Morgunblaðið - 22.03.2017, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017
Enski rithöfundurinn Colin
Dexter, höfundur bókanna um
Morse lögreglufulltrúa sem marg-
ir kannast einnig við úr sjónvarps-
þáttum sem gerðir voru eftir bók-
unum, er látinn, 86 ára að aldri.
Bækurnar um Morse lögreglu-
fulltrúa skrifaði Dexter á árunum
1975-99 og nutu þær mikilla vin-
sælda. Enska sjónvarpsstöðin ITV
framleiddi sjónvarpsþætti eftir
bókunum og fór leikarinn John
Thaw með hlutverk Morse. Þá
komu persónur Dexters við sögu í
þáttum sem voru afsprengi bóka
hans, þáttunum Lewis og
Endeavour.
Dexter skrifaði sína fyrstu bók
um Morse, Last Bus to Wood-
stock, árið 1975 þegar hann var í
fríi í Wales. Eftir að hafa skrifað
síðustu bókina um Morse, The Re-
morseful Day, gerðist hann latínu-
og grískukennari og kenndi í 13
ár. Útgefandi Dexter, Maria Rejt
hjá forlaginu Macmillan, segir að
rithöfundurinn hafi átt hug og
hjörtu samstarfsmanna sinna enda
hafi hann verið hógvær og spaug-
samur að eðlisfari. Þá hafi hann
verið skarpgreindur og góðhjart-
aður.
Rithöfundurinn Colin Dexter látinn
Dáður Rithöfundurinn Colin Dexter, skapari Morse lögreglufulltrúa.
AF LEIKLIST
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Fjögur ár eru liðin frá síðustu sýn-
ingum tilraunaleikhússins Lab Loka,
en vorið 2013 frumsýndi leikhúsið
sviðslistaverkið Hvörf úr smiðju leik-
hópsins í samvinnu við Sjón og um
haustið leikritið Stóru börnin eftir
Lilju Sigurðardóttur. Síðastnefnda
verkið vakti mikla athygli sem skýr-
ist mögulega af framandi innihaldi og
skemmtilegri sviðsetningu, en fyrr-
nefnda sýningin er mun eftirminni-
legri í huga rýnis þar sem tókst að
miðla hryllingi og fáranleika
Guðmundar- og Geirfinnsmálsins á
magnaðan hátt.
Í ljósi þess hve áhrifaríkar, vel
leiknar og sjónrænt spennandi sýn-
ingar Lab Loka hafa iðulega verið
var það með allnokkurri eftirvænt-
ingu sem rýnir lagði leið sína í Tjarn-
arbíó sl. fimmtudag á svonefnt
stefnumót við leikhópinn í tilefni af
25 ára starfsafmæli Lab Loka.
Yfirskrift stefnumótsins eða gesta-
boðsins var Endastöð – Upphaf og í
viðtölum við leikhúslistamennina,
samstarfsfélaga og vinina Rúnar
Guðbrandsson og Árna Pétur Guð-
jónsson í aðdraganda frumsýningar
lýstu þeir stefnumótinu sem sviðs-
listagjörningi þar sem fjallað væri
um hina óverðskulduðu þrenningu,
þ.e. upphafið, ástina og dauðann.
Sem vinur Rúnars og Árna Péturs
á Facebook hefur verið hægt að
fylgjast með tilurð sýningarinnar allt
frá því þeir héldu í vinnubúðir til
Tenerife seint á síðasta ári og deildu
myndum og upptökum af sér í leik og
dansi, en myndefnið rataði í fram-
haldinu bæði inn í sýninguna sjálfa
og á Facebook-síðu sem nefnist Upp-
haf – Endastöð.
Þegar áhorfendur gengu í salinn á
frumsýningarkvöldi stóð Árni Pétur
við hljóðnemann og rifjaði á sænsku
upp veru sína í Svíþjóð. Á stefnu-
mótinu var leikið á a.m.k. sjö tungu-
málum sem voru áhorfendum mis-
skiljanleg og kallaðist sterkt á við
yfirlýsingu undir lok klukkustundar-
langrar sýningarinnar þess efnis að
vinirnir hygðust kveðja tungumálið.
Þannig hættu orðin að skipta máli.
Þetta var undirstrikað þegar lærðri
hugleiðingu Rúnars um kaþarsis var
drekkt í tónlist síðar í sýningunni.
Snemma kvölds var sjónum beint
að upphafinu þegar mynd af tveimur
nýfæddum börnum var varpað upp á
risaskjá aftast á sviðinu, en andlitin
umbreyttust smám saman í organdi
andlit Rúnars og Árna Péturs. Líkt
og börnin sem í sakleysi sínu koma
nakin í heiminn sprönguðu vinirnir
fáklæddir um bæði sviðið og í upp-
teknu myndefni, sem Guðbrandur
Loki Rúnarsson á heiðurinn af.
Smám saman vék nektin fyrir
Hreinsun og upprisa
Ljósmynd/Pétur Geir
Sakleysi „Líkt og börnin sem í sakleysi sínu koma nakin í heiminn spröng-
uðu vinirnir fáklæddir um bæði sviðið og í uppteknu myndefni.“
klæðnaði og þá léku félagarnir sér
með kynjahlutverkin og klæddust
iðulega skrautlegum kjólum úr
smiðju Filippíu I. Elísdóttur, sem
skráð er fyrir bæði búningum og
heildarútliti. Á höfuð þeirra rötuðu
mittissíðar rauðar hárkollur sem
ásamt með uppstillingum og aðstoð
vindvélar vakti hugrenningartengsl
við „Fæðingu Venusar“ eftir Botti-
celli. Vísað var í fleiri listaverk
manna á borð við Genet, Mann,
Shakespeare og Bergman svo nokkr-
ir séu nefndir auk þess sem biblían
var augljóslega notuð til innblásturs.
Rúnari og Árna Pétri til halds og
trausts voru leikararnir Aðalbjörg
Árnadóttir og Kjartan Darri Krist-
jánsson sem dönsuðu þegar á þurfti
að halda, duttu inn í lausbeislaðar
leiksenur, stýrðu ljósum og lögðu
lokahönd á veitingar kvöldsins sem
gestum var boðið upp á að sviðs-
listagjörningi loknum. Eins og ljóst
má vera af framansögðu var
Endastöð – Upphaf ekki hefðbundin
leiksýning í neinum skilningi, heldur
fremur hægt að lýsa viðburðinum
sem mósaíkfrásögn þar sem úði og
grúði af allskyns hugmyndum úr
ýmsum áttum – og þar sem allt var
opið til túlkunar.
Samkvæmt forskrift Rúnars og
Árna Péturs fékk dauðinn sinn skerf
þegar leið á sýninguna. Upptaktur-
inn að endalokunum var markaður
reiði og sorg leikstjórans og listræns
stjórnanda Lab Loka sem leiddi til
óska hans um dauða. Leikvinur hans
til margra ára aðstoðaði hann við að
deyja táknrænum dauða í mynd-
skeiði, sem kallaðist með skemmti-
legum hætti á við upphafssenuna, svo
leikstjórinn gæti risið dansandi upp
að nýju í fallegum svörtum og gyllt-
um pallíettukjól, sem allt í senn gat
táknað brynju, fiskhreistur eða fugl-
inn Fönix. Ástin í sýningunni birtist í
eftirvæntingu afa eftir barnabarni
sínu, en þó fyrst og fremst í djúpri og
fallegri vináttu félaganna tveggja.
Fyrr í sýningunni höfðu félag-
arnir, í hljóðupptöku, rifjað upp þeg-
ar þeir á táningsaldri snemma á átt-
unda áratug síðustu aldar sáu Í húsi
föður míns hjá Odin-leikhúsinu í
Danmörku og ræddu í framhaldinu
vináttu sína og samstarf sem á tím-
um var markað óhóflegri drykkju. Í
sama kafla lýstu þeir aðdáun sinni á
því sjónarmiði að áhorfendur mættu
eiga sig. Sú afstaða sveif óneitanlega
yfir vötnum í Tjarnarbíói sl. fimmtu-
dag, enda virtist gjörningurinn fyrst
og síðast ætluður til heilunar og úr-
vinnslu fyrir þátttakendur á sviðinu.
» Í ljósi þess hve áhrifaríkar, vel leiknar og sjón-rænt spennandi sýningar Lab Loka hafa iðulega
verið var það með allnokkurri eftirvæntingu sem
rýnir lagði leið sína í Tjarnarbíó sl. fimmtudag.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Nýja sviðið)
Mið 22/3 kl. 20:00 aukas. Þri 11/4 kl. 20:00 aukas. Fös 12/5 kl. 20:00 23.sýn
Fös 24/3 kl. 20:00 4. sýn Fös 21/4 kl. 20:00 13. sýn Sun 14/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 25/3 kl. 20:00 5 sýn Lau 22/4 kl. 20:00 14. sýn Mið 17/5 kl. 20:00 aukas.
Sun 26/3 kl. 20:00 6. sýn Sun 23/4 kl. 20:00 15 sýn Fim 18/5 kl. 20:00 aukas.
Þri 28/3 kl. 20:00 aukas. Fim 27/4 kl. 20:00 aukas. Fös 19/5 kl. 20:00 aukas.
Fim 30/3 kl. 20:00 aukas. Fös 28/4 kl. 20:00 16.sýn Lau 20/5 kl. 20:00 aukas.
Fös 31/3 kl. 20:00 7. sýn Lau 29/4 kl. 20:00 17.sýn Sun 21/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 1/4 kl. 20:00 8. sýn Sun 30/4 kl. 20:00 18.sýn Fim 1/6 kl. 20:00 aukas.
Þri 4/4 kl. 20:00 9. sýn Fös 5/5 kl. 20:00 aukas. Fös 2/6 kl. 20:00 aukas.
Mið 5/4 kl. 20:00 10. sýn Lau 6/5 kl. 20:00 19.sýn Lau 3/6 kl. 20:00 aukas.
Fim 6/4 kl. 20:00 11. sýn Sun 7/5 kl. 20:00 20.sýn Mið 7/6 kl. 20:00 aukas.
Fös 7/4 kl. 20:00 aukas. Mið 10/5 kl. 20:00 21. sýn Fim 8/6 kl. 20:00 aukas.
Lau 8/4 kl. 20:00 12. sýn Fim 11/5 kl. 20:00 22.sýn
Frjálst sætaval - Salurinn opnar klukkan 18:30
Úti að aka (Stóra svið)
Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Fim 30/3 kl. 20:00 aukas. Fös 7/4 kl. 20:00 aukas.
Fös 24/3 kl. 20:00 aukas. Fös 31/3 kl. 20:00 aukas. Fim 20/4 kl. 20:00 aukas.
Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn Lau 1/4 kl. 20:00 aukas. Fös 21/4 kl. 20:00 aukas.
Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn. Mið 5/4 kl. 20:00 aukas. Sun 23/4 kl. 20:00 aukas.
Þri 28/3 kl. 20:00 aukas. Fim 6/4 kl. 20:00 aukas. Fim 27/4 kl. 20:00 aukas.
Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 8/4 kl. 20:00 Lau 6/5 kl. 20:00 Mið 24/5 kl. 20:00
Þri 11/4 kl. 20:00 Fös 12/5 kl. 20:00 Fim 25/5 kl. 20:00
Mið 19/4 kl. 20:00 Lau 13/5 kl. 13:00 Fös 26/5 kl. 20:00
Lau 22/4 kl. 20:00 Fös 19/5 kl. 20:00 Lau 27/5 kl. 20:00
Fös 28/4 kl. 20:00 Lau 20/5 kl. 13:00 Sun 28/5 kl. 20:00
Glimmerbomban heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 26/3 kl. 13:00 aukas. Sun 23/4 kl. 13:00 aukas. Sun 14/5 kl. 13:00 aukas.
Lau 1/4 kl. 13:00 aukas. Sun 30/4 kl. 13:00 aukas.
Lau 8/4 kl. 13:00 aukas. Sun 7/5 kl. 13:00 aukas.
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Sun 26/3 kl. 13:00 aukas. Lau 1/4 kl. 13:00 aukas. Lau 8/4 kl. 13:00 aukas.
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Illska (Litla sviðið)
Lau 1/4 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar - Aðeins þessar sýningar
Hún Pabbi (Litla svið )
Lau 8/4 kl. 20:00 aukas. Mið 19/4 kl. 20:00 aukas.
Í samstarfi við leikhópinn Trigger Warning. Síðustu sýningar!
Fórn (Allt húsið)
Fim 23/3 kl. 19:00 2. sýn Sun 2/4 kl. 19:00 4. sýn
Mið 29/3 kl. 19:00 3. sýn Sun 9/4 kl. 19:00 5 sýn
Sköpunarkrafturinn ræður ríkjum um allt leikhúsið - Aðeins þessar fimm sýningar.
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Mið 22/3 kl. 10:00 Fim 23/3 kl. 10:00 Fös 24/3 kl. 10:00
Mið 22/3 kl. 11:30 Fim 23/3 kl. 11:30 Fös 24/3 kl. 11:30
Mið 22/3 kl. 13:00 Fim 23/3 kl. 13:00
Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 26/3 kl. 13:00 Sun 2/4 kl. 13:00 Sun 23/4 kl. 16:00
Sun 26/3 kl. 16:00 Sun 2/4 kl. 16:00 Sun 30/4 kl. 13:00
Lau 1/4 kl. 13:00 Sun 9/4 kl. 13:00 Sun 30/4 kl. 16:00
Lau 1/4 kl. 16:00 Sun 23/4 kl. 13:00
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Húsið (Stóra sviðið)
Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 31/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 27/4 kl. 19:30 10.sýn
Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 5/4 kl. 19:30 8.sýn
Fim 30/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 22/4 kl. 19:30 9.sýn
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Fös 24/3 kl. 19:30 Frums Þri 4/4 kl. 19:30 6.sýn Fös 21/4 kl. 19:30 11.sýn
Lau 25/3 kl. 19:30 2.sýn Fim 6/4 kl. 19:30 7.sýn Lau 22/4 kl. 19:30
Mið 29/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 7/4 kl. 19:30 8.sýn Fim 27/4 kl. 19:30
Fim 30/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 9/4 kl. 19:30 9.sýn Fös 28/4 kl. 19:30
Fös 31/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 19/4 kl. 19:30 10.sýn Lau 29/4 kl. 19:30
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Lau 25/3 kl. 20:00
Varmahlíð
Sun 23/4 kl. 19:30
Lau 1/4 kl. 19:30 Sun 30/4 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 23/3 kl. 20:30 Lau 25/3 kl. 20:00 Fös 31/3 kl. 20:30
Fös 24/3 kl. 20:30 Lau 25/3 kl. 22:30 Fös 31/3 kl. 23:00
Fös 24/3 kl. 23:00 Fim 30/3 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 22/3 kl. 20:00 Fim 6/4 kl. 20:00 Festival Mið 12/4 kl. 20:00
Mið 29/3 kl. 20:00 Fös 7/4 kl. 19:00 Festival Mið 19/4 kl. 20:00
Mið 5/4 kl. 20:00 Festival Lau 8/4 kl. 19:00 Festival Mið 26/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Álfahöllin (Stóra sviðið)
Lau 8/4 kl. 19:30 Frums Fös 28/4 kl. 19:30 5.sýn Fös 5/5 kl. 19:30
Mið 19/4 kl. 19:30 3.sýn Lau 29/4 kl. 19:30 6.sýn
Fös 21/4 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/5 kl. 19:30 7.sýn
Ný sýning eftir Þorleif Örn Arnarsson!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Lau 13/5 kl. 17:00 Sun 14/5 kl. 17:00
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.