Morgunblaðið - 22.03.2017, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017
Við sjávarsíðuna Þeir sem gera sér ferð niður að sjó eiga von á að rekast á fólk sem er að fást við hitt og þetta. Þessi tvö fylgdust með námskeiði á vegum Kajakfélagsins við Gróttu.
Kristinn Magnússon
Meðalfjöldi íbúa
höfuðborgarinnar var
tæplega 40 þúsund á
árunum 1937 til 1944 –
fjölgaði úr 36 í 44 þús-
und. Á þessum árum
voru byggðar 2.042
íbúðir í Reykjavík. Á
síðustu átta árum er
meðalfjöldi höfuðborg-
arbúa liðlega 120 þús-
und og lokið hefur
verið smíði á 2.068 íbúðum.
Með öðrum orðum:
Á sama tíma og meðalfjöldi
Reykvíkinga hefur þrefaldast er
lokið við 26 fleiri íbúðir en á ár-
unum fyrir lýðveldisstofnun.
Á árunum 1937 til 1944 var fjölg-
un íbúða sem hlutfall af íbúafjölda
liðlega 5% en aðeins 1,7% á síðustu
átta árum. Ef hlutfallið hefði verið
það sama og fyrir og á stríðs-
árunum hefði íbúðum fjölgað um
6.200. Með öðrum orðum; íbúðir
væru 4.100 fleiri en þær eru í dag.
Án fordæma
Skúli Halldórsson blaðamaður
birti 12. mars sl. sérlega áhuga-
verða úttekt á stöðu húsnæðismála
á mbl.is undir fyrirsögninni, „Lá-
deyða án fordæma á lýðveldistím-
anum“. Þar varpar hann ljósi á
þann vanda sem er við að glíma í
húsnæðismálum – kemst að rótum
vandans: Á síðustu átta árum hafa
ekki verið reistar jafnfáar íbúðir í
Reykjavík í áratugi og aldrei á lýð-
veldistímanum.
Í fréttaskýringunni kemur fram
að Íslendingar hafi
verið tæplega 128 þús-
und á stríðsárunum en
eru nú 338 þúsund.
Síðan segir:
„Væntanlega þarf
engan að furða að eft-
irspurn eftir húsnæði
á höfuðborgarsvæðinu
í dag sé langt umfram
framboð, þegar reistar
eru í höfuðborg lands-
ins álíka margar íbúðir
og gert var á tímum
Kristjáns tíunda.“
Á síðustu átta árum hafa að með-
altali verið byggðar 259 íbúðir á ári
í Reykjavík, að því er fram kemur í
fréttaskýringunni. Allt frá 2008
hefur fjöldi nýrra íbúða verið langt
undir árlegu meðaltali frá árinu
1929. Þá voru Reykvíkingar 26.428.
Hirðuleysi og tómlæti
Það þarf ekki sérfræðing til að
komast að þeirri niðurstöðu að
Reykjavíkurborg hefur sýnt hirðu-
leysi og tómlæti þegar kemur að
húsnæðismálum. Stefna meirihluta
borgarstjórnar í skipulagsmálum
hefur búið til lóðaskort sem aftur
hefur kallað fram gríðarlega hækk-
un á kaupverði íbúða og jafnvel enn
meiri hækkun á húsaleigu.
Sá tími er löngu liðinn að stjórn-
endur Reykjavíkurborgar líti á það
sem skyldu sína að tryggja nægj-
anlegt framboð á lóðum á sann-
gjörnu verði. Meirihluti borgar-
stjórnar hefur fyrst og síðast áhuga
á að þétta byggðina en hefur hvorki
skilning né áhuga á að koma í veg
fyrir lóðaskort. Þétting byggðar
getur verið ágæt en slíkar lóðir eru
dýrar, með tilheyrandi flækjustigi.
Til að kóróna lóðaskortsstefnuna,
hefur meirihluti borgarstjórnar
sýnt ótrúlega hugmyndaauðgi við
að hækka álögur á húsbyggjendur,
jafnt með því að hækka gjöld og
innleiða ný s.s. sérstaka viðbótar-
greiðslu og gatnagerðargjald fyrir
stækkun og nýbyggingar.
Öllum öðrum að kenna
Í raun hefur Reykjavíkurborg
sagt sig frá húsnæðismálum – hætt
að taka ábyrgð á þróun þeirra. Vill
ekki kappkosta að tryggja nægjan-
legt framboð lóða undir fjölbýli,
einbýli og raðhús, á skikkanlegu
verði. Allur vandi sem borgarbúar
glíma við í húsnæðismálum er sagð-
ur ríkisvaldinu að kenna.
Fyrr í mánuðinum sagði Dagur
B. Eggertsson borgarstjóri kok-
hraustur við mbl.is að ríkið hefði
skilið unga fólkið eftir með því að
þrengja að möguleikum þess. Og
svo kenndi hann bönkunum um
stöðuna og benti á byggingariðn-
aðinn. Í huga borgarstjóra er
Reykjavíkurborg með öllu ábyrgð-
arlaus á ástandinu. Engu er líkara
en að skorturinn, sem hefur verið
drifkraftur hækkandi íbúðaverðs
og þar með leiguverðs, komi meiri-
hluta borgarstjórnar ekkert við.
Í þessum efnum eins og öðrum
sem miður fara í höfuðborginni
liggur sökin hjá öðrum. Fjárhagur
A-hluta er bágborinn (svo ekki séu
notuð sterkari orð) – ekki vegna
fjárhagslegrar óstjórnar heldur
vegna „skorts á tekjustofnum“, eins
og borgarstjóri skýrði út. Þessi
skortur á tekjustofnum varð líklega
til þess að borgin taldi sig illa ráða
við að fjarlægja dekkjakurl af
sparkvöllum án sérstakrar fjár-
hagsaðstoðar frá ríkinu.
Undirliggjandi mein
Vandinn sem blasir við í húsnæð-
ismálum verður því miður ekki
leystur með því einu að ríkissjóður
auki húsnæðisstuðning, – hækki
leigu- og/eða vaxtabætur. Vandinn
verður heldur ekki leystur með því
að búa til fjárhagslegt svigrúm fyr-
ir ungt fólk með því að gefa því
heimild til að nýta séreignasparnað
– skattfrjálst – til að eignast fyrstu
íbúðina. Við þær aðstæður sem
ríkja á húsnæðismarkaði er ekki
við öðru að búast en að mestallt
verði étið upp í tilbúnum skorti.
Þannig eru líkur á því að aukinn
stuðningur við leigjendur leiði til
hærra leiguverðs og þar sem hag-
ur leigusala batnar en leigjendur
sitja eftir með sárt ennið, jafnvel í
verri stöðu en áður. Svipað kann
að gerast á sölumarkaði íbúða.
Þegar barist er við skort munu
seljendur en ekki kaupendur hagn-
ast.
Þegar allt er komið í kaldakol í
húsnæðismálum og leiga íbúðar-
húsnæðis í hæstu hæðum, vegna
skorts á lóðum undir nýjar íbúðir,
eru dregnar fram gamalkunnar
hugmyndir vinstri manna. Þak skal
sett á húsaleigu. Lausnin eykur
hins vegar vandann og leysir hann
ekki. Framboð á leiguhúsnæði
dregst saman – íbúðum sem boðn-
ar eru til leigu fækkar og staða
leigjenda versnar. Góðhjartaðir
stjórnmálamenn geta ekki tekið
einfalt lögmál hagfræðinnar úr
gildi. Þeir geta hins vegar unnið að
því að lagfæra undirliggjandi mein
– skort á lóðum. Meirihluti borgar-
stjórnar hefur hins vegar ekki
áhuga á lækningum af því tagi. Á
meðan nærir og magnar heima-
tilbúinn skortur húsnæðisvandann.
Eftir Óla Björn
Kárason
» Sá tími er löngu lið-
inn að stjórnendur
Reykjavíkurborgar líti
á það sem skyldu sína
að tryggja nægjanlegt
framboð á lóðum
á sanngjörnu verði.
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Heimatilbúinn skortur nærir húsnæðisvandann
Fullgerðar íbúðir í Reykjavík 1929-2016
2016
2010
2000
1990
1980
1970
1960
1950
1940
1930
0 200 400 600 800 1.000
399
1.026