Morgunblaðið - 22.03.2017, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017
✝ Ragnar AnnelÞórarinsson
fæddist að Hindisvík
á Vatnsnesi 1. októ-
ber 1924. Hann lést
á Heilbrigðisstofn-
uninni á Blönduósi
12. mars 2017.
Foreldrar hans
voru Steinunn Valdi-
marsdóttir, f. 7. apr-
íl 1894, d. 5. júlí
1969, og Þórarinn
Jónsson, f. 13. nóvember 1866, d.
4. apríl 1943. Barn að aldri fór
Ragnar í fóstur að Steinnesi í
Þingi til Sigurlaugar Sigurjóns-
dóttur og Ármanns Benedikts-
sonar sem gengu honum í for-
eldrastað. Systir Ragnars var
börn. 3) Þórunn, f. 1960, maki
Birgir Gestsson, f. 1959, þau eiga
fjögur börn og fjögur barnabörn.
4) Ragnhildur, f. 1963, hún á tvö
börn og fimm barnabörn.
Árið 1991 hóf Ragnar sambúð
með Önnu Margréti Tryggvadótt-
ur f. 1919, d. 2007.
Ragnar og Svana bjuggu allan
sinn búskap á Blönduósi, lengst af
á Brekkunni sem nú er Aðalgata
21.
Ragnar byrjaði ungur að vinna
ýmis sveitastörf þar til hann réðst
til jarðvinnslustarfa á vegum bún-
aðarfélaga í sýslunni. Árið 1959
hóf hann akstur við mjólkurflutn-
inga hjá Kaupfélagi Húnvetninga
en fljótlega fór hann að keyra
vöruflutningabíl á þeirra vegum
og leit hann á það sem sitt ævi-
starf. Síðustu starfsárin vann hann
í Mjólkurstöðinni á Blönduósi.
Útför Ragnars fer fram frá
Blönduóskirkju í dag, 22. mars
2017, og hefst athöfnin klukkan
14.
Helga Þórarins-
dóttir, f. 21. apríl
1919, d. 24. nóv-
ember 2002.
Þann 23. desem-
ber 1953 kvæntist
Ragnar Svanhildi
Sóleyju Þorleifs-
dóttur frá Sól-
heimum í Svína-
vatnshreppi, f. 9.
september 1934, d.
13. apríl 1988. Börn
þeirra hjóna eru: 1) Þorleifur, f.
1954, maki Ingibjörg Sólrún
Magnúsdóttir, f. 1956, þau eiga
fimm börn og átta barnabörn. 2)
Sigurlaug, f. 1955, maki Hörður
Bjartmar Níelsson, f. 1954, þau
eiga átta börn og sextán barna-
Elsku pabbi, þá hefur þú fengið
ósk þína uppfyllta, kominn í sum-
arlandið til mömmu.
Ég hef oft hugsað hvað ég naut
mikilla forréttinda að alast upp á
stóru kærleiksríku heimili þar
sem alltaf var pláss fyrir fleiri.
Fyrir utan okkur fjölskylduna
bjuggu tveir og þrír eldri menn
hjá okkur og alltaf pláss fyrir
fleiri ef einhvern vantaði húsa-
skjól. Nóg er til af skemmtilegum
minningum til að njóta því á heim-
ilinu var alltaf líf og fjör og mikil
gleði.
Að vera alin upp við að sjá allt-
af það besta í öllum og öllu er gott
veganesti út í lífið og alveg ómet-
anlegt. Fyrstu jólin þín hjá mér
og krökkunum mínum eru mér
mjög minnisstæð því ég hafði
aldrei eldað jólamatinn og ég var
mjög stressuð yfir rjúpunum en
þú varst svo innilega rólegur og
ánægður með allt, sagðir að ég
skyldi bara fara með krakkana í
jólamessuna og njóta þess. Þegar
messan var búin fórum við öll
saman í kirkjugarðinn til mömmu
og síðan til Pálma Guðnasonar,
sem þá var fluttur í Hnitbjörg, og
óskuðum honum gleðilegra jóla.
Jólamaturinn var svo borðaður
seint um kvöldið og hann smakk-
aðist mjög vel. Það að fara í messu
á jólunum var svo stór hluti af há-
tíðinni því þið mamma sunguð
bæði í kórnum og við fórum alltaf
með. Seinna þegar ég byrjaði í
kirkjukórnum varstu svo ánægð-
ur með mig og sagðir að mamma
hefði örugglega klappað saman
lófunum af gleði. Við glöddumst
öll með þér þegar þú fannst þér
aftur félaga eftir að mamma dó.
Saman áttuð þið Anna Tryggva-
dóttir góð ár í Brautarholti. Það
var alltaf gott að koma til ykkar
og hún vildi allt gott fyrir þig og
okkur gera.
En eina orrustu háðum við og
hún var hörð og erfið fyrir okkur
bæði.
Hún snérist um bílinn þinn og
bíllyklana. Þá vorum við ekki
sammála því eins og þú réttilega
bentir á varstu atvinnubílstjóri og
alltaf allt farið vel þannig að þér
fannst ekki nokkur ástæða til að
hætta að keyra. Það var alveg
sama hvað ég hafði góð rök, þú
varst sannarlega ekki ánægður
með mig. En auðvitað hafði litla
ráðskonan betur.
Þú varst alltaf svo þakklátur
fyrir allt fólkið þitt og nefndir oft
að þú bara skildir ekki hvað Guð
almáttugur var gjöfull við þig.
Fólkið þitt var þér dýrmætast af
öllu og barnabörnin voru náttúr-
lega best.
Með þökk fyrir allt, elsku pabbi
minn, og kveðju frá örverpinu
þínu.
Þín,
Ragnhildur.
Elsku afi.
Nú ertu kominn upp til himna
og þið amma Svana loksins saman
aftur. Við erum viss um að nú sitj-
ið þið saman og gerið það sem þér
fannst einna skemmtilegast, að
dást að afkomendahópnum. Það
var alveg sama hversu stór eða
smá afrekin voru í hvert skipti, þú
varst alltaf manna stoltastur af
okkur öllum.
Það er margt sem fer í gegnum
hugann á þessari stundu og marg-
ar hlýjar minningar sem við erum
þakklát fyrir. Upp úr stendur
samt tilfinning sem er erfitt að út-
skýra í orðum en það er þessi
gleði og kærleikur sem fylgdi þér
hvar sem þú komst. Með þitt ein-
staka blik í augum og bros á vör
var alltaf stutt í húmorinn, stríðn-
ina og skemmtilegar sögur.
Þín verður saknað, elsku afi.
Svanhildur, Ármann Óli,
Kristín og Harpa.
Nú komið er að kveðjustund,
elsku afi minn. Þegar ég hugsa til
baka og reyni að rifja upp mína
uppáhalds minningu með þér þá
get ég það ómögulega. Þær eru
allar svo einstakar, litaðar af brosi
þínu og einstaklega breiðum
faðmi. Þegar þú komst til Reykja-
víkur var ég svo heppin að þú
skyldir alltaf gista hjá okkur. Það
var mér svo dýrmætt, sérstaklega
þar sem þú bjóst svo langt í burtu.
Þegar við hittumst þess á milli
þegar eitthvað markvert var að
gerast í stórfjölskyldunni var það
mitt fyrsta verk að leita þig uppi
og heimta öll knúsin sem mér
fannst ég eiga inni.
Mér hefur alltaf þótt svo vænt
um að heyra þig tala um hana
Svönu ömmu. Þú hélst minningu
hennar lifandi alla tíð með falleg-
um orðum, hve góð og frábær hún
hefði verið. Þú sagðir mér líka frá
því skemmtilega og eftirminni-
lega sem þið upplifðuð saman og
það leyndi sér ekki hversu mikið
þú saknaðir hennar.
Mín tenging og kynni við
ömmu voru að miklu leyti í gegn-
um þig og fyrir það verð ég þér
ævinlega þakklát.
Þú sparaðir ekki orðin þegar
þú talaðir um hversu mikið og
gott ríkidæmi þú skildir eftir þig
og hversu heppinn þú værir með
alla afkomendur þína. Ég veit að
kærleikurinn og hlýjan sem þú
sendir frá þér lifir með okkur um
ókomna tíð.
Þú hefur beðið svo lengi eftir
að komast til ömmu og hlakkað til
samfundanna. Nú er sú stund
runnin upp, stundin sem ég kveið
svo oft fyrir. Rosalega á ég eftir
að sakna þín, elsku afi minn, en
gleðst á sama tíma yfir því að nú
eruð þið sameinuð á ný.
Takk fyrir allt, elsku afi.
Kysstu ömmu frá mér. Ég elska
þig.
Þín,
Svanhildur Sóley
Þorleifsdóttir.
Nú hefur afi lokið langri lífs-
göngu sinni. Ég er svo þakklát
fyrir að hafa átt hann að, því hann
var alveg einstakur maður með
hjarta úr gulli. Ég hef engan hitt
sem hefur verið eins stoltur af af-
komendahópi sínum. Þegar ég
kom til hans á sjúkrahúsið þá
drógum við í hvert skipti fram
hópmyndina af okkur barnabörn-
unum og hann talaði alltaf um
hvað honum þætti það mikil Guðs
blessun að eiga svona stóran, fal-
legan og heilbrigðan hóp.
Mínar fyrstu minningar um afa
eru líklega þegar ég fór að venja
komur mínar til hans í Mjólkur-
stöðina. Ég vissi ekkert betra en
að lauma mér til hans í vinnuna og
fá mjólkurvindil hjá honum.
Ég naut þeirra forréttinda að
syngja með afa í kirkjukórnum á
Blönduósi. Ég var ekki gömul
þegar ég ákvað að prófa að taka
þátt í starfinu og var fljót að átta
mig á að það átti vel við mig enda
sjálf orðin organisti í dag. Ég
minnist þess hvað mér þótti gam-
an að vera innan um afa í söngn-
um, hann hafði fallega tenórrödd.
Ég átti á æfingum oft í heilmikl-
um samræðum við hann og Grím
Gíslason heitinn og er mér sér-
staklega minnisstæð kórferðin
sem við fórum suður yfir heiðar
og sungu þeir félagarnir þá fim-
mundarsöng og fóru með vísur.
Ég hugsaði með mér að það væru
nú ekki allir sem færu á ógleym-
anlegt kórdjamm með afa sínum.
Það var líka alltaf hátíðleg stund
þegar við keyrðum saman í kirkj-
una á aðfangadagskvöld og sung-
um jólasálmana með kórfélögum
okkar. Eftir messu fórum við svo
heim til mömmu og borðuðum
rjúpur og var fastur liður að afi
blandaði jólaölið.
Afa þótti mikið til þess koma að
ég skyldi velja mér tónlist sem
áhugamál og ævistarf. Hann var
duglegur að sækja viðburði þar
sem ég kom fram og studdi mig
ómetanlega í tónlistinni. Hann
sagði mér oft og iðulega hvað
hann væri stoltur af mér og mér
þótti alltaf svo vænt um að eiga
slíkan aðdáanda. Ég fór ásamt
eiginmanni mínum og vinum og
söng fyrir hann á deildinni hans á
sjúkrahúsinu fyrir ein jólin og
hann var eitt sólskinsbros allan
tímann og sagði öllum sem heyra
vildu hvað hann væri montinn. Ég
stóð sjálfa mig að því fyrir nokkr-
um árum að hugleiða hvað ég
myndi skrifa í minningargrein
þegar að kveðjustundinni okkar
kæmi en hugsaði með mér að það
væri nú mun skynsamlegra að
segja honum frá öllu sem ég væri
þakklát fyrir í stað þess að skrifa
ótímabæra minningargrein í hug-
anum. Með tárin í augunum átt-
um við samtal um hvað ég væri
þakklát fyrir hann en eins og hon-
um var einum lagið glotti hann
bara og gerði lítið úr öllu saman,
hógværðin uppmáluð.
En þá er komið að leiðarlokum.
Ég trúi því af öllu hjarta að nú sé
afi kominn til hennar ömmu sem
hann saknaði alltaf svo mikið.
Þakka þér fyrir allt, elsku afi
minn, ég mun aldrei gleyma hvað
þú reyndist mér vel og varst ynd-
islegur. Ég á eftir að sakna þín
mikið.
Megirðu hvíla í Guðs friði.
Þín,
Hugrún Sif.
Fallinn er frá, saddur lífdaga,
vinur minn og velgjörðarmaður til
áratuga, heiðursmaðurinn Ragn-
ar Þórarinsson bifreiðarstjóri á
Blönduósi. Allar mínar bestu
hjartans kveðjur og endalausar
þakkir sendi ég frá okkur öllum
hér á Langó fyrir allt það sem
hann var okkur.
Vertu sæll, elsku vinur, ég veit
að þér verður vel fagnað þar sem
þig ber að nýrri ströndu, þar
verður sungið og hátt kveðið. Þú
skilar kveðju.
Hátt uppi á heiðum
hvítir fuglar vaka.
Vængjunum stóru
veifa þeir og blaka.
Það eru álftir,
– álftirnar, sem kvaka.
Handan af hafi,
heim í auðnir fjalla,
vordægrin snemma
villta hópinn kalla.
Þá er nú sungið,
sungið fyrir alla.
Hringaðir hálsar
hljóðar taka dýfur.
Árvakur skari
öldufaldinn klýfur.
- Andi guðs friðar
yfir vötnum svífur.
Margs er að minnast.
Margt er enn á seyði.
Bleikur er varpinn,
- bærinn minn í eyði.
Syngja þó ennþá
svanir fram á heiði.
(Jóhannes úr Kötlum)
Elskulega frændfólk, Þorleif-
ur, Sigurlaug, Þórunn, Ragnhild-
ur og stórfjölskyldan öll, þið sem
hann var svo hreykinn af og elsk-
aði framar öllu öðru, innilegustu
samúðarkveðjur.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Sjöfn og fjölskylda.
Látinn er á Blönduósi kær vin-
ur, Ragnar Þórarinsson.
Það var fyrir rúmlega hálfri öld
að ég datt í lukkupottinn og
kynntist henni Þórunni, dóttur
Ragnars og Svanhildar Þorleifs-
dóttur konu hans. Hefur hún ver-
ið besta vinkona mín æ síðan. Ég
varð þá strax heimagangur á
heimili þeirra hjóna Ragnars og
Svönu, þau tóku mér opnum örm-
um og mætti ég þar einstökum
hlýhug.
Sem dæmi var það þannig að
iðulega þegar Ragnar kynnti
börnin sín fyrir gestum og ég var
á svæðinu, endaði hann á því að
taka utan um mig og segja „svo á
ég nú eiginlega þessa líka“.
Ég minnist Reykjavíkurferða
þar sem við vinkonurnar fengum
að fara með Ragnari suður á
flutningabílnum H 6, endalaus
þolinmæði við að kenna okkur
nöfn á fjöllum, ám og sveitabæj-
um. Eina ferðina áttum við að
finna alla bæi á leiðinni sem end-
uðu á tunga, ég man þá enn.
Ég minnist stríðninnar í Ragn-
ari og glettnisglampa í augum.
Ég minnist stúlku sem hafði
ekki efni á að fara í dansskóla eins
og hinir í bekknum, Svana og
Ragnar björguðu því, aldrei
minnst á það meir.
Ég minnist þess er við vinkon-
urnar, þá komnar með bílpróf,
fórum til Sauðárkróks að keppa í
handbolta, ég á minni gömlu VW-
bjöllu og Þórunn á bíl foreldra
sinna. Þegar farið var af stað
heim var ég eitthvað fljót á mér
og keyrði á bíl Ragnars og Svönu.
Það voru þung spor næsta dag
þegar ég fór og hitti Ragnar,
baðst afsökunar á þessu og vildi
borga viðgerðina. Elskan mín,
þetta er ekki neitt, hafðu engar
áhyggjur sagði Ragnar og var
aldrei talað um þetta aftur.
Ég minnist þess að koma alltaf
við hjá Ragnari á leið á þorrablót
með Þórunni og Bigga og fá koní-
aksstaup.
Minningarnar eru margar
fleiri en mest af öllu minnist ég
einstakrar hlýju og góðsemi
Ragnars og Svönu gagnvart mér,
Munda mínum og börnunum okk-
ar.
Með þakklæti og virðingu kveð
ég Ragnar Þórarinsson.
Við hjónin og fjölskylda okkar
sendum Þorleifi, Sigurlaugu, Þór-
unni, Ragnhildi og fjölskyldum
innilegustu samúðarkveðjur, þið
voruð aldeilis heppin með ættföð-
ur.
Agnes Hulda Agnarsdóttir.
„Glaður og reifur, skyli gumna
hver, uns síns bíður bana.“ Þessi
fornkveðnu orð leita á hugann við
fráfall Ragnars Þórarinssonar,
Ragga, bifreiðarstjóra á Blöndu-
ósi, er að lokinni langri og lánríkri
ævi er nú horfinn á vit æðri ver-
aldar.
Með honum er genginn maður
drenglyndur, heiðarlegur og heill,
félagslyndur í besta lagi, glettinn
og gamansamur, söngmaður góð-
ur og kórfélagi í kirkjukórum
Þingeyrarkirkju og Blönduós-
kirkju. Þannig mun minningin um
hann vaka og verma vandamönn-
um hans og vinum að innstu
hjartarótum.
Minningin um góðan dreng er
vissulega dýrmæt gjöf sem ekki
fyrnist þótt fenni í sporin. „Kættir
þú margan að mörgu, svo minnst
verður lengi, þýðmennið, þrek-
mennið glaða.“ Þessi orð skálds-
ins eru eins og um Ragga ort.
Honum var því gott að kynnast
og eiga vináttu hans og samfélag.
Við systkinin þrjú frá Stein-
nesi kynntumst honum vel á
bernsku- og unglingsárunum, þar
sem hann dvaldist í nokkur ár í
Steinnesi ásamt móður sinni
Steinunni og hjá mágkonu móður
okkar, Sigurlaugu. Árin hans
heima hjá okkur hyggjum við að
hafi verið honum mikilvæg, enda
bast hann við okkur og heimilis-
fólkið allt órofa tryggðaböndum.
Við minnumst sambúðaráranna
þar, allra glöðu og góðu stund-
anna með honum í Steinnesi. Í
okkar augum var hann nokkurs
konar uppeldisbróðir. Minnis-
stætt er okkur frá Steinnesárun-
um hve hann var gæddur ríkri
réttlætiskennd, þoldi illa rang-
læti eða níðst væri á þeim sem
minnimáttar voru og tók hann
ævinlega málstað þeirra og tók
upp varnir fyrir þá.
Ragnar stundaði um áratuga-
skeið bifreiðaakstur fyrir Kaup-
félag Húnvetninga á Blönduósi.
Lá leiðin þá oft suður til Reykja-
víkur að flytja og sækja vörur.
Það var reyndar ekki heiglum
hent að ferðast að vetrarlagi yfir
Holtavörðuheiði og víðar, enda
voru snjóalög iðulega mikil,
ófærð og veður vond. Og þó að
hann væri afburðabílstjóri og
fylginn sér bar það þó stundum
við, að hann varð að fresta för og
gisti í Reykjavík eða hjá einu okk-
ur á Hvanneyri, þegar allar leiðir
voru tepptar. Og ævinlega var
hann aufúsugestur er hann kom
við hjá okkur á þessum ferðum
sínum suður og glaður og bros-
andi tók hann á móti okkur er við
heimsóttum hann norður á
Blönduósi. Já, glaður og reifur
skyli gumna hver, uns síns bíður
bana.
Við systkinin kveðjum hann nú
með virðingu, þakklæti og í kær-
leika og biðjum honum góðrar
heimferðar og heimkomu í him-
ininn þar sem vinir bíða í varpa og
fagnaðarfundir takast.
Vandamönnum hans öllum
vottum við hluttekningu okkar og
samúð.
Sigurlaug, Guðmundur og
Gísli frá Steinnesi.
Ragnar Annel
Þórarinsson
Elskuleg frænka okkar,
OLGA HALLDÓRSDÓTTIR,
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík laugar-
daginn 18. mars. Útför hennar fer fram frá
kapellunni í Fossvogi föstudaginn 24. mars
klukkan 15.
Starfsfólki Mánateigs er sérstaklega þökkuð veitt umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Edda Hilmarsdóttir
Móðir okkar,
KAROLÍNA HARRIET
JÓHANNESDÓTTIR,
fyrrverandi húsfreyja á Kársstöðum,
Helgafellssveit,
síðast til heimilis á Miklubraut 78,
Reykjavík,
lést í Eutin í Þýskalandi fimmtudaginn 23. febrúar.
Kveðjustund og bálför hefur farið fram í Þýskalandi.
Jóhannes H. Ásbjarnarson
Gunnar H. Guðmundarson
Margrét G. S. Guðmundsdóttir