Morgunblaðið - 22.03.2017, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.03.2017, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Efnisskráin samanstendur að mestu af frumsaminni tónlist ásamt vel völdum lögum nokkurra djass- meistara samtímans,“ segir saxó- fónleikarinn Ólafur Jónsson sem ásamt kvartetti sínum leikur á tón- leikum Jazzklúbbsins Múlans á Björtuloftum, 5. hæð Hörpu, í kvöld kl. 21. „Flest laganna samdi ég á síðustu tveimur árum, en síðan slæðast eldri lög með í bland. Meðal annars tvö lög sem eru ríflega tutt- ugu ára gömul,“ segir Ólafur og tekur fram að lögin séu af ýmsum toga. „Þetta er frekar aðgengileg djasstónlist í hefðbundnum stíl, allt frá sving til ballaðna með viðkomu í latíntónlist.“ Kvartett Ólafs Jónssonar skipa auk Ólafs Eyþór Gunnarsson á pí- anó, Þorgrímur Jónsson á bassa og trommuleikarinn Scott McLemore. „Við Þorgrímur og Scott höfum leikið saman undir merkjum Jóns- son & More, en nú bætist Eyþór í hópinn. Við þekkjumst vel í brans- anum, enda leikið saman í ýmsum myndum með ólíkum hópum,“ segir Ólafur sem komið hefur víða við og tekið þátt í fjölmörgum tónleikum og uppákomum síðustu tvo áratug- ina eða svo ásamt því að vera með- limur í Stórsveit Reykjavíkur. „Við lékum hluta laganna á tón- leikum í fyrra, en mikilvægt er að prófa efnið á tónleikum áður en far- ið er í upptökur,“ segir Ólafur, en kvartettinn heldur í hljóðver í lok apríl til að taka upp fyrstu sóló- plötu Ólafs. „Platan er væntanleg í ágúst, en í þeim sama mánuði fagna ég fimmtugsafmæli mínu.“ Þess má að lokum geta að miðar fást í miðasölu Hörpu og á vefsíð- unum harpa.is og tix.is. Kvartett Félagarnir Eyþór Gunnarsson, Þorgrímur Jónsson, Ólafur Jóns- son og Scott McLemore leika á Múlanum í kvöld og eru á leið í hljóðver. Prófa efnið fyrir upptökur í apríl  Kvartett Ólafs Jónssonar á Múlanum Listasafnið á Akureyri auglýsti í janúar eftir umsóknum um þátt- töku í Sumarsýningu safnsins sem stendur yfir dagana 10. júní – 27. ágúst og bárust umsóknir frá 47 listamönnum og yfir 100 verk, en forsenda umsóknar var að lista- menn byggju og/eða störfuðu á Norðurlandi eða hefðu tengingu við svæðið. Dómnefnd valdi verk eftir 21 listamann og listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Aðal- steinn Þórsson, Arnar Ómarsson, Auður Lóa Guðnadóttir, Auður Óm- arsdóttir, Árni Jónsson, Bergþór Morthens, Björg Eiríksdóttir, Bryn- hildur Kristinsdóttir, Erwin van der Werve, Helga Björg Jónasar- dóttir, Hertha Richardt Úlfars- dóttir, Hildur Ása Henrýsdóttir, Jónborg Sigurðardóttir, Jónína Björg Helgadóttir, Karl Guðmunds- son, Magnús Helgason, Rebekka Kühnis, Sara Björg Bjarnadóttir, Sigríður Huld Ingvarsdóttir, Snorri Ásmundsson og Svava Þórdís Bald- vinsdóttir Júlíusson. Ketilhúsið mun hýsa sýninguna sökum fram- kvæmda í aðalsýningarými Lista- safnsins. Skjóldalur Verk eftir Rebekku Kühnis. 21 listamaður valinn á sumarsýningu Útvarpsþáttur um vinnu myndlist- arkonunnar Huldu Rósar Guðna- dóttur við Reykjavíkurhöfn hlaut á dögunum gullverðlaun fyrir besta ferðaþáttinn í þýsku útvarpi árið 2016. Höfundur þáttarsins er blaða- konan Wibeke Kueneke. Á árunum 2010 til 2016 fylgdist Hulda grannt með þróun við Reykjavíkurhöfn í myndlistarrann- sóknarverkefni sínu Keep Frozen og urðu mörg verk til út frá þeirri vinnu, m.a. ljóðræna heimildar- myndin Keep Frozen þar sem fylgst var með löndun á fiski og körlunum sem starfa við hana. Kueneke heimsótti Reykjavík í tvígang og fylgdi Huldu um hafnar- svæðið, tileinkaði sér þekkingu hennar og sýn á gang mála og kynnti sér gagnrýnispunkta sem Hulda hafði viðað að sér á undan- förnum árum, eins og segir í til- kynningu. Útkoman varð útvarps- þáttur sem útvarpað var af þýska ríkisútvarpinu í desember í fyrra og hlaut hann Gull-Kólumbusinn fyrir besta ferðaþátt í Þýskalandi árið 2016, sem fyrr segir. Listakonan Hulda Rós Guðnadóttir. Þáttur um Huldu hlaut gullverðlaun Ævintýrið um prins í álögum sem verður ekki aflétt nema stúlka verði ástfangin af honum áður en rós sem geymd er í höll hans deyr. Bönnuð börnum yngri en 9 ára. Metacritic 66/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.10, 18.00, 20.00, 20.50, 22.20, 22.40 Sambíóin Egilshöll 17.20, 18.00, 20.00, 21.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.10, 18.00, 20.00, 22.40 Sambíóin Akureyri 17.10, 20.00, 22.50 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.40 Beauty and the Beast Get Out 16 Allison vill kynna Chris fyrir foreldrum sínum, en Chris hefur nokkrar áhyggjur, hann er hræddur um að foreldrar hennar taki sér ekki vel þar sem þau eru hvort af sínum kynþætt- inum. Metacritic 83/100 IMDb 8,3/10 Laugarásbíó 20.00, 22.15 Smárabíó 17.50, 20.10, 22.30 Háskólabíó 18.10, 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20 Logan 16 Wolverine er búinn að eldast, heilsu hans hefur hrakað, hann býr við stöðuga verki, og á við drykkjuvandamál að stríða. Logan er að niðurlotum kominn en þarf að hugsa um hinn heilsulitla Prófessor X þar sem þeir fela sig nærri landamær- um Mexíkó. Metacritic 75/100 IMDb 9,0/10 Laugarásbíó 17.15, 22.30 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.45 Smárabíó 17.10, 19.50, 22.10, 22.45 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.40 Kong: Skull Island 12 Könnunarleiðangur á hina dularfullu Hauskúpueyju snýst fljótlega upp í baráttu upp á líf og dauða. Metacritic 63/100 IMDb 7,5/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.10, 22.40 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.40 Sambíóin Kringlunni 17.30, 21.00, 22.40 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30 Smárabíó 16.50, 19.30, 20.00, 22.40 A Dog’s Purpose 12 Metacritic 43/100 IMDb 4,9/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 La La Land Þau Mia og Sebastian eru komin til Los Angeles til að láta drauma sína rætast. Morgunblaðið bbbbb Metacritic 93/100 IMDb 8,5/10 Sambíóin Kringlunni 20.00 Fist Fight 12 Þegar kennari kemur því til leiðar að samkennari hans er rekinn, þá er skorað á hann í slag eftir skóla. Metacritic 37/100 IMDb 5,9/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.50, 20.00, 22.10 Hidden Figures Saga kvennana sem á bak við eitt af mikilvægustu af- rekum mannkynssögunnar. Metacritic 74/100 IMDb 7,9/10 Smárabíó 17.00, 19.50 Háskólabíó 18.10, 21.10 Borgarbíó Akureyri 17.30 Manchester by the Sea 12 Lee er skyldaður til að snúa heim og hugsa um yngri frænda sinn. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 96/100 IMDb 8,1/10 Háskólabíó 18.00 Borgarbíó Akureyri 17.30 Bíó Paradís 17.15 Hjartasteinn Örlagarík þroskasaga sem fjallar um sterka vináttu tveggja drengja. Morgunblaðið bbbbm IMDb 7,9/10 Smárabíó 17.00 Háskólabíó 18.00, 21.10 T2: Trainspotting 12 Tuttugu ár eru liðin síðan Renton kom á heimaslóð- irnar. Morgunblaðið bbbmn Metacritic 62/100 IMDb 7,9/10 Smárabíó 22.40 Split 16 Kevin er klofinn persónuleiki og með 23 persónuleika. Metacritic 62/100 IMDb 7,5/10 Laugarásbíó 20.00, 22.30 John Wick: Chapter 2 16 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 75/100 IMDb 8,6/10 Laugarásbíó 20.00 Rock Dog Útvarp dettur af himnum of- an og beint í hendurnar á tíbetskum Mastiff risahundi. Metacritic 49/100 IMDb 5,7/10 Sambíóin Álfabakka 18.00 Sambíóin Akureyri 18.00 The Lego Batman Movie Morgunblaðið bbbmn Metacritic 75/100 IMDb 7,9/10 Laugarásbíó 17.40 Sambíóin Álfabakka 17.40 Stóra stökkið IMDb 6,9/10 Munaðarlaus stúlka leggur á ráðin um að strjúka frá mun- aðarleysingjahælinu. Laugarásbíó 18.00 Smárabíó 15.45 Toni Erdmann Morgunblaðið bbbbm Metacritic 94/100 IMDb 7,7/10 Bíó Paradís 18.00 Moonlight Myndin segir uppvaxtarsögu svarts, samkynhneigðs manns á Florida. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 99/100 IMDb 8,2/10 Bíó Paradís 20.00 The Other Side of Hope Metacritic 89/100 IMDb 7,7/10 Bíó Paradís 18.00 Certain Women Myndin fjallar um þrjár kon- ur í smábæ og er byggð á smásagnasafni Maile Meloy. Metacritic 81/100 IMDb 6,6/10 Bíó Paradís 22.00 Frantz Metacritic 67/100 IMDb 7,5/10 Bíó Paradís 22.30 Paterson Myndin fjallar um strætóbíl- stjóra sem fer eftir ákveðinni rútínu á hverjum degi en styttir sér stundir með því að semja ljóð. Morgunblaðið bbbbb Metacritic 90/100 IMDb 7,7/10 Bíó Paradís 22.00 Kvikmyndir bíóhúsannambl.is/bio Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.