Morgunblaðið - 05.05.2017, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017
Endaspretturinn er hafinn ífrönsku forsetakosningunum.
Kappræður for-setaefnannna
voru í gær og skoð-
anakönnun í kjölfar-
ið sýndi að rúm 60%
áhorfenda töldu að
Macron hefði staðið
sig betur, en tæp
40% hölluðust að því
að Le Pen hefði sigr-
að.
Svo vill til að þettaeru sömu töl-
urnar og birtast í
meðaltali kannana
um væntanleg úrslit.
Marine Le Penátti þó eftirminnilegustu setn-
ingu kvöldsins og þá sem mest er
vitnað til.
Hún sagði: „Hvernig sem úrslitkosninganna verða á sunnudag
liggur ein niðurstaða þegar fyrir:
Frakklandi verður í framhaldinu
stjórnað af konu. Annaðhvort Merk-
el, kanslara Þýskalands, eða mér.“
Macron er staðfastur og ákafurESB-sinni og hefur andstæð-
ingur hans reynt að koma á hann
þeim stimpli að hann sé dindill Þjóð-
verja.
Angela Merkel kanslari hefur lýstyfir stuðningi við Macron.
Út frá íslenskum umræðuefnummá segja að athyglisvert var að
Marine Le Pen sakaði bankamanninn
Macron um að eiga leynireikninga í
skattaskjólum.
Macron hótaði frúnni lögsóknvegna þeirrar fullyrðingar.
Marine
Le Pen
Fjörleg átök
STAKSTEINAR
Emmanuel
Macron
Veður víða um heim 4.5., kl. 18.00
Reykjavík 14 heiðskírt
Bolungarvík 8 léttskýjað
Akureyri 17 heiðskírt
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 9 heiðskírt
Ósló 14 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 heiðskírt
Stokkhólmur 11 heiðskírt
Helsinki 9 heiðskírt
Lúxemborg 12 rigning
Brussel 14 léttskýjað
Dublin 14 léttskýjað
Glasgow 13 heiðskírt
London 12 alskýjað
París 14 rigning
Amsterdam 11 skýjað
Hamborg 7 rigning
Berlín 9 súld
Vín 16 léttskýjað
Moskva 10 heiðskírt
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 26 heiðskírt
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 23 heiðskírt
Róm 20 léttskýjað
Aþena 23 heiðskírt
Winnipeg 14 skýjað
Montreal 11 skýjað
New York 14 heiðskírt
Chicago 8 rigning
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:45 22:05
ÍSAFJÖRÐUR 4:32 22:28
SIGLUFJÖRÐUR 4:14 22:12
DJÚPIVOGUR 4:10 21:39
Nýleg íslensk rannsókn gefur til
kynna að fjöldi sjúklinga með ósæð-
arlokuþrengsl (e. aortic stenosis)
mun tvöfaldast á næstu 25 árum.
Frá því að fyrsta ósæðarlokuað-
gerðin var gerð með þræðingar-
tækni, svokölluð TAVI-aðgerð, í
Frakklandi árið 2002 hafa yfir
300.000 slíkar aðgerðir verið fram-
kvæmdar í heiminum. Fjölgar þeim
almennt um u.þ.b. 40% á ári.
Kemur þetta fram í ritstjórnar-
grein Ingibjargar Jónu Guðmunds-
dóttur, yfirlæknis hjartaþræðinga-
deildar Landspítala, sem birt er í 5.
tölublaði Læknablaðsins.
„Hér á Íslandi hafa um 80 sjúkl-
ingar gengist undir TAVI-aðgerð
og flestir með mjög góðum árangri,
árlega eru nú gerðar um 25 aðgerð-
ir og er þörfin vaxandi,“ segir í
greininni, en meðalaldur sjúklinga
hefur verið um 84 ár. Hafa elstu
sjúklingarnir verið 93 ára.
Áður fyrr voru aðgerðirnar
framkvæmdar með svæfingu og
voru sjúklingar fluttir á gjörgæslu
eftir skurðinn. „Nú er hægt að setja
lokurnar inn um grennri op á slag-
æð og auðveldara er að staðsetja
þær nákvæmlega,“ segir einnig.
Þá er stefnt að því að halda rann-
sókn fljótlega þar sem borinn verð-
ur saman árangur af TAVI-aðgerð
og opinni skurðaðgerð á sjúkling-
um sem eru yngri en 75 ára.
Búast við
tvöföldun
á 25 árum
Vaxandi þörf fyrir
TAVI-aðgerðir
Morgunblaðið/Eggert
Læknavísindi Yfir 300.000 TAVI-
aðgerðir hafa verið framkvæmdar.