Morgunblaðið - 15.03.2017, Side 44
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 74. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. „Ekki í dag helvítið þitt“
2. Dons Donuts ehf. gjaldþrota
3. Mörg hundruð eintök seld á Íslandi
4. Lögregla leitar að þessum manni
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sviðslistahópurinn Lab Loki fagnar
25 ára starfsafmæli á þessu ári. Á
þeim tímamótum býður hann til
stefnumóts í Tjarnarbíói en á morgun
frumsýnir hópurinn þar sviðslista-
verkið Endastöð – Upphaf sem fjallar
um hina óverðskulduðu þrenningu:
upphafið, ástina og dauðann. Persón-
ur á tímamótum eiga stefnumót,
bjóða til veislu og bregða á leik.
Meðal þátttakenda í stefnumótinu
eru Árni Pétur Guðjónsson, Rúnar
Guðbrandsson, Aðalbjörg Árnadóttir
og Filippía I. Elísdóttir.
Lab Loki með stefnu-
mót á 25 ára afmæli
Bandarísku tón-
listarmennirnir
Erik DeLuca og
Ben Hjertmann
koma fram í
Mengi annað
kvöld, fimmtudag,
kl. 21. Hjertmann
er aðstoðar-
prófessor við
Appalachian State University, en
hann lauk doktorsgráðu í tónlist frá
Northwestern-háskólanum 2013. Í
Mengi flytur Ben Hjertmann eigin
tónlist. DeLuca er með doktorspróf í
tónsmíðum og tölvunarfræði frá Há-
skólanum í Virginíu. Undanfarna
mánuði hefur hann dvalið á Íslandi
við rannsóknir þar sem hann hefur
m.a. tekið til skoðunar tvær innsetn-
ingar í íslensku landslagi: Áfanga eft-
ir Richard Serra í Viðey og Tvísöng
eftir Lukas Kühne á Seyðisfirði. Á
tónleikunum flytur hann I Am Sitting
in a Room frá 1969 eftir Alvin Lucier.
Hjertmann og
DeLuca í Mengi
Á fimmtudag Gengur í norðan 5-13 m/s með snjókomu norðan-
og austanlands, hvassast á annesjum. Þurrt að kalla á sunn-
anverðu landinu og éljagangur nyrðra um kvöldið. Frost 0 til 5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægari suðvestanátt en í gær með dálitlum
éljum sunnan og vestanlands og snjókomu SA-lands seint í kvöld.
Hiti í kringum frostmark í dag.
VEÐUR
Danski landsliðsmarkvörð-
urinn Kasper Schmeichel
var hetja ensku meistar-
anna í Leicester þegar liðið
vann Sevilla, 2:0, á heima-
velli í gærkvöldi í Meistara-
deild Evrópu í knattspyrnu.
Daninn varði vítaspyrnu
skömmu fyrir leikslok.
Leicester komst þar með
áfram í 8 liða úrslit keppn-
innar eins og Juventus, sem
lagði Porto örugglega. »2
Schmeichel var
hetja Leicester
„Undirliggjandi ástæða fyrir kraft-
inum sem settur hefur verið í starfið
hérna er að strákarnir í 10. flokki
hérna hafa verið afskaplega sigur-
sælir. Fimm af tólf leikmönnum U16-
landsliðs Íslands í ár eru frá Þór. Það
er búið að setja
„standardinn“ hærra
upp til að þeir komi
ekki upp í eitt-
hvert tómarúm
hjá félaginu,“
segir fyrirlið-
inn Þröstur
Leó Jóhanns-
son um upp-
ganginn í
körfuboltanum
hjá Þór á
Akureyri. »3
Kraftur vegna sigur-
sælla unglinga í Þór
Ólympíufarinn Ásgeir Sigurgeirsson
er búinn að skipta um félag í þýsku
Bundesligunni í skotíþróttum. Lið
hans Ötlingen féll úr efstu deild og er
Ásgeir genginn í sterkara lið sem
heitir Ludwigsburg. Íslendingurinn
verður tæplega sakaður um fall
Ötlingen því Ásgeir var með næst-
besta meðalskor í deildinni á nýloknu
keppnistímabili. »4
Ásgeir kominn í sterk-
ara lið í Þýskalandi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Örbrugghúsið The Brothers
Brewery í Vestmannaeyjum opnar
nýja ölstofu í Eyjum á morgun í
tengslum við aukna framleiðslu-
getu fyrirtækisins. „Nú getum við
tekið á móti hópum, sem vilja
kynna sér framleiðsluna, og selt
Eyjamönnum góðan bjór,“ segir
Kjartan Vídó Ólafsson, einn eig-
enda.
Upphafið má rekja til þess að
Kjartan Vídó og Jóhann Ólafur
Guðmundsson byrjuðu að brugga
bjór 2012. Fengu þeir bræður sína,
Hlyn Vídó og Davíð, inn í hópinn
og nafnið The Brothers Brewery
varð til. „Nafnið vísaði til okkar
bræðranna en Davíð er hættur og
Hannes Kristinn Eiríksson, mágur
Jóa, kom í staðinn,“ segir Kjartan.
„Þetta er því áfram mjög fjöl-
skylduvænt fyrirtæki.“
Kjartan segir að til að byrja með
hafi hugmyndin verið sú að brugga
bjór og selja hann á veitingastaðn-
um Einsa kalda í Vestmannaeyjum
og fengu þeir framleiðsluleyfi í
byrjun árs 2016. „Síðan vatt þetta
upp á sig og eftir að við fengum
fyrstu verðlaun fyrir bjór ársins á
Bjórhátíð Íslands á Hólum í júní í
fyrra fóru hjólin að snúast enn
hraðar. Síðan höfum við selt bjór á
fjórum til sex veitingastöðum í
Reykjavík.“
Flöskulína bætist við
Brugghúsið keypti nýverið 500
lítra bruggeiningu og gerjunar-
tanka frá Kína auk flöskulínu. Þar
með eru sex 500 lítra tankar til
staðar og með flöskulínunni aukast
möguleikar á að selja bjórinn á
fleiri veitingastöðum og í Vínbúð-
unum. „Þegar tækin verða komin í
notkun getum við bruggað 500 lítra
í einu í staðinn fyrir 150 lítra,“ seg-
ir Kjartan. „Afköstin aukast því
mikið og það verður auðveldara
fyrir okkur að fara inn á nýja
staði.“ Hann bætir við að þegar
þeir hafi lært vel á nýju tækin, eft-
ir um mánuð eða tvo, sé ætlunin að
setja bjór á markað í Vínbúðunum.
Kjartan segir að þeir hafi brugg-
að 12 til 15 mismunandi tegundir
og þar af nokkrar prufuuppskriftir
sem ekki hafi verið bruggaðar aft-
ur. „Við bjóðum upp á sex tegundir
í ölstofunni okkar,“ segir hann og
leggur áherslu á að ekki sé alltaf
um sömu tegundirnar að ræða því
tegundirnar séu misjafnar eftir
árstíðum.
Félagarnir hafa staðið í rekstr-
inum sjálfir án utanaðkomandi
vinnuafls. „Við höfum þjarkast
áfram í þessu og eiginkonurnar
hafa staðið þétt við bakið á okkur,
leyft okkur að sinna þessu áhuga-
máli og lagt sitt af mörkum við
opnunina á ölstofunni,“ segir
Kjartan.
Ölstofan The Brothers Brewery
er í húsinu Baldurshaga í miðbæ
Vestmannaeyja. Þar er leyfi fyrir
um 70 gesti og boðið verður upp á
yfir 30 tegundir af bjór. „Um 70%
af bjórnum hafa ekki fengist í Eyj-
um þannig að við komum með nýj-
ar tegundir og aukum flóruna fyrir
gesti,“ segir Kjartan.
Brugghús bætir við ölstofu
Aukin fram-
leiðsla hjá The
Brothers Brewery
Ljósmynd/Ólafur Einar Lárusson
Ölstofa The Brothers Brewery í Vestmannaeyjum Eigendurnir og starfsmennirnir frá vinstri: Hlynur Vídó
Ólafsson, Hannes Kristinn Eiríksson, Kjartan Vídó Ólafsson og Jóhann Ólafur Guðmundsson.
Brugghúsið Búið er að setja upp
nýju tækin og nýr kafli að hefjast.