Morgunblaðið - 05.05.2017, Síða 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017
✝ Guðjón ÁrniOttósson fædd-
ist á Skólavörðustíg
4 hinn 8. desember
1928. Hann lést á
Landspítalanum 16.
apríl 2017.
Foreldrar Guð-
jóns voru Ottó Eð-
varð Guðjónsson,
sjómaður í Reykja-
vík, f. 10. október
1904, d. 16. mars
1971, og Svanhvít Guðmunds-
dóttir húsmóðir, f. 8. september
1907, d. 21. desember 1977. Guð-
jón, eða Addi eins og hann var
alltaf kallaður, giftist 8. desem-
ber 1951 eftirlifandi eiginkonu
sinni Dóru Friðleifsdóttur, f. 11.
desember 1930. Foreldrar Dóru
voru Friðleifur I. Friðriksson, f.
Í Ólafsvík 25. ágúst 1900, d. 9.
mars 1970, og Halldóra K. Eyj-
ólfsdóttir, f. á Skeggjastöðum í
N-Múlasýslu 14. október 1902, d.
14. ágúst 1997. Guðjón var elstur
systkina, þau eru: Sigríður, f. 19.
janúar 1930, d. 23. október 2010,
Erla, f. 4. júní 1934, d. 1. ágúst
2012, Sjöfn, f. 26. nóvember
1940, og Svandís, f. 30. sept-
ember 1947, d. 21. janúar 2012.
Auk þeirra tvö systkini sem dóu í
Daníel Ottó, f. 1997, með Michael
Viney. Stjúpbörn Huldu eru Ant-
on Ingi, f. 1994, Andri Freyr, f.
1996, d. 2014, Aldís Elva, f. 2000,
og Írena Þöll, f. 2003. Barna-
barnabörnin eru tólf.
Guðjón ólst upp á Skólavörðu-
stígnum og gekk í Austurbæj-
arskólann. Að barnaskólanámi
loknu lá leiðin í Iðnskólann þar
sem hann lagði stund á rafvirkj-
un. Að námi loknu vann hann hjá
Steini Guðmundssyni þar til
hann stofnaði ásamt öðrum
Rafvirkjaþjónustuna. Síðar
stofnaði hann Rafvirkni sf.
ásamt Heimi syni sínum og vann
þar, uns hann lét af störfum sök-
um aldurs. Guðjón og Dóra hófu
búskap á Lindargötu 60 eða þar
til hann ásamt fleirum byggði
blokkina að Ljósheimum 12.
Lengst af bjuggu þau síðan í
Smáíbúðahverfinu. Guðjón var
einstaklega úrræðagóður raf-
virki og leysti úr vandamálum
margra hvort sem það var í
vinnu eða fyrir greiðasemi.
Hann sinnti mörgum áhuga-
málum. Spilaði bridge og var
einn af stofnendum Krumma-
klúbbsins. Þá safnaði hann frí-
merkjum, kortum, umslögum og
smámynt, stundaði stangveiði og
lék golf um tíma. Þá hafði hann
mikla ánægju af sólarlanda-
ferðum og var Spánn í miklu
uppáhaldi.
Útför Guðjóns fór fram í kyrr-
þey að ósk hins látna frá Foss-
vogskapellu 2. maí 2017.
barnæsku. Börn
Guðjóns og Dóru
eru: 1) Birna f. 24.
nóvember 1953,
maki Þorsteinn
Garðarsson. Sonur
Garðar, f. 1979. 2)
Heimir Jón, f. 14.
september 1954,
maki Kristrún Sig-
urðardóttir. Börn
Hlynur Már, f. 1993,
og Sunna Rún, f.
1996. Fyrir átti Heimir Sigrúnu
Grétu, f. 1978, og Halldór, f.
1980, með fyrrverandi eig-
inkonu sinni Erlu Halldórs-
dóttur. 3) Bylgja Björk, f. 16.
janúar 1960. Börn með fyrrver-
andi eiginmanni Steinari Þór
Ólafssyni eru Árni Þór, f. 1979,
Daníel Örn, f. 1981, og Dóra
Björk, f. 1987. 4) Halldóra Krist-
ín, f. 1 júlí 1964, maki Sigurður
Sigurðarson. Börn Guðjón Ingi,
f. 1988, og Sara Diljá, f. 1995. 5)
Tvíburastúlkur andvana fæddar
1969. 6) Ottó Eðvarð, f. 9. apríl
1971, maki Valdís Ólafsdóttir.
Synir Stefán Kári, f. 2001, og
Tómas Magni, f. 2006. 7) Hulda,
f. 20. maí 1975, maki Sveinn Al-
bert Sigfússon, barn Freydís
Katla, f. 2008. Fyrir átti Hulda
Þakklæti.
Mig langar að þakka pabba
fyrir tíma sinn með mér, ég
þekkti hann lítið á mínum yngri
árum en síðustu árin hefur hann
kennt mér margt. Ég er þakklát
fyrir að hafa fengið tækifæri til
að hugsa um hann.
Hlutverkið hafði snúist við,
pabbi var orðinn litli strákurinn
minn og ég mamma hans. Alltaf
að passa að honum liði vel, að
hann skorti ekkert. Passaði upp
á að hann borðaði nóg, tilbúin að
grípa í hönd hans er hann stóð á
fætur til þess að hann dytti nú
ekki.
Á hans efri árum hefur hann
oft glatt mig með sínum uppá-
tækjum. Hann átti það til að fara
í göngutúra og það án þess að
láta mömmu vita hvert hann ætl-
aði. Þegar mömmu var farið að
lengja eftir honum var hringt í
okkur Halldóru systur og sagt
að sá gamli væri týndur, á innan
við mínútu (liggur við) vorum við
komnar á staðinn og byrjaðar að
leita. Stundum fannst hann inni í
geymslu sitjandi við skrifborðið
að skoða gersemar sínar, frí-
merkin. En stundum var hann
ekki þar heldur einn úti í hinni
stóru veröld og ekki nokkur leið
fyrir okkur að vita hvar við ætt-
um að byrja að leita. Alltaf
fannst hann. Stundum kaldur og
örmagna eftir langar göngur, því
í hvert skipti villtist hann og
vissi ekkert hvar hann var
staddur eða yfir höfuð hvernig
hann komst þangað.
Það þýddi ekkert að segja
honum að hann mætti ekki bara
fara út án þess að láta neinn
vita, hann vissi alltaf betur en
við. Eitt sinn tók ég hann tali og
sagði að hann gæti villst, að hon-
um gæti orðið kalt eða að hann
gæti hreinlega dottið og ekki
staðið upp aftur. Þá stóð ekki á
svörum hjá þeim gamla; ég rata
alveg, mér var ekki kalt og ég
datt ekki. Alveg eins og óþekkur
lítill snáði, og áður en ég vissi
var ég farin að hlæja að þessum
yndislega fyndna manni, honum
pabba mínum.
Kvöldið fyrir andlát pabba lá
hann inni á sjúkrahúsinu uppi á
Akranesi, hann var svo kvalinn,
þessi elska, enda lærbrotinn eft-
ir fall deginum áður. Við Hall-
dóra systir vorum við hlið hans
alla þá nótt, og með hjálp ynd-
islegs starfsfólks sem var á vakt
þessa nótt náðist að halda verkj-
um hans í skefjum eftir bestu
getu. Aldrei kvartaði hann en
það sást í andlitinu á honum að
hann var illa kvalinn en stutt var
í húmorinn hjá honum og þessa
nótt var hann jólapakki að sögn
eins starfsmanns. Ekki fannst
honum það leiðinlegt og hló hann
í gegnum sársaukann.
Að horfa á hann í þessu
ástandi var sárt, svo hrikalega
sárt.
Mig langar að þakka fyrir að
hafa fengið að vera með pabba
mínum síðustu klukkutímana,
mínúturnar og sekúndurnar fyr-
ir brottför hans. Mig langar að
þakka fyrir að hafa fengið að
vera með honum síðasta andar-
drátt hans, að halda í höndina á
honum og strjúka honum um
enni.
Ég er þakklát að pabbi minn
hafi loksins fengið þá hvíld sem
hann var búinn að þrá svo lengi,
88 ár er langur tími ef heilsan er
farin.
Hvíldu í friði, elsku pabbi, ég
bið að heilsa Andra.
Þín dóttir
Hulda.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Með þessu ljóði kveð ég pabba
minn hinstu kveðju. Ég leyfi mér
að brosa yfir minningunum sem
streyma fram í hugann og ylja á
tímum sem þessum. Ég minnist
veiðiferðanna í Vatnsdalsána,
þegar við stoppuðum uppi á
Holtavörðuheiði til að tína dýja-
mosa fyrir ánamaðkana. Þú allt-
af fyrstur að ná mosanum þrátt
fyrir að vera aldursforsetinn. Ég
minnist þess þegar þú keyrðir
mig upp í Bláfjöll á skíði og tókst
fram gömlu tréskíðin sem þú
fékkst í fermingargjöf, bast þau
á þig með rafmagnsvírum og
naust þess að labba upp brekk-
urnar á meðan við hin renndum
okkur niður. Ekki vildi ég nú
þekkja þig þarna í brekkunni en
í dag brosi ég að minningunni.
Ég minnist hjálpsemi þinnar
þegar við hjónin byggðum okkur
hús. Þú komst daglega með
kaffibrúsann þinn og slóst ekk-
ert af þrátt fyrir að vera orðinn
75 ára. Okkur stóð nú ekki alltaf
á sama þegar við komum að þér
uppi í tröppum eða uppi á still-
ansa en ekki máttir þú heyra á
það minnst að þú þyrftir að fara
varlega.
Ég minnist jólanna á Kanarí-
eyjum, hvað þú naust þín í sól-
inni og hitanum. Ég er þakklát
fyrir að hafa fengið að vera hjá
þér allt til hins síðasta, þakklát
fyrir að sjá síðasta brosið og
heyra síðustu orðin. Elsku
pabbi, hvíl í friði og hjartans
þökk fyrir allt.
Þín dóttir,
Halldóra Kristín.
Það er tvennt ólíkt að stíga í
vænginn við sitt tilvonandi konu-
efni og að stíga fyrstu skrefin
inn á heimili verðandi tengdafor-
eldra. Fyrir rúmlega fjórum ára-
tugum steig ég fyrsta skrefið inn
á heimili verðandi tengdaforeld-
ara minna, þeirra Dóru og Adda.
Mér var vel tekið og hefur aldrei
borið skugga á þau kynni.
Addi ólst upp við Skólavörðu-
stíginn, leiksvæði hans var Mið-
bærinn, Tjörnin og Skólavörðu-
holtið. En eins og tíðkaðist í þá
daga voru börn send í sveit um
leið og þau höfðu aldur til. Addi
fór í Flóann og var þar í sveit í
mörg ár.
Sveitalífið átti vel við Adda.
Þegar voraði þráði hann að kom-
ast út úr bænum, komast út í
náttúruna. Þessi þrá fylgdi hon-
um alla tíð. Hann hafði yndi af
að veiða, fylgjast með skýja-
farinu og fuglalífinu.
Það var á balli í bragga í
Nauthólsvík, þar sem Addi
hneigði sig fyrir Dóru og bauð
henni upp í dans og þann dans
stigu þau í um sextíu og sex ár.
Þau áttu og ólu upp sex börn og
var því oft í mörg horn að líta
hjá þeim hjónum. Þrátt fyrir að
þau hafi verið um margt ólík þá
deildu þau sömu áhugamálum.
Vetraríþróttin var bridge, þau
tóku þátt í ótal keppnum og voru
sigursæl. Þegar þau voru ekki að
keppa var gjarnan spilað heima
við Sissu systur Adda og Ingólf
mág hans.
Á sumrin var veiðistöngin
dregin fram, Vatnsdalurinn var í
uppáhaldi hjá þeim og fóru þau
ásamt sínu fólki þangað árlega
um marga ára skeið. Golfið átti
einnig stóran sess hjá þeim, að
spila og fylgjast með golfkeppn-
um var ánægja þeirra og dægra-
dvöl er starfsævinni lauk. Þar
fyrir utan var Addi áhugasamur
safnari, hann safnaði frímerkj-
um, póstkortum og mynt.
Addi lærði rafvirkjun og
starfaði alla tíð við sitt fag. Fyrst
í stað hjá meistara sínum. Hann
stofnaði Rafvirkjaþjónustuna
ásamt tveimur félögum sínum
sem þeir ráku við góðan orðstír í
um þrjá áratugi. Árið 2000 stofn-
aði Addi Rafvirkni með Heimi
syni sínum og vann þar til að
hann fór á eftirlaun. Addi sá um
raflagnir og viðgerðir fyrir mörg
leiðandi fyrirtæki og stofnanir
m.a. Síld og fisk, Hótel Holt, Öl-
gerðina og Verslunarbankann.
Addi var einstakur verkmað-
ur, hann var fagmaður fram í
fingurgóma, þrautseigur og
hætti ekki fyrr en bilunin var
fundin og straumur kominn á ný.
Einn besti vitnisburður um
ágæti Adda var að sá farsæli og
góði athafnamaður Þorvaldur í
Síld og fiski treysti engum betur
en Adda til að sjá um raflagnir
og viðgerðir á vélum í fyrirtækj-
um sínum.
Addi var einn af þeim mönn-
um sem skiluðu góðu dagsverki,
hjá honum fór saman; dugnaður-
inn, fagmennskan og þrautseigj-
an.
Blessuð sé minning Guðjóns
Árna Ottóssonar.
Þorsteinn Garðarsson.
Ég kom inn í fjölskyldu Adda
1981. Fljótt varð mér ljóst að
þar fór maður sem ekki valdi
alltaf auðveldustu leiðirnar.
Hann lagði á sig ómælda vinnu
við að gera við það sem aðrir
sögðu ónýtt, frekar en að kaupa
nýtt. Þessi eiginleiki hans nýttist
Ölgerð Egils Skallagrímssonar
vel, þar sem hann hélt úreltum
vélum og í raun safngripum,
gangandi áratugum saman.
Margar ferðir fórum við sam-
an. Nokkrar til útlanda þar sem
hann naut sín best í hita og sól.
En eftirminnilegastar eru veiði-
ferðirnar í Vatnsdalsá. Þar eins
og annars staðar snérist líf hans
um að öðrum gengi vel, þegar
hann hafði tryggt það eins og
kostur var, gat hann farið að
huga að sjálfum sér.
Eftir að hann hætti störfum
kom í ljós að hann átti erfitt með
að sitja aðgerðarlaus. Enda
þurftum við hjónin ekki að beita
hann fortölum þegar við báðum
hann um aðstoð þegar við keypt-
um fokhelt hús. 75 ára mætti
hann fyrstur allra, með sætt
kaffi á brúsa og fann sér eitt-
hvað að gera.
Um miðjan mars síðastliðinn,
lagðist hann inn á Landakot til
hvíldar. Þegar hann kom síðan
heim í helgarfrí var hann það
máttfarinn að hann fór beint á
sjúkrahús aftur. Við sáum að
verulega hallaði að kveldi eða
eins og konan mín sagði „hann
leit ekki við pípunni heima“.
Með þessum orðum kveð ég
mann sem ekki var allra en
reyndist mér og mínum ákaflega
vel.
Sigurður (Siggi).
Guðjón Árni
Ottósson
hægt að hugsa sér. Þú lagðir
áherslu á að við menntuðum
okkur og voru þær ófáar heim-
sóknirnar á bókasafnið með
þér.
Þú varst alltaf mjög heima-
kær og áttir þínar bestu stund-
ir innan veggja heimilisins með
fjölskyldunni enda bar heimilið
myndarskap þínum augljós
merki, málverk eftir þig á
veggjum og píanóið á sínum
stað ásamt öllu öðru.
Elsku mamma, ég kveð þig
með sárum söknuði. Takk fyrir
allt.
Þín dóttir,
Brynja.
Í dag kveðjum við Kristínu
tengdamóður mína. Þar var á
ferðinni kraftmikil og ákveðin
kona sem sagði alltaf sína
meiningu en var jafnframt af-
skaplega hjartahlý og um-
hyggjusöm.
Ég hitti hana fyrst fyrir um
12 árum þegar ég og Baldvin
sonur minn komum sem gestir
á Lindarbrautina í fyrsta
skipti.
Þau Kristín og Pétur tóku
einstaklega vel á móti okkur,
eins og reyndar ávallt þegar við
komum í heimsókn. Kristín
vildi helst slá upp veislu í hvert
skipti.
Hún sýndi alltaf mikinn
áhuga á því sem við höfðumst
að og var umhugað um okkar
hagi.
Þarna eignaðist Baldvin ann-
að sett af ömmu og afa og það
er ég einstaklega þakklát fyrir.
Ég hitti Kristínu nokkrum
dögum fyrir andlátið og áttum
við þá gott spjall.
Þó að hún væri orðin mikið
veik var barátta í henni og
sagðist hún vera mun hressari
og stefndi að því að komast
heim fljótlega.
En við ráðum ekki alltaf för
og ferð hennar var heitið ann-
að. Ég er þakklát fyrir að hafa
átt þessa stund með henni og
kveð hana með söknuði.
Elsku Auður, Jói og Brynja,
ég votta ykkur innilega samúð.
Þegar sorgin sverfur að
og sólargeislar dvína
við Guð þinn eigðu orðastað
aftur mun þá skína.
Af ást hann talar til þín skýrt
trúum kærleiksorðum
þar til brosið bjart og hýrt
birtist eins og forðum.
(Hilmir Högnason)
Margrét Lilja.
Þegar ég var níu ára gamall
fór ég í heimsókn á Nesið að
hitta fjölskylduna hans Jóa í
fyrsta skiptið. Ég var svolítið
feiminn en þau tóku öll svo vel
á móti mér að það var fljótt að
hverfa.
Ég er afar þakklátur fyrir að
hafa fengið að kynnast þeim
Kristínu og Pétri, sem urðu
eiginlega eins og önnur amma
mín og afi.
Það var alltaf gott að koma á
Nesið og alltaf tekið hlýlega á
móti manni enda voru þau gott
fólk með hjartað á réttum stað.
Bestu þakkir fyrir allt.
Baldvin Búi.
ert annað og í mínum huga var
Hjördís alltaf jákvæð, brosmild
og glöð og var alltaf til í að
hjálpa öðrum.
Ég fann það fljótt að Hjördís
var vinsæl manneskja, allir
vildu vera nálægt henni og vera
með henni enda var hún
skemmtileg, lausnamiðuð og
laus við alla fordóma. Fjöl-
skylda mín var svo heppin að fá
að kynnast henni og það var
alltaf glatt á hjalla í fjölskyldu-
boðum þegar þessar tvær fjöl-
skyldur hittust.
Það er alltaf talað um Hjör-
dísi Thor af mikilli virðingu
enda hefur hún áunnið sér þá
virðingu með gjafmildi sinni.
Hennar verður sárt saknað.
Kveðja,
Gunnhildur Pétursdóttir.
Fyrstu árin ólst ég upp
heima hjá ömmu og tók hún
stóran þátt í uppeldi mínu
fyrstu árin og var einstaklega
dugleg að hjálpa mömmu með
sitt fyrsta barn. Eftir að ég
flutti á nýjan stað, sem var
ekki langt frá ömmu, eyddi ég
engu að síður miklum tíma með
og hjá ömmu. Á unglings- og
fullorðinsárum var samband
okkar alltaf gott og var amma
alltaf til í að hjálpa mér og leið-
beina mér, ég held meira að
segja að amma hafi komið mér
í gegnum dönsku allan fram-
haldsskólann með því að að-
stoða mig við námið.
Hún var einnig klár í að
setja hluti í samhengi þegar ég
var að kljást við að reyna að
taka góðar ákvarðanir.
Amma ólst upp á Akureyri
og menntaði sig sem hár-
greiðslukona og svo þegar afi
féll snemma frá ól hún upp þrjú
börn og vann fulla vinnu. Ég
held að sú reynsla hafi hert
ömmu og gert hana sterka
bæði andlega og líkamlega og
kannski er góð heilsa til átt-
ræðs til marks um það.
Amma var klár, ósérhlífin,
umhyggjusöm og sérstaklega
sjálfstæð og vildi gera alla hluti
sjálf þótt hún vissi að hún ætti
góða að sem vildu allt fyrir
hana gera.
Elsku amma, ég hef alla
mína tíð verið stoltur og hreyk-
inn af því að eiga þig sem
ömmu og vorum við miklir vinir
og ég mun sakna þín mikið.
Árni Hjörvar Hilmarsson.
Rosalega er skrýtið að þú
sért farin amma mín, ég man
eftir öllum þeim frábæru tím-
um sem við áttum saman.
Alltaf var jafn skemmtilegt
þegar við fjölskyldan fórum
saman í sumarbústað og þá sér-
staklega í Holtsdal, þú varst
alltaf svo yndislega góð,
skemmtileg, umhyggjusöm og
sjálfstæð. Einnig gleymi ég því
aldrei þegar þú tókst Brennið
þið vitar svona glæsilega og
söngst yfir allan dalinn.
Þú varst alltaf hjálpsöm og
aðstoðaðir mig eins og hægt
var þegar prófin byrjuðu og
hægt var að koma yfir til þín
og læra í ró og næði.
Það er erfitt að orða það
hversu frábær þú varst, mun
ávallt sakna þín amma mín,
takk fyrir allt.
Ingvar Haraldsson.
Sit hér og hugsa um hvað á
ég að segja. Dagurinn sem ég
er búin að kvíða svo lengi er
kominn, ég þarf að kveðja þig.
Það sem ég datt í lukkupottinn
að eignast þig sem ömmu, við
vorum svo nánar þú og ég. Gat
alltaf treyst á þig, engu máli
skipti hvað það var, þú varst
alltaf til staðar. Þú varst svo
hjartahlý, klár, skemmtileg og
sterk, svo það er ekki skrýtið
að mamma mín er hörkukona.
Skil ennþá ekki almennilega að
þú sért farin enda vil ég ekki
trúa því.
Það er svo margt sem mig
langar að segja um þig, elsku
amma mín, en kem það ekki
niður á blað.
Vona að þú vissir hvað ég
elskaði þig mikið og hvað þú
skipti mig miklu máli. Þú varst
mér svo miklu meira en „bara“
amma mín.
Veit ekki hvað ég á að gera
án þín en eitt veit ég fyrir víst
að það eru þung og erfið skref
fram undan án þín. Minning þín
mun lifa í hjarta mínu um
ókomna tíð. Elska þig!
Carina Hjördís Andersson.
Okkar ástkæra móðir, amma og systir,
ERNA SVAVARSDÓTTIR
frá Blönduósi,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold að kvöldi
laugardagsins 29. apríl.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þóra Stefánsdóttir
Kolbrún Erna Ingadóttir
Bergvin Logi Ingason
Agnes Svavarsdóttir