Morgunblaðið - 05.05.2017, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 05.05.2017, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þingmennrepúblikanaí Fulltrúa- deild Bandaríkja- þings fengu skyndiboð til fagn- aðarhátíðar í rósa- garði Hvíta hússins í gær. Garðurinn skartar sínu fegursta á þessum árstíma. Trump forseta (sem hefur aldr- ei smakkað áfengi) þótti þetta ærið tækifæri til að fagna þing- mönnum meirihlutans. Eitt helsta kosningaloforð Trumps var að afnema svokallað „oba- macare“, heildarlöggjöf um heilbrigðistryggingar. Demókratar höfðu lengi haft það sem sitt háleitasta mark- mið að koma slíku kerfi á. Þeg- ar Bill Clinton tók við embætti forseta 20. janúar 1993 var þetta mál efst á hans dagskrá. Sá ofurþungi, sem lagður var á málið, sást á því að Hillary for- setafrú var sett í öndvegi harðsnúins hóps sem koma skyldi á hinni nýju skipan. Þótt miklu væri tjaldað til dagaði málið uppi. Repúblikanar náðu í Hvíta húsið átta árum síðar og málið var ekki á þeirra dag- skrá. Átta árum síðar komst Bar- ack Obama inn fyrir þröskuld- inn sem skilur á milli valda og andófs í Bandaríkjunum. Þótt það vilji gleymast, þá hafði Obama forseti ekki aðeins allt það vald sem á upphaf og endi í Hvíta húsinu. Hann var jafn- framt, fyrstu tvö árin, með meirihluta í báðum þingdeild- um og mun traustari meirihluta í Öldungadeildinni en Trump styðst við nú. Obama náði því loks á sínum fyrstu tveimur ár- um að koma í gegn lagabálk- inum langþráða (The Af- fordable Care Act). Þingmenn demókrata kvört- uðu undan því að fá nánast eng- an tíma til að kynna sér lögin áður en þeir þurftu að láta und- an flokkslegum þrýstingi og samþykkja þau. Leiðtogi demó- krata í Fulltrúadeildinni, Nancy Pelosi, er sífellt minnt á fyrirmæli sín til þingmanna flokksins um að þeir ættu að samþykkja bálkinn og gætu svo lesið lögin síðar. (Sama og Jó- hanna sagði við ríkisstjórn og þingmeirihluta þegar Icesave- samningurinn var í meðferð hér). Þessi aðferð frú Pelosi varð ekki eins mannskæður út- afakstur og þegar Jóhanna var undir stýri, en slæmur samt. Demókratar höfðu í fyrstu ekkert á móti því þegar and- stæðingarnir kölluðu lögin „obamacare“. Þessi lög áttu að verða annað tveggja, sem héldi nafni Obama uppi alla tíð. (Hitt var samningur við Íran). En smám saman kom í ljós að mikl- ir gallar fylgdu lagasetning- unni. Trygginga- félög hurfu hvert af öðru frá þátttöku í kerfinu vegna mik- ils taprekstrar. Ið- gjöld almennings hafa því ætt upp úr öllu valdi. Þetta mál réð mestu um að repúblik- anar náðu meirihluta í Full- trúadeildinni og svo í Öld- ungadeildinni. Frambjóðendur og þingmenn repúblikana lof- uðu fyrir hverjar kosningar að þeir myndu fella „obamacare“ úr gildi og koma á kerfi sem gengi upp. Ekkert varð úr efndum og kenndu þeir neit- unarvaldi Obama um það. Trump fór mikinn á framboðs- ferlinum og lofaði að koma „obamacare“ fyrir kattarnef í upphafi forsetatíðar. Hvað sem má segja um Trump þá hefur hann kæk sem flestir stjórn- málamenn eru lausir við. Hann gengur enn með þá grillu að efna beri kosningaloforð. Þegar frumvarp um afnám „obamacare“ og nýtt heilbrigð- iskerfi skyldi tekið til af- greiðslu í þinginu, að fyrirlagi Trumps, kom babb í bátinn. Þingforseti tilkynnti forset- anum að svo margir flokks- bræðra hefðu hlaupið undan merkjum að hætta yrði við at- kvæðagreiðslu rétt fyrir upp- haf hennar. Þetta þótti mesta áfall forsetans á fyrstu hundrað dögunum í embætti. Pence, varaforseti, sem virðist seigur þótt hægt fari, hélt þó áfram að nudda í þinginu. Og í fyrradag var í skyndingu ákveðið að efna til nýrrar atkvæðagreiðslu og fór hún fram í gær. Þessu mikla ágreiningsmáli lauk samdæg- urs í deildinni og enginn, hvorki utan þings né innan, gerði athugasemd við þá máls- meðferð. Það eru 435 þingmenn í þingdeildinni. (Á Íslandi hefðu hafist margra mánaða umræð- ur um fundarstjórn forseta og störf þingsins og málinu ekki lokið af 63 þingmönnum). Nú gengur málið til Öld- ungadeildar og verður vænt- anlega afgreitt eftir viðræður á milli deilda. Trump og sam- herjar hans fagna. En þótt mál- ið fari svona, þá er augljóst að það verður ekki undið með öllu ofan af löggjöf Obama forseta. Slíkt hefði ekki stuðning al- mennings. Eftir mun því sitja að hann náði að koma á heil- legri löggjöf um þennan þátt. Eftir breytingar repúblikana verður hún í aðeins annarri mynd en forsetinn stefndi að. Hann mun því geta allvel unað við, þegar horft er til megin- markmiðanna sem hann setti sér. Sú staðreynd kann að þykja góð eða vond eftir smekk, en hún er óumdeil- anlega staðreynd. Atkvæðagreiðsla um „obamacare“ er sig- ur fyrir Trump, en þó aldrei meira en hálf- ur sigur} Kaflaskil en ekki bókarlok V axandi umræða fer nú fram í Nor- egi um framtíð samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Norski Miðflokkurinn hefur það á stefnuskrá sinni að skipta EES- samningnum út fyrir hefðbundinn tvíhliða frí- verzlunarsamning. Flokkurinn hefur lagt aukna áherzlu á þetta stefnumál sitt á und- anförnum mánuðum auk andstöðunnar við inn- göngu Noregs í Evrópusambandið og samhliða því hefur fylgi hans aukizt verulega. Á sama tíma er búizt við að norski Framfaraflokkurinn móti þá stefnu á landsfundi flokksins sem hefst í dag og stendur yfir helgina að leggjast ekki aðeins gegn inngöngu í Evrópusambandið heldur einnig að endurskoða þurfi EES- samninginn. Fylgisaukning Miðflokksins kemur ekki á óvart í ljósi skoðanakannana um Evrópumál í Noregi. Þegar kemur að afstöðunni til inngöngu í Evrópusam- bandið hafa allar kannanir sem birtar hafa verið frá því snemma á árinu 2005 sýnt mikinn meirihluta Norðmanna andvígan því að ganga í sambandið. Þegar kemur að af- stöðunni til EES-samningsins sýnir ný könnun að fleiri Norðmenn vilji skipta EES-samningnum út fyrir hefð- bundinn tvíhliða fríverzlunarsamning en vilja halda í hann, eða 35% á móti 23%. Aðrir taka ekki afstöðu til valkost- anna tveggja. Fríverzlunarsamningar nútímans eru sagðir af annarri kynslóð þar sem þeir ná ekki aðeins til vöruviðskipta, líkt og í boði voru þegar EES-samningurinn var upphaflega gerður, heldur einnig þjónustu- viðskipta, opinberra útboða, höfundarrétt- armála, öryggisstaðla og annars sem skiptir máli í nútímalegum milliríkjaviðskiptum. Samningur eins og brezk stjórnvöld stefna að því að gera við Evrópusambandið og sam- bandið sjálft hefur gert til að mynda við Suður- Kóreu og Kanada og hefur vonazt til að gera við Bandaríkin hvernig sem það annars fer. Þingkosningar fara fram í Noregi í haust og verður fróðlegt að sjá hvernig fjallað verður um Evrópumálin í kosningabaráttunni. Ekki er útilokað að fleiri þarlendir stjórnmála- flokkar eigi eftir að taka undir með Mið- flokknum á komandi árum og kalla eftir því að EES-samningnum verði skipt út fyrir nútíma- legan annarrar kynslóðar fríverzlunarsamn- ing. Fyrirkomulag sem stærstu hagkerfi heimsins hafa valið í samningum um viðskipti sín á milli og við önnur ríki og sem rannsóknir hafa sýnt að eru fyllilega til þess fallnir að tryggja viðskiptahagsmuni á milli ríkja. Með annarrar kynslóðar fríverzlunarsamningi væri ennfremur um að ræða tækifæri til þess að samræma, ein- falda og nútímavæða tengsl EFTA-ríkjanna við Evrópu- sambandið sem í meira en tvo áratugi hafa annars vegar verið í gegnum EES-samninginn (Ísland, Noregur og Liechtenstein) og hins vegar í gegnum fjölmarga tvíhliða samninga (Sviss). Það væri ljóslega til mikilla hagsbóta fyrir alla hlutaðeigendur. hjortur@mbl.is Hjörtur J. Guðmundsson Pistill Kjörið tækifæri STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Venjulegur fjölskyldubíll,knúinn rafmagni, getur núekið á milli Akureyrar ogReykjavíkur eftir að hrað- hleðslustöðvum var fjölgað. „Leiðin er orðin fær,“ sagði Bjarni Már Júl- íusson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, þegar málið var kynnt á Akureyri í gærmorgun. Hlöður, eins og ON kallar hleðslu- stöðvarnar, hafa verið settar upp við þjónustustöðvar N1 í Staðarskála í Hrútafirði og á Blönduósi, og sú þriðja er við tengivirki Rarik og Landsnets rétt við Varmahlíð til bráðabirgða. Áður hafði verið sett upp hlaða í Borgarnesi. Hlöður ON eru 16. Þær fyrstu voru settar upp í Reykjavík árið 2014 og hefur fjölgað jafnt og þétt síðan. Bjarni Már sagðist í gær afar ánægður með að það markmið náðist að „opna leiðina“ til Akureyrar fyrir sumarið. „Raforkuiðnaðurinn þarf að leiða orkuskiptin og sýna ábyrgð í því. Komið hefur í ljós hvað við get- um gert ef allir standa saman.“ Hringinn á rafbíl fyrir árslok „Við ætlum að halda ótrauð áfram, setja upp hlöður hér austur um frá Akureyri og suður með ströndinni frá höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að hægt verði að komast hring- veginn á venjulegum rafbíl undir lok þessa árs,“ sagði Bjarni Már. Umhverfismál ber oft á góma þeg- ar rætt er um rafmagnsbíla en málið snýst líka um beinharða peninga. Bjarni Már segir um 200.000 bíla í notkun á Íslandi. Eldsneyti á þá er flutt til landsins fyrir um 12 millj- arða króna á ári, 33 milljónir kr. hvern dag ársins að meðaltali. Rafmagnið kostar vitaskuld sitt en ná mætti fram verulegum sparn- aði með rafvæðingu bílaflotans og Bjarni Már segir næga raforku til. „Varlega má áætla að verja þurfi innan við helmingi þessarar upp- hæðar ef við skiptum yfir í hreina, íslenska orku. Þannig mætti spara um sex milljarða króna í gjaldeyri á ári, sem færu einhvern veginn öðru- vísi inn í hagkerfið. Þetta skiptir því miklu máli og ekki síður vegna samninga um loftslagsmarkmið sem Íslendingar hafa skrifað undir,“ seg- ir Bjarni Már Júlíusson. Þjóðin hefur skuldbundið sig til að draga verulega úr losun gróðurhúsa- lofttegunda til ársins 2030. Náist það ekki mun það kosta skildinginn. „Fólk verður að átta sig á að náist markmiðið ekki verða börnin okkar að draga upp veskið og borga en við erum í dauðafæri núna að fara á þessa bíla því allt er tilbúið.“ Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, segir það sannar- lega tímamót að hægt sé orðið að keyra á milli landshlutanna á raf- magnsbíl. „Það skiptir miklu í því stóra verkefni sem loftslagsmálin eru og liggur beint við að fara í orku- skipti í samgöngum; það væri ein- faldlega fáránlegt að nýta ekki þessa grænu orku til að drífa áfram bílana okkar í stað þess að eyða mikil- vægum gjaldeyri í lífefnaeldsneyti sem flutt er frá útlöndum.“ Ekkert land hentar betur Bjarni Bjarnason, forstjóri Orku- veitu Reykjavíkur, segir ekkert land betur til þess fallið en Ísland að raf- bílavæðast. „Fyrir því eru nokkrar ástæður. Allt rafmagn er grænt og endurnýjanlegt, mengunarlítið, það er ódýrt og loftslagið hér er ákjós- anlegt því rafhlöður þola vel kulda en ekki mikinn hita. Auk þess eru vegalengdir hér á landi stuttar. Við eigum að sjálfsögðu að stefna að því að útrýma „svörtu bílunum“ eins fljótt og hægt er, helst innan tíu ára,“ sagði Bjarni. „Á því eru engar hömlur; framtíðin er komin því tæknin er tilbúin, verðið á bílunum er orðið viðráðanlegt og drægnin er að verða mikil. Í haust verða komnir fjölskyldubílar á markað sem kom- ast 400 kílómetra á einni hleðslu.“ Rafbílavæðing gæti sparað sex milljarða Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Náttúruleg orka Fulltrúar Orku náttúrunnar ásamt ráðherra. Frá vinstri: Bjarni Már Júlíusson, Áslaug Thelma Einarsdóttir, Telma Sæmundsdóttir, Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Bjarni Bjarnason. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, sat fyrstu alþjóða rafbílaráðstefn- una í Noregi í vor og segir hana hafa verið mjög fróðlega að mörgu leyti. „Eitt af því sem þar kom fram var að helsti rekstr- arkostnaður norskra rafbílaeig- enda væri vegna kaupa á ham- borgurum og kaffi! Þeir þurfa að leggja bílnum til að hlaða hann og gera það gjarnan við vegasjopppur, þar sem þeir geta fengið sér í gogginn í leið- inni,“ sagði Bjarni í léttum dúr í gær á Akureyri. „Hvað er yndislegra en að svífa um landið, hljóðlaust og án þess að menga, knúinn raf- magni úr Henglinum?“ spurði forstjórinn en hann hefur ekið rafbíl um skeið og er afar hrif- inn. Kom einmitt á honum norð- ur til að sitja Samorkuþing. „Ég er búinn að keyra hann 33.000 kílómetra og fyrir utan að hlaða bílinn hef ég ekki þurft að gera annað en setja þrisvar á hann rúðupiss,“ sagði Bjarni. Eyða mestu í hamborgara og kaffisopa RAFBÍLAEIGENDUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.