Morgunblaðið - 05.05.2017, Side 1

Morgunblaðið - 05.05.2017, Side 1
F Ö S T U D A G U R 5. M A Í 2 0 1 7 Stofnað 1913  110. tölublað  105. árgangur  www.lyfja.is Sumarið er tíminn Heilsutjútt 3.–14. maí 10-30% AFSLÁT TUR af völd um heilsuv örum Er kominn tími á ný dekk? Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á N1.is SAMFÉLAGS- RÝNI Í SPJÖRUNUM MIKIÐ OG ÓHEFT FLÆÐI HUGMYNDA MATUR Á MBL.IS - FULLT AF GÓÐGÆTI KRISTINN MÁR 38 24 SÍÐNA SÉRBLAÐFATAHÖNNUN 12 Nemendum í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði bauðst í gær að reyna sig í siglingasporti þegar þeir fóru á kajökum út. Þetta var góð skemmtun en lærdóm- ur þó líka, því öllum er mikilvægt að kunna ára- lagið, hvort sem það er á bát eða í lífinu sjálfu. Ár- inni kennir illur ræðari, segir máltækið, sem vísar til þess að nálgast verði viðfangsefnin með réttu lagi en skáka ekki í skjóli afsakana, og það gera krakkar í Hafnarfirði ekki. Morgunblaðið/Golli Ungir ræðarar í Hafnarfirði læra rétta áralagið Niðurstöður rannsóknar Hermundar Sigmundssonar, prófessors í taugasál- fræði við Vísinda- og tækniháskólann í Þrándheimi í Noregi, á íslenskum ungbörnum hafa vakið mikla athygli og verið birtar í virtu vísindatímariti. Samkvæmt þeim geta börn allt niður í fjögurra mánaða staðið óstudd, hafi þau fengið rétta örvun og æfingar. Rannsóknina gerðu Hermundur og samstarfsmenn hans í samráði við Snorra Magnússon, íþróttakennara og þroskaþjálfa, sem hefur starfað við sundkennslu ungbarna í hátt í þrjátíu ár. Að sögn Hermundar er það við- tekin kenning um þroska ungbarna að þau geti ekki staðið í fæturna fyrr en um níu mánaða aldurinn. Með að- ferðum Snorra skapast taugateng- ingar fyrr en ella sem gera barninu kleift að standa. „Niðurstöður rann- sóknarinnar sýna að með því að skapa taugatengingar snemma geta börn gert hluti fyrr en hingað til hef- ur verið talið. Á það við um aðrar at- hafnir? Það er stóra spurningin sem við viljum leita svara við,“ segir Hermundur. annalilja@mbl.is »4 Geta staðið fjögurra mánaða gömul með réttri örvun  Rannsókn sýnir að flýta má myndun taugatenginga hjá börnum Morgunblaðið/Eva Björk Fyrstu skrefin Sundkennsla getur stuðlað að þroska ungbarna. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs hafa Samgöngustofu borist 362 kvartanir frá flugfarþegum og hefur þeim fjölgað töluvert frá fyrra ári. Allt árið í fyrra reyndust kvartanir af þessu tagi til stofnunarinnar 424 talsins. Fjölgunina má að hluta skýra með fjölgun flugferða, en einn- ig er hún til komin vegna þess að fólk er meðvitaðra um réttindi sín en á árum áður. Flestar kvartanir sem berast stofnuninni tengjast seinkun- um flugferða. Þannig reyndust 356 kvartanir af 424 vera af þeim toga í fyrra. 34 komu til vegna þess að flug- ferðum var aflýst og 17 vegna þess að flugfarþega var neitað um far af einhverjum ástæðum. 11 reyndust vegna farangurs og 6 vegna annars. Neytendasamtökin veita neytend- um upplýsingar og ráðleggingar vegna flugsamgangna. Þar hefur er- indum vegna mála af því tagi einnig fjölgað mikið síðustu ár. Dólgarnir ekki fleiri en áður Íslenskum flugrekendum ber að tilkynna þau atvik sem upp koma þegar erfitt hefur reynst að hafa stjórn á ölvuðum, ofsafengnum eða óviðráðanlegum farþegum. Sam- kvæmt upplýsingum frá Samgöngu- stofu hefur slíkum tilvikum ekki fjölgað heldur hefur fjöldi þeirra nokkurn veginn haldist í hendur við fjölgun farþega. Samkvæmt EES-reglum verða flugfélög að greiða farþegum skaða- bætur þegar flugi er aflýst eða því seinkað. Þau réttindi eru þó bundin tilteknum skilyrðum en á vef Sam- göngustofu getur fólk nálgast frek- ari upplýsingar um það. Gríðarleg fjölgun kvartana  Flugfarþegar kvarta til Samgöngustofu  362 erindi það sem af er þessu ári MÓánægðum flugfarþegum… »6  Frá Stofnfiski í Höfnum er áætlað að flytja út til Færeyja um tvær milljónir hrognkelsaseiða í ár og frá eldisstöð Hafró við Grindavík fara 150-200 þúsund seiði. Verð- mæti þessa útflutnings gæti verið um 400 milljónir króna. Hrognkels- in hafa dugað vel við að éta lús af laxi í eldi, en laxalús er víða vanda- mál í eldi. Þá flytur Stofnfiskur einnig nokkuð af smáseiðum og hrognum hrognkelsa til Skotlands og Hjalt- landseyja. »16 Ljósmynd/Agnar Steinarsson Til Færeyja Seiðin eru oft um fimm mán- aða og 20 g að þyngd við útflutning. Seiði hrognkelsa flutt út fyrir 400 milljónir króna  Áformað er að byggja um 100 íbúðir á Garðheimareitnum í Norð- ur-Mjódd. Hagar eiga lóðina. Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir félagið „hafa hug á að þróa þessa eign og gera úr henni meiri verðmæti“. Hann segir Haga þó ekki munu sjá um uppbygginguna og þetta sé ekkert sem gerist alveg á næstunni. G. Oddur Víðisson arkitekt hefur unnið tillögu að skipulagi á reitn- um. Hann segir í skoðun að byggja 3-6 hæða fjölbýlishús með inn- görðum. Á jarðhæð verði verslun og þjónusta. Fallið er frá heimild í aðalskipulagi um að á þessum slóð- um verði reist fjölbýlishús sem yrði 8 til 10 hæðir. Á reitnum sem um ræðir eru nú Garðheimar, ÁTVR og bílasalan 100 bílar. »4 Áforma 100 íbúðir í Norður-Mjódd

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.