Morgunblaðið - 22.03.2017, Side 21
DesignTalks er einstakur viðburður sem áhugafólk um nýjustu strauma og stefnur í
hönnun og arkitektúr lætur ekki framhjá sér fara. Óvissa, ógn og hraði samtímans
knýr okkur til að skoða samband okkar við náttúruna og hvert annað. Getur hönnun
bjargað manninum og jörðinni um leið?
DesignTalks, Silfurberg, Harpa, fimmtudaginn 23. mars. Miðar á harpa.is
Léttur hádegisverður og kaffi frá Kaffitári.
Nánari upplýsingar: honnunarmars.is/designtalks
Paul Bennett, Chief Creative
Officer hjá IDEO mun stýra Design-
Talks ásamt Hlín Helgu Guðlaugs-
dóttur. Paul er eftirsóttur hönnuður
og þaulreyndur fyrirlesari á
alþjóðavettvangi.
Christien Meindertsma
vekur okkur til umhugsunar
um áhrif iðnbyltingarinnar á
þróun framleiðsluhátta m.a.
í margverðlaunuðu verkefni
um svín, PIG 05049.
Alexander Taylor hannaði
nýverið strigaskóna adidas
x Parley með fyrirtækinu
adidas, en yfirborð skóna er
gert úr plastefnum sem áður
menguðu sjó.
Michèle Degen ögrar samfélags-
legum normum og staðal-
ímyndum. Með verkinu Vulva
Versa upphefur hún æxlunarfæri
kvenna og vill eyða skömm
náinnar sjálfsskoðunar.
Ersin Han Ersin er listrænn
stjórnandi hjá Marshmallow Laser
Feast stúdíóinu sem nýverið hlaut
WIRED Audi Innovation verðlaun-
in fyrir þrívíddarverkið In the Eyes
of the Animal.
Studio Folder fékk sérstaka
viðurkenningu á 14. Feneyjar-
tvíæringnum í arkitektúr fyrir
verkefnið Italian Limes, en það er
gagnvirk sýning sem tekur fyrir
bráðnun jökla í Ölpunum.
Framúrskarandi hönnuðir víðsvegar að úr heiminum taka til máls