Morgunblaðið - 15.03.2017, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017
Duo Ultima, sem Guido Bäumer
saxófónleikari og Aladár Rácz píanó-
leikari skipa, kemur fram á háskóla-
tónleikum í Hátíðasal á annarri hæð
aðalbyggingar Háskóla Íslands í dag
kl. 12.30. Á efnisskránni er tónlist
frá Norður- og Suður-Ameríku, nán-
ar tiltekið verk eftir Robert Mucz-
ynski, Gunther Schuller og Astor
Piazzolla. Aðgangur er ókeypis.
Samkvæmt upplýsingum frá tón-
leikahaldara hafa Guido Bäumer og
Aladár Rácz starfað saman undir
merkjum Duo Ultima í rúm 13 ár.
„Samstarfið hófst þegar Guido
Bäumer æfði konsert til að leika með
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og
ók frá Dalvík til Húsavíkur á æfing-
arnar með Aladár Rácz. Upp úr því
tók við tónleikahald með frönskum
verkum og síðan tók hver áskorun
við af annarri. Þegar þeir báðir voru
fluttir á höfuðborgarsvæðið tók sam-
starfið á sig nýja víddir,“ segir í til-
kynningu.
Guido Bäumer nam tónlist í
Bremen og lauk þar kennaraprófum
á saxófón og þverflautu áður en
hann fór í framhaldsnám við Tónlist-
arháskólann í Basel þar sem hann
lauk einleikaraprófi með hæstu ein-
kunn og við Bowling Green State
University í Ohio. Á Íslandi hefur
Guido Bäumer m.a. leikið með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands og Caput, og
er félagi í Íslenska saxófónkvartett-
inum. Hann kennir við skóla-
hljómsveitir á höfuðborgarsvæðinu,
við Tónlistarskólann í Kópavogi og
er einnig stundakennari við LHÍ.
Aladár Rácz stundaði fyrst nám í
píanóleik við Georges Enescu tón-
listar-skólann í Búkarest en síðan
framhaldsnám í Búkarest og Búda-
pest. Hann kenndi um árabil við
Tónlistarskóla Húsavíkur og kennir
nú við tónlistarskólann Do Re Mi og
Söngskóla Sigurðar Demetz ásamt
því að vera meðleikari við LHÍ.
Tangóæfingar Piazzolla
óma á háskólatónleikum
Duo Ultima Aladár Rácz píanóleikari og Guido Bäumer saxófónleikari.
Á opnunarsýningu Nýlistasafnsins í
Marshallhúsinu gefur að líta áhuga-
verða samantekt á verkum og list-
heimildum Ólafs Lárussonar (1951-
2014) en sjónum er beint að list-
sköpun hans á áttunda áratugnum
og inn í þann níunda. Sýningar-
stjórar eru þær Þorgerður Ólafs-
dóttir og Becky Forsythe og hönnun
sýningarinnar er unnin í samstarfi
við Thomas Pausz.
Í tilkynningu segir að verkin hrífi
fólk „með sér á vit ævintýra og
sagna, upp á heiði og út í móa. Ólaf-
ur var blátt áfram í list sinni og leit-
aðist við að brjóta hina hefðbundnu
miðlaumgjörð svo að verkin sjálf
fengju vængi. Þetta er í fyrsta sinn
sem verk Ólafs eru sýnd saman í við-
leitni til að draga upp heildræna
mynd af afkastamestu árum lista-
mannsins.
Samhliða sýningunni verður gefin
út vegleg bók í tilefni þeirrar stóru
gjafar sem Nýlistasafninu barst frá
fjölskyldu Ólafs og inniheldur mikið
magn efnis frá vinnustofu lista-
mannsins. Í heimildarsafni um vinnu
Ólafs má finna yfir 1.200 gögn, þ.m.t.
hluta af filmusafni listamannsins,
negatífur og upptökur af gjörn-
ingum, ljósmyndir og VHS-
upptökur.“
Mjög umfangsmikil
Þorgerður segir löngu tímabært
að fólk fái að sjá gott yfirlit yfir verk
Ólafs sem hafi verið áberandi í
myndlistarlífinu á sínum tíma en
hljótt hafi verið um hann síðustu ár.
„Hér eru um 150 verk – þetta er
mjög umfangsmikil sýning, og bókin
sem kemur út þegar sýningar-
tímabilið er hálfnað verður ekki síð-
ur mikilvæg,“ segir Þorgerður.
Þetta séu verkin sem hann vann
þegar hann var hvað afkastamestur.
„Af einhverjum ástæðum sem ég
skil ekki þá var ekkert talað um verk
Ólafs þegar ég var í Listaháskól-
anum og komin er fram heil kynslóð
listamanna sem þekkir lítið eða ekki
til verka hans. Flest listasöfnin eiga
verk eftir Ólaf og eru meðvituð um
framlag hans og það hlýtur að hafa
verið tímaspursmál hvenær þau
yrðu tekin myndarlega fram og
sýnd. Við í Nýlistasafninu erum
mjög glöð yfir því að geta gert það
nú með svo veglegum hætti.“
Uppistaðan í sýningunni eru verk
sem eru í eigu Nýlistasafnsins en
einnig er fjöldi verka fenginn að láni
hjá öðrum listasöfnum og vinum og
vandamönnum Ólafs.
„Sýningin tekur á fyrstu starfs-
árum Ólafs og heldur utan um
ákveðið tímabil á ferli hans sem ein-
kenndist af ljósmyndum og gjörn-
ingum,“ segir Þorgerður. „Hann
hefði eflaust sagt að öll verkin á sýn-
ingunni væru blönduð tækni, en
uppistaðan eru ljósmyndaverk og
svo sýnum við heimildir úr vinnu-
stofu hans sem safninu var gefið í
september. En við munum gefa út
bók með frekari myndum og efni úr
því arkífi. Fjölskylda Ólafs gaf safn-
inu mikið magn efnis úr vinnustofu
hans, ógrynni af heimildum, þar á
meðal filmusafn hans og bókasafn,
skissubækur og verk í vinnslu,“ seg-
ir Þorgerður. Þannig að allt verk-
efnið um þetta tímabil á ferli Ólaf
spannar bæði sýningu og útgáfu.
Kafla bætt í listasöguna
„Með þessari sýningu vildum við
staðsetja Ólaf betur í listasögunni.
Ef sagan er ekki í stöðugri skoðun
þá verður hún einsleit. Ólafur átti
mikilvægt erindi innan samtímalist-
arinnar og tók virkan þátt í mynd-
listarsenu sem stóð á ákveðnum
tímamótum á 8. áratugnum. Hann
var einn af síðustu SÚM-urunum og
einn af stofnendum Nýlistasafnsins.
Þegar litið er yfir öll þessi verk er
augljóst hvað Ólafur á sterkt erindi
við samtímann, 40 árum seinna. Í
verkunum má skynja eiginleika sem
höfða mjög sterkt til okkar. Sam-
bland af einhvers konar áræðni og
frelsistilfinningu, jafnvel fífldirfsku,
þar sem gengið er alla leið án þess
að vita nákvæmlega hver útkoman
verður,“ segir Þorgerður.
Framsækinn Ólafur Lárusson fremur gjörninginn Cul de Sac II árið 1980.
Myndin er frá samsýningu Myndhöggvarafélagsins við Korpúlfsstaði.
Á erindi við samtímann
Nýlistasafnið opnað á nýjum stað með sýningu á fjölda
verka Ólafs Lárussonar frá fyrsta áratug ferils hans
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Úti að aka (Stóra svið)
Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn. Fim 6/4 kl. 20:00 aukas.
Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Þri 28/3 kl. 20:00 aukas. Fös 7/4 kl. 20:00 aukas.
Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fim 30/3 kl. 20:00 aukas. Fim 20/4 kl. 20:00 aukas.
Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas. Fös 21/4 kl. 20:00 aukas.
Fös 24/3 kl. 20:00 aukas. Lau 1/4 kl. 20:00 aukas. Sun 23/4 kl. 20:00 aukas.
Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn Mið 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 27/4 kl. 20:00 aukas.
Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir.
Elly (Nýja sviðið)
Mið 15/3 kl. 13:00 Fors. Lau 1/4 kl. 20:00 8. sýn Sun 30/4 kl. 20:00 18.sýn
Fim 16/3 kl. 13:00 Fors. Þri 4/4 kl. 20:00 9. sýn Fös 5/5 kl. 20:00 aukas.
Fös 17/3 kl. 20:00 Fors. Mið 5/4 kl. 20:00 10. sýn Lau 6/5 kl. 20:00 19.sýn
Lau 18/3 kl. 20:00 Frums. Fim 6/4 kl. 20:00 11. sýn Sun 7/5 kl. 20:00 20.sýn
Sun 19/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 7/4 kl. 20:00 aukas. Mið 10/5 kl. 20:00 21. sýn
Þri 21/3 kl. 20:00 3. sýn Lau 8/4 kl. 20:00 12. sýn Fim 11/5 kl. 20:00 22.sýn
Mið 22/3 kl. 20:00 aukas. Þri 11/4 kl. 20:00 aukas. Fös 12/5 kl. 20:00 23.sýn
Fös 24/3 kl. 20:00 4. sýn Fös 21/4 kl. 20:00 13. sýn Mið 17/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 25/3 kl. 20:00 5 sýn Lau 22/4 kl. 20:00 14. sýn Fim 18/5 kl. 20:00 30. sýn
Sun 26/3 kl. 20:00 6. sýn Sun 23/4 kl. 20:00 15 sýn Fös 19/5 kl. 20:00 31. sýn
Þri 28/3 kl. 20:00 aukas. Fim 27/4 kl. 20:00 aukas. Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn
Fim 30/3 kl. 20:00 aukas. Fös 28/4 kl. 20:00 16.sýn Sun 21/5 kl. 20:00 33. sýn
Fös 31/3 kl. 20:00 7. sýn Lau 29/4 kl. 20:00 17.sýn
Frjálst sætaval - Salurinn opnar klukkan 18:30
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 8/4 kl. 20:00 Lau 6/5 kl. 20:00 Mið 24/5 kl. 20:00 123 s.
Þri 11/4 kl. 20:00 Fös 12/5 kl. 20:00 Fim 25/5 kl. 20:00 167 s.
Mið 19/4 kl. 20:00 Lau 13/5 kl. 13:00 aukas. Fös 26/5 kl. 20:00 176 s.
Lau 22/4 kl. 20:00 Fös 19/5 kl. 20:00 aukas. Lau 27/5 kl. 20:00 157 s.
Fös 28/4 kl. 20:00 Lau 20/5 kl. 13:00 57 s. Sun 28/5 kl. 20:00 aukas.
Glimmerbomban heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 19/3 kl. 13:00 aukas. Lau 8/4 kl. 13:00 43 s. Sun 7/5 kl. 13:00 85 s.
Sun 26/3 kl. 13:00 aukas. Sun 23/4 kl. 13:00 102 s. Sun 14/5 kl. 13:00 123 s.
Lau 1/4 kl. 13:00 aukas. Sun 30/4 kl. 13:00 97 s.
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Sun 19/3 kl. 13:00
Táknmáls.
Lau 1/4 kl. 13:00 aukas.
Sun 26/3 kl. 13:00 aukas. Lau 8/4 kl. 13:00 aukas.
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Illska (Litla sviðið)
Lau 18/3 kl. 20:00 Lau 1/4 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar - Aðeins þessar sýningar
Fórn (Allt húsið)
Fim 16/3 kl. 19:00 Frums. Mið 29/3 kl. 19:00 3. sýn Sun 9/4 kl. 19:00 5 sýn
Fim 23/3 kl. 19:00 2. sýn Sun 2/4 kl. 19:00 4. sýn
Sköpunarkrafturinn ræður ríkjum um allt leikhúsið
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Þri 21/3 kl. 10:00 Mið 22/3 kl. 11:30 Fim 23/3 kl. 13:00
Þri 21/3 kl. 11:30 Mið 22/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 10:00
Þri 21/3 kl. 13:00 Fim 23/3 kl. 10:00 Fös 24/3 kl. 11:30
Mið 22/3 kl. 10:00 Fim 23/3 kl. 11:30
Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 19/3 kl. 13:00 Sun 26/3 kl. 16:00 Sun 2/4 kl. 13:00
Sun 19/3 kl. 16:00 Lau 1/4 kl. 13:00 Sun 2/4 kl. 16:00
Sun 26/3 kl. 13:00 Lau 1/4 kl. 16:00 Sun 9/4 kl. 13:00
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Húsið (Stóra sviðið)
Fim 16/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 5/4 kl. 19:30 8.sýn
Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 30/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 22/4 kl. 19:30 9.sýn
Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 31/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 27/4 kl. 19:30 10.sýn
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Fös 24/3 kl. 19:30 Frums Þri 4/4 kl. 19:30 6.sýn Fös 21/4 kl. 19:30 11.sýn
Lau 25/3 kl. 19:30 2.sýn Fim 6/4 kl. 19:30 7.sýn Lau 22/4 kl. 19:30
Mið 29/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 7/4 kl. 19:30 8.sýn Fim 27/4 kl. 19:30
Fim 30/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 9/4 kl. 19:30 9.sýn
Fös 31/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 19/4 kl. 19:30 10.sýn
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Lau 18/3 kl. 20:00
Egilsstaðir
Lau 25/3 kl. 20:00
Varmahlíð
Lau 1/4 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Óþelló (Stóra sviðið)
Fös 17/3 kl. 19:30
Sýningum lýkur í mars!
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 16/3 kl. 20:00 Lau 18/3 kl. 22:30 Lau 25/3 kl. 20:00
Fös 17/3 kl. 20:30 Fim 23/3 kl. 20:30 Lau 25/3 kl. 22:30
Fös 17/3 kl. 23:00 Fös 24/3 kl. 20:30 Fim 30/3 kl. 20:00
Lau 18/3 kl. 20:00 Fös 24/3 kl. 23:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 15/3 kl. 20:00 Mið 22/3 kl. 20:00 Mið 29/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Lau 13/5 kl. 17:00 Sun 14/5 kl. 17:00
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.