Morgunblaðið - 05.05.2017, Síða 14

Morgunblaðið - 05.05.2017, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017 Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna (SKB) hefur tekið í sölu arm- band hannað af gullsmiðnum Sigurði Inga Bjarnasyni, eða Inga hjá skart- gripafyrirtækinu Sign ehf., í fjáröfl- unarskyni fyrir félagið. Útkoman er ný lína fyrir SKB sem heitir Von, en það er eilífðartáknið úr stáli í leðuról með áletruninni VON – HOPE – SPES, sem þýðir „von“ á íslensku, ensku og latínu. Armbandið er fyrir bæði kyn og alla aldurshópa og hönnunin er með skírskotun í and- stæður íslenskrar náttúru að sögn framkvæmdastjóra Sign, Kötlu Guð- mundsdóttur. Óttarr Proppé heilbrigðisráð- herra veitti fyrsta armbandinu við- töku hjá Mirru Wolfram Jörgens- dóttur, 7 ára félagsmanni SKB á verkstæði Sign í Fornubúðum 12 í Hafnarfirði í gærmorgun til að ýta fjáröfluninni úr vör. Selt á heimasíðu SKB Armbandið er selt á heimasíðu SKB, www.skb.is, og á skrifstofu fé- lagsins í Hlíðasmára 14. Þar er opið kl. 9-16 virka daga. SKB styður við bakið á fjöl- skyldum krabbameinssjúkra barna. Félagið er rekið fyrir sjálfsafla- og gjafafé eingöngu og reiðir sig m.a. á afrakstur af sölu minningarkorta og varnings eins og t.d. armbandsins sem nú fer í sölu. Morgunblaðið/Golli Fjáröflun SKB Armbandið var hannað af Inga gullsmið hjá Sign ehf. Óttarr Proppé fær SPES-armband Þórarinn Ævarsson, framkvæmda- stjóri IKEA, afhenti í gær á leik- stofu Barnaspítala Hringsins 50 töfl að gjöf frá Skákfélaginu Hróknum og IKEA til barnanna sem dvelja á spítalanum. Hrókarnir Hrafn Jök- ulsson og Róbert Lagerman hafa heimsótt barnaspítalann á fimmtu- dögum síðan 2003 og eru heimsókn- irnar nú komnar vel yfir 500. Heim- sóknirnar eru það verk sem á 20 ára ferli félagsins er Hróksmönnum hvað hjartfólgnast, að sögn Hrafns Jökulssonar, og þó þeir hafi reynt að kenna og gleðja, þá hafi þeir sjálfir lært enn meira af börnunum og fjöl- skyldum þeirra. Skákmaraþon í þágu barna Dagana 12. og 13. maí verður haldið skákmaraþon í Pakkhúsi Hróksins, Geirsgötu 11 við Reykja- víkurhöfn, en safnað verður fyrir Fatimusjóð og UNICEF í þágu barna í Sýrlandi og Jemen sem búa nú við stríð og hungursneyð. Hrafn mun freista þess að tefla í 30 klst. gegn 200 andstæðingum og safnað verður áheitum og frjálsum fram- lögum. Í fyrra söfnuðust 3 millj. króna, sem runnu óskertar í neyðar- hjálp fyrir sýrlensk börn. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Hróksins, www.hrokurinn.is. Hrókurinn og IKEA færa Barnaspítalanum 50 töfl Morgunblaðið/Golli Gjafir Yehya frá Sýrlandi og systur hans Shaymaa og Aya fengu öll töfl. AÐALFUNDUR AðalfundurHBGranda hf. verður haldinn í dag, 5.maí 2017, í matsal félagsins aðNorðurgarði 1, 101Reykjavík og hefst hann klukkan17:00. Fundurinn fer framá íslensku. Dagskrá 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 18. gr. í samþykktum félagsins. 2. Tillaga umheimild til félagsstjórnar um kaup á eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga. 3. Önnurmál. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta: a) veitt öðrum skriflegt umboð. b) greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu, form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins. Aðrar upplýsingar Dagskrá og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og tillögur eru hluthöfum tiltæk á íslensku, á heimasíðu félagsins og á skrifstofu félagsins á venjulegum skrifstofutíma. Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á vefsíðu félagsins, www.hbgrandi.is Stjórn HBGranda hf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, segir það ekki rétt sem fram kom í Morgunblaðinu í gær að fyrirhugað innviðagjald vegna borgarlínu muni leggjast á íbúða- verð. Borgarlína er fyrirhugað kerfi almenningssamgangna. Haft var eftir Degi í blaðinu að innviðagjaldið mundi verða hluti af lóðaverði við borgarlínuna. Undir lok viðtalsins var borgar- stjóri spurður eftirfarandi spurning- ar: Er þetta [þ.e. innviðagjaldið] þá hluti af lóðaverði á þéttingarreitum meðfram borgarlínunni? „Já, það er hugsunin,“ var svarið. Út frá þessum orðum og öðrum svörum borgarstjóra sagði í fyrir- sögn á forsíðu og í fréttaskýringu á blaðsíðu 2 að innviðagjaldið mundi hafa áhrif til hækkunar íbúðaverðs. Dagur segir fyrirsagnirnar villandi. Einkaaðilar deili ágóðanum „Innviðagjöld eru ein af þeim að- ferðum sem skoðaðar hafa verið til að fjármagna borgarlínu að erlendri fyrirmynd. Þau ganga út á það að þegar ákvörðun er tekin um legu þá leiðir það samkvæmt rannsóknum til hækkunar á verðmæti byggingar- réttar við línuna, enda verður hann eftirsóttari,“ seg- ir Dagur og út- skýrir málið frek- ar. „Innviðagjald er lagt á til að þeir einkaaðilar sem „eiga“ innan gæsalappa þenn- an byggingarrétt sem hækkar deili þeim ágóða og taki þannig þátt í að borga innviðina sem leiða til hækkunar á verðmæti eigna þeirra. Borgarlína getur hins vegar leitt til lækkunar á byggingar- kostnaði á hverri íbúð, því ekki þarf að gera ráð fyrir jafnmörgum bíla- stæðum,“ segir Dagur og bendir á að stæði í bílakjallara kosti 5-7,5 millj- ónir. Það muni fljótt um hvert stæði. Kostnaður við innviði bætist við Dagur nefnir til frekari skýringar að aðferðarfræði innviðagjalda hafi verið beitt í Vogabyggð. „Þar vorum við að breyta skipulagi úr atvinnusvæði í íbúðasvæði. Það kostar 5 milljarða í nýjum innviðum en eykur hins vegar lóðaverðmætin gríðarlega. Í stað þess að borgarsjóð- ur borgi allan reikninginn upp á fimm milljarða og einkaaðilar á svæðinu fái allan ábata af breyting- unni var innviðakostnaðurinn lagður ofan á hvern nýjan fermetra í bygg- ingarrétti sem bættist við á svæðinu. Landsbankinn og aðrir sem áttu lóð- irnar fá þá heldur minni ágóða af sölu þeirra til verktaka,“ segir Dagur og leggur áherslu á að ábatanum verði „sem sagt skipt“. Hluti ábatans til uppbyggingar „En við eignumst öll nýtt og fallegt hverfi án þess að innviðakostnaður- inn sé lagður á aðra borgarbúa sem hafa einungis óbeinan hag af upp- byggingunni í Vogabyggð. Innviða- gjöldin fyrir borgarlínu myndu virka eins: þeir sem vilja fá að byggja meira meðfram borgarlínunni – til að nýta sér að það er hægt að byggja þéttar þar sem borgarlína kemur – leggja hluta ábatans af auknu verð- gildi sinna reita eða lóða til uppbygg- ingar borgarlínunnar.“ Vilja verktakar deila ágóða? Spurður hvort raunhæft sé að einkaaðilar deili ágóðanum, og hvort þeir muni ekki reyna að selja á því verði sem markaðurinn er tilbúinn að greiða, segir Dagur „ekki sjálfsagt að allir sem liggja á lóðum meðfram verðandi borgarlínu séu tilbúnir að greiða innviðagjöld. Því hefur verið bent á að til að leggja þau á væri betra að styðjast við lagastoð. Þá mætti takmarka innheimtu þeirra við viðbótarbyggingarrétt, en ekki þann sem þegar liggur fyrir í gild- andi skipulagi. En ef þessar forsend- ur liggja fyrir, þá eru þær bæði mál- efnalegar, sanngjarnar og síðast en ekki síst gera þær okkur kleift að hrinda áformum um borgarlínu af stað fljótt og vel“. Hvert stæði kostar 5 milljónir Á nýjum þéttingarreitum borgar- innar hefur verið gerð krafa um hér um bil eitt bílastæði á íbúð. Spurður hvort raunhæft sé að fækka bílastæðum umfram það segir Dagur það vel gerlegt. „Já, það er sannarlega raunhæft og raunar mikil kjarabót fyrir heimili ef góðar almenningssamgöngur gera fólki kleift að eignast íbúð án þess að þurfa að borga 5 milljónir fyrir eitt stæði í kjallara, að ekki sé talað um 10 milljónir fyrir tvö, eins og stund- um er kallað eftir. Auk þess að geta sparað sér fjárfestingar og rekstrar- kostnað eins eða tveggja bíla. Kann- anir sýna að fjöldi fólks kallar eftir því að borgin skapi aðstæður til að þetta sé hægt. Og borgarlína fjallar einmitt um það,“ segir Dagur. Innviðagjald leiði ekki til hærra íbúðaverðs  Borgarstjóri segir fækkun bílastæða fela í sér kjarabót Dagur B. Eggertsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.