Morgunblaðið - 22.03.2017, Qupperneq 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017
✝ Sturla Sig-hvatsson fædd-
ist 18. nóvember
1947 í Reykjavík
Hann lést 15. mars
2017 á Landspít-
alanum við Hring-
braut.
Foreldrar hans
voru Sighvatur
Bjarnason frá
Akranesi, f. 17.
september 1911, d.
29. janúar 1991, og Jórunn Ár-
mannsdóttir frá Akranesi, f. 2.
janúar 1917, d. 8. nóvember
2000. Systur hans eru Kristín
Sighvatsdóttir, f. 14. júní 1946,
á Akranesi og
Helga Sighvats-
dóttir, f. 21. júní
1952 í Reykjavík,
og systurdóttir er
Guðlaug Jóns-
dóttir, f. 1. nóv-
ember 1968 í
Reykjavík. Sturla
var félagi í Arki-
tektafélagi Íslands
og öflugur liðs-
maður í Íslenska
íhugunarfélaginu.
Sturla verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni í dag, 22.
mars 2017, klukkan 15.
Elsku Sturla kvaddi okkur í
hinsta sinn 15. mars, friðsæll að
vanda og í blíðum svefni.
Sturla var langt á undan sinni
samtíð og snemma á skólaárunum
í Þýskalandi þar sem hann stund-
aði nám í arkitektúr, kynntist
hann innhverfri íhugun og Mah-
arishi Mahesh Yogi.
Þetta var ekki svo þekkt þá
nema bara Bítlarnir sem sóttu í
aðstoð og friðsæld Maharishi og
innhverfa íhugun. En Sturla okk-
ar hafði trú á alheiminum og
þeirri jákvæðu orku sem skapast
þegar fallegar hugsanir og frið-
sæld ráða ríkjum yfir ótta og
reiði. Hann helgaði líf sitt þessari
iðju og stóð sem næst Maharishi
sjálfum í Hollandi og ferðaðist
þaðan til Indlands, Bandaríkj-
anna, Ítalíu og víðar í þeirri trú að
ljósið skíni hæst þegar fólk kemur
saman og biður fyrir friðsælli og
betri heimi. Í dag hefur verið vís-
indalega sannað að hugurinn,
orkan og innhverf íhugun hefur
varanleg bætandi áhrif á heiminn.
Sturla þurfti enga sönnun,
hann vissi þetta bara, enda bráð-
velgefinn maður og lét gott af sér
leiða hvar sem hann kom.
Sturla Sighvatsson var fæddur
18. nóvember, 1947 í Reykjavík.
Hann er sonur yndislegra for-
eldra, Sighvats Bjarnasonar og
Jórunnar Ármannsdóttur.
Hann var besti vinur systra
sinna, Kristínar Sighvatsdóttur
og Helgu Sighvatsdóttur, á upp-
eldisárum þeirra systkina og mik-
ill leikfélagi. Hann vildi alltaf
passa upp á systur sínar og á
sumrin nutu þau útivistar hja
frændfólki í sveitinni í Þykkvabæ.
Sturla útskrifaðist sem stúdent
frá Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1967, og varð master í arki-
tektúr frá Technische Universität
Carolo Wilhelmina zu Braunsch-
weig árið 1974.
Hann vann sem arkitekt í
fjölda ára víðs vegar um heiminn.
Veikindi hrjáðu bróður okkar
og frænda þegar hann flutti til Ís-
lands aftur árið 2000 og lifði hann
einföldu, friðsælu lífi s.l. ár við
sjávargötuna í Reykjavík.
Við munum sakna þess að fara
með honum í göngutúra og eft-
irmiðdagskaffi og alltaf var hann
mikill herramaður við systur sín-
ar, hann elsku Sturla.
Ljós Sturlu mun skína áfram
þótt farinn sé hann af jörðu og
hans framlag til friðar mun lifa
áfram. Hans trú á alheiminn mun
styrkja okkar trú um friðsæld og
umhyggju.
Megir þú hvíla í friði, elsku
Sturla okkar, og ljós þitt halda
áfram að skína.
Kristín Sighvatsdóttir,
Helga Sighvatsdóttir,
Guðlaug Jónsdóttir.
Kveðja frá Íslenska
íhugunarfélaginu
Sturla var við nám í arkitektúr
í Þýskalandi árið 1970 þegar hann
kynntist Maharishi Mahesh Yogi
sem þá var heimsfrægur fyrir að
hafa kennt Bítlunum hugleiðslu-
tækni sína: Transcendental Me-
ditation. Sturla hreifst af kenn-
ingum þessa indverska yoga um
heilbrigða lífshætti og frið á jörð,
einkum því atriði að ein einföld
andleg tækni gæti komið einstak-
lingnum andlega og líkamlega í
svo friðsælt ástand að ekki bætti
aðeins persónulega líðan heldur
hefði jafnframt jákvæð áhrif á alla
aðra í kring og framgöngu þeirra í
veröldinni.
Heim kominn nýútskrifaður
arkitekt vann hann við teikningar
hjá ýmsum þekktum arkitektum
svo sem Ingimundi Sveinssyni.
Fljótlega opnaði Sturla eigin
teiknistofu á Hverfisgötu 18 þar
sem hann teiknaði meðal annars
einbýlishús frændfólks síns á
Akranesi, ýmis smærri verk í
Reykjavík og tók þátt í sam-
keppnum eins og kappsamra
ungra arkitekta er háttur.
Sturla lagði áfram stund á hug-
leiðsluna og hóf, ásamt nokkrum
félaga sinna sem einnig höfðu
lært Transcendental Meditation
erlendis, að kynna þessa aðferð á
Íslandi undir nafninu Innhverf
íhugun. Brátt tóku hin andlegu
fræði hug hans allan. Hann lagði
niður arkitektastofuna, flutti aft-
ur utan og settist að í höfuðstöðv-
um Maharishi, fyrst í Sviss og síð-
ar í Hollandi og Bandaríkjunum.
Þar tók hann þátt í byggingar-
starfsemi á vegum íhugunar-
hreyfingar Maharishi og stóð
meðal annars, ásamt öðrum arki-
tektum, að byggingu bústaðar
meistarans í Vlodrop í Hollandi
meðfram því að stunda íhugunina
og leggja sig af kappi eftir fræði-
legri hlið tækninnar undir hand-
arjaðri Maharishi. Þannig má til
sanns vegar færa að Sturla hafi
varið starfsævi sinni á andlegum
sviðum í þágu meðborgara sinna,
trúr hugsjóninni um að bæta
heiminn með einfaldri huglægri
einstaklingstækni. Eftir 25 ára
dvöl erlendis flutti Sturla heim á
ný eftir að hann fór að finna fyrir
veikindum. Hann bjó alla tíð einn
og stundaði andlega iðkun sína í
Reykjavík til æviloka.
Íslenska íhugunarfélagið þakk-
ar að leiðarlokum fyrir það óeig-
ingjarna starf sem Sturla vann í
þágu íhugunarhreyfingar Mahar-
ishi og vottar fjölskyldu hans og
vinum dýpstu samúð.
Ari Halldórsson,
Kristinn Arnbjörnsson,
Sigurþór Aðalsteinsson.
Sturla Sighvatsson
Símtalið sem ég
fékk að morgni 3.
mars er eitt erfiðasta
símtal sem ég hef
fengið. Samt vissi ég að þetta
myndi gerast fyrr en síðar. Var
eiginlega búin að kvíða fyrir þessu
símtali síðan í byrjun desember,
þegar heilsu þinni hrakaði mikið.
En það er ekkert sem gat alveg
búið mann undir að fá þær fréttir
að elsku Jóhannes okkar væri far-
inn að eilífu. Það var erfitt að
ganga inn um dyrnar á Sjávarhól-
um, en þú varst svo friðsæll að sjá
þarna í rúminu þínu, að nú vissi ég
að þú þyrftir ekki að þjást lengur, í
líkamanum sem var búinn að vera
smátt og smátt að gefast upp
vegna veikinda þinna. Ég beið allt-
af eftir að þú myndir opna augun
og segja hæ. Það var eins og þú
værir bara sofandi.
Ég sakna þess svo að fá aldrei
að heyra röddina þína aftur. Þú átt
aldrei aftur eftir að hringja í mig
Jóhannes Hilmar
Gíslason
✝ Jóhannes Hilm-ar Gíslason
fæddist 9. sept-
ember 2000. Hann
lést 3. mars 2017.
Útför Jóhannesar
fór fram 13. mars
2017.
til að bjóða mér í
mat. Aldrei aftur
eftir að heimsækja
mig á flottu skutl-
unni þinni, sem syst-
ur þínar voru svo
duglegar að keyra
þig á út um allt. Það
er svo tómlegt að
koma heim til þín og
sjá þig ekki liggj-
andi í sófahorninu
þínu. Ekki varstu
mikið að kvarta yfir hlutskipti
þínu, þó að oft hefði verið ástæða
til.
Ég á margar góðar minningar
um þig sem ég mun geyma í hjarta
mínu til eilífðar. Þú varst svo hress
og kátur sem barn og gladdir alla í
kringum þig. Og þrjóskur varstu
nú stundum líka. Man þegar ég
var að keyra þig um í vagninum
oftar en einu sinni og það var kom-
inn lúllutími. En þú varst sko ekki
á því að fara að sofa. Sast upp-
réttur og neitaðir að leggjast út af.
Hallaðir þér nú stundum fram á
við þegar svefninn var að sigra, en
alltaf þegar átti að leggja þig niður
þá rumskaðir þú og harðneitaðir
að sofna aftur. Og það var nú ekki
auðveldasta verk í heimi að skipta
á þér. Þú varst eins og lítill ormur,
hlykkjaðist til og frá. Held þú hafir
meira að segja hlegið stundum að
aðförum okkar við þetta verk.
Þú varst alltaf svo þakklátur og
nægjusamur. Ef ég spurði hvað þú
vildir helst fá í afmælis- eða jóla-
gjöf þá var það alltaf „æ bara föt.
Vantar kannski bara sokka eða
nærbuxur“. Ég keypti nú samt
alltaf eitthvað meira með. Þú varst
alltaf svo ánægður með peysurnar
eða buxurnar sem ég gaf þér og
sagðir að Þurí frænka veldi sko
alltaf flottustu fötin.
Alltaf passaðir þú vel upp á allt
sem þú áttir, bæði föt og dót. Ég
man að þú raðaðir bílunum þínum
alltaf í fallega og þráðbeina röð,
sem helst enginn mátti fikta í, því
það eyðilagði systemið sem þú
hafðir á þeim. Tókst jafnvel eftir
ef það var búið að færa einn bíl í
röðinni, þó þar væri bara smáveg-
is.
Þú varst mikill húmoristi og
hafðir svo gaman af því að segja
fólki brandara. Ég veit að þú átt
sko eftir að skemmta mörgum þar
sem þú ert núna.
Elsku Jóhannes. Ég kveð þig
nú í hinsta sinn. Bið þig að skila
kveðju til allra þeirra sem hafa
farið á undan þér og ekki gleyma
Grímu minni. Veit að hún hefur
örugglega tekið vel á móti þér.
Hvíldu í friði, elsku engillinn minn.
Minningin um þig lifir að eilífu.
Þurí.
Okkur langar að minnast fyrr-
verandi nemanda okkar, Jóhann-
esar Hilmars. Jóhannes hóf skóla-
göngu sína í Grunnskóla
Grindavíkur í fyrsta bekk og út-
skrifaðist síðastliðið vor. Fljótlega
fór sá sjúkdómur sem lagði hann
að velli að hafa áhrif á skólagöngu
hans, framvindu í námi og dagleg-
ar athafnir. Hann þurfti stöðugt
að aðlagast breyttu heilsufari og
aðstæðum.
Jóhannes naut þess að vera í
skólanum innan um félaga sína,
samnemendur og samstarfsfólk,
sem hann kallaði jafnan banda-
menn. Sá tími sem við fengum
með honum er okkur öllum mjög
dýrmætur og margar góðar minn-
ingar lifa. Við minnumst Jóhann-
esar sem glaðværs drengs sem
tókst á við ólík viðfangsefni af
áhuga og jákvæðni. Þverrandi
heilsu mætti hann af æðruleysi og
þrautseigju. Hann var húmoristi
mikill og grallari sem sá jákvæðar
og spaugilegar hliðar á málunum
og skellti fram ýmsum frösum og
bröndurum í sífellu. Það var í ófá
skipti sem hann sagði m.a. að
amma sín væri heimahangandi
húsmóðir, að fram undan væri
flöskudagur (föstudagur) og að 14.
jólasveinninn væri Kortaklippir,
auðvitað fylgdu þessu hlátrasköll.
Hann smitaði umhverfi sitt af
gleði, jákvæðni og hlýju, var ljúfur
með eindæmum og hafði góða
nærveru. Hann hafði lag á að laða
fólk að sér og nutu allir þess að
eiga í samskiptum við hann.
Bekkjarfélagar hans reyndust
honum einstaklega vel og sýndu
honum ætíð mikla umhyggju og
velvild. Þá var einstakt að fylgjast
með því hversu fallegt samband
var á milli Jóhannesar og systra
hans innan skólans. Systrunum
var umhugað um að honum liði vel
og kærleikurinn þeirra á milli var
augljós. Jóhannes kenndi okkur
starfsfólki og samnemendum svo
sannarlega margt um lífið og til-
veruna þann tíma sem við áttum
með honum. Það voru forréttindi
að hafa hann hjá okkur þessi ár.
Aðdáunarvert hefur verið að
fylgjast með því hvernig fjöl-
skylda Jóhannesar tókst á við
veikindi hans og gerði allt sem í
hennar valdi stóð til að skapa hon-
um tækifæri að upplifa og taka
þátt í leik og starfi. Þau voru ávallt
lausnamiðuð og fundu leiðir til
þess að hann gæti verið þátttak-
andi í öllu því sem þau tóku sér
fyrir hendur.
Við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast og starfa með
Jóhannesi Hilmari. Við geymum í
hjörtum okkar og höldum á lofti
minningu um góðan dreng. Guð
blessi þig og varðveiti minningu
þína.
Elsku Klara, Gísli, Ásdís Hild-
ur, Halldóra Rún og aðrir ástvinir,
missir ykkar er mikill. Megi góður
Guð veita ykkur styrk í ykkar sorg
og lífsins verkefnum sem fram
undan eru.
Fyrir hönd starfsfólks Grunn-
skóla Grindavíkur,
Elín Björg og María Eir.
„Þar sem mann-
kostirnir eru, þar eru
mannalætin óþörf.“
Þessi orð Sigurðar
skólameistara á Ak-
ureyri fóru um hug minn, þegar
Pétur bekkjarbróðir minn kvaddi.
Drengskapur og ljúflyndi ein-
kenndu hann á skólaárunum. Það
gleymist heldur ekki, hve sterkur
hann reyndist við föðurmissi 17 ára
gamall.
Þjóðhagfræði varð fyrir valinu,
er haldið var til framhaldsnáms.
Þar fékk hann ekki aðeins dýrmæt-
an grundvöll fyrir lífsstarf sitt.
Hann reyndist ekki síður aflögufær
í þeim efnum fyrir íslenskt atvinnu-
líf. Pétur var svo fljótur að hugsa
og átti nánast óbrigðula dóm-
greind, þegar kom að þörf þjóð-
félagsins og framþróun iðnaðar og
skyldra atvinnugreina. Hann varð
þar bæði frumkvöðull og framúr-
stefnumaður og um tíma áhrifa-
valdur á stefnu íslenskra stjórn-
valda.
Viðfangsefnin voru krefjandi, en
hann gaf sér einnig tíma fyrir aðra.
Ég naut hjálpsemi hans bæði per-
sónulega og fyrir málefni, sem ég
barðist fyrir. En hans mátti þá ekki
geta. Drengskapur og bróðerni
voru ríkjandi í öllu sem við áttum
sameiginlegt.
Ég dáðist að því, hve hann tók
sjóndepru sinni á efri árum með
miklu jafnaðargeði. Hin síðari ár
Pétur Pétursson
✝ Pétur Péturs-son fæddist í
Reykjavík 8. febr-
úar 1931. Hann lést
2. mars 2017.
Útför Péturs fór
fram 14. mars 2017.
var eins og hann vildi
gott úr öllu gera,
leggja hvaðeina út á
betri veg. Bærist tal-
ið að eigin fram-
kvæmdum og stór-
virkjum, var það ætíð
rætt eins og um sjálf-
sagða hluti væri að
ræða.
Pétur minntist
þess gjarnan, þegar
við vorum orðnir ná-
grannar og hittumst þá oft, hve
þakklátur hann væri fyrir það, að
síðustu 23 árin hefði ekki komið
dropi af áfengi inn fyrir hans varir.
Það er í raun sterk staðfesting
þess, hve öflugur persónuleiki hans
var og skal þá minnt á orð Ritning-
arinnar, að sá, sem sigrar sjálfan
sig, er meiri en sá sem vinnur borg-
ir.
Þakklætið var afar sterkt fyrir
allt sem honum hafði auðnast að
koma í framkvæmd. Það var þó
enn sterkara þegar kom að fjöl-
skyldu hans, þar sem hann vissi, að
var í raun öll hans auðlegð. Björk,
eiginkona hans, var hans góði eng-
ill og sterki stuðningsmaður hin
síðari ár, og það var gleði hans að
geta hlynnt að henni.
Þannig gekk minn góði vinur
gæfuleið efri ára. Hann bar enn
með sér „authoritet“ starfsáranna,
en með lítillæti göfugmennisins.
Hann sannaði orð skólameistarans:
„Þar sem mannkostirnir eru, þar
eru mannalætin óþörf.“
Ég hygg ég mæli fyrir hönd
okkar allra bekkjarsystkinanna,
stúdentanna frá MR 1951, er ég
segi : Góður Guð blessi okkar
ágæta bróður.
Þórir Stephensen.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AÐALBJÖRG JÓNA
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Lalla,
Garðabraut 45,
Akranesi,
lést á Landspítalanum mánudaginn 13. mars. Útför hennar fer
fram frá Akraneskirkju föstudaginn 24. mars klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Gylfi Þórðarson
Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir
Sólveig Jóna Ásgeirsdóttir
Ásgeir Ásgeirsson Hege Viken
Guðmundur Ásgeirsson Margrét Ýr Einarsdóttir
Agnar Ásgeirsson Elsa Jóna Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar
eiginmanns míns, föður, afa og langafa,
ÞÓRIS HREGGVIÐS STEFÁNSSONAR
skipstjóra.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dalbæjar fyrir frábæra umönnun.
Hildur Hansen
Þórhildur Arna Þórisdóttir Ingvar Páll Jóhannsson
Katrín Sif Ingvarsdóttir Snævar Örn Ólafsson
Þórir Ingvarsson
Hrafnar Logi Snævarsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
GUÐSTEINN VIGNIR GUÐJÓNSSON
frá Tunguhálsi,
sem lést á heimili sínu föstudaginn 17.
mars, verður jarðsunginn frá Sauðárkróks-
kirkju laugardaginn 1. apríl klukkan 11.
Jarðsett verður í Sauðárkrókskirkjugarði.
Inga Björk Sigurðardóttir
Valborg Inga Guðsteinsd. Ólafur Kr. Jóhannsson
Heiðrún Edda Guðsteinsd. Haraldur Birgisson
Guðrún Brynja Guðsteinsd. Gylfi Ingimarsson
Ásdís Anna Guðsteinsd. Magnús Kristjánsson
og barnabörn
Hjartkær eiginmaður minn,
JÓHANN SIGVALDASON
kennari,
Undirhlíð 3, Akureyri,
er látinn.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 24. mars klukkan 10.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á dvalarheimilið Hlíð.
Guðný Matthíasdóttir