Morgunblaðið - 05.05.2017, Síða 32

Morgunblaðið - 05.05.2017, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017 ✝ Þorsteinn Kol-beins fæddist í Reykjavík 8. maí 1934. Hann lést á hjúkrunarheimil- inu Grund 22. apríl 2017. Foreldrar Þorsteins voru Hildur Þorsteins- dóttir Kolbeins húsmóðir, f. 12.5. 1910, d. 13.8. 1982, og Þorvaldur Eyjólfsson Kolbeins prentari, f. 24.5. 1906, d. 5.2. 1959. 24.5. 1963 kvæntist Þorsteinn Rósu Þorláksdóttur frá Sandhól í Ölfusi, f. 8.6. 1931. Foreldrar hennar voru Þorlákur Sveins- son, f. 2.10. 1899, d. 13.6. 1983, og Ragnheiður Runólfsdóttir, f. 23.12. 1900, d. 20.2. 1984. Börn Þorsteins og Rósu eru: 1) Þorvaldur Hilmar, f. 1954, rekstrarstjóri Háskólabíós. Maki hans er Margrét Helga Vilhjálmsdóttir kennari, f. 1956. Börn þeirra eru: Rósa Birna, f. hanna, f. 1930, d. 1991, Hannes Bjarni, f. 1931, Pétur Emil Júl- íus, f. 1936, Páll Hilmar, f. 1940, d. 1997, Þóra Katrín, f. 1940, Þórey Ásthildur, f. 1941, Sigríð- ur, f. 1943, Eyjólfur, f. 1946, og Þuríður Erla, f. 1950. Þorsteinn ólst upp í Reykja- vík og bjó fjölskyldan lengst af í Meðalholti 19. Hann gekk í Austurbæjarskóla og hóf ungur að vinna fyrir sér, meðal annars sem sendill hjá verslun Silla og Valda. Stærstan hluta ævi sinn- ar starfaði Þorsteinn sem bifreiðarstjóri. Hann hóf störf hjá Vestfjarðaleið sumarið 1958, þá sumarmaður, og starfaði sem leigubílstjóri hjá BSR. Hann hóf störf hjá Norðurleið 1960 og starfaði þar til ársins 2001. Þorsteinn gekk til liðs við Kiwanisklúbbinn Eldey í Kópa- vogi í mars 1977 og var virkur meðlimur í hreyfingunni alla tíð. Hann sinnti mörgum trún- aðarstörfum innan hreyfingar- innar og var forseti klúbbsins frá 1985-1986. Útför Þorsteins fer fram frá Neskirkju í dag, 5. maí 2017, og hefst athöfnin klukkan 13. 1987, maki Daníel Ingi, f. 1985, dóttir þeirra Ragna Mar- grét, f. 2014, Birkir Rafn, f. 1989, maki Elísabet María, f. 1992, Vilhjálmur Steinar, f. 1993. 2) Ragnheiður Þóra, f. 1966, leikskóla- kennari. Maki hennar er Guð- mundur Pálsson upplýsingafræðingur, f. 1963. Dóttir þeirra er Rósa Guðbjörg, f. 2004. Önnur börn Guðmundar eru Hrafnhildur Eva, f. 1987, í sambúð með Hjalta Andrési, f. 1987, og Gunnar, f. 1988, í sam- búð með Ölmu Rún, f. 1990, dóttir þeirra Kría, f. 2017. Aðrir synir Þorsteins eru Þröstur Óskar, f. 1958, maki Svala, f. 1961, Sigurður Hrafn, f. 1969, maki Heiða, f. 1978, og Þor- steinn Már, f. 1975, maki Soffía, f. 1977. Systkini Þorsteins eru Jó- Þú varst minn eini, minn maður og skjól, þú varst minn samferðarmaður. Að hausti, um vetur, í sumri og sól, glaðbeittur og ávallt góðglaður. Ég kveð þig nú vinur, ég kveð þig í kvöld ég kveð þig með tárunum mínum. Megi Guð okkar vaka um ævi og öld, og vernda á ferðunum þínum. (G.P.) Góða ferð, elsku Steini minn. Þín Rósa. Í dag kveð ég tengdaföður minn Steina Kolbeins. Sam- skipti okkar spanna rúm 40 ár. Ég var rétt 17 ára þegar ég tengdist fjölskyldunni og var mér vel tekið frá fyrsta degi. Hann starfaði sem rútubíl- stjóri hjá Norðurleið og var trúr sínu starfi. Aldrei talaði hann nema vel um það og virt- ist njóta þess. Starfið var tölu- vert erfiðara þá en nú, engir farsímar og ekki hægt að fletta upp veðurfréttum á netinu. Menn þurftu að kunna á nátt- úruna og treysta eigin innsæi. Hann var vinmargur, þekkti alla bæi á leiðinni norður með nafni og ábúendur þeirra. Hann eignaðist marga vini og fékk maður að njóta þess þegar vantaði gistingu eða að verða við einhverri annarri bón. Þá var nóg að kynna sig og allir vildu allt fyrir mann gera. Í einni ferðinni varð úr að hann keypti folald og gaf okkur. Hún reyndist okkur hinn besti grip- ur, formóðir flestra okkar reið- hesta. Hann hafði tengsl og tilfinn- ingar til fleiri sveita. Sem ung- ur piltur var hann í sveit í Hvít- árholti í Hrunamannahreppi, þangað hafði hann sterkar taugar og naut þess að fara í réttir á hverju hausti og hitta gamla sveitunga og vini. Stór hluti af tilveru okkar allra tengdist sveitinni okkar Sandhól í Ölfusi og þangað sóttum við öll hvert á sínum forsendum. Þar eyddum við drjúgum tíma saman við leik og störf. Þegar við Þorvaldur réðumst í að byggja okkur sumarbústað á jörðinni, komin með tvö lítil börn, var enginn glaðari eða spenntari en hann. Hann rétti okkur ómælda hjálparhönd og taldi ekki eftir sér að aðstoða okkur á allan hátt. Síðar bættist þriðja barnið við, sá var með bíla- og trakt- orsdellu og kætti það afa mikið. Börnin okkar nutu svo sann- arlega kærleika og væntum- þykju hans og Rósu. Alltaf voru þau boðin og búin að fá að passa og þá var ekki verið að gera neitt annað, einungis spil- að, teflt, leikið og dekrað við þau. Þau fylgdu þeim eftir í hestamennskunni og öðru því sem þau tóku sér fyrir hendur. Oftar en ekki var gaukað að þeim einhverju sem kom sér vel, inneign á símkort, vasa- pening, nýjum skóm eða hvað það var sem kom sér vel þá stundina. Um leið og ég þakka þér fyr- ir allt sem þú varst mér og mínum óska ég þér Guðs bless- unar og góðrar heimkomu. Blessuð sértu sveitin mín, sumar, vetur, ár og daga. Engið, fjöllin, áin þín, yndislega sveitin mín, heilla mig og heim til sín huga minn úr fjarlægð draga. Blessuð sértu, sveitin mín, sumar, vetur, ár og daga. (Sigurður Jónsson.) Þín tengdadóttir, Margrét. Í dag kveðjum við elsku afa Steina. Afi var frábær karl, hann var alltaf áhugasamur um allt það sem við tókum okkur fyrir hendur, hvers eðlis sem það var. Það var oft hægt að komast á gott spjall við afa og hann hafði góða þolinmæði fyr- ir misjafnlega spennandi sög- um. Afi var alltaf duglegur að gefa sér tíma með okkur systk- inunum. Við eyddum ófáum stundum við borðstofuborðið í Dunhaganum með spil eða tafl og það vorum oftast við sem vorum möluð, hann afi gaf ekk- ert eftir. Það var alltaf gott að koma í Dunhagann í heimsókn eða næturgistingu. Þar vorum við litlir stjórar, réðum dagskránni og fengum að velja matseðil- inn, það var dekrað við okkur í einu og öllu. Afi elskaði að komast í Ölfusið í hin ýmsu sveitastörf og við eigum marg- ar góðar minningar úr réttun- um og úr kartöflugörðunum. Afi var alltaf til staðar, hinn týpíski ekta afi, barngóður, hlýr og virtist alltaf hafa allan heimsins tíma fyrir okkur. Eftir að veikindin fóru að gera vart við sig kom vel í ljós hversu mikill fjölskyldumaður hann var. Hann bar mikla væntum- þykju til okkar allra fram til síðasta dags, jafnvel þó að hann væri stundum svolítið ringlaður. Húmorinn hans skemmtilegi og stríðnisglottið fylgdi honum alltaf. Elsku afi Steini. Takk fyrir ástina, umhyggjuna og hlýjuna. Takk fyrir samveruna, gleðina og hláturinn. Þú ert eflaust einhvers staðar á rúntinum núna, bílakarlinn sem þú varst. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þín barnabörn, Rósa Birna, Birkir Rafn og Vilhjálmur Steinar. Elsku afi minn, nú ert þú farinn. Mér finnst erfitt að hugsa um það að ég geti ekki bara farið á Grund og hitt þig, hringt í þig eða farið í ísbíltúr. Elsku afi minn, ég hef aldrei áður skrifað minningargrein þannig að sú fyrsta verður um þig. Við áttum margar góðar minningar saman. Eins og öll skiptin sem ég gisti hjá þér og ömmu. Það var allaf jafn gaman. Þú kenndir mér að tefla. Flestir afar hefðu kannski leyft barna- barninu þú veist, að vinna. Ekki afi minn. Hann vildi alltaf sýna hvað hann væri góður í skák. Og öll skiptin sem þið voruð hjá okkur á jólunum og þú tókst langan tíma í að opna pakkana. Eitt límband í einu. Síðustu mánuðina dvaldi hann á Grund. Hann var allaf jafn glaður. Það sást líka að honum leið vel þarna. Elsku afi minn. Þú gekkst í gegnum margt. Alzheimersjúkdóminn, slys og fleira. En allaf varstu jafn glaður þegar við komum að hitta þig. Alltaf með bros á vör. Elsku afi minn. Þú sagðir alltaf góðar sögur um barnæsk- una þína. Þegar við keyrðum upp Meðalholtið bentir þú á húsið þitt og sagðir: númer 19, þarna bjó ég. Allar sögurnar af þér og Ragga Bjarna. Þið vor- uð greinilega miklir prakkarar. Og um þig og þinn stóra systk- inahóp. Þegar afi var sem veik- astur sagði hann oft: „Eigum við að fara austur?“ Elsku afi minn. Ég gæti ekki hugsað mér betri afa en þig. Elsku afi minn, hvíldu í friði. Rósa Guðbjörg Guðmundsdóttir. Þakklæti er mér efst í huga þegar ég kveð Steina bróður minn. Ég er þakklát fyrir allar samverustundirnar sem við átt- um, en þær voru ófáar. Minn- ingarnar hrannast fram frá því þegar við vorum öll í Meðal- holtinu, 10 að tölu auk foreldra okkar sem voru Hildur og Þor- valdur Kolbeins, það gekk auð- vitað stundum mikið á eins og menn geta rétt ímyndað sér. Systir mín Jóhanna og Páll Hilmar, tvíburabróðir minn, eru látin en Steini bróðir lést 22. apríl sl. á hjúkrunarheim- ilinu Grund eftir erfiða sjúk- dómslegu, en hann hafði dvalið þar síðan í desember sl. og naut góðrar umönnunar. Steini bróðir fór ungur sem sumardrengur í Hvítárholt til þeirra Elínar og Sigurðar og líkaði honum vistin vel, hann fór ungur að sendast hjá Silla og Valda, fyrst á hjóli með grind framan á og síðar að keyra vörubíl, hann var leigu- bílstjóri hjá BSR og rútubíl- stjóri hjá Norðurleið allt til fyr- irtækið hætti störfum, eða í 40 ár. Steini var farsæll bílstjóri í hríðarbyl og brjáluðu veðri á veturna frá Reykjavík til Ak- ureyrar í hverri viku. Komst hann alltaf klakklaust heim enda þakkaði hann almættinu fyrir að vaka yfir honum og farþegunum. Hann var virkur félagi í Kiwanisklúbbnum Eld- ey frá 1977 til dauðadags, for- seti klúbbsins 1985-1986. Þær voru ánægjulegar ferðirnar sem við Maggi minn fórum með Rósu og Steina til Edinborgar og Dublinar hér fyrr á árum, ég tala nú ekki um alla hitt- ingana hjá fjölskyldunum í gegnum árin. Það mátti helst aldrei sleppa úr afmælum eða öðrum merk- isdögum hjá stórfjölskyldunni og þar bar jafnan hæst jólaböll- in í Kiwanishúsinu sem Steini stjórnaði af röggsemi. Steini bróðir var hógvær maður, aldr- ei heyrði ég hann tala illa um neinn og hann hafði litla þol- inmæði gagnvart okkur systk- inunum þegar við vorum að pexa um stjórnmál eða eitthvað sem honum þótti lítilfjörlegt. Rósa mágkona mín hefur staðið sem klettur við hlið Steina í gegnum veikindi hans, en það hlýtur að vera erfitt að horfa upp á manninn sinn fara inn í einhverja skel sem maður kemst ekki í gegnum. Elsku Rósa mín, Þorvaldur og Ragnheiður Þóra, þakka ykkur alla velvildina, fyrir að vera hluti af ykkur í þessu ferðalagi. Ég votta ykkur og öðrum aðstandendum innilega samúð. Rósa mín Guð blessi þig og Steini minn vertu guði falinn. Þóra Katrín Kolbeins (Kata) systir. Nú er hann Steini bróðir fall- inn frá eftir glímu við erfiðan sjúkdóm. Hann var þriðji í röð- inni af 10 systkinum en ég ní- undi í röðinni og yngstur af fimm bræðrum og því oft kall- aður litli bróðir. Ég á nokkrar góðar minningar með þér og Rósu, m.a. þegar ég fór fyrstu rútuferð mína með þér austur í Sandhól. Steini þótti frekar hlé- drægur hér áður fyrr þegar haldnar voru veislur í fjölskyld- unni. Trúlega hefur það verið vegna þess að hann var svo oft fjarverandi vegna vinnu sinnar, en hann ók rútubíl hjá Norð- urleið í um 45 ár. Hann var öruggur bílstjóri sem oft lenti í vitlausu veðri á milli Reykja- víkur og Akureyrar. Steini gekk í Kiwanisklúbb- inn Eldey árið 1977 og var meðlimur allt þar til hann and- aðist. Hann var forseti klúbbs- ins starfsárið 1985-86. Steini fékk mig til að ganga í klúbb- inn 1980 og þar kynntist ég bróður mínum betur en áður. Hann var ötull klúbbfélagi og oft hrókur alls fagnaðar. Eft- irminnileg er ferð á Evrópu- þing Kiwanis í Hamborg 1988. Á leið okkar til Daun Eifel tókst bílstjóranum okkar ekki að koma öllum ferðatöskunum fyrir í lestinni en þá sýndi Steini hæfni sýna og endurrað- aði, kom öllu fyrir og vel það. Þýska bílstjóranum þótti þetta undravert en fékk þá skýringu að Steini væri einn besti rútu- bílstjórinn á Íslandi. Nú er Steini kominn til mömmu og pabba og tveggja systkina okkar sem féllu frá allt of snemma. Rósa, megi Guð blessa þig og fjölskyldu þína. Eyjólfur Kolbeins. Elsku Steini frændi, eins og ég kallaði þig alltaf, nú þegar ég sit hér heima hjá mér í Nor- egi og skrifa þessi orð til þín þá leka tár niður vanga minn, gleðitár yfir öllum góðu minn- ingunum og tár vegna saknaðar yfir að fá ekki að hitta þig aftur hérna megin. Minningarnar um þig eru svo margar og frá því að ég man eftir mér, sama hvort er úr sveitinni minni, sem var líka sveitin þín, þegar ég var lítil stelpa að skottast með pabba mínum í kringum rúturnar eða þegar ég beið eftir að þú kæmir í réttir á haustin, það er sama hvað ég rifja upp, allt eru þetta yndislegar minningar sem ég get alltaf yljað mér við og verið þakklát fyrir að eiga. Þú og Rósa voruð alltaf fær- andi mér gjafir, bækur, leik- föng, nammi, ég man að einu sinni um réttir komstu með sippuband með viðarhandföng- um, bandið sjálft var hvítt með rauðum og bláum þráðum. Steini frændi keyrði rútu í mörg ár, var vinnufélagi pabba og keyrðu þeir saman hjá Landleiðum og Norðurleið, þeir voru ekki bara bara vinnufélag- ar, heldur mjög góðir vinir og er ég ótrúlega þakklát að sá vinskapur varð til. Ég var á ellefta ári þegar pabbi minn, Jón Hreiðar, féll frá, það var daginn eftir réttir og hafði Steini verið hjá okkur um réttirnar eins og svo oft áð- ur, stuðningur hans og Rósu reyndist okkur systkinunum og mömmu ómetanlegur, eins eig- um við þeim Steina og Rósu mikið að þakka fyrir allt sem þau hafa veitt okkur í veik- indum mömmu. Síðustu árin hafði heilsu Steina hrakað og dvaldi hann síðustu mánuðina á elliheim- ilinu Grund, þar fékk hann bestu umönnun sem völ er á, þar leið honum vel og Rósa hans heimsótti hann næstum daglega. Þegar börnin mín svo fædd- ust, þá urðu Steini og Rósa strax í miklu uppáhaldi hjá þeim og hafa börnin oft spurt hvort þau séu ekki bara næst- um því svona auka afi og amma og dóttir mín stundum talað um hvað sér finnist gaman að heita Rós, þegar við tölum um Steina og Rósu Við vorum á Íslandi um páskana að ferma dóttur mína og því miður áttu Steini frændi og Rósa ekki færi á að vera með okkur á þeim merka degi. Ég og börnin mín fórum til Rósu fjórum dögum áður en Steini kvaddi, það var yndislegt að eyða tíma með henni áður en við flugum aftur heim til Nor- egs, við rifjuðum upp minning- ar um Steina og hún sagði mér að hún talaði svo oft um okkur við hann og hvað mér og krökk- unum gengi vel hér í Noregi, sagði mér að hann talaði alltaf um hvað honum þætti vænt um okkur og að honum fyndist allt- af eins og við systkinin ég og Birgir Þór bróðir minn og krakkarnir mínir værum hans eigin. Ég minntist á við Rósu áður en ég fór að ég ætlaði að koma mynd til hennar af ferming- arstúlkunni svo hún gæti sýnt Steina; elsku Steini, þessa mynd verðum við að geyma þar til seinna, en Rósa fær sína mynd. Elsku Rósa, börn og fjöl- skyldur, við bróðir minn Birgir Þór og börnin mín Bylgja Rós og Jón Hreiðar sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Elsku Steini okkar, við þökk- um þér fyrir allar okkar stund- ir, minningin um elsku vin okk- ar, Steina frænda, lifir. Kristín Ásta Jónsdóttir. Mig langar að minnast Steina föðurbróður míns í nokkrum orðum. Minningarnar eru margar en hér er bara lítið brot þeim. Steini var bílstjóri og hafði mikinn áhuga á bílum. Eftir að ég flutti til útlanda kom Steini frændi nokkrum sinnum í heim- sókn og það var alltaf jafn gaman. Í eitt sinn er hann kom hjálpaði hann mér að setja nið- ur kartöflur enda snillingur á því sviði. Í annað sinn átti hann af- mæli á meðan á dvölinni stóð og við héldum smá veislu fyrir hann. Auðvitað var líka farið í bíltúr út um allt. Þegar ég kom til Íslands í heimsókn var Steini frændi alltaf sjálfkjörinn einkabílstjóri á meðan heilsan leyfði. Hann og Rósa mættu á flugvöllinn að sækja mig þegar ég kom og keyrðu mig þangað aftur, alveg sama hvað klukkan var. Hann keyrði mig og sótti hingað og þangað. Þannig vildi hann hafa það. Seinni árin, þegar heilsan var farin að setja strik í reikning- inn, fékk ég að bjóða honum og Rósu í bíltúr þegar ég kom. Mikið fannst mér gaman að fá að gera eitthvað fyrir Steina sem gladdi hann. Steini þreyttist aldrei á að tala um bíla þótt hann væri orðinn veikur. Hann sagði með gleði frá öllum bílunum sínum og hlustaði með áhuga þegar ég sagði honum frá hvernig bíl ég ætti hverju sinni. Síðasta heimsókn mín til Steina var í byrjun árs þegar ég var stödd á Íslandi. Ég átti mjög góða stund með honum inni á Grund, þar sem hann bjó síðustu mánuðina. Við sátum og drukkum kaffi og ég sýndi Steina ýmsar myndir, bæði af krökkunum mínum, systkinum hans, frá jólaballinu og auðvit- að myndir af bílum. Bílaáhug- inn var greinilega enn fyrir hendi og gleðin var ekta þegar hann sá myndir af bílum. Þegar hann svo sá mynd af systrum sínum sagði hann með bros á vör: „Þessar þekki ég!“ Mikið er ég þakklát fyrir þá góðu stund sem ég átti með honum þennan eftirmiðdag á Grund, svo og all- ar góðar stundir í gegnum árin. Því miður get ég ekki fylgt frænda mínum síðasta spölinn en ég kem fljótlega og heim- sæki leiðið og kveiki á kerti. Ég votta elsku Rósu og fjölskyld- unni samúð. Minningin um Steina frænda lifir. Jóhanna Rósa Kolbeins. Steini Kolbeins, vinur minn og félagi, er nú fallinn frá. Ég var svo lánsamur að kynnast Steina aðeins þrettán ára gam- all, þar sem áhugi minn á rút- um var mikill og kynntist ég Steina á þvottaplaninu á Ak- ureyri. Hann gaf sér alltaf tíma til þess að tala við mig og segja mér frá því sem gerst hafi yfir daginn. Fimmtán ára gamall byrjaði ég að þvo rútur hjá Norðurleið í Reykjavík og urðu kynni okk- ar þá enn sterkari. Steini æfði mig í keyrslu fyrir meiraprófið og var mjög nákvæmur á allt í sambandi við akstur. Steini var einstaklega farsæll bílstjóri all- an sinn feril og vel liðinn af far- þegum og ekki minnst bændum og ábúendum milli Akureyrar og Reykjavíkur. Ég gleymi aldrei hans gleði- lega og sérstaka vinki þegar við mættumst á veginum og ófáar voru skemmtilegu stundirnar í Ránargötunni þar sem hann vakti mig oft með eggi og beik- oni „Steina spes“. Steini var alltaf til í að hjálpa ef eitthvað var að og oft hringdi hann í mig þegar ég var í erfiðum ferðum til að at- huga hvernig gengi og gefa góð ráð. Þorsteinn Kolbeins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.