Morgunblaðið - 05.05.2017, Side 16

Morgunblaðið - 05.05.2017, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Stofnfiskur áætlar að velta fyrir- tækisins í ár verði um 1,7 milljarðar króna. Stærsti þátturinn í starfsem- inni er framleiðsla laxahrogna, en vöxtur í framleiðslu hrognkelsaseiða hefur verið mikill að sögn Jónasar Jónassonar, framkvæmdastjóra Stofnfisks. Hann áætlar að í ár flytji fyrirtækið út hrognkelsa- seiði og hrogn fyrir hátt í 400 milljónir, en grá- sleppan hefur dugað vel til að éta lýs af löxum í eldi. Allir markaðir eru nú opnir fyrir framleiðslu Stofn- fisks, en markaður fyrir laxahrogn í Síle opnaðist á ný í mars í fyrra eftir tímabundna lokun vegna þess að veira fannst í villtum hrognkelsum hér við land. „Við framleiðum í rauninni fyrir allan heiminn og get- um afhent okkar framleiðslu allan ársins hring,“ segir Jónas í Stofn- fiski. Laxahrogn fyrir 1,3 milljarða „Við seljum mest til viðskiptavina í Noregi, Færeyjum, Skotlandi, Ís- landi og Síle. Nú fer mest á Noreg, sem framleiðir allra landa mest af laxi. Við getum afhent hrogn á sumrin, sem þeir hafa ekki mikla möguleika á að gera sjálfir, og höf- um styrkt stöðu okkar.“ Laxahrogn gætu verið um 70% af framleiðslu Stofnfisks í ár og útflutningsverð- mætið rúmlega 1,3 milljarðar. Útflutningur á grásleppuseiðum og hrognum hefur undið hratt upp á sig síðustu þrjú ár. Jónas segir að Íslendingar fylgist vel með og hafi sýnt áhuga á að skoða hvaða mögu- leikar séu fyrir hendi með að fá hrognkelsaseiði frá Stofnfiski ef lús verði vandamál í laxeldi hérlendis í framtíðinni. 1-2 gámar í hverri viku Í hverri viku fara 1-2 gámar sjó- leiðis með hrognkelsaseiði frá Stofn- fiski í Höfnum til Færeyja. Vegna mikillar spurnar eftir seiðum hefur Stofnfiskur stækkað aðstöðuna í Höfnum þannig að þar er nú hægt að framleiða um tvær milljónir seiða á ári. Í stöðinni í Höfnum starfa átta manns undir stjórn Sölva Sturluson- ar, en um 60 manns alls hjá fyrir- tækinu. Helstu viðskiptavinir Stofn- fisks í Færeyjum eru Bakkafrost, LUNA og Marine Harvest, en þau eru jafnframt stærstu fyrirtækin í færeysku laxeldi. „Þetta ævintýri með hrognkelsin byrjaði með einu símtali í febrúar 2014, en nú stefnir í að við fram- leiðum tvær milljónir seiða á þessu ári,“ segir Jónas. „Við áttum í upp- hafi gott samstarf við Hafrann- sóknastofnun, sem hefur mikla þekkingu á eldi sjávardýra. Ég vissi að þeir höfðu prófað hrognkelsaeldi og við fórum í smá verkefni saman, sem gekk vel frá upphafi. Þegar við byrjuðum 2014 ætluð- um við að framleiða 150 þúsund seiði, en allt í einu urðu þau 500 þús- und og þá fór allt af stað. Luna í Færeyjum tók þátt í þróun verkefn- isins í upphafi og svo hafa hin fyrir- tækin bæst við.“ Auk Færeyja sendir Stofnfiskur hrogn og 3-4 vikna smáseiði með flugi til móðurfélagsins Benchmark í Skotlandi. Úr hrognunum áætla þeir að framleiða 1,5-2 milljónir seiða í ár og nota í eldisstöðvum á Hjaltlandseyjum og í Skotlandi. Mikill vöxtur í útflutningi hrognkelsaseiða  Hófst með símtali fyrir þremur árum  Allir markaðir Stofnfisks eru opnir Jónas Jónasson Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Með auknu fiskeldi hér á landi og breyttum áherslum hefur starfsemin í tilraunaeldisstöð Hafrannsókna- stofnunar á Stað við Grindavík einnig þróast í átt að helstu eldistegundum undanfarin ár. Aðalleikarar í stórum verkefnum eru núna lax og bleikja að hrognkelsaseiðum ógleymdum, en þau eru framleidd til að éta lús af löx- um í færeyskum eldiskvíum. Auka- leikarar eru þá fiskar eins og þorsk- ur, steinbítur, sandhverfa og lúða. Agnar Steinarsson, sérfræðingur á stöðinni, segir að seiðaeldi úr grá- sleppuhrognum sé nú í fullum gangi. Stefnt sé að því að senda 150-200 þús- und seiði til Færeyja í sumar og haust. Þetta sé heldur minna magn en síðustu ár og mun minna heldur en Stofnfiskur flytji út. Stöð Hafró hafi komið þessu verkefni af stað á sínum tíma, en líti á verkefnið öðrum þræði sem nokkurs konar rannsóknastarf- semi þar sem flutningsaðferðir hafa m.a. verið skoðaðar. „Í Færeyjum hefur grásleppan skipt sköpum í laxeldinu og önnur betri leið er ekki fyrir hendi,“ segir Agnar. „Færeyingar geta ekki fram- leitt grásleppuseiðin sjálfir, mega ekki flytja þau inn frá Noregi vegna hættu á sjúkdómum og kaupa þau þess vegna frá Íslandi. Norðmenn nota líka mikið fisk sem kallast vara- fiskur eða bergsnapi og er góður í baráttunni við lúsina. Hann er hins vegar erfiður í eldi og vex hægt. Norðmenn veiða þennan fisk aðallega villtan og koma með lifandi í land.“ Kuldinn náttúruleg vörn Spurður um hættu á laxalús hér við land og aðgerðir gegn henni segist hann hafa heyrt af áhyggjum manna í greininni. „Það er lús í hafinu og þar hefur alltaf verið lús, það er bara eðlilegur hluti af flórunni,“ segir Agnar. „Lúsin er ekki orðin vandamál hér við land, en ég veit til þess að menn í sjókvía- eldi fyrir vestan ætla að taka hrogn- kelsaseiði í haust. Þeir vilja hafa vaðið fyrir neðan sig og hyggjast prófa sig áfram til að læra á þetta. Ef sjórinn heldur áfram að hlýna og vetur að vera mildir samhliða auknu laxeldi þá eiga sumir von á því að lúsin geti náð sér á strik hérna. Þegar hitastig er komið niður í 2-3 gráður vex lúsin hins vegar ekki og fjölgar sér ekki og kuldinn er því náttúruleg vörn gegn lúsinni.“ Bleikja og ófrjór lax Agnar segir að unnið sé að ýmsum rannsóknum og tilraunum á bleikju og þannig sé stór bleikjurannsókn í gangi með Hólaskóla. Talsvert sam- starf er við nágrannana í Íslands- bleikju, m.a. um tilraunir á hitastigi og seltu í eldi. Ávinningur sé fyrir báða aðila að slíku samstarfi. Þá sé að fara af stað stór rannsókn á ófrjóum laxi í samstarfi við Hóla- skóla, Stofnfisk og fleiri aðila. Í lok árs kemur geldlax í stöðina á Stað og verða þar m.a. gerðar rannsóknir á mismunandi hitastigi í eldi hans. Agnar segir að talið sé að ófrjór lax þoli síður hátt hitastig og jafnvel lágt hitastig heldur en tvílitna eða frjór lax. „Á sama tíma fara ófrjóir laxar í kvíar fyrir vestan, en systurhópar verða í stöðinni hjá okkur þar sem auðveldara er að mæla vöxt, vansköp- un og fleiri þætti, sem skipta máli varðandi hugsanlega framleiðslu á ófrjóum laxi,“ segir Agnar. Þá hafa starfsmenn sem störfuðu á Veiðimálastofnun komið með sínar rannsóknir í stöðina, t.d. laxarann- sóknir og tilraunir með merkingar. Hafrannsóknastofnun og Veiði- málastofnun sameinuðust í fyrra og tilheyrir stöðin nú fiskeldis- og fiski- ræktarsviði nýrrar stofnunar. Fimm starfsmenn eru í stöðinni í Grindavík. Þorskur, sandhverfa og síðustu lúðurnar Svo vikið sé að öðrum tegundum segir Agnar að dregið hafi úr áherslu á kynbótaverkefni í þorski þannig að ný kynslóð er framleidd á þriggja ára fresti en ekki árlega eins og áður. Einnig séu í gangi rannsóknir sem snúa almennt að líffræði og lífeðlis- fræði þorsks. Jafnvel verði hægt að yfirfæra niðurstöður á þorska í haf- inu og gætu þær nýst í stofnstærð- armati og fiskveiðistjórnun í framtíð- inni. Ýmislegt sé hægt að gera í eldisstöðvum þar sem hægt er að stjórna umhverfinu og sjónarhornið verður allt annað en í villtri náttúru. Unnið er að líffræðilegum rann- sóknum á steinbít á Stað. Þar er að finna stofn til að hefja á ný eldi á sandhverfu og þar eru einnig síðustu lúðurnar úr Fiskeldi Eyjafjarðar á Hjalteyri. „Það er óhætt að segja að hér kenni ýmissa grasa og fiska,“ segir Agnar, en stöðin á Stað hóf starfsemi árið 1988. Handavinna Agnar Steinarsson bólusetur fyrsta hrognkelsaseiðið í stöðinni á Stað fyrir þremur árum, en öll seiðin eru bólusett fyrir útflutning og er það talsvert verkefni. Við hlið hans eru Vésteinn Guðmundsson, og Tómas Árnason. Áherslur í rannsókn- um fylgja eldisþróun  Fjölbreyttar rannsóknir í tilraunaeldisstöð Hafró á Stað  Seiði hrognkelsa hafa skipt sköpum í baráttu við laxalús

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.