Morgunblaðið - 22.03.2017, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 2. M A R S 2 0 1 7
Stofnað 1913 69. tölublað 105. árgangur
UNDIR ÁHRIFUM
ÍSLENSKRAR
NÁTTÚRU
GERA
ALLT
SJÁLFIR
LÍF TAÍLENSKRAR
FJÖLSKYLDU
Á ÍSLANDI
SHADES OF REYKJAVÍK 33 NÝ HEIMILDARMYND JÓNS KARLS 30ÝR ÞRASTARDÓTTIR 12
Íslensku varðskipin hafa ekki
tekið olíu á Íslandi síðan 1. nóv-
ember 2015. Fjórum sinnum var
fyllt á olíutanka þeirra í Færeyjum
í fyrra og einu sinni það sem af er
þessu ári. Þetta kemur m.a. fram í
skriflegu svari Sigríðar Á. Ander-
sen dómsmálaráðherra við fyrir-
spurn frá Gunnari I. Guðmunds-
syni, varaþingmanni Pírata, um
úthaldsdaga Landhelgisgæslunnar.
Landhelgisgæslan setti olíu á
varðskipin í 32 skipti frá 1. janúar
2013 til 24. febrúar 2017. Hluti olíu
sem keypt var í útlöndum var
vegna erlendra verkefna. Oftast
var olía keypt í Færeyjum eða í 14
skipti á fyrrgreindu tímabili. Elds-
neyti á skipin var auk þess keypt
sjö sinnum á Möltu, fjórum sinnum
á Spáni, þrisvar á Ítalíu og fjórum
sinnum á Íslandi á árunum 2014 og
2015, tvisvar á hvoru ári. »4
Gæslan fyllir á olíu-
tankana í útlöndum
„Flestir sem um
þessi mál véla
horfa til þess að
fyrirkomulagið
sé barn síns tíma
og það beri að
skoða aðrar leið-
ir,“ segir Krist-
ján Þór Júlíus-
son, mennta- og
menningarmálaráðherra, en fyrir-
komulag á útgáfu námsefnis til
grunnskóla er til endurskoðunar í
ráðuneytinu.
„Við erum með ákvæði í stjórnar-
sáttmálanum um að ríkið færi út-
gáfu námsefnis til sjálfstæðra út-
gefenda. Ég hyggst vinna að því að
það geti með einhverjum hætti náð
fram að ganga. Við erum að undir-
búa það í ráðuneytinu að gera ein-
hverjar breytingar á þessu fyrir-
komulagi,“ segir Kristján Þór
ennfremur við Morgunblaðið. »4
Skoða aðrar
leiðir við út-
gáfu námsefnis
Gleðin var við völd á samkomu sem haldin var í veislu-
sal Þróttar í Reykjavík í gær þegar Downs-félagið
fagnaði þar alþjóðlega Downs-deginum. Allt frá því ár-
ið 2011 hefur verið haldið upp á daginn, 21. mars, en þá
lýstu Sameinuðu þjóðirnar því formlega yfir að sá dag-
ur væri alþjóðadagur Downs-heilkennis. Markmiðið er
að auka vitund og minnka aðgreiningu og dagsetningin
vísar til þess að Downs-heilkenni er orsakað af auka
litningi í litningi 21, þ.e. 3 eintök eru af litningi 21, sem
þannig myndar dagsetninguna 21.3. »18
Fólk kom saman og gladdist í tilefni dagsins
Morgunblaðið/Golli
Fjölbreytileika fagnað á Downs-deginum
Alls eru 3.255 íbúðir í byggingu á
höfuðborgarsvæðinu samkvæmt
nýrri talningu Samtaka iðnaðarins
(SI) og hefur þeim fjölgað um 10%
frá í september. Færri íbúðir eru þó
í byggingu í Reykjavík um þessar
mundir en var fyrir hálfu ári. Núna
eru samtals 1.228 íbúðir í byggingu í
borginni skv. talningu SI en þær
voru 1.266 í september. Í Kópavogi
hefur íbúðum í smíðum fjölgað frá í
haust eða um 118 og í Garðabæ er
núna verið að byggja 126 fleiri íbúðir
en komu fram í talningu SI í sept-
ember sl.
Þó að íbúðum í byggingu á höfuð-
borgarsvæðinu hafi fjölgað dugar
það engan veginn til að mæta eftir-
spurn. Áætlað hefur verið að 1.600
til 1.800 nýjar íbúðir þurfi að bætast
við á ári til að anna eftirspurninni og
því til viðbótar þarf að mæta mikilli
uppsafnaðri þörf á undanförnum ár-
um. ,,Miðað við stöðuna í dag er spá
okkar fram í tímann sú að það verði í
fyrsta lagi eftir tvö ár sem fer að
saxast á uppsafnaða þörf,“ segir
Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri
byggingariðnaðar á mannvirkjasviði
SI. omfr@mbl.is »6
Færri í
smíðum
í borginni
Saxast á uppsafn-
aða þörf eftir 2 ár
Morgunblaðið/Golli
Byggt 2.947 íbúðir í fjölbýli eru í
smíðum á höfuðborgarsvæðinu, 185
rað- og parhús og 123 einbýli.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Þrátt fyrir að ríkissjóður fái greitt til
sín allt söluandvirði ríflega 29% hlutar
Kaupþings í Arion banka, tæpa 49
milljarða króna, færir salan Kaupþing
nær þeim tímapunkti að geta greitt
750 milljónir dollara, jafnvirði ríflega
81 milljarðs króna, út til eigenda
sinna. Þessir fjármunir eru fastir inni
í félaginu á grundvelli stöðug-
leikaskilyrða stjórnvalda, allt þar til
Kaupþing hefur að fullu greitt upp
skuldabréf sem það gaf út í tengslum
við nauðasamning og framseldi til ís-
lenska ríkisins, að fjárhæð 84 millj-
arðar króna.
Þeir kaupa sem stjórnvöld
lögðu áherslu á að myndu selja
Fyrrnefnt stöðugleikaskilyrði mið-
aði að því að eigendur Kaupþings los-
uðu um eignarhlut sinn í Arion banka
innan þriggja ára, enda var skulda-
bréfið sem Kaupþing gaf út bundið
þeim kvöðum að aðeins er hægt að
greiða inn á það með söluandvirði Ar-
ion banka. Þrátt fyrir að stjórnvöld
hafi gert sér grein fyrir hættunni á
því að eigendur Kaupþings gætu selt
sjálfum sér hlutinn í bankanum, voru
líkur á því taldar hverfandi.
Nýti vogunarsjóðirnir fjórir sér
kauprétt að 22% hlut í bankanum, til
viðbótar þeim 29% hlut, sem þeir nú
þegar hafa tryggt sér, mun söluand-
virðið duga til að greiða upp skulda-
bréfið fyrrnefnda. Við það virkjast
heimild til handa Kaupþingi til að
greiða hluthöfum sínum, þar á meðal
vogunarsjóðunum fjórum, 650 millj-
ónir dollara sem nú eru bundnar inni í
félaginu. Á komandi misserum mun
sú fjárhæð hækka í 750 milljónir doll-
ara. Því munu sjóðirnir fjórir, með því
að nýta forkaupsrétt sinn, geta tryggt
sér tugmilljarða greiðslur út úr Kaup-
þingi í erlendum gjaldeyri.
Miðað við eignarhlut þeirra í Kaup-
þingi um nýliðin áramót gætu
greiðslur til þeirra því numið allt að
500 milljónum dollara, eða 54,5 millj-
örðum króna.
Salan losar milljarðatugi
Kaupþing fetar sig í átt að því að greiða eigendum sínum út 750 milljónir dollara
Sjóðirnir sem kaupa í Arion munu fá meirihluta þess fjármagns í sínar hendur
MSalan á Arion getur... »16
Nýr geisla-
diskur Víkings
Heiðars Ólafs-
sonar með
píanóverkum
eftir Philip
Glass er há-
stökkvari vik-
unnar á þýsku
vinsældalist-
unum. Stökk
hann í gær beint
upp í fjórða sæti klassíska listans
þar í landi.
Gagnrýnendur hafa fjallað lof-
samlega um diskinn. Í Die Welt
segir að þegar þessi píanóleikari
eigi í hlut verði „tómið aldrei leið-
inlegt“. Víkingur skilji etýður
Glass og gefi þeim lausan tauminn.
Og rýnir Le Monde líkir tilfinning-
unum í persónulegri túlkuninni við
eldfjallahræringar. Víkingur Heið-
ar leikur verkin á diskinum í Eld-
borg á föstudag. »30
Hástökkvari vik-
unnar í Þýskalandi
Víkingur Heiðar
Ólafsson