Morgunblaðið - 22.03.2017, Síða 17

Morgunblaðið - 22.03.2017, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla. Farþegaþota flugfélagsins South Supreme Airlines varð alelda skömmu eftir lendingu í norðvest- urhluta Suður-Súdans í gær, en vél- inni var ekið á miklum hraða utan í slökkvibifreið sem fyrir var á flug- brautinni. Allir komust lífs frá óhappinu, en 37 voru fluttir á sjúkrahús. Enginn þeirra var sagð- ur lífshættulega særður. Orsök slyssins var í gær óljós, en ráðherra upplýsingamála í Wau-ríki í Suður-Súdan, sem fréttaveita AFP ræddi við, segir ýmislegt benda til þess að rekja mætti orsökina til tæknilegra vandræða, vanrækslu og slæmra veðurskilyrða. Flugvélin var á leiðinni frá höf- uðborginni Juba þegar atvikið átti sér stað og voru alls 45 manns um borð, þar af 5 manna áhöfn. khj@mbl.is Farþegaþota varð alelda skömmu eftir lendingu  Skall utan í slökkvibifreið á flugbrautinni AFP Eldhaf Farþegaflugvélin varð alelda á skömmum tíma og er lítið annað eftir en stélið. Allir komust lífs af frá óhappinu og er það nú til rannsóknar. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Martin McGuinness, einn af helstu forvígismönnum Sinn Féin, stjórn- málasamtaka Írska lýðveldishersins, IRA, lést í gær, 66 ára að aldri, úr sjaldgæfum hjartasjúkdómi. McGu- inness var á yngri árum einn af liðs- foringjum IRA og næstráðandi sam- takanna um stund. Síðar á ævinni beitti hann sér fyrir því að koma á friði á Norður-Írlandi og gegndi embætti varaforsætisráðherra norð- urírsku heimastjórnarinnar frá 2007 og þar til hann dró sig óvænt í hlé í janúar síðastliðnum, meðal annars af heilsufarsástæðum. Skjótur frami innan IRA McGuinness fæddist 1950 í Derry við norðurströnd Norður-Írlands, en mikil spenna ríkti þar á uppvaxtar- árum hans milli mótmælenda og kaþólikka. Hann varð meðlimur í írska lýðveldishernum á unglings- aldri og átti þar skjótan frama. Hann var til að mynda næstráðandi IRA í Derry árið 1972, en það ár skutu breskir hermenn á 26 stuðnings- menn sameinaðs Írlands og felldu 14 á „blóðuga sunnudeginum,“ en atvik- ið jók mjög stuðning við IRA í Derry. Ári síðar var McGuinness hand- tekinn í nágrenni bíls, sem hlaðinn var sprengiefnum. Var hann í kjöl- farið dæmdur af hryðjuverkadóm- stól Írlands í sex mánaða fangelsi. Hætti McGuinness í kjölfarið að mestu þátttöku sinni í IRA og hóf að beita sér á vettvangi Sinn Féin. Beitti sér fyrir friði Í upphafi tíunda áratugarins hóf- ust þreifingar á milli Sinn Féin og hinna flokkanna á Norður-Írlandi um leiðir til þess að binda enda á of- beldið sem plagað hafði landið í rúm- lega tvo áratugi. McGuinness leiddi þær viðræður og er sagður hafa leik- ið lykilhlutverk bak við tjöldin þegar friðarsamkomulagið, sem kennt er við föstudaginn langa, var gert árið 1998. Tony Blair, fyrrverandi for- sætisráðherra Bretlands, sagði í yf- irlýsingu í gær að ekkert hefði orðið af friði ef McGuinness hefði ekki not- ið við. Martin McGuinness braut enn blað í sögubókunum árið 2012, er hann hitti Elísabetu II. Englands- drottningu og tók í hönd hennar. Þótti handabandið til merkis um það hversu langt friðarferlið á Norður- Írlandi var komið á veg, að einn af fyrrverandi leiðtogum IRA gæti tek- ið í hönd drottningarinnar, en hvorki Sinn Féin né IRA hafa nokkurn tím- ann viðurkennt yfirráð hennar yfir Norður-Írlandi. Hefði slíkt handa- band því þótt óhugsandi fyrir ekki svo löngu. Með fráfalli Martins McGuinness má því segja að nýr kafli sé hafinn í norðurírskum stjórnmálum. AFP Sögulegt handaband Martin McGuinness tekur hér í hönd Elísabetar II. Englandsdrottningar árið 2012. McGuinness lést í gær, 66 ára að aldri. Kaflaskipti á N-Írlandi  Martin McGuinness lést í gær, 66 ára að aldri  Fyrrverandi liðsforingi í írska lýðveldishernum og frammámaður í Sinn Féin  Lék stórt hlutverk í friðarferlinu Afsögn McGuinness í janúar síð- astliðnum kom meðal annars til vegna hneykslismáls, sem skók DUP, þáverandi samstarfsflokks Sinn Féin. Kosningum til norður- írska þingsins var flýtt vegna af- sagnarinnar og fóru þær fram 2. mars síðastliðinn. Flokkarnir hafa þrjár vikur eftir kosningar til þess að mynda heimastjórn, en sá frestur rennur út næstkomandi laugardag. Takist ekki að mynda stjórn fyrir þann tíma hafa bresk stjórnvöld heim- ild til þess að leysa upp þingið og taka aftur yfir stjórn Norður- Írlands. Michelle O’Neill, leiðtogi Sinn Féin í Norð- ur-Írlandi, segir hins vegar að Bretar standi í veginum fyrir því að ný stjórn verði mynduð. Óvissuástand framundan NORÐUR-ÍRLAND Michelle O’Neill Uppreisnarhópar undir forystu ísl- ömsku hreyfingarinnar Ahrar al- Sham hófu í gær nýja sókn inn í austurhluta Damaskus, höfuð- borgar Sýrlands. Var sókn víga- manna brotin á bak aftur sl. mánu- dag þegar sýrlenski stjórnarherinn veitti þeim harða mótspyrnu, m.a. með loftárásum. Fréttamaður AFP, sem staddur er í borgarhlutanum, segir árás uppreisnarmanna hafa hafist í dög- un með mikilli sprengingu og skot- bardögum. Stjórnarherinn svaraði í sömu mynt og beitti m.a. stórskota- liðssveitum og orrustuþotum. „Það var gríðarleg sprenging í dögun, sennilega var þetta bíl- sprengja sem uppreisnarmenn beittu gegn stjórnarhermönnum sem staddir voru mitt á milli hverf- anna Jobar og Qabun,“ hefur AFP eftir Rami Abdel Rahman, sem fer fyrir mannréttindasamtökum. Ríkisfréttastofa Sýrlands (SANA) segir 12 hafa særst í árás uppreisnarmanna. „Sýrlenski her- inn reynir nú að koma í veg fyrir sóknina norður af Jobar og vinnur nú að því að umkringja þá,“ hefur fréttaveita AFP eftir fréttamanni SANA. khj@mbl.is SÝRLAND Vígamenn sækja á ný inn í Damaskus „Þessar takmarkanir voru settar á eftir mat á nýjum upplýsingum. Við teljum þetta vera hið rétta í stöð- unni og um leið rétta staði til þess að setja þetta bann á til að tryggja öryggi farþega,“ hefur fréttaveita AFP eftir háttsettum talsmanni innan bandarísku stjórnsýslunnar. Vísar hann til þess að Bandaríkin vara nú við hugsanlegri ógn sem stafar af hálfu hryðjuverkamanna sem sprengja vilja í loft upp far- þegaþotur með raftækjum á borð við far- og spjaldtölvur. Eru þeir sagðir stefna á að nýta sér tíu flug- velli í Tyrklandi, Mið-Austur- löndum og Norður-Afríku. Hefur því níu flugfélögum frá átta ríkjum verið gert að banna far- þegum sínum að nota raftæki stærri en snjallsíma um borð í vél- um á leið til Bandaríkjanna. BANDARÍKIN Vilja sprengja flug- vélar með fartölvum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.