Morgunblaðið - 05.05.2017, Síða 33
Oft tók hann mig með í mat
til Rósu sinnar og áttum við
margar góðar stundir þar.
Elsku Rósa og fjölskylda,
samúðarkveðjur til ykkar allra.
Ég vil þakka þér, Steini
minn, fyrir allar góðu minning-
arnar, Guð geymi þig. Sjáumst.
Þinn vinur
Hreiðar Eyfjörð og
fjölskylda, Noregi.
Við kveðjum þig, vinur, í síðasta sinn
og söknuður hug okkar fyllir.
Nú minningar vakna um vinskap og
tryggð
er vorsólin tindana gyllir.
Nú þakkað skal allt sem við áttum
með þér,
það ætíð mun hug okkar fylla.
Brátt sumarið kemur með sólskin
og yl
þá sólstafir leiðið þitt gylla.
(Aðalheiður Hallgrímsdóttir)
Þegar ég frétti af láti Steina
vinar míns fóru í gegnum hug-
ann ljúfar og góðar minningar
um samverustundir okkar.
Steini var kaupmaður hjá
frændfólki sínu í Hvítárholti og
kom oft á Selsbæina, þar sagð-
ist hann hafa fyrst séð mig sitj-
andi á koppi á eldhúsgólfinu, ég
líklega um tveggja ára, oft höf-
um við hlegið að þessu.
Seinna áttum við góðar
stundir á árshátíðum og ferða-
lögum með Landleiðum og
Norðurleið, þeir Jón maðurinn
minn voru vinir og vinnufélag-
ar.
Einn af föstum liðum á
haustin var hrepparéttir en þar
mætti Steini ár eftir ár, mikill
gleðigjafi, já það var alltaf líf
og fjör, gisti hann þá alltaf hjá
okkur Jóni.
Börnum mínum og barna-
börnum var hann undurgóður
og eftir að Jón féll frá fylgdist
hann vel með okkur og ekki var
síðri hans góða kona Rósa. Þau
studdu okkur og umvöfðu, jóla-
gjafir og afmælisgjafir, nyt-
samar og góðar, afmæli og aðr-
ar heimsóknir, fallegt ljós um
jól á leiði vinar, já svona voru
þau heiðurshjón.
Í veikindum mínum sýndu
þau mikla hlýju og vinsemd.
Steini kom í réttir allt þar til
heilsan fór að gefa sig, hann
dvaldi síðustu misserin á Elli-
heimilinu Grund, fékk þar
bestu umönnun sem hugsast
getur.
Góður maður hefur kvatt,
minningarnar streyma og mitt
fólk þakkar honum ljúfar og
góðar stundir, hans verður sárt
saknað.
Ég get því miður ekki fylgt
honum síðasta spölinn og þykir
það miður.
Elsku Rósa og fjölskyldan
öll, mínar innilegustu samúðar-
kveðjur, megi minningin um
góðan mann ylja ykkur um alla
framtíð.
Veri Steini minn kært
kvaddur og Guði falinn, hafi
hann hjartans þökk fyrir allt.
Jóhanna S. Daníelsdóttir
(Hanna Sigga).
Hinsta kveðja
frá Eldeyjarfélögum
Laugardaginn 22. apríl síð-
astliðinn barst félögum í
Kiwanisklúbbnum Eldey í
Kópavogi sú sorgarfrétt að
einn okkar elsti félagi, Þor-
steinn Kolbeins eða Steini eins
og við kölluðum hann, væri fall-
inn frá eftir að hafa glímt við
alvarleg veikindi um tíma.
Allt frá því að Steini gekk í
Eldey fyrir rúmum 40 árum
var hann afar virkur félagi í
klúbbnum. Hann var forseti
starfsárið 1985-86 og gegndi
því embætti með sóma, sem og
öllum öðrum forystustörfum er
hann tók að sér innan klúbbs-
ins.
Í starfi hans sem bifreiðar-
stjóri hjá Norðurleið dreif
margt á daga hans og þær voru
ófáar skemmtisögurnar sem
hann sagði okkur af þeim vett-
vangi.
Hann var og sífellt reiðubú-
inn til að keyra félagana, ýmist
ókeypis eða gegn vægu leigu-
gjaldi, í ófáum skemmtiferðum
klúbbsins út um allar trissur.
Sá sem þetta ritar minnist
Steina reyndar fyrst sem eft-
irminnilegs rútubílstjóra sem
sá um að koma starfsfólki til
starfa á rannsóknastofnunum
ríkisins að Keldnaholti. Þá var
RALA lengst uppi í sveit og
hvorugur okkar orðinn Kiwan-
isfélagi, en góð kynni endurnýj-
uðust svo aftur 25 árum síðar í
Kiwanisklúbbnum Eldey.
Kiwanishúsið í Kópavogi er
stolt Eldeyjarfélaga, en það er
einmitt ástfóstur Steina á hús-
inu sem er okkur félögunum
svo eftirminnilegt.
Hann varð formaður hús-
stjórnar árin 1988-90 og svo
aftur 1994-99. Þá og æ síðan
var hann vakinn og sofinn yfir
öllum framkvæmdum í húsinu.
Segja má að hann hafi þekkt
hvern raft og flestar fjalir
byggingarinnar, enda voru ófá
skiptin sem leitað var til hans
eftir ráðleggingum um hvað
væri heppilegast að gera þegar
einhverju þurfti að breyta eða
bæta.
Einn er sá staður í húsinu
sem ávallt mun svo halda minn-
ingu hans á lofti, en það er
„Steinabar“, sem hann átti hug-
myndina að, hannaði og smíð-
aði.
Steini var afar vinsæll félagi,
ósérhlífinn, vel liðinn og góður
Kiwanisfélagi sem gegnum árin
lét sitt ekki eftir liggja í marg-
víslegum verkefnum Eldeyjar.
Með virðingu og eftirsjá kveðja
félagarnir góðan félaga og
þakka honum fyrir ómetanleg
störf í þágu klúbbsins. Eldeyj-
arfjölskyldan drýpur höfði og
þakkar fyrir 40 ára sameigin-
lega og gefandi vegferð.
Minningin um góðan dreng
og félaga með stórt Kiwanis-
hjarta lifir.
Rósu, eftirlifandi eiginkonu
Steina, og fjölskyldu hans fær-
um við okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Guð blessi þau.
Fyrir hönd Eldeyjarfélaga,
Óskar Guðjónsson.
Það eru bara örfáir sem
hringja í heimasímann nú til
dags en ein af þeim sem það
gera er Rósa hans Steina. Í
þetta sinn að tilkynna okkur lát
Steina Kolbeins. Steini var
mikill fjölskylduvinur og þau
Rósa og Steini nátengd fjöl-
skyldunni í leik og starfi. Steini
var ávallt léttur í lundu og
sagði skemmtilegar sögur af
starfi sínu sem bílstjóri hjá
Norðurleið hf.
Fáir höfðu jafn gaman af
fólki og Steini og það var gam-
an að spjalla við hann og heyra
skemmtisögur.
Við minnumst einnig góðra
stunda með þeim hjónum í
ferðalögum innanlands sem ut-
an.
Þessar ferðir lifa í minning-
unni enda ávallt mikið fjör og
gleði við völd. Þegar Steini
keyrði í Hreppana kom hann
oft við hjá okkur á Flúðum
þegar við vorum að byggja
sumarbústað fjölskyldunnar.
Oftar en ekki reyndi hann að
leiðbeina okkur af sinni al-
kunnu snilld.
Við hjónin störfuðum lengi
með honum og einnig Kolbrún
Silja dóttir okkar og alltaf var
hann boðinn og búinn að leið-
beina og aðstoða.
Við munum minnast Steina
með hlýju sem yndislegs vinar
og vottum Rósu, Þorvaldi og
fjölskyldu og Ragnheiði og fjöl-
skyldu okkar innilegustu sam-
úð.
Ásgeir, Sólveig,
Kolbrún, Hinrik,
Þorvarður og Sigríður.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri sem hér segir:
Hellisbraut 32, Reykhólahreppur, fnr. 212-2746, þingl. eig. Ingibjörg
Sæmundsdóttir, gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Íbúðalánasjóður,
fimmtudaginn 11. maí nk. kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
4. maí 2017
Tilkynningar
Borgarfjarðarhreppur
Aðalskipulag Borgarfjarðarhrepps
2006 -2016, Geitland.
Aðalskipulagsbreyting - drög og drög
að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið –
kynning
Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps
auglýsir hér með opið hús þar sem íbúar
geta kynnt sér drög að breytingu á
aðalskipulagi ásamt drögum að nýju
deiliskipulagi að Geitlandi Borgarfirði
Eystri skv. ákv. gr. 4.6.1 í skipulags-
reglugerð.
Um er að ræða breytingu í landi Geitlands á
um 11 ha svæði þar sem landbúnaðarsvæði
er breytt í iðnaðarsvæði fyrir vatnsátöppun-
arverksmiðju, íbúðasvæði og verslunar- og
þjónustusvæði fyrir tengda starfsemi. Gert er
ráð fyrir vatnsöflun í landi Bakka.
Áætlanir gera ráð fyrir framkvæmdum við
byggingu verksmiðju, vatnstöku og boranir
fyrir vatni þar sem vinnsla grunnvatns verður
um 2 l/sek. Vatnsupptaka verður utan reits en
borhola er í landi Bakka sem er í eigu Borgar-
fjarðarhrepps.
Opið hús verður á hreppsstofu Bakkagerði,
Borgarfirði Eystri, fimmtudaginn 11. maí nk.
kl. 10:00 - 16:00.
Almenningi verður gefinn kostur á að koma
með ábendingar á kynningunni og/eða
senda inn ábendingar til skipulags- og bygg-
ingarfulltrúa Borgarfjarðarhrepps Hafnargötu
28, 710 Seyðisfirði eða á netfangið
sigurdur.jonsson@efla.is til og með 21. maí
2017.
Hægt er að nálgast drög að breytingartillögu
og drög að nýju deiliskipulagi á heimasíðu
Borgarfjarðarhrepps og á hreppsstofu að
Borgarfirði Eystri
Byggingarfulltrúinn í Borgarfjarðarhreppi
Félagsstarf eldri borgara
Boðinn Vöfflukaffi 14.30-15.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Gönguhópur kl. 13.30, tekinn léttur hringur um hverfið. Opið
kaffihús kl. 14.30-15.30. Verið velkomin.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Handavinna kl. 10-12. Bókband kl. 13-17.
Bingó kl. 13.30-14.30. Handaband kl. 13, vinnustofa þar sem aðferðir
við textílhönnun eru kenndar og er unnið með textílefni sem fellur til
við framleiðslu hérlendis. Verið velkomin til okkar í Félagsmiðstöðina
Vitatorgi, Lindargötu 59, sími 411 9450.
Garðabær Vorsýning í Jónshúsi kl. 10–16. Kaffiveitingar frá kl. 10–
15.45, verð kr. 500. Vatnsleikfimi kl. 8, 8.50 og 12. Félagsvist FEBG í
Jónshúsi kl. 13 fellur niður.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa
með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps
kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Bókband með leiðbein-
anda kl. 13-16. Kóræfing kl. 14.30-16.30.
Gjábakki Kl. 9, handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 gler- og postu-
línsmálun, kl. 14, eftirmiðdagsdans með Heiðari.
Gullsmári Tiffanýgler kl. 9, leikfimi kl. 10, ganga kl. 10, fluguhnýt-
ingar kl. 13, gleðigjafar (söngur) kl. 14. Hárgreiðslustofa á staðnum,
allir velkomnir!
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, jóga kl. 9, 10 og 11, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl.
11.30. Í dag föstudaginn 5. maí verður lokað eftir hádegi í Hvasaleiti
vegna starfsdags starfsfólks.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50. Frjáls tími í Listasmiðju
frá kl. 9-12.Thai chi kl. 9. Botsía kl. 10.15. Í dag föstudaginn 5. maí
verður lokað eftir hádegi í Hæðargarði vegna starfsdags starfsfólks.
Korpúlfar Hugleiðsla og jóga kl. 9. Leikfimishópur Korpúlfa í Egils-
höll kl. 10.30, BRIDS kl. 12.30 Í Borgum, hannyrðahópur kl. 12.30 í
Borgum, sundleikfimi kl. 13.30 í Grafarvogssundlaug og tréútskurður
kl. 13 á Korpúlfsstöðum. Minnum þátttakendur í sölu og handverks-
sýningu Korpúlfa laugardaginn 27. maí að skrá sig til leiks.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja
með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11,
guðsþjónusta kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14. Uppl. í s. 411 2760.
Selið Húsið opnar kl. 10. Kaffi og kíkt í blöðin upp úr 10, matur kl.
11.30. Húsið lokar kl. 14. Góða helgi.
Seltjarnarnes Í tilefni af heilsudögum eru allir velkomnir að kynna
sér félags- og tómstundastarf eldri borgara á Seltjarnarnesi í aðstöðu
félagsstarfsins á Skólabraut 3-5. Í dag er kaffispjall í króknum kl.
10.30. Jóga / hláturjóga kl. 11 og söndstund í salnum kl. 13. Spilað
verður í króknum kl. 13.30. Á morgun laugardag eru svo allir vel-
komnir á púttvöllinn í Risinu á Eiðistorgi milli kl. 9 og 11.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23.
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir.
Vesturgata 7 Enska kl. 10-12, Peter R.K. Vosicky. Sungið við flygilinn
kl. 13-14, Gylfi Gunnarsson. Kaffiveitingar kl.14-14.30.
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, bingó kl 13.30.
Árskógar 4 Smíðar og útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía
með Guðmundi kl. 9.30-10.30. Útvarpsleikfimi RÚV kl. 9.45-10. Opið
innipútt kl. 11-12. Bingó kl. 13. Spilað kanasta kl. 13. Bókabíllinn, kem-
ur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Tunica str 14 - 30
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Hjólbarðar
Nýjar og notaðar dekkjavélar
til sölu
M & B dekkjavélar
Ítalskar topp gæða dekkjavélar.
Gott verð.
Einnig notaðar Sicam vélar og lyftur.
Kaldassel ehf.,
s. 5444333 og 8201070
kaldasel@islandia.is
Matador heilsársdekk fyrir sen-
dibíla- tilboð
175/75 R 16 C kr. 17.500
205/75 R 16 C kr 19.500
215/75 R 16 C kr. 23.500
225/65 R 16 C kr. 27.200
235/65 R 16 C kr. 29.900
Framleidd af Continental í Slóvakíu
Kaldasel ehf.
S. 5444333 og 8201070
Rýmingarsala á vörubíladekkjum
13 R 22.5 kr. 31.452 + vsk
1200 R 20 kr. 23387 + vsk
275/70 R 22.5 kr. 32177 + vsk
385/65 R 22.5 kr. 47581 + vsk
1000 – 20 kr. 23387 + vsk
og fleiri stærðir.
kaldasel@islandia.is
Kaldasel ehf., s. 5444333
og 8201070
Ný og notuð dekk á góðu verði
Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði
Dalvegi 16 b, 201 Kópavogi
s. 5444333
Húsviðhald
VIÐHALD
FASTEIGNA
Lítil sem stór verk
Tímavinna eða tilboð
℡
544 4444
777 3600
jaidnadarmenn.is
johann@2b.is
JÁ
Allir iðnaðarmenn
á einum stað
píparar, múrarar, smiðir,
málarar, rafvirkjar
þakmenn og flísarar.
Hreinsa
þakrennur
ryðbletta þök og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com