Morgunblaðið - 22.03.2017, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 22.03.2017, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 Við sjávarsíðuna Þeir sem gera sér ferð niður að sjó eiga von á að rekast á fólk sem er að fást við hitt og þetta. Þessi tvö fylgdust með námskeiði á vegum Kajakfélagsins við Gróttu. Kristinn Magnússon Meðalfjöldi íbúa höfuðborgarinnar var tæplega 40 þúsund á árunum 1937 til 1944 – fjölgaði úr 36 í 44 þús- und. Á þessum árum voru byggðar 2.042 íbúðir í Reykjavík. Á síðustu átta árum er meðalfjöldi höfuðborg- arbúa liðlega 120 þús- und og lokið hefur verið smíði á 2.068 íbúðum. Með öðrum orðum: Á sama tíma og meðalfjöldi Reykvíkinga hefur þrefaldast er lokið við 26 fleiri íbúðir en á ár- unum fyrir lýðveldisstofnun. Á árunum 1937 til 1944 var fjölg- un íbúða sem hlutfall af íbúafjölda liðlega 5% en aðeins 1,7% á síðustu átta árum. Ef hlutfallið hefði verið það sama og fyrir og á stríðs- árunum hefði íbúðum fjölgað um 6.200. Með öðrum orðum; íbúðir væru 4.100 fleiri en þær eru í dag. Án fordæma Skúli Halldórsson blaðamaður birti 12. mars sl. sérlega áhuga- verða úttekt á stöðu húsnæðismála á mbl.is undir fyrirsögninni, „Lá- deyða án fordæma á lýðveldistím- anum“. Þar varpar hann ljósi á þann vanda sem er við að glíma í húsnæðismálum – kemst að rótum vandans: Á síðustu átta árum hafa ekki verið reistar jafnfáar íbúðir í Reykjavík í áratugi og aldrei á lýð- veldistímanum. Í fréttaskýringunni kemur fram að Íslendingar hafi verið tæplega 128 þús- und á stríðsárunum en eru nú 338 þúsund. Síðan segir: „Væntanlega þarf engan að furða að eft- irspurn eftir húsnæði á höfuðborgarsvæðinu í dag sé langt umfram framboð, þegar reistar eru í höfuðborg lands- ins álíka margar íbúðir og gert var á tímum Kristjáns tíunda.“ Á síðustu átta árum hafa að með- altali verið byggðar 259 íbúðir á ári í Reykjavík, að því er fram kemur í fréttaskýringunni. Allt frá 2008 hefur fjöldi nýrra íbúða verið langt undir árlegu meðaltali frá árinu 1929. Þá voru Reykvíkingar 26.428. Hirðuleysi og tómlæti Það þarf ekki sérfræðing til að komast að þeirri niðurstöðu að Reykjavíkurborg hefur sýnt hirðu- leysi og tómlæti þegar kemur að húsnæðismálum. Stefna meirihluta borgarstjórnar í skipulagsmálum hefur búið til lóðaskort sem aftur hefur kallað fram gríðarlega hækk- un á kaupverði íbúða og jafnvel enn meiri hækkun á húsaleigu. Sá tími er löngu liðinn að stjórn- endur Reykjavíkurborgar líti á það sem skyldu sína að tryggja nægj- anlegt framboð á lóðum á sann- gjörnu verði. Meirihluti borgar- stjórnar hefur fyrst og síðast áhuga á að þétta byggðina en hefur hvorki skilning né áhuga á að koma í veg fyrir lóðaskort. Þétting byggðar getur verið ágæt en slíkar lóðir eru dýrar, með tilheyrandi flækjustigi. Til að kóróna lóðaskortsstefnuna, hefur meirihluti borgarstjórnar sýnt ótrúlega hugmyndaauðgi við að hækka álögur á húsbyggjendur, jafnt með því að hækka gjöld og innleiða ný s.s. sérstaka viðbótar- greiðslu og gatnagerðargjald fyrir stækkun og nýbyggingar. Öllum öðrum að kenna Í raun hefur Reykjavíkurborg sagt sig frá húsnæðismálum – hætt að taka ábyrgð á þróun þeirra. Vill ekki kappkosta að tryggja nægjan- legt framboð lóða undir fjölbýli, einbýli og raðhús, á skikkanlegu verði. Allur vandi sem borgarbúar glíma við í húsnæðismálum er sagð- ur ríkisvaldinu að kenna. Fyrr í mánuðinum sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kok- hraustur við mbl.is að ríkið hefði skilið unga fólkið eftir með því að þrengja að möguleikum þess. Og svo kenndi hann bönkunum um stöðuna og benti á byggingariðn- aðinn. Í huga borgarstjóra er Reykjavíkurborg með öllu ábyrgð- arlaus á ástandinu. Engu er líkara en að skorturinn, sem hefur verið drifkraftur hækkandi íbúðaverðs og þar með leiguverðs, komi meiri- hluta borgarstjórnar ekkert við. Í þessum efnum eins og öðrum sem miður fara í höfuðborginni liggur sökin hjá öðrum. Fjárhagur A-hluta er bágborinn (svo ekki séu notuð sterkari orð) – ekki vegna fjárhagslegrar óstjórnar heldur vegna „skorts á tekjustofnum“, eins og borgarstjóri skýrði út. Þessi skortur á tekjustofnum varð líklega til þess að borgin taldi sig illa ráða við að fjarlægja dekkjakurl af sparkvöllum án sérstakrar fjár- hagsaðstoðar frá ríkinu. Undirliggjandi mein Vandinn sem blasir við í húsnæð- ismálum verður því miður ekki leystur með því einu að ríkissjóður auki húsnæðisstuðning, – hækki leigu- og/eða vaxtabætur. Vandinn verður heldur ekki leystur með því að búa til fjárhagslegt svigrúm fyr- ir ungt fólk með því að gefa því heimild til að nýta séreignasparnað – skattfrjálst – til að eignast fyrstu íbúðina. Við þær aðstæður sem ríkja á húsnæðismarkaði er ekki við öðru að búast en að mestallt verði étið upp í tilbúnum skorti. Þannig eru líkur á því að aukinn stuðningur við leigjendur leiði til hærra leiguverðs og þar sem hag- ur leigusala batnar en leigjendur sitja eftir með sárt ennið, jafnvel í verri stöðu en áður. Svipað kann að gerast á sölumarkaði íbúða. Þegar barist er við skort munu seljendur en ekki kaupendur hagn- ast. Þegar allt er komið í kaldakol í húsnæðismálum og leiga íbúðar- húsnæðis í hæstu hæðum, vegna skorts á lóðum undir nýjar íbúðir, eru dregnar fram gamalkunnar hugmyndir vinstri manna. Þak skal sett á húsaleigu. Lausnin eykur hins vegar vandann og leysir hann ekki. Framboð á leiguhúsnæði dregst saman – íbúðum sem boðn- ar eru til leigu fækkar og staða leigjenda versnar. Góðhjartaðir stjórnmálamenn geta ekki tekið einfalt lögmál hagfræðinnar úr gildi. Þeir geta hins vegar unnið að því að lagfæra undirliggjandi mein – skort á lóðum. Meirihluti borgar- stjórnar hefur hins vegar ekki áhuga á lækningum af því tagi. Á meðan nærir og magnar heima- tilbúinn skortur húsnæðisvandann. Eftir Óla Björn Kárason » Sá tími er löngu lið- inn að stjórnendur Reykjavíkurborgar líti á það sem skyldu sína að tryggja nægjanlegt framboð á lóðum á sanngjörnu verði. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Heimatilbúinn skortur nærir húsnæðisvandann Fullgerðar íbúðir í Reykjavík 1929-2016 2016 2010 2000 1990 1980 1970 1960 1950 1940 1930 0 200 400 600 800 1.000 399 1.026

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.