Morgunblaðið - 15.03.2017, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017
B
rynja Guðmundsdóttir
fæddist á Akureyri 15.
mars 1967, en flutti
snemma til Reykjavík-
ur og 9 ára gömul flutti
hún á Álftanes þar sem hún ólst upp.
„Það voru algjör forréttindi að fá
að alast upp á Álftanesi, svolítið
„sveit í borg“. Ég var meira að segja
í sveit þar eitt sumarið en þar var
bóndabær. Ég fór líka oft í sveit í
Svarfaðardal þar sem amma mín ólst
upp og fór einnig eitt sumar í sveit
til Vopnafjarðar og náði því að
strauja lak og fleira fyrir Karl
Bretaprins í veiðihúsi sem þar var.
Ég var í Álftanesskóla en við 12 ára
aldur þá fórum við í skólabíl í Garða-
skóla. Við vorum svolítið sveita-
krakkarnir, sem mér fannst nú bara
hrós.“
Brynja fór í Fjölbrautaskólann í
Garðabæ og útskrifaðist þar á þrem
árum með hæstu einkunn. Þá tók við
viðskiptafræði í Háskóla Íslands.
Þar útskrifaðist hún sem cand.oecon
með áherslu á endurskoðun.
Starfsferillinn
„Markmiðið hjá mér var að verða
endurskoðandi. Það breyttist snögg-
lega þegar mér var boðið starf á
Blönduósi sem skrifstofustjóri
Kaupfélags Húnvetninga og SAH.
Ég þekkti engan þar en þar sem ég
er ævintýramanneskja sló ég til sem
er ein besta ákvörðun sem ég hef
tekið. Fór því beint úr háskóla í
framkvæmdastjórn félaganna. Þessi
fyrirtæki áttu mörg fyrirtæki á
svæðinu þannig að reynslan sem ég
fékk þar var ómetanleg. Eins var
enginn tölvumaður á svæðinu svo ég
þurfti að læra að reka netkerfi og
forrita aðeins. Ég var þarna í þrjú
hálft ár sem var dýrmæt reynsla fyr-
ir mig auk þess sem það var frábært
að vera með börnin þarna.
Eftir þetta fór ég að vinna hjá Ís-
lenska útvarpsfélaginu (365) sem
var æðislega skemmtilegur tími og
mikið að gerast á þessum tíma. Árið
1996 fór ég að vinna hjá Lýsi í eitt ár
en bauðst þá mjög spennandi vinna
hjá Pósti og síma hf. og til 2000 tók
ég þátt í miklu umbreytingatímabili
hjá fyrirtækinu sem var í lokin orðið
Landssíminn hf. Nýjar reglugerðir,
landið eitt gjaldsvæði og sam-
keppnin kom inn af fullum krafti.
Brynja Guðmundsdóttir, forstj. AZAZO/Gagnavörslunnar – 50 ára
Fjölskyldan Brynja ásamt Heiðrúnu, Kristjáni, Guðjóni Pétri, Kristínu Ösp, Svanhvíti Önnu og Stefáni Smára.
Upplifir drauminn
Á Snæfellsfjökli Brynja fer reglu-
lega í gönguferðir á fjöll.
Arinbjörn Bernharðsson, verkstjóri hjá byggingarfélaginu Eykt,á 60 ára afmæli í dag. „Ég er búinn að vinna hjá Eykt í meiraen 20 ár og hef verið síðasta árið í Vestmannaeyjum að stýra
uppbyggingu hjá Vinnslustöðinni. Ég er að vinna úti um allt, það er
svolítið flökkugen í mér.
Best finnst mér samt að vera í Norðurfirði á Ströndum, en ég er
fæddur þar og uppalinn og reyni að vera þar eins oft og ég get.“
Arinbjörn rekur gistingu undir nafninu Urðartindur í Norðurfirði
sem hann opnaði árið 2010. „Ég byggði smáhýsi árið 2010 og hef verið
að breyta eldri útihúsum í herbergi með baðherbergi frá árinu 2012.
Hugmyndin er að fjölga þeim herbergjum á næstunni svo ég geti hýst
a.m.k. 40 manns. Það er lokað hjá okkur á veturna en við opnum í júní
og teygjum okkur fram í haustið og það er mjög mikið bókað fyrir
sumarið. Þetta lítur allt saman vel út.“
Arinbjörn er búinn að vera undanfarna daga í Barcelona ásamt
konu sinni en þau fljúga heim í dag. „Ég dett heim 60 ára og um
helgina ætla ég fagna afmælinu með fjölskyldunni.“
Eiginkona Arinbjarnar er Sigríður Birna Magnúsdóttir, en hún
vinnur hjá Actavis á skráningarsviði. Börn þeirra eru Arnar fram-
kvæmdastjóri, Bernharð smiður og Tinna lyfjafræðingur. Barnabörn-
in heita Ísabella Viðja Arnarsdóttir og Róbert Óli Þórisson.
„Aðaláhugamálin mín eru barnabörnin, fjölskyldan og bröltið í
Norðurfirði.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Strandamaður Arinbjörn fyrir framan Urðartind í Norðurfirði.
Ræturnar í Norður-
firði á Ströndum
Arinbjörn Bernharðsson er sextugur í dag
Akureyri Hanna Sonja Kon-
radsdóttir á eins árs afmæli
í dag, en hún fæddist 15.
mars 2016 kl. 03.19 á
Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Hún vó 3.552 g og var 53
cm löng. Foreldrar hennar
eru Joanna Niewada og
Konrad Kulis.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600 LIPUR GRIPUR
AVANT - ER TIL Í ALLT - ALLT ÁRIÐ UM KRING
Hvort sem þig vantar öflugt hjálpartæki í skógræktina, fyrir bæjarfélagið, til
meðhöndlunar á vörubrettum, í moksturinn eða snjó- og jarðvinnu, þá getur
þú verið viss um að AVANT leysir málið fyrir þig. Yfir 100 mismunandi aukatæki
eru fáanleg á vélina.
Raf- diesel- bensín- eða gasknúinn – þitt er valið.
Framleiddur í Finnlandi – fyrir norðlægar slóðir.