Morgunblaðið - 05.05.2017, Síða 31
annars hennar einlægi áhugi á
fólkinu í kringum sig. Hún átti
stóra og ástkæra fjölskyldu sem
hún unni og var stolt af. Hún
fylgdist alltaf vel mjög vel með
og var umhugað um velferð
allra.
Amma í Reykjavík, var hún
gjarnan kölluð á okkar æsku-
heimili. Þegar fjölskyldan fór til
Reykjavíkur var alltaf ein mesta
tilhlökkunin að heimsækja
ömmu. Heimili hennar stóð öll-
um opið, alveg sama hvort um
dvöl til lengri eða skemmri tíma
var að ræða, enda hefur hún
hýst mörg barnabörnin í gegn-
um tíðina er þau hafa fetað
menntaveginn í Reykjavík. En
menntun var máttur í ömmu
huga og hún hvatti alla til þess
að mennta sig.
Amma var afar hlý kona. Hún
var jákvæð og glaðlynd og það
var alltaf nærandi að koma til
hennar og hún tók á móti okkur
með stóru og hlýju faðmlagi.
Hún spurði ótal spurninga um
lífið og tilveruna, stundum
óþægilegra spurninga, en hún
var alltaf hreinskilin og hægt að
ganga að því vísu að hún segði
sína meiningu, sem stundum
gerði það að verkum en hugsa
þurfti hlutina upp á nýtt.
Amma hugsaði vel um heils-
una og var heilsuhraust allt sitt
líf, hún var jafnframt fagurkeri
og naut þess að hafa fallegt í
kringum sig. Hún var sérlega
falleg kona og glæsileg. Kónga-
blár var hennar uppáhaldslitur
og er hún var komin í bláa kjól-
inn og pelsinn, með uppsett hár
og ilmaði af Red Door var hún
hreinlega glæsilegasta konan í
öllum heiminum.
Amma var kraftmikil og dug-
leg og gerði það sem hana lang-
aði til. Hún var víðsýn, ferðaðist
mikið í fyrri tíð og hafði gaman
af því að vera með fólki. Eftir að
afi dó ákvað hún að taka bílpróf,
sem hún gerði með glans og ók
um á amerískum kagga í mörg
ár.
Börnin okkar systkinanna
nutu þess einnig að koma til
langömmu sinnar og minnast
hennar sem hjartahlýrrar konu
sem alltaf gaf sér tíma til þess
að sýna þeim ástúð og athygli.
Við minnumst ömmu okkar
með ást og þakklæti í hjarta.
Svavar, Selma,
Óli, Sesselja Ingibjörg
og Magnús.
Mig langar til þess að minn-
ast langömmu minnar vegna
þess að þegar ég fæddist fór ég
beint af fæðingardeildinni og
heim til hennar. Mamma var í
námi og við bjuggum hjá ömmu
á meðan. Ég man að sjálfsögðu
ekki eftir þessum tíma en allt
mitt líf hef ég þekkt Lellu lang-
ömmu og mér þykir ótrúlega
vænt um hana. Ég myndi vilja
hafa haft hana nær mér en við
heimsóttum hana reglulega og
hún var alltaf svo glöð að sjá
mann og vildi vita hvað maður
væri að gera. Hún spurði mig
alltaf um skólann og körfuna,
hrósaði mér og hvatti mig
áfram, hafði bara einhvern veg-
inn svo mikinn áhuga á öllu sem
maður var að gera. Það var ein-
hvern veginn allt svo fallegt í
kringum ömmu og hún var sjálf
svo falleg. Hún var alltaf svo fín
með hárið upp sett og vildi líta
vel út. Ég man að ég hugsaði
svo oft og geri enn að ég von-
aðist til að ég ætti eftir að verða
svona falleg eins og hún jafnt að
utan sem innan.
Elsku amma, ég kveð þig
bæði með gleði og sorg í hjarta.
Þín
Linda Þórdís.
Við fráfall elskulegrar mág-
konu kvikna margar ljúfar
minningar. Lella reyndist mér
og minni fjölskyldu vel frá
fyrstu stundu. Hún og Óli Barð-
dal tóku mér opnum örmum, þó
að vissulega hafi vaknað ein-
hverjar efasemdir í fyrstu um
aldursmun þegar við Bubbi
„bróðir“, eins og Lella kallaði
hann, fórum að stinga saman
nefjum. Hann var þá 23 ára og
ég 17 ára. Þeim var ekki alveg
sama hvaða kvonfang Bubbi
veldi sér, sem var í miklu uppá-
haldi hjá „stóru“ systur sinni.
En öllum vafa var hins vegar
fljótlega eytt og við tengdumst
Lellu og Óla, og öðrum í tengda-
fjölskyldunni, sterkum böndum.
Samskiptin voru mikil og
ánægjuleg og skipti litlu þótt
fjarlægðirnar hafi þótt töluverð-
ar á milli Sauðárkróks og
Reykjavíkur. Samgöngur voru
ekki jafn greiðar og í dag en
samt hittumst við oft. Sérstak-
lega eru minnisstæðar heim-
sóknir í sumarbústaðina þeirra,
fyrst Hvarf í Borgarfirði og síð-
ar Fitjakot á Þingvöllum. Einnig
ferðuðumst við töluvert saman
til útlanda og þá oftast til Kan-
aríeyja. Allt voru þetta ánægju-
stundir sem lifa eftir í minning-
unni.
Lella reyndist mér sem önnur
móðir alla tíð en á okkur var
fimmtán ára aldursmunur. Ég
lærði margt af henni, hún var
ráðagóð, jafnframt ákveðin, en
alltaf tilbúin að hlusta og gefa
sér tíma ef með þurfti. Lella var
glæsileg kona og alltaf vel til-
höfð.
Þau Óli sýndu fjölskyldunni á
Hólaveginum einstakan áhuga,
stuðning og frændsemi. Þau létu
sig aldrei vanta þegar stórar
stundir runnu upp í lífi okkar,
hvort sem það voru skírnir,
fermingar, giftingar, útskriftir
eða afmæli. Þau áttu sjálf stóra
fjölskyldu og fjölmarga afkom-
endur en létu sig ekki muna um
að fylgjast einnig vel með fjöl-
skyldum systkina Lellu.
Lella tók Hauki, sambýlis-
manni mínum, vel eftir að Bubbi
var fallinn frá. Ekki fannst
henni verra að Haukur væri
sonur Björns í Bæ og gátu þau
rifjað upp ýmislegt af sameig-
inlegum heimaslóðum, Höfða-
ströndinni, sem hún hafði góðar
minningar frá.
Sumarblærinn blíði,
hann ber til þín inn
frá mér kærustu kveðju
og koss á vanga þinn.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Elsku Lella mágkona. Ég
þakka þér samfylgdina í blíðu
og stríðu og allt það sem þú
gerðir fyrir okkur á Hólaveg-
inum. Börnin mín og barnabörn
geyma með sér fagrar minning-
ar og þau þakka allan hlýhug og
áhuga sem þú sýndir þeim alla
tíð. Guð blessi minningu þína.
Margrét Guðvinsdóttir,
börn og fjölskyldur.
Lella móðursystir hefur
kvatt. Langri og viðburðaríkri
ævi er lokið. Líf okkar var sam-
ofið frá fyrsta degi til hins
hinsta. Þau Óli ásamt drengj-
unum þeirra bjuggu löngum í
sama húsi og foreldrar mínir. Í
byrjun búskapar keyptu þau
saman litla íbúð. Þannig leystu
þessi ungu hjón húsnæðisskort-
inn á stríðsárunum.
Það var gefandi og lærdóms-
ríkt að fylgjast með þeim ein-
staka kærleika sem ríkti milli
systranna. Varð aldrei sundur-
orða og stóðu þétt við hlið hvor
annarrar – ekki síst á erfiðum
tímum. Á kveðjustund minnist
ég allra gæðastundanna sem við
áttum saman og örlætis hennar
og Óla í minn garð alla tíð. Upp
í hugann kemur dúkkan sem ég
fékk fjögurra ára, næstum
jafnhá mér og gat gengið. Slík
dúkka hafði aldrei sést á Íslandi.
Eða kvöldsins í London þegar
þau hjón buðu námskonunni á
Cats sem var þá nýbúið að
frumsýna – í bestu sæti að sjálf-
sögðu. Svo mætti lengi telja.
En ekki síst minnist ég nota-
legra samræðna í sófanum
hennar nú seinni árin. Við rædd-
um um um lífið og tilveruna
meðan hún fór fimum fingrum
um heklunálina. Sérlega gaman
var að heyra hana segja frá
bernskuárunum í Skagafirðin-
um. Til dæmis þegar börnin
voru send á sauðskinnsskóm í
fjörugrjótið að leita eggja á vor-
in þegar nýmeti var orðið af
skornum skammti.
Ung fór hún að heiman í at-
vinnuleit. Skólaganga var ekki í
boði enda stór systkinahópur.
Oft talaði hún um hvað ungt fólk
í dag ætti gott að fá að læra og
skildi ekki þá sem ekki vildu
nýta sér það. Hún fór í vist á
mikið menningarheimili í
Reykjavík sem hún sagði hafa
verið eins og góðan skóla. Fljót-
lega hitti hún Óla sinn, ungan
Patreksfirðing, sem hún varð
„bálskotin í“ svo notuð séu
hennar eigin orð. Hjónaband
þeirra var einkar farsælt og
hjónin samhent.
Lella var glæsileg kona sem
bar með sér mikla reisn. Hún
hafði gaman af að klæða sig upp
og var ávallt smekklega klædd.
Þegar ég sem barn var að lesa
um álfkonur, sá ég fyrir mér að
einhvern veginn svona hlytu
þær að líta út.
Lella var skemmtileg (áttaði
mig reyndar ekki á því fyrr en á
fullorðinsaldri), hafði ríka kímni-
gáfu og var mjög félagslynd og
gestrisin. Lella var ljóðelsk og
hafði yndi af að fara í leikhús og
ræða sýningarnar. Matarboð hjá
henni var ætíð tilhlökkunarefni.
Hjá okkur systrum er notað
hugtakið „Lellulegt“ ef matur
er sérlega fallega fram borinn
eða kökur fallega skreyttar.
Það er efsta stig í hrósi. Lella
var sjálfstæð og sterk og hún
átti sitt skap. Þessi skapstyrkur
sem hún bjó yfir hefur vafalaust
hjálpað henni gegnum erfiðustu
stundirnar því hún gat bognað
um stund en brotnaði aldrei.
Hún þótti stundum kröfuhörð
en fyrst og fremst gerði hún
kröfur til sjálfrar sín. Hún gat
líka verið ákaflega hreinskiptin,
sagði hug sinn sem ekki allir
kunnu að meta. En á móti kom
að hrós frá henni var aldrei inn-
antómt. Lella var trúuð og
sannfærð um líf að loknu þessu,
kveið ekki brottförinni.
Nú er hún vonandi komin í
eilíft vor í faðm Óla og drengj-
anna sinna. Við Bugga systir
þökkum að leiðarlokum fyrir
allt. Blessuð sé minning mætrar
konu.
Hafdís E.
Ingvarsdóttir.
Með hjartans kveðju heilsa ég til þín
heillavinan kæra,
og þetta litla ljóð frá mér
langar mig að færa.
Hrein í máli, hlý í svörum,
hugljúf orð af þínum vörum.
Góðvild þína í anda örum
alltaf mátti heyra og sjá,
gott var þér að gista hjá.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Elsku Lella mín. Þakka þér
alla þína hlýju og vináttu sem
þú sýndir mér frá fyrstu kynn-
um. Samverustundir okkar voru
góðar og þær á ég í minning-
unni.
Kæra vinkona. Ég kveð þig
og veit að þú ert komin í Sum-
arlandið til þinna. Guð blessi
minningu þína.
Stella Guðvins.
ur og í þeim óteljandi matarboð-
um sem við vorum í sagði hann
iðulega a.m.k. eina sögu. Engu
skipti hversu oft hann sagði þær,
alltaf hló maður jafn mikið. Hann
var frábær ræðumaður og ég man
alltaf eftir því þegar ég fermdist
þá hlakkaði ég mikið til að hlusta á
ræðuna sem afi myndi flytja því
þær voru alltaf svo skemmtilegar.
Afi var mögnuð persóna sem
fór oftar en ekki ótroðnar slóðir.
Ég mun sakna hans mikið en
minningarnar, sögurnar og allt
sem hann hefur kennt mér munu
lifa að eilífu.
Jóhann Helgi Gunnarsson.
Þú tókst höndina mína,
straukst hana og sagðir með
daufri rödd:
Fagur fiskur í sjó,
brettist upp á halanum
með rauða kúlu á maganum.
Vanda, banda,
gættu þinna handa.
Vingur, slingur,
vara þína fingur.
Fetta, bretta,
svo skal högg á hendi detta.
(Höf. ók.)
Ég skildi eiginlega aldrei um
hvað þessi vísa var. En þegar ég
var lítil fannst mér svo gaman að
bíða þangað til höggið loksins kom
og ég þurfti að kippa að mér hend-
inni. Og síðar þegar ég var orðin
fullorðin bað ég þig um að gera
„Fagur fiskur í sjó“. Elsku afi, ég
mun aldrei gleyma rólegri og
blíðri rödd þinni þegar þú fórst
með þessa vísu. Ég sakna þín.
Gréta.
Elsku Einar móðurbróðir
minn, sem var mér afar kær,
kvaddi okkur síðasta dag apríl-
mánaðar eftir erfið veikindi. Hann
skipaði stóran sess í mínu lífi alla
tíð. Við þessi tímamót hrannast
upp margar góðar minningar.
Einar hafði marga góða kosti.
Hann var vel gefinn og ljúfur og
ófáir nutu góðs af einstakri hjálp-
semi hans og góðum ráðum á
raunastundum. Einar var gæddur
góðum frásagnarhæfileikum og
ekki spillti fyrir þegar hann færði
aðeins í stílinn og gerði sögurnar
þannig enn skemmtilegri. Þær
voru ófáar sögustundirnar þar
sem við skiptumst á að segja hvort
öðru brandara, og auðvitað mis-
munandi krassandi. Ógleyman-
legar samverustundir með fjöl-
skyldunni rifjast upp, ekki síst öll
flottu boðin á Miðbrautinni. Við
áttum líka frábærar stundir sam-
an erlendis, bæði í Noregi og á
Spáni.
Þá var það oftar en ekki Einar
sem átti heiðurinn af því að skapa
hlátur og gleðistemningu. Einars
verður sárt saknað hér í jarðvist-
inni. Það er þó huggun harmi gegn
að vinir og vandamenn í sumar-
landinu munu njóta nærveru
hans.
Elsku Thelma, við Guðmundur
vottum þér og fjölskyldunni okkar
innilegustu samúð.
Sigríður Elsa Oddsdóttir.
Í Eddukvæðum Hávamála seg-
ir:
Veistu ef þú vin átt
þann er þú vel trúir
Þannig vinur var með gefinn.
Vinur sem alltaf mátti treysta.
Vinur sem sjálfur gekk í gegnum
erfið reynsluspor á fyrri dögum
lífsins. Þá erfiðleika lífsgöngunnar
leysti hann með hjálp Guðs og
góðra manna, sterkrar skilnings-
ríkrar eiginkonu og vel gerðra
barna.
Einar sagði oft „Maggi, ég hefði
viljað kynnast þér miklu fyrr á
lífsgöngunni“, en hann átti hvað
mestan þátt í að minn lífsáttaviti
breytti stefnu. Fyrir það verður
aldrei nógsamlega þakkað. Fé-
lagar í þeim mannbyggjandi sam-
tökum þar sem Einar lengst af
starfaði hjá sjá á eftir frumherja.
Unaðsstunda lífsins fengum við
Einar notið margoft í hópi góðra
vina á grænum grundum golfvalla.
Nesvöllurinn bar þar af. Um-
hverfið allt bar vott um fegurð
náttúrunnar.
Og nú er hann kvaddur að sinni.
En minningin um heiðursdreng
mun lifa. Hann var sannarlega í
bestu merkingu orðsins „drengur
góður“.
Ég trúi því að á grænum grund-
um golfvallanna í ríki himnanna
munum við hittast að nýju í vissu
orða Meistarans mikla þá er hann
sagði „ég lifi og þér munuð lifa“. Í
þeirri vissu kveð ég vin minn ljúfa,
Einar Þórðarson.
Verði honum hvíldin vær.
Magnús Erlendsson.
Einar Þórðarson vinur minn er
látinn. Öllum harmdauði er hann
þekktu.
Ég kynntist honum árið 1980 er
ég kom í heimsókn á skrifstofu
AA-samtakanna þar sem hann var
skrifstofustjóri. Ég heimsótti
hann síðar oft á skrifstofuna.
Ferðaðist síðan með honum hér-
lendis og erlendis. Hann var
skemmtilegur ferðafélagi og nær-
vera hans var góð. Ég sótti hann
oft heim og Thelmu Grímsdóttur
konu hans. Þar var ekki í kot vís-
að.
Einar var starfsmaður samtak-
anna í yfir 20 ár. Á þeim tíma tók
hann þátt í uppbyggingu þeirra
um land allt þar sem hann þekkti
flesta frumkvöðlana. Árið 1980
voru haldnir um 50 AA-fundir hér
á landi á viku hverri en þegar
hann lét af störfum voru þeir
orðnir um 300. Þar lögðu margir
hönd á plóg en að sjálfsögðu var
mest leitað til starfsmanns sam-
takanna.
Margir eiga Einari líf að launa
og ég er einn þeirra. Gömul speki
segir að sá sem bjargar mannslífi
bjargi heiminum. Í þeim skilningi
bjargaði Einar heiminum oft.
Einar var góður, einlægur og
traustur vinur sem reyndist vin-
um sínum vel.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
fengið að vera samferðamaður
Einars og notið leiðsagnar, visku
og vináttu hans.
Ég votta Thelmu og afkomend-
um þeirra hjóna einlæga samúð.
Þorsteinn J. Óskarsson.
Kveðja frá Rótarýfélögum og
frá Seltjarnarnessöfnuði
Einar Þórðarson er látinn. Ein-
ar var félagi í Rótarýklúbbi Sel-
tjarnarness, gekk í klúbbinn árið
1975, aðeins fjórum árum eftir
stofnun klúbbsins. Hann gegndi
hinum ýmsu trúnaðarstörfum í
klúbbnum og var forseti hans árin
2005-2006. Hann var gerður heið-
ursfélagi árið 2006 og Paul Harris
félagi sama ár.
Einar var einn þeirra sem
auðguðu samfélag sitt með þátt-
töku sinni í því. Auk þess að vera
rótarýfélagi tók hann virkan þátt í
byggingu Seltjarnarneskirkju, var
rafvirki hennar frá upphafi, þar til
að hann lét af því starfi fyrir aldurs
sakir.
Ég held það eigi við um Einar
eins og svo marga ágætis menn að
samfélagið er ríkara en ella vegna
þeirra.
Það er því fyrir hönd okkar
Rótarýfélaganna og fyrir hönd Sel-
tjarnarnessafnaðar að ég rita þessi
fátæklegu orð. Ég bið Guð að
styrkja Thelmu og fjölskyldu
þeirra Einars og hennar.
Haf þú þökk fyrir allt og allt –
Guð blessi þig.
Fyrir hönd Rótarýklúbbs Sel-
tjarnarness og Sóknarnefndar Sel-
tjarnarnessóknar,
Guðmundur Einarsson.
Einar Þórðarson og Thelma
Grímsdóttir eru það fólk sem við
Hulda kynntumst einna fyrst þeg-
ar við fluttum á Seltjarnarnesið ár-
ið 1957. Við Einar náðum strax
mjög vel saman og fundum fljótt að
við áttum margt sameiginlegt. Ein-
ar var þá mikill áhugamaður um
veiðiskap, jafnt stangveiði sem
skotveiði, og vakti áhuga minn á
slíku. Okkur þótti einnig gott að fá
okkur í staupinu og gerðum tals-
vert af því á þessum árum. Við fór-
um ásamt fleirum í nokkra veiði-
túra og á gæsaskyttirí, einnig fór
ég með honum á rjúpu nokkrum
sinnum. Þetta var ægilega gaman,
árangurinn ekki alltaf mikill, en við
pössuðum okkur á því að hafa nóg
af guðaveigum með og spöruðum
ekki notkunina á þeim.
Einar er með bestu og skemmti-
legustu félögum sem ég kynntist á
þessum árum, við gengum eflaust
stundum heldur hressilega um
gleðinnar dyr og stundum svo að
hrikti í betri helmingum okkar,
sem leist ekki alltaf vel á það sem
við tókum okkur fyrir hendur.
Einar reyndist mér mjög
traustur vinur og gott til hans að
leita er vandamál komu upp. Hann
rak rafverktakafyrirtæki í fjölda
ár í samvinnu við félaga sinn og
voru þeir mjög samhentir og dug-
legir við að ná í verkefni.
Sem dæmi um vináttu okkar
Einars vil ég nefna að eitt sinn í
verslunarrekstri mínum lenti ég í
miklum greiðsluvanda, það mikl-
um að viðskiptabanki minn taldi
sér ekki fært að leysa hann með
mér og því leitaði ég til vina minna
og félaga til að kanna hvort ein-
hver þeirra gæti hjálpað mér um
fjármuni tímabundið, þeirra á
meðal nokkurra sem ég taldi mig
vita um að væru vel haldnir af
reiðufé. Einar var sá eini sem rétti
mér hjálparhönd í þessu vand-
ræðaástandi og lánaði mér það
mikið fjármagn að ég gat leyst
málið. Ég greiddi honum að fullu
til baka innan nokkurra vikna og
er ég honum síðan ævinlega þakk-
látur fyrir þennan stóra vinar-
greiða.
Samband okkar Huldu við þau
Einar og Thelmu hélst mjög náið
allt þar við Hulda fluttum af landi
brott árið 1977 en við það rofnuðu
tengsl okkar mikið, sem er miður.
Einar kom samt einn af fáum vina
okkar í heimsókn til okkar Huldu í
Madison Wisconsin og dvaldi hjá
okkur um tíma. Einar átti við
ákveðið vandamál að stríða sem
hann tók svo á og hóf að nýta mest
af sínum tíma við störf á vegum
samtaka sem hjálpuðu fólki til að
sigrast á slíku. Þegar hann kom við
hjá okkur Huldu í Madison var
hann á leið til Minnesota þar sem
hann sótti sér meiri fróðleik um
slíka baráttu.
Á síðari árum hafa samskipti
okkar orðið minni en sú taug er
myndaðist við fyrstu kynni okkar
slitnaði aldrei. Ég þakka Einari
fyrir samfylgdina og alla þá góðu
tíma er við áttum saman. Síðast
þegar við hittumst minnti hann
mig á gamansöguna um „Don
Pedro“ sem við veltumst um af
hlátri yfir í fjallaferðum áður fyrr.
En þetta er nú bara okkar á milli,
Einar minn. Takk fyrir samfylgd-
ina og ánægjustundirnar, góði vin-
ur.
Samúðarkveðjur til Thelmu og
fjölskyldunnar.
Garðar Sigurðsson.
Einar var einn af nokkrum raf-
virkjum sem sótti sér meira nám í
rafmagnsfræði í rafmagnsdeild
Vélskóla Íslands árin 1954-56 og
fengum nafnbótina raffræðingar
eftir að námi lauk. Við vorum svo
lánsamir að aðalkennari okkar í
rafmagnsfræði var Ingvar V. Ingv-
arsson sem seinna var fyrsti skóla-
stjóri Tækniskóla Íslands, en hann
var stofnaður 1964.
Við komum víða að af landinu og
með ólíka reynslu úr faginu en
Ingvari tókst að gera námið
skemmtilegt og áhugavert þannig
að nokkrir fóru í meira nám en aðr-
ir hurfu til mismunandi starfa við
fagið að námi loknu.
Einar var einn af þeim, hann
stofnaði eigið rafverktakafyrirtæki
og var með mikla starfsemi um
árabil. Trúlega voru umsvif mest
hjá honum þegar var verið að
byggja í Breiðholtinu og hann þar
verktaki.
Þessi hópur reyndi eftir bestu
getu að viðhalda tengslum og kom-
um við oft saman með eiginkonum
okkar og rifjuðum upp skólaárin.
Oft hittumst við á Seltjarnar-
nesinu hjá Einari og Thelmu og
nutum frábærra veitinga og sam-
veru sem nú skal þakkað fyrir.
Við sem eftir erum af þessum
hópi sendum Thelmu og fjölskyld-
unni innilegar samúðarkveðjur við
andlát og útför Einars Þórðarson-
ar með þökk fyrir áralanga vináttu.
Blessuð sé minning hans.
Sverrir Sveinsson.
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017