Morgunblaðið - 05.05.2017, Side 18

Morgunblaðið - 05.05.2017, Side 18
Morgunblaðið/Eggert Fjármagn Áhættufé vantar í sprotasamfélagið um þessar mundir en breyt- ing á lögum og nýr fjárfestingarsjóður gætu þó hjálpað umhverfinu. festingar í sprotafyrirtækjum þar sem helstu framtakssjóðir eru tómir eða fullfjárfestir um þessar mundir. Örn Valdimarsson, framkvæmda- stjóri Eyris sprota, segir til að mynda í samtali við Morgunblaðið að sjóðurinn hafi fjárfest í 10 verk- efnum og muni sinna þeim á næstu misserum, og ekki auka við fé í sjóð- inn nema til að styðja þær fjárfest- ingar. Einum milljarði var bætt í sjóðinn í fyrra. Nýr fimm milljarða sjóður Einn nýr sjóður hefur boðað komu sína á þennan markað á næst- unni, framtakssjóðurinn Crowberry Capital, sem rekinn verður af þeim Helgu Valfells, Heklu Arnardóttur og Jenný Ruth Hrafnsdóttur. Hann hefur nú safnað rúmum helmingi þeirra fimm milljarða sem félagið stefnir á að safna til nýfjárfestinga á Íslandi. Hekla segir í samtali við Morg- unblaðið að sjóðurinn hafi fengið loforð og stuðning frá mörgum líf- eyrissjóðum og einkafjárfestum. „Við viljum byrja sem fyrst að fjár- festa. Það er mikil fjárþörf og mörg góð tækifæri á landinu,“ segir Hekla. Nýsköpunarlög end- urskoðuð í ráðuneyti  Framtakssjóðir tómir eða fullfjárfestir  Þörf á fjármagni Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Nýsköpunarlögin svokölluðu, lög nr. 79/2016 um „fjármögnun og rekstur nýsköpunarfyrirtækja og smærri fyrirtækja í vexti“ hafa verið tekin til endurskoðunar á skattaskrifstofu fjármálaráðuneytisins í kjölfar fund- ar sem fulltrúar sprota – og nýsköp- unariðnaðarins áttu með Benedikt Jóhannessyni fjármálaráðherra á dögunum. Benedikt segir í samtali við Morgunblaðið að fundurinn hafi verið góður og málefnalegur og hóp- urinn hafi bent á ákveðin atriði sem skoða mætti betur í löggjöfinni. Menn voru fullvarfærnir „Þessu var vel tekið og við höfum tekið þetta til skoðunar,“ segir Benedikt, en hann á ekki von á að löggjöfinni verði breytt á yfirstand- andi þingi. Meðal þeirra takmarkandi þátta í lögunum sem hópurinn benti á voru stærðarmörk fyrirtækja sem fjár- fest er í til að fá skattafalátt, tak- markanir á fjárfestingum tengdra aðila í fyrirtækjum, og bakfærsla skattafrádráttar ef einstaklingur eða fyrirtæki uppfylli ekki lengur skilyrði sem sett eru í lögunum. „Þau bentu á margt sem eflaust mætti betur fara og ég tók jákvætt í þetta.“ Benedikt segir að lögin hafi verið skref í rétta átt á sínum tíma. „Menn voru kannski fullvarfærnir þegar lögin voru sett.“ Lítið af fjármagni er í boði til fjár- 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017 Garðs Apótek Sogavegi við Réttarholtsveg Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is Appótek: www.appotek.is Vefverslun með lyf Lyfseðlar Lyfjaverð ofl. Cocoa Mint umgjörð kr. 14.900,- Sérðu þetta? Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is 5. maí 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 105.79 106.29 106.04 Sterlingspund 136.73 137.39 137.06 Kanadadalur 77.38 77.84 77.61 Dönsk króna 15.519 15.609 15.564 Norsk króna 12.303 12.375 12.339 Sænsk króna 11.972 12.042 12.007 Svissn. franki 106.3 106.9 106.6 Japanskt jen 0.9418 0.9474 0.9446 SDR 144.77 145.63 145.2 Evra 115.43 116.07 115.75 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 144.8796 Hrávöruverð Gull 1235.85 ($/únsa) Ál 1915.0 ($/tonn) LME Hráolía 50.99 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Ármann Þor- valdsson, fyrrver- andi forstjóri Kaup- þings Singer & Friedlander í Bret- landi, mun taka við starfi forstjóra Kviku banka um miðjan júní, sam- kvæmt tilkynningu frá bankanum. Sig- urður Atli Jónsson lét af forstjórastarf- inu fyrir skömmu. Ármann hefur undanfarin tvö ár starfað hjá Virðingu, síðast sem fram- kvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar. Ármann er með BA-próf í sagnfræði frá HÍ og MBA-gráðu frá Boston University. Þá mun Marinó Örn Tryggvason ganga til liðs við Kviku banka í byrjun ágúst og taka við starfi aðstoðarfor- stjóra. Marinó hefur undanfarin þrjú ár gegnt starfi aðstoðarframkvæmda- stjóra eignastýringar Arion banka og setið í stjórn Varðar trygginga undan- farið ár. Magnús Ingi Einarsson, fram- kvæmdastjóri fjármála- og rekstrar- sviðs Kviku, mun gegna forstjórastarf- inu þar til Ármann tekur til starfa. Ármann tekur við sem forstjóri Kviku í sumar Ármann Þorvaldsson STUTT Kostnaðarhlutfall fyrstu þriggja mánaða ársins var 42,5%, saman- borið við 55,8% á sama tímabili árið áður. Eiginfjárhlutfallið 27,4% Eigið fé Landsbankans var 233,9 milljarðar króna í lok mars og eigin- fjárhlutfallið var 27,4%. Það er vel umfram 22,1% eiginfjárviðmið Fjár- málaeftirlitsins. Heildareignir bank- ans námu 1.182 milljörðum króna í lok mars. Lilja Björk Einarsdóttir banka- stjóri segir í afkomutilkynningu að uppgjörið sé gott og afkoman betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. „Óreglulegir liðir setja nokkurn svip á afkomuna á ársfjórðungnum en þó er ljóst að jafn og góður vöxtur er í reglulegri starfsemi bankans.“ Hagnaður Landsbankans var 7,6 milljarðar króna fyrstu þrjá mánuði ársins, en til samanburðar var hagnaður bankans á sama tímabili í fyrra 3,3 milljarðar króna. Vegna jákvæðra gangvirðisbreyt- inga á óskráðum hlutabréfum voru aðrar rekstrartekjur bankans 3,8 milljarðar króna í fjórðungnum, samanborið við 1,8 milljarða króna á sama tímabili í fyrra. Þá voru virð- isbreytingar útlána á fyrstu þremur mánuðum ársins jákvæðar um 1,8 milljarða króna á fjórðungnum, en til samanburðar voru virðisbreyt- ingar um 300 milljónir á sama tíma í fyrra. Aukin arðsemi eigin fjár Hreinar vaxtatekjur voru 8 millj- arðar króna og hækkuðu um 7,4% á milli tímabila. Hreinar þjónustu- tekjur námu 2,1 milljarði króna og hækkuðu um 7% frá sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár á fyrsta ársfjórðungi var 12,5% á ársgrund- velli, samanborið við 5% á sama tímabili 2016. Vaxtamunur eigna og skulda nam 2,2% á fyrsta ársfjórðungi 2017 en var 1,9% á sama tímabili árið áður. Útlán Landsbankans jukust um 19 milljarða króna frá áramótum, einkum í formi íbúðalána. Vanskilahlutfall var einungis 1,3% á fyrsta ársfjórðungi, saman- borið við 1,7% á sama tímabili í fyrra. Landsbanki Arðsemi eigin fjár á fyrsta ársfjórðungi var 12,5%. Hagnaður Lands- banka 7,6 milljarðar  Óreglulegir liðir setja mark á afkomu ● Alþjóðlega fjármálafyrirtækið DS Concept hefur opnað útibú á Íslandi. Félagið, sem er 17 ára gamalt, sér- hæfir sig í viðskiptafjármögnun (trade finance), m.a. factoring eða fjár- mögnun kröfuviðskipta, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Þar segir einnig að sérhæfing fyrirtæk- isins sé meðal annars á sviði sjávar- útvegs. Fyrirtækið hefur nú þegar, sam- kvæmt tilkynningunni, nokkurn fjölda íslenskra útflutningsfyrirtækja í við- skiptum. „Með opnun útibús hér á landi verður hægt að þjónusta mark- aðinn enn betur og auka með því val- möguleika íslenskra fyrirtækja hvað fjármögnun aðfangakeðjunnar varð- ar,“ segir í frétt fyrirtækisins. Stjórn- andi útibúsins er Sveinn Reynisson. DC Concept opnar útibú Tekjur Marels voru lægri en hag- fræðideild Landsbankans hafði vænst á fyrsta ársfjórðungi en afkoman var að mestu í samræmi við væntingar. „Fínt uppgjör sem staðfestir góðan gang hjá félaginu,“ segir í viðbrögðum Landsbankans við uppgjöri Marels. Hagfræðideildin segir að tekju- vöxtur hafi verið fínn, „bara ekki stór- kostlegur“, því hann var 3,4% lægri en spáð var. „Pro forma tekjuvöxtur á fjórðungnum nam 8% sem geta vart talist vonbrigði þó að við hefðum gert ráð fyrir 11%,“ segir Landsbankinn. Hagnaður Marels á fyrsta ársfjórð- ungi jókst um 54% á milli ára og nam 20,3 milljónum evra eða um 2,4 millj- örðum króna. „Pantanabókin stendur sögulega hátt og samrýmist væntingum mark- aðsaðila vegna góðra ytri skilyrða. Já- kvætt er að sjá rekstrarkostnað fé- lagsins standa í stað og að framlenging félagsins á fjármögnun sé tryggð til að auka sveigjanleika,“ segir í viðbrögðunum. Framlegðarhlutfall var lægra á fjórðungnum en á undangengnu ári. „Stjórnendur hafa bent á að slík þróun væri líkleg í ljósi aukins vægis stærri verkefna,“ segir Landsbank- inn. Hlutabréf í Marel hækkuðu um 4,9% í Kauphöllinni í gær. helgivifill@mbl.is Tekjur lægri en vænst var  Landsbanki segir uppgjör Marels „fínt“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.