Morgunblaðið - 22.03.2017, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hipphoppsveitin Shades of
Reykjavík (SOR) sendi fyrir
skömmu frá sér aðra plötu sína,
RÓS og er hún eingöngu aðgengi-
leg á netinu enn sem komið er, á
vefnum YouTube og tónlistarveit-
unni Spotify. Fastir liðsmenn SOR
eru þeir Elli Grill, Emmi Beats,
Prins Puffin, Hermann Bridde og
Geimgengill. Gestir eru nokkrir á
plötunni, eins og siður er í hipp-
hoppi en þeir eru Blaz Roca, Krist-
ín Morthens, dadykewl, KILO og
SinceWhen. Elli Grill og Hermann
segja titil plötunnar einfaldlega
nafn sveitarinnar, eða öllu heldur
skammstöfunina, afturábak. O að
vísu breytt í ó.
Býfluga sem borðar hundamat
Í tölvupósti til blaðamanns lýsti
Elli Grill plötunni með þeim hætti
að hún væri býfluga sem borðaði
hundamat og gengi í hvítum sloppi
um helgar eða ástæðunni fyrir því
að menn væru hættir að senda apa
út í geim. Prins Puffin mun ekki
hafa skilið hvað Elli var að fara
með þessu og taldi plötuna skref í
rétta átt hjá mjög áttavilltum ketti.
Elli Grill og Hermann hlæja
innilega að þessari lýsingu þegar
blaðamaður ber hana undir þá en
Hermann sá um að framleiða,
hljóðblanda og mastera plötuna.
„Þetta er akkúrat útskýringin á
plötunni,“ segir Elli um lýsinguna.
SOR-hópurinn gefur sjálfur út
plötuna og segir Hermann að á
henni megi finna allar stefnur.
„Þú getur fundið old school, new
school, crunk-dub … það eru allir
stílar á þessari plötu. Við höldum
okkur ekki við einn stíl, erum ekki
að festa okkur í einu formi því við
erum listamenn og þróum okkur.
Við festumst ekki í sömu formun-
um eins og flestar rapphljómsveitir
á Íslandi,“ segir Hermann.
Tóku upp í stúdíói
The Southern Demon Herd
– Er það eitthvað sem þið ákváð-
uð fyrirfram, að það ættu að vera
svona margir stílar á plötunni?
„Nei, þetta gerðist að mestu
leyti í Bandaríkjunum, í Nashville.
Við vorum þar í mánuð og héldum
marga tónleika
þar með hópi af
fólki sem heitir
The Southern
Demon Herd.
Þeir eru útgef-
endur og við
ferðuðumst mikið með þeim í rút-
um og spiluðum út um allt í
Tennessee með þeim. Þeir eru með
stúdíó og við tókum lögin að mestu
upp í stúdíóinu þeirra í Nashville,“
segir Elli.
Hermann segir að fyrsta lagið á
plötunni, „R.J.Ó.M.I.“, sé bein vís-
un í Wu Tang Clan-lagið
„C.R.E.A.M.“. „Þetta er svona
minn innblástur frá þessum 90’s
hipphopp-heimi og mig langaði að
fara aftur í tímann því mér finnst
fólk hætt að leggja metnað í tón-
listina sína í dag, í hipphoppinu.
Það ætti að hlusta meira á hipp-
hopp og skilja betur um hvað það
snýst,“ segir Hermann. „Við erum
búnir að upplifa margt og mikið,
komum beint úr kjallaranum og
upp í penthouse-íbúðina og lærum
þar á lífið sjálft, erum sjálfstæðir
og stólum á engan annan en sjálfa
okkur. Margir aðrir íslenskir hipp-
hopp-tónlistarmenn þurfa alltaf að
treysta á aðra með að búa til takt-
inn fyrir sig, mixa fyrir sig og svo
þarf einhvern annan til að gera
vídeóið.“
Óþvingað
– Þið leggið mjög mikið í vídeó-
gerðina, gerið þið ekki vídeó við
næstum öll lögin ykkar?
„Þegar við vorum að byrja með
Shades of Reykjavík gerðum við
vídeó við öll lög en þegar við gerð-
um fyrstu plötuna okkar fundum
við hvað það væri gaman að gera
svona heildarprójekt. Svo gefum
við út RÓS og það var rosalega
óþvingað allt saman, það gerðist
mikið í Tennessee, í stúdíóinu þar.
Þetta átti aldrei að verða plata og
við vorum búnir að sitja á lögunum
í gott ár áður en við gáfum þau út,“
segir Elli og Hermann bætir því
við að hann hafi verið orðinn óró-
legur yfir því að vera með öll þessi
lög í tölvunni sinni, hafi viljað gefa
þau út.
Snýst ekki alltaf um peninga
– Nú eruð þið í rauninni að gefa
plötuna með því að setja hana á
netið þar sem allir geta hlustað á
hana ókeypis. Er það ekki bara
tímanna tákn, er geisladiskurinn
bara dauður?
„Ég hélt það en svo er fólk alltaf
að spyrja, vill eiga diska og vínyl,“
segir Elli og Hermann tekur við.
„Við gerðum fyrri plötuna og sett-
um hana í búðir til sölu. En þetta
snýst ekki alltaf um peninga, fólk
vill fá að hlusta á tónlist og við eig-
um nóg af henni og vildum bara
gefa hana út. Svo kemur platan
hans Ella Grill og hún fer í búðir
líka. Við viljum geta gefið líka, inn
á milli, viljum ekki fá peninga fyrir
allt sem við gerum,“ segir Her-
mann. Elli bætir því við að sér hafi
fundist eins og diskurinn væri
dauður en fólk sé hins vegar alltaf
að spyrja um hann. Og vínylhaus-
arnir muni alltaf vilja fá sinn vínyl.
– Um hvað er verið að syngja á
plötunni, partí og kynlíf?
„Ég myndi nú ekki segja það en
jú, jú, partí, kynlíf, ást og kærleik
og „realness“,“ segir Hermann.
Næstu tónleikar SOR verða á
Hvíta riddaranum í Mosfellsbæ og
svo 5. maí á Spot í Kópavogi.
Svellkaldir SOR-menn með nokkrum liðsmönnum The Southern Demon Herd. Í neðri röð f.v. Hermann Bridde,
SienceWhen og Elli Grill og í efri röð Mice, Prins Puffin, Geimgengill, Emmi Beats og Máni.
„Viljum geta gefið líka“
RÓS, ný plata
Shades of Reykja-
vík, komin á netið
„Það eru allir
stílar á þessari
plötu,“ segir einn
úr hópnum
Gera allt sjálfir
„Hún er að
fæðast, hún
er tilbúin,
bara verið
að mastera
hana. Ég
býst við að
hún komi út
eftir tvær
eða þrjár
vikur,“ segir
Elli Grill um væntanlega sóló-
plötu sína sem Alda Music,
útgáfufélag Ólafs Arnalds,
Sölva Blöndal o.fl., gefur út.
Platan verður fyrsta sólóplata
Ella og mun bera titilinn Þykk
fitan.
„Það er ekkert væmið drasl
á henni, ég get lofað þér því,“
segir Elli og hlær illkvittnis-
lega. Hermann segir að á
plötu Ella verði að finna al-
vöru hipphopp og Elli bætir
því við að platan verði „mjög
ævintýraleg“.
Þykk fitan
væntanleg
ELLI GRILL Á MÁLA
HJÁ ÖLDU MUSIC
Elli Grill
Vistvænna prentumhverfi
og hagkvæmni í rekstri
Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri
og fyrsta flokks þjónusta.
www.kjaran.is | sími 510 5520
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 8, 10.30
SÝND KL. 5.15, 10.30 SÝND KL. 6
SÝND KL. 8, 10.15
SÝND KL. 8 SÝND KL. 5.40