Morgunblaðið - 22.03.2017, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 22.03.2017, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Tæplega 300 fleiri íbúðir eru nú í byggingu á höfuðborgarsvæðinu en fyrir hálfu ári. Samkvæmt nýrri taln- ingu Samtaka iðnaðarins (SI) á íbúð- um í byggingu á höfuðborgarsvæð- inu voru 3.255 íbúðir í byggingu í lok febrúar, sem er 10% aukning frá því seinast var talið í september á síð- asta ári. Áætlað hefur verið að 1.600 til 1.800 nýjar íbúðir þurfi að bætast við á hverju ári til að anna eftirspurninni og því til viðbótar þarf að mæta mik- illi uppsafnaðri þörf á undanförnum árum fyrir íbúðir á markaðinum. Friðrik Á. Ólafsson, viðskipta- stjóri byggingariðnaðar á mann- virkjasviði SI, bendir á að venjulega taki um tvö ár að byggja hverja íbúð þannig að ef helmingur þessara íbúða sem eru í byggingu koma á markað á hvoru ári um sig þá dugi það engan veginn til að mæta þessari eftirspurn. ,,Miðað við stöðuna í dag er spá okkar fram í tímann sú að það verði í fyrsta lagi eftir tvö ár sem fer að saxast á uppsafnaða þörf,“ segir hann. Fjölgun íbúða í byggingu á höfuð- borgarsvæðinu á seinustu misserum hefur fyrst og fremst verið í fjölbýli en þær eru 282 fleiri nú en í talning- unni í september sl. Sé litið á stöðuna í einstökum sveitarfélögum kemur hins vegar í ljós að færri íbúðir eru í dag í smíð- um í Reykjavík en fyrir hálfu ári. Alls voru 1.228 íbúðir í byggingu í borg- inni í nýrri talningu SI en þær voru 1.266 í september. Í Kópavogi eru 644 íbúðir í byggingu um þessar mundir og hefur þeim aftur á móti fjölgað um 118 frá síðasta hausti. Í Garðabæ er einnig aukning og alls 602 íbúðir í byggingu, eða 126 fleiri íbúðir en voru í byggingu í sept- ember og í Mosfellsbæ er verið að smíða 470 íbúðir í dag en þær voru 388 fyrir hálfu ári. Í Hafnarfirði eru hins vegar færri íbúðir í byggingu eða 237 en þær voru 268 í september sl. 21 íbúð er í byggingu á Seltjarnar- nesi en þær voru 34 í september. Aðspurður segir Friðrik fækkun- ina í Reykjavík ekki þurfa að koma mjög á óvart í ljósi áherslu borgaryf- irvalda á að 90% nýbygginga eigi sér stað á þéttbýlissvæðum borgarinnar en aðeins 10% í útjöðrunum. Ný- byggingar innan þéttbýlissvæðanna séu mun þyngri og erfiðari í fram- kvæmd m.a. vegna deiliskipulags og samþykkta sem því fylgir en þegar byggt er í úthverfum. ,,Þess vegna höfum við sagt að það þarf að vera jafnari skipting á uppbyggingu í út- hverfum og á þéttingarsvæðum,“ segir hann. Athygli vekur að íbúðum á höfuð- borgarsvæðinu sem eru í smíðum á fyrstu byggingarstigum fjölgar mun minna en íbúðum sem orðnar eru fokheldar eða eru lengra komnar. Friðrik segir sláandi tölur hafa kom- ið í ljós í talningunni yfir byggingar- lóðir fjölbýlishúsa þar sem eingöngu er kominn sökkull undir íbúðirnar. Þar á sér stað mikil fækkun eða alls um 21,3% frá því í september í fyrra. Þetta vekur ugg að sögn hans. Sérbýlið vart komið í gang Fjölgun íbúða í byggingu hefur eins og fyrr segir einkum verið í fjöl- býli en sérbýlið er varla komið í gang að sögn Friðriks. 185 íbúðir í rað- og parhúsum eru í byggingu sem er 7% fækkun frá í september í fyrra og 123 einbýlishús eru í smíðum að því er fram kemur í talningartölum SI. Töluverður munur er þó á stöðu þessara mála eftir sveitarfélögum. Þannig voru 32 rað- og parhús í smíð- um í Mosfellsbæ, 73 í Garðabæ og 34 í Reykjavík í febrúartalningunni. Í Mosfellsbæ voru að rísa 58 einbýlis- hús en aðeins 13 í Reykjavík svo dæmi séu nefnd. Friðrik bendir á að á sama tíma og höfuðborgin leggi áherslu á þéttingu byggðar sem þrengir að einkabílnum sé vöxtur í nágrannasveitarfélög- unum sem séu að búa sig undir þró- unina næstu ár. Fyrstu kaupend- urnir, unga fjölskyldufólkið, vilji fara þangað sem húsnæðið er ódýrara og það hafi efni á því í nágrannasveitar- félögum ,,og notar svo einkabílinn til að komast til höfuðborgarinnar. Þetta helst ekki alveg í hendur.“ 3.255 íbúðir eru í smíðum  Um 10% fleiri íbúðir eru í smíðum á höfuðborgarsvæðinu en sl. haust samkvæmt nýrri talningu SI.  Fer ekki að saxast á uppsafnaða þörf fyrr en eftir 2 ár  Mun færri sökklar í dag en fyrir hálfu ári Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýbyggingar í Urriðaholti Samtök iðnaðarins spá því að 2018-2020 verði byrjað á smíði 8.490 íbúða á höfuðborgarsvæðinu og lokið verði við 7.178. Fjöldi íbúða í byggingu á höfuðborgarsvæðinu 2010-2017 Íbúðatalningi Samtaka iðnaðarins febrúar 2017 M aí ´1 0 M ar s´ 11 Nó v. ´1 1 Se pt .´1 2 Fe b. ´1 3 Se pt .´1 3 M ar s´ 14 Ok t.´ 14 M ar s´ 15 Ok t.´ 15 Fe b. ´1 6 Se pt .´1 6 Fe b. ´1 7 Að fokheldu Fokhelt og lengra komið 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 2.016 1.648 1.419 1.282 1.567 1.676 2.021 2.436 2.278 2.402 2.556 2.958 3.255 Spá um fjölda íbúða í byggingu á höfuðborgarsvæðinu 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 2017 2018 2019 2020 Heimild: Samtök iðnaðarins 1.598 2.823 1.921 2.957 2.626 2.710 2.631 2.436 Viðmið (1.800)Byrjað Lokið Frestur til þess að veita umsögn um frumvarp um afnám einkaréttar ríkisins á smásölu áfengis rann út þann 17. mars sl. Alls bárust 73 um- sagnir, en það virðist hafa farist fyrir hjá nefndasviði Alþingis að setja síðustu umsagnirnar inn á vef þingsins fyrir helgi. Þrjár jákvæðar umsagnir um frumvarpið hafa borist til viðbótar og eru því jákvæðar umsagnir sex talsins, en ekki þrjár eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær. Félag atvinnurekenda (FA), Sam- tök verslunar og þjónustu (SVÞ) og Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) eru jákvæð í garð frumvarpsins, en þó með ákveðnum fyrirvörum. FA segir m.a. í umsögn sinni að félagið telji að málið hafi tekið miklum og jákvæðum breytingum frá síðustu tveimur þingum. FA tel- ur þó að óforsvaranlegt væri að Al- þingi samþykkti frumvarpið án þess að bæta við það ákvæðum um breytta inheimtu áfengisgjalds. Í umsögn SVÞ segir m.a. í niður- lagi: „SVÞ ítreka enn og aftur að samtökin fagna því frumkvæði sem lagt er til í frumvarpinu um að af- nema einkarétt íslenska ríkisins varðandi smásölu á áfengi og styðja samtökin það markmið.“ agnes@mbl.is Sex jákvæðar umsagnir Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Mjög margt hefur breyst í umhverfi tungumálsins á undanförnum þrem- ur til fimm árum og er það bæði vegna samfélagslegra breytinga og tæknibreytinga,“ segir Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslensku við Háskóla Íslands. Greint var frá því í Morgunblaðinu í gær að margir grunnskólanemendur væru byrjaðir að nota ensku til samskipta í skól- anum. Sagði kennari nemendur m.a. halda uppi samræðum á ensku. „Við teljum okkur vita að allt niður í ungbörn noti snjallsíma og spjald- tölvur reglulega og um leið alls kyns efni á ensku. Eins horfa krakkar mikið á óþýdda og ótextaða þætti á YouTube og Netflix, en við þetta bætast svo m.a. tölvuleikir,“ segir Rögnvaldur og bætir við að erfitt sé að meta hversu algengt þetta sé og um leið hvaða áhrif það mun hafa til lengri tíma. „Við erum hins vegar að fara að hefja undirbúning að rannsókn á þessu. Á næsta ári vitum við vonandi meira um þetta,“ segir hann, en Ei- ríkur og Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í íslensku við Háskóla Ís- lands, fengu í fyrra styrk frá Rann- sóknasjóði Rannsóknamiðstöðvar Íslands (RANNÍS) til að kanna áhrif ensku á íslenska tungu í gegnum stafræna miðla. „Ég hef aldrei haft neinar sérstak- ar áhyggjur af slettum – þær koma og fara. […] Þegar krakkar eru hins vegar byrjaðir að tala saman og leika sér á ensku, þá erum við komin á allt annað stig,“ segir Eiríkur. Sigrún Birna Björnsdóttir, for- maður stjórnar Samtaka móður- málskennara, segir brýnt að þeir sem fullorðnir eru sýni móðurmálinu virðingu og ali börn sín upp eftir því. „Við verðum öll að leggjast á eitt og bera virðingu fyrir þessari menn- ingararfleifð sem tungumálið er,“ segir hún. Umhverfi tungumáls- ins gerbreyst  Samfélags- og tæknibreytingar ógna íslenskunni  Nota ensku sín á milli Morgunblaðið/Eyþór Menntastofnun Snjallsímar og afþreyingarveitur ýmiskonar eru meðal þess sem veikir stöðu íslenskunnar, en krakkar grípa margir til enskunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.