Morgunblaðið - 15.03.2017, Side 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Við munum bjóða upp á frum-
samda músík eftir okkur tvo í um
það bil jöfnum hlutföllum,“ segir
Sigurður Flosason saxófónleikari
um tónleika þeirra Hans Olding gít-
arleikara á Múlanum í kvöld kl. 21,
en tónleikarnir eru haldnir á
Björtuloftum á 5. hæð Hörpu.
Aðspurður segir Sigurður lög
hans samin á sl. ári, en tónlist Old-
ing er samin á sl. áratug.
Með Sigurði og Olding leika Þor-
grímur Jónsson á bassa og Einar
Scheving á trommur. „Þetta er að-
gengilegur nútímadjass með fjöl-
breyttu sniði. Þetta er áhrifarík
músík sem engum mun leiðast að
hlusta á,“ segir Sigurður.
Tikkar í öll réttu boxin
Að sögn Sigurðar eru átta ár síð-
an þeir Olding, sem á ættir að rekja
til Svíþjóðar, kynntust og hófu sam-
starf sitt. „Við kynntumst á nám-
skeiði í Danmörku. Danir eru svo
vel settir að þeir bjóða sínu atvinnu-
djassfólki upp á vandað vikunám-
skeið á hverju sumri. Þar er meira
eða minna allur danski djassbrans-
inn í sumarbúðum úti í sveit á Sjá-
landi. Stöku einstaklingar frá öðr-
um löndum á Norðurlöndum hafa
fengið að fljóta með í djass-
velmegun þeirra Dana,“ segir Sig-
urður sem nokkrum sinnum hefur
tekið þátt í sumarnámskeiðinu.
„Þetta er frábært fyrir tengsla-
myndun – ekki síst fyrir fólk sem
býr á eyju, eins og við gerum norð-
ur í ballarhafi. Þá er gott að eiga
góða samvinnu við fólk í öðrum
löndum. Á námskeiðinu í Dan-
mörku lá leið okkar Hans fyrst
saman og síðan höfum við haldið
góðu sambandi,“ segir Sigurður og
rifjar upp að þeir Olding hafi á um-
liðnum árum spilað töluvert bæði á
Íslandi og í Svíþjóð.
„Árið 2014 gáfum við út hljóm-
diskinn Projeto Brasil! með eigin
djassútsetningum af brasilískri tón-
list. Þar settum við saman sam-
norræna hljómsveit og lékum hér-
lendis, í Svíþjóð og Danmörku. Við
höfum því brallað töluvert saman,“
segir Sigurður og tekur fram að í
tónlistarbransanum skipti miklu
máli að eiga góða samstarfsfélaga
frá ýmsum löndum. „Þetta er ekki
eins og föst vinna og hlutir koma og
fara. Þetta veltur mjög mikið, ekki
bara á músíkinni þó að hún sé mik-
ilvæg, heldur líka á samskiptum og
þá er áríðandi að vinna með fólki
sem maður treystir og á músíkalska
samleið með. Hans tikkar í öll réttu
boxin fyrir mig,“ segir Sigurður.
Undirbýr upptökur
Spurður hvort þeir Olding séu
farnir að leggja drög að næstu
verkefnum segir Sigurður það í
skoðun. Inntur eftir því hvort ný
plata sé í farvatninu segir Sigurður
erfitt að svara því. „Plötugerð er
orðin svo erfið og dýr í framkvæmd
eftir að diskar hættu mikið til að
seljast og efni aðallega gert að-
gengilegt á netinu. Sökum þess að
plötugerð stendur sjaldan undir sér
þarf því miður að hægja á í þeim
efnum. Þetta er breyttur heimur.
Maður myndi vilja gefa meira út en
hægt er,“ segir Sigurður og tekur
fram að hann sé raunar að und-
irbúa næstu upptökur. „Tónlistin
eftir mig sem hljóma mun á tón-
leikum Múlans verður tekin upp í
apríl með annarri samsetningu
annars staðar í heiminum, án þess
að ég ætli að segja neitt meira um
það.“
Þess má að lokum geta að miðar
fást í miðasölu Hörpu og á vefj-
unum harpa.is og tix.is.
„Aðgengilegur
nútímadjass“
Félagar Saxófónleikarinn Sigurður Flosason og gítarleikarinn Hans Olding
kynntust á músíknámskeiði fyrir djassista í Danmörku fyrir um átta árum.
Tónleikar Múlans í kvöld kl. 21
Tökur á framhaldsmynd um Lis-
beth Salander hefjast í september,
en stefnt er að frumsýningu í októ-
ber 2018. Samkvæmt frétt á vef
breska ríkisútvarpsins, BBC, er
ljóst að Rooney Mara og Daniel
Craig munu ekki fara með hlutverk
Lisbeth Salander og Mikael Blom-
kvist eins og þau gerðu í fyrstu
myndinni The Girl With the Dragon
Tattoo frá 2011 sem byggðist á
fyrstu skáldsögu Stieg Larssons í
þríleik hans um parið.
Leikstjórinn Fede Alvarez vill fá
nýja leikara í hlutverkin. „Við erum
með frábært handrit í höndunum
og nú er komið að skemmtilegasta
hlutanum, að finna Lisbeth,“ segir
Alvarez.
Samkvæmt heimildum kvik-
myndatímaritsins
Variety gætu Nat-
alie Portman og
Scarlett Johans-
son vel komið til
greina. David
Fincher, sem leik-
stýrði fyrri mynd-
inni, segir að Joh-
ansson hafi staðið
sig einstaklega vel í áheyrnar-
prufum fyrir hlutverkið. Nafn Jane
Levy hefur einnig verið nefnt, en
hún hefur áður unnið með Alvarez.
Handritið að framhaldsmyndinni
um Salander og Blomkvist byggist á
fjórðu bókinni um parið sem David
Lagercrantz skrifaði og út kom
2015 og nefnist Það sem ekki drep-
ur mann.
Hver verður næsta Lisbeth Salander?
Rooney Mara
Könnunarleiðangur á hina dularfullu Haus-
kúpueyju snýst fljótlega upp í baráttu upp á líf
og dauða þegar leiðangursmenn þurfa að
glíma við sjálfan King Kong og önnur skrímsli.
Metacritic 63/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.10,
22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.00, 21.15, 22.30
Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30
Smárabíó 16.50, 19.30, 20.00, 22.40
Kong: Skull Island 12
A Dog’s Purpose 12
Hundur reynir að finna til-
gang með lífinu, í gegnum
nokkur æviskeið og
nokkra eigendur.
Metacritic 43/100
IMDb 4,9/10
Sambíóin Álfabakka
17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll
17.50, 20.00, 22.10
Sambíóin Akureyri
20.00
Logan 16
Wolverine er búinn að eldast, heilsu hans hefur hrakað en
þarf að hugsa um hinn
heilsulitla Prófessor X þar
sem þeir fela sig nærri
landamærum Mexíkó.
Metacritic 75/100
IMDb 9,0/10
Sambíóin Egilshöll
17.00, 20.00, 22.45
Sambíóin Keflavík
20.00, 22.45
Smárabíó 16.50, 19.50,
22.10, 22.45
Háskólabíó 18.00, 21.00
La La Land Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 93/100
IMDb 8,5/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 17.20
Sambíóin Kringlunni 17.20
Fifty Shades
Darker 16
Metacritic 32/100
IMDb 5,0/10
Sambíóin Kringlunni
20.00, 22.30
La Traviata
Sambíóin Kringlunni 18.00
Collide 16
Þegar unnusta Caseys Stein,
Juliette Marne, veikist og
þarf á nýjum nýrum að halda
ákveður Casey að hverfa til
fyrri starfa hjá glæpaforingj-
anum Geran til að afla pen-
inganna sem þarf til að Juli-
ette geti keypt og fengið
grædd í sig ný nýru.
Metacritic 33/100
IMDb 5,7/10
Smárabíó 17.00, 19.50
Háskólabíó 18.00, 21.00
Hidden Figures Smárabíó 17.00, 19.50
Háskólabíó 18.00, 21.00
Fist Fight 12
Metacritic 37/100
IMDb 5,9/10
Sambíóin Álfabakka 17.50,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.10
Sambíóin Akureyri 22.30
Manchester by the
Sea 12
Lee er skyldaður til að snúa
heim og hugsa um yngri
frænda sinn.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 96/100
IMDb 8,1/10
Háskólabíó 21.00
Bíó Paradís 20.00
Rings 16
Metacritic 25/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
Hjartasteinn
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,9/10
Smárabíó 17.15
Háskólabíó 18.10, 21.10
T2: Trainspotting 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 62/100
IMDb 7,9/10
Smárabíó 20.10, 22.45
Moonlight
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 99/100
IMDb 8,2/10
Háskólabíó 18.10
Bíó Paradís 17.30, 20.00
Rock Dog Útvarp dettur af himnum of-
an og beint í hendurnar á
tíbetskum Mastiff risahundi.
Metacritic 49/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Álfabakka 18.00
Sambíóin Akureyri 18.00
The Lego Batman
Movie Það er ekki nóg með að Bat-
man þurfi að kljást við
glæpamennina í Gotham
borg, heldur þarf hann að
ala upp dreng sem hann hef-
ur ættleitt.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 75/100
IMDb 7,9/10
Laugarásbíó 17.40
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.00
Stóra stökkið IMDb 6,9/10
Smárabíó 15.20, 17.40
Syngdu Metacritic 60/100
IMDb 7,3/10
Smárabíó 15.00
Toni Erdmann
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 94/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 18.00
Paterson
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 90/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 17.30
The Salesman
Metacritic 86/100
IMDb 8,2/10
Bíó Paradís 22.00
Elle/Hún
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 89/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 22.45
Certain Women
Metacritic 81/100
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 22.30
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna