatns- leysuströnd í dag, 15. mars 2017, klukkan 15. fyrri konu sinni Edith Thorberg Traustadóttur og stjúpdóttur sem lést ung. Áður var Sig- urður kvæntur Gunnhildi Ólafs- dóttur. 2) Margrét Guðrún, f. 28.2. 1951, gift Steindóri Guðmundssyni, hún á þrjú börn. Þar af eitt með fyrri manni sínum Jóhannesi T. Sveinssyni sem fórst í flugslysi 1971. 3) Lilja, f. 29.5. 1955, d. 18.6. 1955. 4) Sig- urlaug, f. 12.1. 1957, gift Halldóri Sigurðssyni, þau eiga tvo syni. 5) Brynjólfur Gunnar, f. 17.3. 1961. 6) Guðmundur Sveinbjörn, f. 20.11. 1964, kvæntur Sædísi Ósk Harðardóttur, þau eiga eina dóttur en fyrir átti Sædís þrjú börn, Guðmundur á og dóttur með fyrri konu sinni Ingu Ósk Ásgeirsdóttur. 7) Gísli Sigurjón, f. 7.4. 1975, kvæntur Önnu Sig- ríði Árnadóttur, þau eiga þrjú börn. Afkomendur Brynjólfs og Sesselju eru nú 35 talsins. Brynj- ólfur og Sesselja hófu búskap á Akranesi en þar stundaði Brynj- ólfur sjómennsku en áður hafði hann róið frá Vatnsleysuströnd, bæði með föður sínum og öðrum. Elskulegur faðir minn kvaddi þennan heim svo snöggt en samt svo hljóðlega. Auðvitað hlaut að koma að því, hann var búinn að vera lasburða í mörg ár eftir margskonar áföll en alltaf reis hann upp aftur. Það var stundum grínast með það að hann ætti mörg líf. En svo kvaddi hann okkur blíðlega og fór inn í sólarlagið á Ströndinni. Þegar ég var barn fannst mér pabbi alltaf vera með myndavél á maganum. Minnisstæðar eru myndir af mér úti á hól heima alveg að pissa á mig en gat ekki sagt það því þá gæti ég skemmt myndina, svo í breiðu af Baldursbrám eða haldandi á stærðar lúðu sem var næstum eins stór og ég. Svona vorum við börnin hans endalaust myndefni. Ég man að ég var orð- in svolítið leið á þessum fyrir- sætustörfum enda var hann að tefja mig frá kofaleikjum og drullumalli. Við andlát foreldris verður barnæskan svo ljóslifandi. Marg- ar gæðastundir áttum við saman þegar pabbi fór í innkaupaferð í Vogana á laugardagsmorgnum og við sungum saman í bílnum, þá lærði ég til dæmis lög eins og: Einn var að smíða ausutetur, Hér stóð bær – og meira að segja sálm, Ástarfaðir himinhæða. Hver hefði trúað því, gamli að syngja sálm! En svona var pabbi ólíkinda- tól. Hann var börnum sínum góð- ur faðir og bar hag þeirra fyrir brjósti, hafði mikinn metnað fyr- ir þeirra hönd. Þannig þótti hon- um mikið til þess koma að tveir synir hans lærðu í útlöndum sjálfur elskaði hann að ferðast erlendis. Lífið var ekki alltaf ljúft hjá pabba, hann dragnaðist með svartan hund í gegnum lífið og sá hét Bakkus. En honum tókst að halda honum löngum stundum á þröskuldinum og njóta sín með Lellu sinni og allri stórfjölskyld- unni. Guð blessi minningu þína, elsku pabbi. Þín Margrét Guðrún. Bækur og bækur. Pabbi situr í herbergi sínu og les. Hann er staddur í miðri orrustunni við Anzio, hann þykist sjá villu í bók- inni og dregur fram aðra bók til að sanna mál sitt. Jú mikið rétt, Ronald Penney var Major General en ekki Second Lieuten- ant. Rétt skal vera rétt. Tímarit og bækur. Ég sest gegnt pabba við skrif- borðið, tek lúna bók og opna. Fyrsti hluti segir frá bókelskum dreng suður með sjó sem hefur ekki áhuga á búskap, bara á sjó- mennsku – og bókum. Strákurinn sogar í sig allt lesefni, og það sem hann les, það man hann. Hann leitar skjóls hjá ömmu sinni – þar á hann athvarf í bókum. Hún tel- ur það ekki vita á hallæri þótt hann sleppi því að sæta með fólk- inu; það er víst nógur mannskap- urinn. Dag einn marséra hermenn um veginn, í apríl 1943 horfir stráksi á vélar úr 50. orrustuflug- sveit Bandaríkjahers skjóta nið- ur Junkers 88 – þýska flugvél sem steypist ofan í heiðina upp af Ströndinni. Stríðið er svakalegt og setur mark sitt á drenginn sem dregst að sögu þess. Smám saman verður hann sérfræðing- ur, sá fróðasti sem ég hef hitt, burt séð frá prófgráðum. Ég fletti, gríp niður þar sem drengurinn er orðinn að ungum manni. Hann leiðir fallega stúlku fram fyrir foreldra sína – þau fagna henni. Unga parið byrjar búskap á Akranesi, hennar bæ. Fallegt kvenfólk, ágætar kart- öflur, bestu fótboltamennirnir – þannig er Skaginn og harðir karl- ar sem sumir taka þessum gutta treglega í fyrstu en Þorkell á Bakka, skipstjóri og útgerðar- maður, tekur piltinn upp á sína arma og sér að kauði dugar; hef- ur úthald og nennir að vinna. Þriðji hluti opnast, pilturinn er nú maður og fluttur suður á Strönd, unga konan hefur alið tvö börn. Þau kaupa kotið Hellur sem stendur á grasivöxnum hraunhól rétt ofan við æskuheim- ili hans, Minna-Knarrarnes. Þar vex fjölskyldan og dafnar. Hann hættir sjósókn og fer að vinna á Vellinum – í hermanginu. Allt í einu er ég sjálfur í þess- ari bók og systkini mín öll og mamma er þessi unga stúlka og það er kátur hundur úti á hól. Við erum hamingjusöm krakkarnir; eigum góða foreldra. Ég fagna því að hafa alist upp á traustu heimili á nákvæmlega þessum stað, tek bókina og ber hana upp í ljósið og læt hana flettast af sjálfri sér og út úr henni þyrlast fjögurra laufa smárar sem við höfum fyrir löngu stungið þar inn til þerris. Enginn man lengur hver nákvæmlega fann þá. Við eigum þá öll … En hvað? Sumar síðurnar eru eins og límdar saman, fáar þó, fimm og sex hér og þar, klesstar saman líkt og þær hafi vöknað. Ég horfi á föður minn sem nú rýnir í National Geographic; les um jarðlög í Skotlandi og berg- tegundir. Hann man allt sem hann les. Hann lítur upp á bók- ina sem enn sáldrar smára ofan á borðið – pabbi sér ekki laufin, heldur síðurnar sem loða saman og ég sé tár í augum hans. En, elsku pabbi – það verða allar lífsbækur fyrir hnjaski, hafðu ekki áhyggjur, mannkostir þínir; hlýja, viska og kærleikur mælast í hillumetrum og hvað er þá blað og blað í einni bók? Guðmundur. Afi minn. Afi minn á Strönd er dáinn, eftir mjög stutta sjúkra- húslegu. Afi var skemmtilegur og stríðinn. Ég er búinn að eiga afa minn lengi, hann hefur alltaf verið hluti af mínu lífi og við höf- um átt margar góðar stundir saman. Á stundum sem þessum brjótast minningarnar fram, stórar sem smáar. Eins og með skófluna sem ég hamaðist við að moka snjóinn með af planinu mínu í morgun. Allt í einu fatta ég að þetta er skóflan sem afi gaf mér fyrir 25 árum þegar ég keypti minn fyrsta bíl. Hann lét þau orð fylgja að það væri nauð- synlegt að hafa hana í skottinu á bílnum, hún var í skottinu á bíln- um í mörg ár og næsta bíl líka. Minningarnar um afa á Strönd eru margar, þær vekja upp vel- líðan, eins og að vakna hjá ömmu og afa, notalegt að heyra malið í þeim í eldhúsinu, lykt af ristuðu brauði og kúra undir sæng. Afi ók um á pickup-bíl og gerði merkilega hluti uppi á velli, um- gekkst Kana og verkstýrði mönnum. Ég skildi það ekki þá en mér þótti þetta allt alveg stór- merkilegt og afi var sko merki- legur. Leikur úti í móa með Gísla frænda og afi flautar þegar hann sér okkur hoppandi á milli þúfna og hlaupandi ofan í djúp gil í ind- íánaleik. Bókaherbergið hans afa var sérstakur staður, þar voru hillur uppi um alla veggi, hlaðnar alls konar bókum, stríðsárin, biblíur og allt þar á milli. Það mátti líka fletta í bókunum hans. En notalegast var þó ef hann sat við skrifborðið og las í bók eða blaði og sjálf sat ég á beddanum og las eða lék mér á gólfinu. Stundum var hann að skoða myndaalbúm og pikkaði í mig öðru hvoru til að segja frá og sýna mér myndir. Tíminn líður og áfram er afi með mér á öllum mínum tíma- mótum, stoltur og sýnir stuðning á sinn hátt. Áfram streyma minningarnar, ég fullorðnast, afi eldist og veikist. Fær heilablóð- fall og hjartaáfall. Skammtíma- minnið tapast að miklu leyti. Ég, mamma, afi og amma förum í ferðalag til Gumma frænda. Við afi sitjum í aftursætinu, stríðum aðeins mömmu og ömmu, njótum ferðarinnar og drekkum gos. Afi segir mér frá landinu, fjöllunum, merkum mannvirkjum, hvar hann fór um landið og vann og atburðum frá síðari heimsstyrj- öldinni. Þarna sitjum við afi og njótum þess að ferðast saman, ég er ennþá bara litla stelpan sem horfir stóreygð með galopin eyru á afa á Strönd og dáist að honum. Margar minningar höfum við eignast síðan þá og of margar til að telja upp. Núna þegar ég lít yfir farinn veg og horfi til baka þá er mikill söknuður eftir elsku afa – hver á nú að spyrja mig á hvaða fjalli ég hafi verið síðast – en samt ekki síður þakklæti fyrir að eiga hann að svona lengi í mínu lífi. Afi á Strönd er haldinn á vit nýrra ævintýra. Lilja Sesselja Steindórsdóttir. Nú þegar afi minn hefur klár- að hlaupið og er kominn í mark er gott fyrir okkur sem eftir er- um að líta til baka og horfa til þess tíma sem við áttum saman. Þegar ég hugsa um afa á Strönd þá hugsa ég um verk- stjórann, stóru bumbuna, neftób- aksdósina, sardínur á Ítalíu, mat- arkex í mjólk, litlu trékistuna sem var full af klinki, mig og Trausta frænda sitjandi á pall- inum á pickupnum, sinubruna, stórvirkar vinnuvélar frá Cater- pillar, kleinur og kókómjólk niðri við höfn, myndavélar, Stapa- drauginn, herinn uppi á velli, Reykjanesbrautina, rollurnar sem komust inn fyrir hliðið, hvítu málninguna, bíltúrana í Kola- portið, sjómennsku, bjórinn í bíl- skúrnum, fíflalætin með fölsku tennurnar, safn af allskonar dóti, köflótta kaskeitið, veiðistangirn- ar, kríueggin, úrítanið, blundina, bókaherbergið hans á Strönd- inni, fréttirnar í litla útvarpinu, Indiana Jones 3 í Háskólabíói og ís á eftir, grænu hjólbörurnar, krabbaveiði á Spáni, stór sólgler- augu, ljósmyndaalbúm, björgun- arvestið, svissneska vasahnífinn, Old Spice, seiglu og mikla vænt- umþykju. Takk afi, fyrir allar minning- arnar og meira til. Steindór Gunnar Steindórsson. Í stuttri minningargrein er erfitt að lýsa manni sem er efni í heila bók. Það fyrsta sem kemur upp í hugann hjá afastelpunni og elsta barnabarninu eru allar góðu stundirnar á Ströndinni. Þegar ég fór þangað sem krakki með mömmu og Lilju systur, yfirleitt eftir hádegi á sólríkum dögum. Frelsið og forréttindin sem það voru og eru að eiga ömmu og afa búandi utan borgarinnar. Næst- um því sveit. Frelsi, strigaskór, mosi, lyng, kría, drullumall og allt sem ekki var á Háaleitis- brautinni. Seinna fór ég með mín eigin börn sem fengu að upplifa það sama. Á aðfangadagskvöld fór öll stórfjölskyldan úr Reykja- vík suður eftir sama hvernig viðraði. Hitta alla hina og sjá hvað lestrarhesturinn afi hefði fengið margar bækur í jólagjöf. Hann hafði líka mikinn áhuga á ljósmyndun og safnaði gömlum myndavélum. Þær fékk hann hér og þar, m.a. í Kolaportinu þar sem hann var á tímabili fasta- gestur. Hann átti marga tugi véla og ein var búin til úr bjór- dós. Það fannst mér merkilegt. Fleiri minningaglefsur eru heimsóknirnar til hans í bílskúr- inn og að fá að brenna rusl með honum í olíutunnu, það var nefni- lega ekki flokkað í þá daga! Ein- staklega skemmtilegar eru minningar um skreppiferðir í Vogana, sitjandi á bekk aftur í græna Land Rovernum. Stund- um að kaupa mjólk í vöfflurnar fyrir ömmu. Afi gerði það fyrir okkur krakkana að gefa aðeins meira inn þar sem mestu ójöfn- urnar voru í veginum á vegspott- anum frá beygjunni við gamla samkomuhúsið sem var í hvarfi frá Hellum (og ömmu), og um það bil að Brunnastaðahverfinu. Þá skoppuðu litlir rassar hátt upp af bekknum og hausarnir jafnvel alveg upp í topp með til- heyrandi hlátrasköllum og öskri. Það sem ég var ánægð með afa þarna. Að hann skyldi þora þetta! Þetta var jú bannað, en hann gerði þetta samt – fyrir okkur! Síðasta áratuginn eða svo hef- ur margt verið tekið í burtu frá afa. Heilsubrestur er ekki bara stórt orð. Það eru allir litlu hlut- irnir sem því fylgja. Við fjöl- skyldan höfum horft á þennan klára og skemmtilega kall smám saman verða skuggann af sjálf- um sér og missa getuna til að geta tjáð sig á þann hátt sem hann gerði áður. Hann talaði að vísu, hlustaði, fylgdist vel með og skaut inn setningum hér og þar en minnið og úrvinnslan var ekki sú sama. Í staðinn komu frasar. Til dæmis þeir sem hann tengdi við hvern og einn í fjölskyldunni. Þessir frasar voru með mismun- andi blæbrigðum, en alltaf svip- aðir. Ég var litla druslan hans og alltaf þegar hann sá mig síðustu árin sagði hann: „Ertu ekki alltaf sama druslan?“ Í fjölskyldu afa er drusla nefnilega ekki ljótt orð, heldur gæluorð yfir litlar stelp- ur, svipað og krakkaskott. Afi á Strönd var vel gefinn, áhugasamur og fylgdist vel með stjórnmálum og allri dægurum- ræðu. Hann var ákveðinn í skoð- unum og lá ekki á þeim. Þannig er hans góða fólk. Hann var líka blíður, góður og ástríkur. Ég hugga mig við að þótt margt hafi verið tekið í burtu núna við frá- fall afa, þá á ég tvennt sem aldrei verður af mér tekið og ég mun bera áfram – minningarnar og nafnið mitt. Ég þakka afa fyrir bæði. Bryndís. Brynjólfur Gunnar Brynjólfsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.