Morgunblaðið - 05.05.2017, Side 4

Morgunblaðið - 05.05.2017, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017 Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga Algengt verð á Íslandi: 49.600 kr. 28.800kr. Okkar verð DeWALT BORVÉL DCD795M1 Kolalaus 18V (4.0Ah) Baldur Arnarson baldura@mbl.is Skipulagsyfirvöld í Reykjavík taka á næstu vikum til umsagnar hugmyndir að nýbygging- um á lóðunum Stekkjarbakki 4-6 í Reykjavík. Garðheimar, ÁTVR og bílasalan 100 bílar eru þar með starfsemi í nokkrum byggingum. G. Oddur Víðisson arkitekt kom að gerð til- lögu um breytta notkun lóðarinnar. Hann segir í skoðun að byggja um 100 íbúðir í 3-6 hæða fjölbýlishúsum, með verslunum á jarðhæð. Á milli þeirra verði inngarðar. Fallið sé frá heim- ild í aðalskipulagi fyrir 8-10 hæða fjölbýlishús- um. Randbyggð verði meðfram götunum. Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar, segir borg- ina gera ráð fyrir því að nýtt deiliskipulag fyrir svæðið geti tekið gildi eftir ár. Samkvæmt Fasteignaskrá hafa Hagar verið skráðir eigendur lóðarinnar síðan í febrúar 2015. Lóðin var áður í eigu félagsins Dalsnes ehf. Lóðin var fyrst skráð haustið 1999 og var eigandinn félagið Gróðurvörur ehf. Hagar munu ekki byggja fjölbýlishúsin Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir félag- ið hafa skoðað „ákveðin þróunarmál á þessu svæði“. Spurður hvort hugmyndin sé að Hag- ar, eða aðrir fjárfestar, fari með uppbyggingu á reitnum segir Finnur að Hagar séu ekki verktaki. Aðrir muni fara með uppbyggingu. „Það hefur komið fram á kynningum hjá okkur að við höfum hug á að þróa þessa eign og gera úr henni meiri verðmæti. Þarna eru leigu- samningar í gildi í nokkur ár í viðbót. Þetta er því ekkert handan við hornið en þetta er til framtíðar,“ segir Finnur. Áforma 100 íbúðir á Garðheimareit Norður-Mjódd Húsin með grænu þökunum eru Stekkjarbakki 4-6. Olís er í Álfabakka 2. Morgunblaðið/Golli Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki er ljóst hvort og þá hvaða áhrif breytingar á greiðsluþátttöku sjúk- linga í heilbrigðiskostnaði hafa á sjúkrasjóði stéttarfélaga. Sigurður Bessason, formaður Eflingar stétt- arfélags, segir að það sé ekki hlut- verk sjúkrasjóðanna að greiða al- mennan læknis- eða lyfjakostnað félagsmanna. Með nýja greiðsluþátttökukerfinu hækkar kostnaður við einstakar læknisaðgerðir en um leið er lækkað þak þeirra sem oft þurfa að leita læknis. Spurður um áhrif á sjúkrasjóðina sem taka þátt í vissum heilbrigðis- kostnaði félagsmanna segir Sigurð- ur að það sé ekki ljóst. Vafalaust muni reyna á það. „Það er alltaf þannig að þegar aukið er við kostnað á einum stað vill fólk gjarnan leita leiða annars staðar til að létta af sér kostnaði. Það er eðlilegur hlutur,“ segir hann. Styrkja forvarnir Hlutverk sjúkrasjóðanna er fyrst og fremst að greiða sjúkradagpen- inga til félagsmanna í veikindum, eftir að það fer af launaskrá vinnu- veitanda. Það getur bæði verið vegna langvarandi veikinda og styttri og einnig þegar félagsmaður verður af tekjum vegna veikinda maka eða barns. Sigurður segir að í þetta fari meginhluti af greiðslum sjúkrasjóðs Eflingar. Til viðbótar styrkir sjóðurinn fé- lagsmenn í forvörnum, eins og hjarta- og krabbameinsskoðunum, og greiðir styrki til nokkurra ann- arra afmarkaðra þátta. Óljós áhrif á sjúkrasjóði stéttarfélaga  Leita annað þegar kostnaður eykst Morgunblaðið/Golli Vinna Sjúkrasjóðir greiða ekki al- mennan læknis- og lyfjakostnað. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Með réttri æfingu, örvun og einbeit- ingu geta allt niður í fjögurra mánaða gömul börn staðið nánast teinrétt í 15-30 sekúndur. Þetta eru nið- urstöður rannsóknar Hermundar Sigmundssonar, prófessors í taugasálfræði við Vísinda- og tækniháskólann í Þrándheimi í Noregi, og sam- starfsmanna hans, sem gerð var hér á landi í samstarfi við ung- barnasund- kennarann Snorra Magnússon. Niðurstöðurnar þykja varpa nýju ljósi á þroskaferil ungbarna, þær voru nýlega birtar í vísindatímaritinu Frontiers of Psychology, sem er eitt hið virtasta á sínu sviði, og hafa vakið mikla at- hygli. Hermundur segir niðurstöð- urnar kalla á fleiri rannsóknir á því hvernig hægt sé að örva andlegan og líkamlegan þroska ungbarna. Að sögn Hermundar er það við- tekin kenning um þroska ungbarna að þau geti ekki staðið í fæturna fyrr en um níu mánaða aldurinn. Hann hefur lengi fylgst með aðferðum Snorra í starfi hans sem ungbarna- sundkennari og fyrir um sjö árum bar Hermundur hreyfiþroska fjög- urra ára barna sem höfðu verið í ung- barnasundi hjá Snorra saman við þroska barna sem ekki höfðu verið í slíkri kennslu. Niðurstaðan var að hreyfiþroski fyrrnefndu barnanna var talsvert meiri en hinna. Her- mundur segir niðurstöðurnar hafa vakið mikla athygli, bæði í fræða- samfélaginu og utan þess, og leiddu þær til þeirrar rannsóknar sem nú hefur verið birt. Vantrúaðir vísindamenn „Við getum ekki litið framhjá því að í dag er minna talað við börn en áður, þau eru mikið í snjalltækjum og við höfum einfaldlega ekki hugmynd um hvaða áhrif það muni hafa á þau í framtíðinni. Það sem gerist í ung- barnasundinu hjá Snorra er að með þessu rétta áreiti og örvun skapast taugatengingar fyrr en ella sem gera barninu kleift að standa. Börnin fá þarna áskoranir sem passa fyrir þeirra þroskastig.“ Hermundur hafði sagt starfs- félögum sínum í hópi vísindamanna frá árangri Snorra. Fæstir trúðu honum og sögðu ógerning að þriggja til fjögurra mánaða gömul börn gætu staðið óstudd. Máli sínu til sönnunar fékk hann Snorra til að taka ungbarn standandi á korkplötu upp á mynd- band og sýndi félögum sínum sem þá loks létu sannfærast. Í rannsókninni fylgdist hópur Her- mundar með hópi 12 barna sem voru í ungbarnasundi hjá Snorra og fylgdi þeim síðan eftir í þrjá mánuði. „Foreldrar barnanna í hópnum fengu leiðbeiningar um heimaþjálfun þar sem unnið var með styrk, jafn- vægi, samhæfingu og einbeitingu og síðan var unnið með það áfram í sundlauginni. Í lokin gátu öll börnin staðið sjálf á korkplötu með sund- kennaranum í lauginni í 15-30 sek- úndur,“ segir Snorri Spurður hvort börnin geti þá stað- ið óstudd á gólfi, segir hann svo ekki vera. „Þetta snýst um samspil barns og kennara. Barnið leitast við að gera þetta sjálft og halda jafnvægi, en fær aðstoð frá kennaranum sem vaggar plötunni aðeins til.“ - Hvernig varð þessi aðferð til? „Þegar ég byrjaði að kenna ung- barnasund fyrir 27 árum var ekki markmiðið hjá mér að kenna ung- börnum að synda, heldur að vinna með samhæfingu og styrk, eftirtekt og athygli. Annars er ekkert nýtt undir sólinni og ég veit að þetta hefur verið gert víða í mörg ár,“ segir Snorri. Fleiri rannsókna að vænta Hermundur segir að þetta sé svið sem fáir vísindamenn hafi sinnt. Sjálfur sér hann ungbarnarann- sóknir sem óþrjótandi viðfangsefni og segir að nú sé verið að leita styrkja til fleiri rannsókna á þessu sviði. „Hvað verður um þessa krakka þegar þau verða eldri? Fara þau fyrr að skríða eða standa við húsgögn? Hvernig einbeita ungbörn sér, hvern- ig virkar athygli þeirra? Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að með því að skapa taugatengingar snemma geta börn gert hluti fyrr en hingað til hef- ur verið talið – á það við um aðrar at- hafnir? Það er stóra spurningin sem við viljum leita svara við.“ Morgunblaðið/Þórður Teinrétt Heiðdís, sem hér sést með Snorra, tók þátt í rannsókn Hermundar. Fjögurra mánaða og standa óstudd og teinrétt  Rannsókn íslensks prófessors á ungbörnum vekur athygli Hermundur Sigmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.