Morgunblaðið - 22.03.2017, Side 36

Morgunblaðið - 22.03.2017, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 81. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. 1. Ágústa Eva fékk skilaboð að utan 2. Matarfélag Svavars og Þóru … 3. Óvænt félagaskipti Schweinste … 4. Tala saman á ensku í skólanum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Fimm íslenskir og sex skoskir hönnuðir koma í fyrsta sinn saman í nýrri og tilraunakenndri sýningu sem verður opnuð í Galleríi Gróttu á Sel- tjarnarnesi í dag kl. 17. Sýningin ber yfirskriftina Shift og er á dagskrá HönnunarMars. Hönnuðirnir vinna verk sín í leir, tré, eðalmálma og text- íl en meginþema verkanna liggur í breyttri áherslu, stefnu eða fókus. Ellefu hönnuðir á sýningunni Shift  Kvennakór Garðabæjar, undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur, og Kammerkór Hafnarfjarðar, undir stjórn Helga Bragasonar, halda sam- eiginlega tónleika í kvöld kl. 20 í Guð- ríðarkirkju. Sólveig Anna Jónsdóttir leikur með á pí- anó. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með ís- lenskri og er- lendri kóra- tónlist. Kvenna- og kammer- kór syngja saman  Aðrir tónleikar í röðinni Söngva- skáld FTT verða haldnir í Græna herberginu við Lækjargötu í kvöld kl. 21. Á þeim koma fram Snorri Helgason, Ragn- heiður Gröndal, Svavar Knútur og Rósa Guðrún og spila nýtt og gamalt efni í bland. Öll eru þau meðlimir í Fé- lagi tónskálda og textahöfunda, FTT. Söngvaskáld FTT í Græna herberginu Á fimmtudag Gengur í sunnan 13-20 m/s, fyrst vestan til. Snjó- koma eða slydda í fyrstu, síðan talsverð rigning og hlýnar. Á föstudag Suðvestan 15-23 m/s og él, en hægari og þurrt austan til á landinu. Hiti 0 til 4 stig, en svalara til landsins. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir og birtir til upp úr hádegi, fyrst vest- ast. Hiti um frostmark sunnan og suðvestan til. VEÐUR Níunda árið í röð eru KR- ingar komnir í undanúrslit úr- valsdeildar karla í körfubolta, og níunda árið í röð töpuðu þeir ekki leik í 8 liða úrslit- unum. Meistararnir unnu Þór Akureyri í þriðja sinn í gær- kvöld og í þeim eina leik þar sem spennan hélst fram á lokamínútu. Ef aðeins er horft til 8 liða úrslita hefur KR nú unnið 22 leiki í röð, síðan liðið féll út gegn ÍR árið 2008. »2-3 Enn fer KR ósigrað í undanúrslitin „Persónulega finnst mér þetta mjög skrýtið. Ég verð að viðurkenna það. Maður sá það ekki alveg fyrir sér þeg- ar maður var að byrja í þessu fyrir nokkrum árum að maður yrði einhvern tímann leikja- hæstur. En þetta er frá- bært og ég er mjög stoltur af þessu,“ segir Birkir Már Sævars- son sem er leikja- hæstur í íslenska landsliðinu sem mætir Kósóvó á föstudaginn. » 1 Verð að viðurkenna að mér finnst þetta skrýtið Esja er komin í 1:0 í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í ís- hokkíi karla eftir 4:3 sigur á Skautafélagi Akureyrar í fram- lengdum leik í Skautahöll Reykja- víkur í gærkvöldi. Esjumenn voru með þriggja marka forskot fyrir síð- asta leikhlutann en Akureyringar jöfnuðu metin af harðfylgi og knúðu fram framlengingu. »4 Esja með undirtökin eftir framlengdan leik ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þegar Guðrún Eyjólfsdóttir fermdist átti hún sér þann draum æðstan að verða leikkona eins og Rita Hayworth, sem var helsta átrúnaðargoð hennar á þeim tíma. Nær 80 árum síðar rættist draumurinn. Í nýútgefnu árshátíðarmyndbandi hjúkrunar- nema leikur Guðrún, eða Dúna eins og hún er gjarnan kölluð, nemanda sem er enn að bíða eftir einkunnunum, 70 árum eftir að prófum lauk, og segist ekki hafa þolinmæði til þess að bíða lengur. „Ég hef ekki séð myndbandið en tókst þetta ekki ágætlega?“ spyr hún og segir að tilviljun hafi ráð- ið þátttöku hennar. Hún sé í „ellimannakórnum“ á Grund og með henni sé meðal annars afi stúlku nokkurrar í hjúkrunarnámi. Móðir stúlkunnar sé læknir og hún komi stundum og syngi með þeim. „Við tölum auðvitað saman öllum stundum og eitt kvöldið bankaði stúlkan hjá mér og spurði hvort ég vildi gera henni greiða, að segja nokkur orð í mynd sem nemarnir væru að gera. Ég sagðist ekki vilja láta hafa mig að fífli en hún sagði það af og frá og sagði mér hvað ég ætti að gera og segja. Það fór allt í vitleysu svo ég sagði að ég myndi bara tala út frá mínu brjósti og þá gekk allt eins og í sögu.“ Hún leggur áherslu á að hún hafi alltaf látið allt flakka og átt auðvelt með að tala. „Ég geng stöðugt fram af börnunum mínum, en það eina sem gengur á öllum núna er höfuðið, hitt er orðið fúaspýta.“ Dúna hefur alla tíð átt heima í Vesturbænum, ólst upp með níu systkinum hjá efnalitlum for- eldrum sínum í lítilli íbúð á Fálkagötu og síðar á Smyrilsvegi. Eiginmaður hennar var Þórólfur Meyvantsson, sem var sjómaður lengst af og lést fyrir nær fjórum árum, en þau eignuðust fimm börn. Hún sinnti lengi verslunarstörfum en þátt- takan í myndbandinu var frumraun hennar á hvíta tjaldinu. Kaflaskipti við fermingu Þegar Dúna fermdist fékk hún hælaháa skó og saumuð var á hana kápa, en hún fékk kvenveski í fermingargjöf. Hún segir að það hafi kostað 18 krónur og þar sem hún væri fermd og þar með orðin dama vildi hún líka eignast regnhlíf og vera eins og Rita Hayworth. Á þessum árum var hún vinnukona og annaðist 85 ára gamla, fatlaða konu á Grandavegi. Fékk 35 kr. fyrir á mánuði. Hún segist hafa spurt móður sína hvort hún mætti kaupa regnhlíf þegar hún fengi næst útborgað. „„Hvað kostar hún, Dúna mín?“ spurði mamma. „33 krónur,“ svaraði ég. „Ekki held ég að þú sért almennileg, stúlka,“ sagði mamma þá og saup hveljur. En ég lét mér ekki segjast, fór í bæinn, keypti regnhlífina og kom heim með tvær krónur, en þá skilaði maður alltaf laununum sínum heim. Í kjölfarið bað ég guð í heila viku um rigningu svo ég kæmist á rúntinn í Austurstræti í fermingar- kápunni, sem frænka mín saumaði, og hælaháu skónum með veskið og regnhlífina svo strákarnir í bílunum gætu séð mig. Þegar rigningin loks kom fórum við Dídí, vinkona mín, í bæinn. Við ösluðum á hælaháu skónum yfir alla Melana, þar sem ekk- ert var nema pollar og drulla, og þegar við geng- um fyrir hornið á Reykjavíkurapóteki, tók rokið regnhlífina og ég stóð eftir með skaftið. Ég bað guð að hjálpa mér, hélt að ég þyrfti að flytja að heiman, en þegar ég kom aftur heim með leifarnar af regnhlífinni undir fermingarkápunni bar ég mig aumlega við Halla bróður og hann brást vel við, lofaði að bæta mér skaðann svo ég gæti áfram borgað með mér heim. Hann gerði það og þá fór ég beint niður í bæ og keypti aðra regnhlíf. Svona var ég óhlýðin og svo er verið að álasa ungling- unum í dag!“ Dúna áréttar að þegar hún var fermd og þar með orðin dama hafi aðeins eitt komist að. „Ég ætlaði mér að verða leikkona eins og Rita Hay- worth. En það fór alveg út um þúfur, þar til allt í einu núna að dyrnar hafa opnast. Þetta er kannski byrjunin á einhverju nýju? Ég vil hafa líf og fjör í kringum mig, jafnt hér á æskulýðsheimili Vestur- bæjar sem annars staðar, og hver veit hvað gerist í framtíðinni.“ Keypti regnhlíf fyrir launin Morgunblaðið/RAX Regnhlíf með sál „Ég væri ekki til ef mamma hefði ekki keypt þessa regnhlíf,“ segir Gunnar Þórólfs- son um nær 80 ára gamla regnhlíf móður sinnar, sem Dúna heldur á og hefur passað vel upp á alla tíð.  Guðrún Eyjólfsdóttir, köll- uð Dúna, vildi verða leikkona eins og Rita Hayworth

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.