Morgunblaðið - 05.05.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.05.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017 – fyrir salernið! Pro300 Vitamix Pro300 er stórkostlegur. Auðveldar alla matreiðslu í eldhúsinu. Mylur alla ávexti, grænmeti, klaka og nánast hvað sem er. Nýtt útlit og öflugri mótor. Stiglaus hraðastilling og pulse rofi. Tilboðsverð kr. 107.989,- Fullt verð kr. 143.985,- Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is TOPPUR ehf Bifreiðaverkstæði TOPPUR er viðurkennt þjónustuverkstæði fyrir Skemmuvegi 34 • Kópavogi • Sími 557 9711 • toppur@toppur.is Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Kópavogsgöng verða felld út úr Að- alskipulagi Reykjavíkur samkvæmt samþykkt sem gerð var í borgarráði 27. apríl síðastliðinn. Jafnframt verða stofnbraut og gangamunni í Fossvogsdal felld út svo og gang- amunni og mislæg gatnamót í Suður- Mjódd. Kópavogsbær hefur einnig boðað að fella út Kópavogsgöng af sínu aðalskipulagi. Kópavogsgöng, sem tengja áttu Reykjanesbraut við Kringlumýrar- braut og áfram um fyrirhuguð Öskjuhlíðargöng við Hringbraut, voru skilgreind sem hluti framtíðar- gatnakerfis höfuðborgarsvæðisins í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðis- ins 2001-2024, sem staðfest var í byrjun árs 2001. Kópavogsgöngin áttu að liggja frá Reykjanesbraut nokkru vestan Ný- býlavegar og gangamunninn í vestri átti að verða í Fossvogsdalnum rétt við Birkigrund. Síðan yrði vegurinn ofanjarðar en færi að aftur í göng rétt vestan við Kringlumýrarbraut sem lægju undir kirkjugarðinum og opnuðust við Hlíðarfót sem mætir Flugvallarvegi nokkru norðar. Kostnaður tugir milljarða Alls áttu göngin að verða um 3,5 kílómetra löng. Að auki var reiknað með að talsvert landrými færi undir vegatengingar við gangamunna. Kostnaðaráætlun við gerð ganganna var talin allt að 9 milljarðar króna. Þessi tala væri nálægt 23 milljörðum í dag, miðað við hækkun bygginga- vísitölunnar. Í frétt í Morgunblaðinu frá sept- ember árið 2000 segir að Öskjuhlíðargöng og göng undir Kópavog séu stórframkvæmd sem talin er þörf á að ráðast í á næstu ár- um og þá sé verið að horfa áratugi fram í tímann. Hugmyndir um þetta séu einkum frá ráðgjöfum um svæð- isskipulag höfuðborgarsvæðisins. „Þetta yrði framtíðartenging milli suðurhluta höfuðborgarsvæðisins og miðborgarinnar og myndi létta mjög á Kringlumýrarbrautinni en vegna umferðaraukningar sem spáð er næstu einn til tvo áratugina er þessi leið talin óhjákvæmileg,“ segir í fréttinni. Kópavogsgöng urðu aldrei að veruleika og forsendur hafa nú breyst. Við mótun nýs svæðis- skipulags voru gerðar umferðarspár, með Kópavogsgöngum annars vegar og án þeirra hins vegar. Umferðar- spárnar sýndu að áhrifa ganganna gætti fyrst og fremst í næsta ná- grenni þeirra og þegar fjær drægi yrðu áhrifin óveruleg. Niðurstaða umferðarlíkans höfuðborgarsvæð- isins sýndi að Kópavogsgöng myndu flytja talsvert umferðarmagn af Reykjanesbraut, þar sem fyrir væri nægjanleg umferðarrýmd, yfir á Kringlumýrarbraut þar sem afkasta- geta væri nánast fullnýtt. „Þessar at- huganir studdu þá ákvörðun að gera ekki ráð fyrir Kópavogsgöngum í framtíðargatnakerfi höfuðborgar- svæðisins,“ segir m.a. í kynningu á aðalskipulagsbreytingunni. Þá segir ennfremur að í nýju svæðisskipulagi höfuðborgarinnar sé meginmarkmiðið að efla almennings- samgöngur og breyta ferðavenjum. Þá hafi sveitarfélögin á höfuðborgar- svæðinu sett fram stefnu um að byggja upp hágæða almennings- samgangnakerfi á höfuðborgarsvæð- inu, borgarlínukerfi. Kópavogsgöng felld út úr skipulaginu Kópavogsgöng Ráðgert var að jarðgöngin byrjuðu í Fossvogsdalnum, færu undir Kópavoginn og eystri gangnamunni yrði við Reykjanesbrautina. Kópavogsgöng FOSSVOGSDALUR REYKJAVÍKUR- FLUGVÖLLUR KÓPAVOGUR REYKJAVÍK Miklabraut ey kja nesb raut Nýbýlavegur Kr in gl um ýr ar br au t  Áttu að vera 3,5 km löng og liggja undir Kópavog Öskjuhlíðargöng (Hlíðarfótur) eru enn inn á aðalskipulagi, að sögn Jóns Halldórs Jónassonar upplýsingafulltrúa. Það sé aðallega vegna aukinnar byggðar í Vatnsmýri og vesturborginni. Öskjuhlíðargöng séu talin mun meiri samgöngubót en Kópavogsgöng, sem nú á að fella formlega niður í aðalskipulagi og voru áður felld út af svæðisskipulagi. Í tengslum við þetta má rifja upp að Holtsgöng voru felld út úr skipulagi árið 2012 þar sem þau voru álitin gera takmarkað gagn fyrir samgönguflæði í borginni. Hugmyndin með Holtsgöngum var að tengja nýju Hringbraut og Sæbraut saman með göngum sem lægju undir Skólavörðuholt og voru þau skil- greind sem stofnbraut. Var gert ráð fyrir gangamunna á og við lóð Land- spítalans við Hringbraut og öðrum við Sæbraut. Göngin hefðu verið um einn og hálfur kílómetri að lengd. sisi@mbl.is Öskjuhlíðargöng eru enn inni HOLTSGÖNG VORU FELLD ÚR SKIPULAGI ÁRIÐ 2012

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.