Morgunblaðið - 22.03.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Mitsubishi Outlander PHEV hefur heldur betur slegið í gegn. Þessi fjórhjóladrifni gæðingur gengur bæði
fyrir rafmagni og bensíni, svo þú kemst allra þinna leiða með góðri samvisku. Komdu og prófaðu!
Mitsubishi Outlander PHEV
Sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn frá:
4.990.000 kr.
FYRIR HUGSANDI FÓLK
MITSUBISHI OUTLANDER PHEV
5 ára ábyrgð
RAFMAGN EÐA BENSÍN?
ÞÚ VELUR.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta gerðist mjög hratt, ég stökk
út í þegar kallið kom. Ég kom að
mjög góðu og skipulegu búi, Egill
hafði unnið gríðarlegt verk á einu
ári,“ segir Heiðar Lind Hansson
sagnfræðingur, annar höfundur
Sögu Borgarness í 150 ár. Hann tók
við sögurituninni þegar frændi
hans, Egill Ólafsson, sagnfræðingur
og blaðamaður á Morgunblaðinu,
varð bráðkvaddur í byrjun árs 2015.
Þess er minnst í Borgarnesi í dag
og á næstunni að 150 ár eru liðin frá
því staðurinn fékk verslunarrétt-
indi. Ritun Sögu Borgarness er lið-
ur í því. Sagan er tveggja binda
verk, „Byggðin við Brákarpoll“ og
„Bærinn við brúna“. Hún er nærri
900 blaðsíður með á sjötta hundrað
mynda. Ritið kemur formlega út á
afmælishátíð sem haldin verður 29.
apríl en forsala hefst við opnun ljós-
myndasýningar í Safnahúsinu í dag.
Tíminn gegnum linsuna
„Við hugsum þetta sem ákveðna
framlengingu á myndunum í bók-
inni. Ákveðið var að nálgast við-
fangsefnið í gegnum fjóra ljós-
myndara, heimamenn sem tekið
hafa myndir frá árinu 1920 til dags-
ins í dag,“ segir Heiðar sem valdi
myndirnar og skrifaði texta með
þeim. Ljósmyndararnir eru Friðrik
Þorvaldsson hafnarvörður sem
flutti til Borgarness árið 1920, Ein-
ar Ingimundarson málarameistari,
Júlíus Axelsson og Theodór Kr.
Þórðarson yfirlögregluþjónn. Einar,
Júlíus og Theodór eru innfæddir
Borgnesingar og Theodór býr þar
enn.
Sýningin heitir „Tíminn gegnum
linsuna“. Heiðar segir að áhersla sé
lögð á að sýna mannlífið á staðnum í
nærri hundrað ár. „Myndirnar sýna
á vissan hátt stökkbreytingu, ef litið
er á elstu og yngstu myndirnar. Á
myndum Friðriks sést að búskapur
var stór hluti af lífi Borgnesinga en
myndir Theodórs sýna fjölbreytt
frístundastarf.
Margt kom á óvart
„Nei, ég sé ekki eftir því. Viður-
kenni að stundum komu stundir þar
sem maður fann skilafrest nálgast
og að ekki væri nægur tími til
stefnu. Þetta var mikið verkefni og
ég upplifði raunir sagnfræðingsins
um það hvaða efni ætti að halda
inni og hverju að sleppa. Þetta var
góður skóli að fara í gegnum og
verður fróðlegt að sjá hvernig fólk-
ið í Borgarnesi tekur þessu,“ segir
Heiðar Lind.
Höfundurinn er Borgnesingur og
því vel kunnugur þar en hann við-
urkennir að margt hafi komið sér á
óvart við söguritunina. „Það sést
vel hversu samofið Borgarnes er
sveitunum í kring. Þegar sam-
dráttur er í sveitunum er sam-
dráttur í Borgarnesi. Mér fannst
einnig gaman að kynnast landbún-
aði í þéttbýli sem Egill hafði mikinn
áhuga á.
Segja má að fyrstu áratugina hafi
Borgnesingar verið bændur sem
stunduðu launaða vinnu í hjáverk-
um. Þá má nefna hversu mikill iðn-
aðarbær Borgarnes var. Eftir að
útgerðarævintýrinu lauk um miðja
síðustu öld spruttu upp nokkur öfl-
ug iðnfyrirtæki sem sum eru enn
starfandi, eins og Vírnet og Loft-
orka,“ segir Heiðar.
„Ég stökk út í
þegar kallið kom“
Borgnesingar minnast 150 ára verslunarafmælis
Ljósmyndasýning opnuð og gefin út Saga Borgarness
Ljósmynd/Sigfús Eymundsson
Borgarnes Elstu húsin í Borgarnesi sjást á mynd sem tekin var fyrir árið
1907. Kaupangur, lengst til vinstri, er elsta íbúðarhúsið, byggt árið 1876.
Ljósmynd/Guðrún Jónsdóttir
Söguritun Heiðar Lind Hansson er
annar höfundur að Sögu Borgarness.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar kemur
saman til hátíðarfundar í dag í til-
efni af 150 ára afmælinu. Fundurinn
hefst klukkan 15 og verður í Kaup-
angi sem er elsta hús staðarins. Að
fundi loknum verður tekin fyrsta
skóflustunga að viðbyggingu við
Grunnskóla Borgarness. Klukkan 17
verður opnuð ljósmyndasýning í
Safnahúsi Borgarness.
Hátíðarsamkoma verður haldin í
Hjálmakletti 29. apríl næstkom-
andi. Íbúum sveitarfélagsins verður
boðið til samsætis. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, verður
heiðursgestur.
Saga Borgarness kemur formlega út á afmælishátíðinni í apríl. Forsala
hefst þó í dag og stendur fram að hátíðinni.UMF Skallagrímur annast for-
söluna og verður meðal annars gengið í hvert hús í Borgarnesi.
Hátíð bæjarbúa haldin í apríl
HÁTÍÐARFUNDUR SVEITARSTJÓRNAR BORGARBYGGÐAR Í DAG
Kaupangur Sveitarstjórn fundar þar.