Morgunblaðið - 05.05.2017, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 05.05.2017, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017 Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@kerfi.is | kerfi.is Fagleg & persónuleg þjónusta Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki Hagkvæmara en þú heldur! Dæmi: COSMETAL AVANT Nýjasta brúsavatnsvélin Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Það sem af er þessu ári hafa Sam- göngustofu borist 362 kvartanir frá flugfarþegum, yfirleitt vegna seinkana á flugferðum. Þetta er talsverð fjölgun frá því í fyrra. Svipuð hlutfallsleg fjölgun hefur orðið á þeim erindum sem Neyt- endasamtökunum berast vegna flugsamgangna. Þetta má að hluta skýra með fjölgun flugferða, en einnig með því að fólk sé meðvit- aðra um réttindi sín. Í þessu sambandi er vert að hafa í huga að þeir farþegar, sem telja að flugþjónustu hafi verið ábótavant á einhvern hátt, geti verið talsvert fleiri, því að á bak við hverja kvörtun eru gjarnan nokkrir einstaklingar; ferðahópur eða fjölskylda. Á vef Samgöngustofu segir að samkvæmt EES-reglum verði flug- félög að greiða farþegum skaða- bætur þegar flugi er aflýst eða seinkað. Þau réttindi eiga þó ekki við í öllum tilvikum og er það út- skýrt nánar á vefnum. Samgöngustofa fékk í fyrra 424 kvartanir frá flugfarþegum. Þar af voru 356 vegna seinkunar, 34 vegna þess að flugferðum hafði verið aflýst og 17 vegna þess að flugfarþega var neitað um far af einhverjum ástæðum. 11 voru vegna farangurs og sex vegna ein- hvers annars. Þetta voru næstum því tvöfalt fleiri kvartanir en stof- unni bárust árið á undan og er sú fjölgun í nokkuð beinu samhengi við þann vöxt sem verið hefur í flugsamgöngum. Upplýsingagjöf ábótavant Neytendasamtökin veita neyt- endum upplýsingar og ráðlegg- ingar vegna flugsamgangna. Í fyrra voru slík erindi 224, sem var talsverð aukning frá fyrra ári og voru flest vegna seinkana á flug- ferðum. „Við veitum fólki upplýs- ingar um hver réttindi þess eru og hvert það eigi að leita,“ segir Ívar Halldórsson. „Það er nokkuð um að neyt- endur hafi samband við okkur, enda virðast flugfarþegar betur meðvitaðir um réttindi sín og hvort þeir eigi rétt á bótum en áður var, “ segir Ívar. „Það er mikilvægt að farþegar fái upplýs- ingar um réttindi sín á flugvell- inum þegar þeir lenda í seink- unum eða aflýsingum, en margir kvarta yfir því að hafa ekki fengið nægilegar upplýsingar um rétt- indi sín á flugvellinum,“ bætir hann við. Ívar er stjórnandi Evrópsku neytendaaðstoðarinnar, ECC á Íslandi. Í fyrra barst aðstoðinni 61 erindi vegna ýmissa mála sem varða flugsamgöngur, flest voru þau frá erlendum farþegum ís- lenskra flugfélaga. Það sem af er þessu ári eru slík erindi orðin 37 og segir Ívar þessa fjölgun erinda líklega bæði tilkomna vegna auk- ins ferðamannastraums og auk- innar þekkingar neytenda á ECC. Flugfélögum ber að upplýsa Þórhildur Elínardóttir, upplýs- ingafulltrúi Samgöngustofu, segir upplýsingaskyldu flugrekenda lyk- ilatriði til að farþegar geti nýtt réttindi sín, en samkvæmt reglu- gerð um skaðabætur og aðstoð til handa flugfarþegum ber flugrek- andi eða umboðsmaður hans ábyrgð á að upplýsa farþega um rétt þeirra til bóta og aðstoðar, m.a. með tilkynningu við innritun farþega. „Samgöngustofa hefur haft samband við flugrekendur vegna upplýsingagjafar, bæði haldið fundi með þeim og sent spurningalista til þeirra um hvernig að framkvæmd er staðið. Samkvæmt loftferðalögum getur Samgöngustofa lagt sektir á flug- rekendur, sinni þeir ekki þessari skyldu, enn sem komið er hefur það ekki verið gert,“ segir Þór- hildur. Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Icelandair, segir að nokkuð sé um að farþegar beini kvörtunum vegna seinkana eða annars beint til félagsins, en fari ekki með þær í gegnum Sam- göngustofu. „Það gæti verið vegna þess að reglugerðir í kring- um flugstarfsemi eru skýrari en áður og fólk er meðvitaðra um hvort það eigi rétt á bótum eða ekki.“ Kvartanir til Samgöngustofu Heimild: Samgöngustofa Vegna óviðráðanlegra farþega, t.d. vegna ölvunar 2014 2015 2016 2017* *Fyrstu 4 mánuði ársins. 20 15 10 5 0 Almennt vegna flugsamgangna Fyrstu 4 mánuði ársins: 362 Allt árið í fyrra: 424 11 18 18 3 Óánægðum flugfarþegum fjölgar og sífellt fleiri kvarta  Farþegar meðvitaðri um réttindi  Sekta má flugfélög sem veita ekki upplýsingar Íslenskum flugrekendum er skylt að tilkynna atvik þar sem erfiðleikar hafa verið við að hafa stjórn á ölvuðum, ofsa- fengnum eða óviðráðanlegum farþegum. Samkvæmt upplýs- ingum frá Samgöngustofu hef- ur slíkum atvikum ekki fjölgað, heldur hefur fjöldi þeirra nokk- uð haldist í hendur við fjölgun farþega. „Það kemur fyrir að flugfarþegar um borð séu of drukknir,“ segir Svanhvít Frið- riksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air. „Ef svo er, er þeim óhikað vísað frá borði. En það er ekki haldið sérstaklega utan um fjölda slíkra tilvika.“ Guðjón Arngrímsson hjá Ice- landair segir að ekki séu til töl- ur um hversu oft tilvik sem þessi koma upp um borð í vél- um félagsins. Hann segir að nokkrum sinnum hafi félagið lagt fram kærur til lögreglu vegna hegðunar farþega og í einhverjum tilvikum hafi við- komandi farþegi verið krafinn um skaðabætur, hafi framferði hans haft áhrif á framgang flugferðarinnar. Flugdólgum hefur ekki fjölgað SKYLT AÐ TILKYNNA ÖLVAÐA OG OFSAFENGNA „Við glímum enn við dagsektir og þetta mál hefur bara sinn gang,“ segir Arnþrúður Karlsdóttir, út- varpsstjóri Út- varps Sögu, en Póst- og fjar- skiptastofnun (PFS) hóf í lok febrúar sl. að leggja dagsektir á stöðina að upp- hæð 75 þúsund krónur fyrir hvern dag sem líður þar til félagið lætur af útsendingum á tíðninni 102,1 MHz. Hafði PFS þá úrskurðað að stöðinni væri óheimilt að útvarpa á tveimur tíðnisviðum á sama svæði. „Hér skiptir mestu máli að við er- um enn í loftinu – á okkar tveimur tíðnisviðum,“ bætir hún við. Hlustendur Útvarps Sögu hafa um árabil getað nálgast alla þætti stöðvarinnar á heimasíðu félagsins þar til nýverið, en hinn vinsæli símatími er þar ekki lengur í hópi þess efnis sem þar er að finna. Að sögn Arnþrúðar var ákveðið að setja þá þætti ekki inn á netið sök- um stuldar á dagskrárefninu. „Á síðunni okkar er fólki bent á að þeir sem nota dagskrárefni og myndir frá Útvarpi Sögu án leyfis verða dregnir til ábyrgðar og krafðir um greiðslu fyrir ólöglega birtingu og dreifingu,“ segir Arn- þrúður og bendir á að stöðin vinni nú í því að hafa hendur í hári þeirra sem tekið hafa dagskrárefni og mega þeir búast við rukkun fyrir. Senda enn á tveimur tíðnisviðum og glíma við dagsektir PFS Arnþrúður Karlsdóttir Sólberg ÓF-1, nýr frystitogari Ramma hf. í Fjallabyggð, sigldi heimleiðis frá Tersan-skipa- smíðastöðinni í Tyrklandi síðdegis í gær. Áætlað er að siglingin til Siglufjarðar taki allt að tveimur vikum og er reiknað með að skipið haldi til veiða viku eftir að það kemur til Íslands. Sólberg ÓF-1 er 3.720 brúttó- tonna frystitogari, 80 metrar á lengd og 15,4 metrar á breidd. Skipið er tæknilega fullkomið og allur aðbúnaður eins og best gerist. Sólberg ÓF leysir af hólmi frysti- togarana Mánaberg ÓF og Sig- urbjörgu ÓF, en báðir eru þeir komnir til ára sinna. aij@mbl.is Sólbergið á heimleið frá Tyrklandi Sólberg ÓF-1 Ferðin heim tekur tvær vikur. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Sveitarstjórnin í Rangárþingi eystra hefur samþykkt að kannaðir verði möguleikar á því að sveitarfélagið eignist afsteypu af verki listakon- unnar Nínu Sæmundsson, Afreks- hugur (Spirit of Achievement), sem er ein af táknmyndum hótelkeðj- unnar Waldorf-Astoria. Gangi þetta eftir verður verkinu fundinn staður í nýjum miðbæ Hvolsvallar sam- kvæmt deiliskipulagi sem sveit- arstjórn og áhugasamir íbúar vinna nú að. „Okkur finnst að Nínu hafi ekki verið hampað nóg og við hér höfum ekki vakið nægilega athygli á upp- runa hennar,“ segir Kristín Þórðar- dóttir sem bar upp tillöguna ásamt Birki A. Tómassyni. Listakonan fæddist árið 1872 í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð sem tilheyrir Rang- árþingi eystra. „Hugsun okkar er sú að miðbær- inn sé hliðið að sveitarfélaginu og verkið dragi athygli að okkur og fái fólk til að koma við hjá okkur,“ segir Kristín. Afrekshugur Nínu sé al- þjóðlega þekkt verk sem margir kannist við. Nína Sæmundsson sigraði í hug- myndasamkeppni um höggmynd til að prýða aðalinngang Waldorf- Astoria hótelsins í New York þegar það var opnað við Park Avenue árið 1931. Var það valið úr hópi 400 til- lagna. Vinningstillaga hennar er táknmynd afrekshugar og metnaðar og var talið falla vel að framfara- og afrekshug þeim sem einkenndi hönnun hinnar nýju hótelbyggingar. Kristín segir að hún telji að sveitarfélaginu beri að halda á lofti uppruna og sögu Nínu og heiðra minningu hennar og það sé best gert með þessum hætti. Sér hún fyrir sér að afsteypan verði á torgi í mið- bænum. Jafnframt því að minnast listakonunnar yrði verkið táknmynd þess framfarahugar sem búi að baki nýju miðbæjarskipulagi á Hvolsvelli. Verk Nínu í heimahagana  Afsteypa af verki Nínu Sæmundsson verði á Hvolsvelli List Afrekshugur Nínu í New York.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.