Morgunblaðið - 22.03.2017, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar hf., fyrir
reikningsárið frá 1. janúar 2016 til 31. desem-
ber 2016, verður haldinn í Akógeshúsinu,
Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 6. apríl
2016 og hefst hann kl. 16.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr.
samþykkta félagsins.
2. Önnur mál löglega upp borin.
Tillögur og önnur fundargögn liggja frammi
á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfundinn.
Framboð til stjórnarkjörs skal berast stjórn
félagsins eigi síðar en 7 dögum fyrir
aðalfundinn. Varðandi reglur um kynja-
skiptingu í stjórn og varastjórn vísast til 19.
gr. samþykkta félagsins.
Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf.
Ársfundur
Eftirlaunasjóður starfsmanna Útvegsbanka
Íslands boðar til ársfundar fimmtudaginn
6. apríl 2017 kl. 16.30 í húsnæði LSR,
Engjateigi 11 (gengið inn að vestanverðu).
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar
Frumvarp varðandi nýtt rekstrarform á
sjóðnum kynnt
Önnur hefðbundin ársfundarmál.
Allir sjóðfélagar eiga rétt á setu á ársfundi
með málfrelsi og tillögurétti.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin.
Samkeppni um gerð listaverks
til að minnast atvinnuþátttöku kvenna
við Gömlu höfnina í Reykjavík
Faxaflóahafnir fagna í ár 100 ára afmæli Gömlu hafnarinnar í Reykjavík. Af því tilefni hefur verið ákveðið að efna til sam-
keppni um gerð útilistaverks við Gömlu höfnina þar sem minnst verður hlutdeildar kvenna í starfsemi og sögu hafnar-
innar. Auglýst er eftir myndlistarmönnum til að taka þátt í forvali að lokaðri hugmyndasamkeppni.
Hugmynd
Listaverkinu er ætlað að minnast atvinnuþátttöku kvenna við Gömlu höfnina í Reykjavík. Verkið mun verða kennileiti við
Gömlu höfnina og hluti af því margbreytilega svæði sem nær frá Hörpu út á Granda. Mikilvægt er að verkið taki tillit til
umhverfisins og falli vel að svæðinu.
Verk og staðsetning
Svæðið sem um ræðir nær frá Miðbakka að Sjóminjasafninu á Grandagarði. Umsækjendum er frjálst að koma með tillögu
að staðsetningu á einhverjum af þeim stöðum sem merktir hafa verið inn á kort sem má nálgast á vef Faxaflóahafna.
Verkið þarf að geta staðið sjálfstætt og því ekki gert ráð fyrir að verkið tengist öðrum byggingum eða mannvirkjum.
Samkeppnin
Samkeppnin mun fara fram samkvæmt samkeppnisreglum Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM). Um er að ræða
lokaða samkeppni með forvali. Sérstök forvalsnefnd skipuð fulltrúum frá Faxaflóahöfnum og SÍM mun velja úr innsendum
umsóknum allt að fimm myndlistarmenn til þess að taka þátt í samkeppninni. Þeir listamenn sem valdir verða til þátttöku
í lokaða hluta keppninnar fá greiddar 400.000 kr. hver fyrir að skila inn vel útfærðri tillögu. Dómnefnd skipuð fulltrúum
Faxaflóahafna og SÍM munu síðan velja eina af tillögunum til útfærslu. Vinningstillagan mun hljóta 600.000 kr. í verðlaun.
Fjárhagsrammi
Faxaflóahafnir munu standa straum af öllum kostnaði við gerð og uppfærslu verksins, en heildarkostnaður má nema allt
að 20 miljónum króna. Innan þess fjárhagsramma skal rúmast allur kostnaður við verkið; undirbúningur, efni, framkvæmd
og aðkeypt vinna auk höfundargreiðslu og þóknunar til listamannsins.
Umsókn um forval:
Rétt til að sækja um í forvali hafa allir myndlistarmenn. Rafrænt umsóknareyðublað er að finna á vef Faxaflóahafna. Í
umsókninni skal gera grein fyrir áhuga á verkefninu, forsendum og hæfni til að útfæra varanlegt útilistaverk auk lauslegrar
hugmyndar að fyrirhuguðu verki. Umsóknir um þátttöku í samkeppninni verða að hafa borist fyrir kl. 17:00 mánudaginn
24. apríl næstkomandi.
Öllum umsækjendum í forvalshluta verður svarað fyrir 22. maí. Skilafrestur tillagna í lokaða hluta samkeppninnar verður
18. september og munu úrslit hennar kynnt um miðjan október.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Faxaflóahafna www.faxafloahafnir.is.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl 9. Morgunleikfimi kl 9.45,
Útskurður 2 kl 13. Postulínsmálun 2 kl 13. Söngstund við píanóið kl.
13.45. Bókaspjall Hrafns Jökulssonar kl 15.
Árbæjarkirkja Opið hús í félagsstarfi aldraðra í dag. Kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 12 og að henni lokinni borðum við hádegisverð gegn
vægu gjaldi. Leikfimin verður á sínum stað í umsjón Öldu Maríu og
síðan mun Sr. Guðmundur Þorsteinsson koma í heimsókn. Kaffi og
meðlæti í lokin Allir velkomnir!
Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-16. Handavinna m/leiðb. kl. 8.30-
16.30. Stóladans m/Þóreyju kl. 9.30-10.10. Opið hús/m.a. spiluð vist
og bridge kl. 13-16. Ljósbrotið – prjónaklúbbur m/Guðnýju Ingigerði
kl. 13-16. Prjónakaffið Gerðubergi kemur í heimskókn kl. 13.
Allir velkomnir.
Áskirkja Okkar árlega Páskaeggjabingó verður næstkomandi laugar-
dag í efra safnaðarheimili kirkjunnar kl 13. Spjaldið kostar kr. 400.
Allir velkomnir Safnaðarfélag Áskirkju
Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9. Handavinnustofa opin frá 9 - 15. Leshópur
kl. 15 í Bjartasal.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa 9-16. Morgunkaffi 10-10.30.
Leikfimi með leikfimikennara 10.30-11.20. Prjónaklúbbur 13-16. Gler-
list 13-16. Spiladagur, frjáls spilamennska 12.45-16. Opið kaffihús
14.30-15.30.
Dalbraut18-20 Handavinnusamvera kl. 9, verslunarferð í Bónus
kl. 14.40.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Herraklúbbur kl.10.15. Postulíns-
málun kl.13. Kaffiveitingar kl.14.30-15.30. Nánari upplýsingar í síma
411-2550. Verið öll velkomin.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi/Lindargata 59 Bókband kl. 9-17.
Handavinna m/leiðsögn kl. 9-12. Ferð í Bónus: rúta v/Skúlagötu
kl.12.20 Upplestur, framh.saga kl. 12.30-13. Myndlistarnarnámskeið
kl. 13.30-16.30. Dansleikur m/Vitatorgsbandi kl.14-15.
Garðabæ Opið og heitt á könnuni í Jónshúsi frá 9.30-16. Vatnsleik-
fimi. Kvennaleikfimi í Sjálandsskóla kl. 9, stólaleikfimi í Sjálandsskóla
kl 10 og kvennaleikfimi í Ásgarði kl 11. Bútasaumur í Jónshúsi kl 13.
Leir/gler í Kirkjuhvoli kl 13. Zumba fyrir félagsmenn FEBG í Kirkjuholi
kl 16.30.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Útskurður
m/leiðbeinanda kl. 9-12. Söngstund m/Kára kl. 10.30-11.30.
Útskurður/Pappamódel m/leiðb. kl. 13-16. Félagsvist kl. 13-16.
Gjábakki kl. 9, handavinna, kl. 9.30 Boccia, kl. 9.30 glerlist, kl. 13
félagsvist, kl. 13 gler- og postulínsmálun.
Grensáskirkja Samvera eldriborgara kl. 14. Verið velkomin.
Guðríðarkirkja Félagstarfs eldriborgara miðvikudaginn 22. mars
kl. 13.10. Helgistund í kirkjunni. Inga Lára Baldvinsdóttir sviðsstjóri
Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafninu kemur til okkar og segir
okkur frá starfi sínu. Framhaldssagan lesin. Kaffi og meðlæti á 500
krónur. Hlökkum til sjá ykkur. sr. Kristín og Lovísa.
Gullsmári Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, postulínsmálun kl. 13, kvenna-
bridge kl. 13, línudans kl. 16.30, línudans byrjendur kl. 17.30,
hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum, allir velkomnir!
Hæðargarður 31 Qigong kl. 6.30. Við hringborðið kl. 8.50, upplest-
rarhópur Soffíu kl. 9.30. Stafaganga með Björgu kl. 10, línudans með
Ingu kl. 10.15, framhaldssagan kl. 11. Prjónahópur kl. 13, hláturjóga kl.
13.30, tálgun í ferskan við með Valdóri kl. 14.30, síðdegiskaffi kl. 14.30.
Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-
2790.
Hvassaleiti 56 – 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 – 16, morgunkaffi
og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi. Zumbadans og
líkamsrækt með Carynu kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45. Samverustund
kl. 10.30, lestur og spjall, matur kl. 11.30. Handavinnuhópur kl. 13,
línudans kl. 13.30, kaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Glerlist kl. 9 í Borgum, gönguhópar kl. 10 frá Borgum og
inni í Egilshöll, keila í Egilshöll kl. 10 allir velkomnir. Eitthvað óvænt
og skemmtilegt í Borgum eftir hádegi í dag. Qigong með Þóru kl.
16.30 í dag í Borgum.
Neskirkja Auður Styrkársdóttir, stjórnmálafræðingur og
forstöðumaður Kvennasögusafns Íslands ræðir um Valgerði
Jónsdóttur biskupsfrú sem lét mikið að sér kveða um sína daga.
Kaffiveitinga.
Seltjarnarnes Leir og listasmiðja, Skólabraut kl. 9. Botsía, Gróttusal
kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.
Handavinna, Skólabraut kl. 13.Timburmenn, Valhúsaskóla kl. 13.
Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30.
Sléttuvegur 11-13 Kaffi, spjall og blöðin kl.10. Framhaldssaga kl
10.10. Hádegismatur kl.11.30-12.30. Handavinna kl.13. Kaffi, meðlæti
kl.14.30-15.30.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði
Stangarhyl 4, kl. 10. Söngvaka kl. 14, stjórnendur: Sigurður Jónsson
píanóleikari og Karl S Karlsson. Allir velkomnir. Söngfélag FEB
kóræfing kl. 16.30, stjórnandi Gylfi Gunnarsson.
Félagslíf
Alþjóðleg samkoma kl. 20 í
Kristniboðssalnum. House of
prayer tekur þátt. Ræðumaður
Beyene Galassie. Allir velkomnir.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Hellur og lóðalögun
Getum bætt við okkur verkum í
hellulögnum og hleðslum.
Sími 823-7170.
Ýmislegt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
VIÐHALD
FASTEIGNA
Lítil sem stór verk
Tímavinna eða tilboð
℡
544 4444
777 3600
jaidnadarmenn.is
johann@2b.is
JÁ
Allir iðnaðarmenn
á einum stað
píparar, múrarar, smiðir,
málarar, rafvirkjar
þakmenn og flísarar.
Viðhalds-
menn
Tilboð/tímavinna
s. 897 3006
vidhaldsmenn.is
vidhaldsmenn@gmail.com