Morgunblaðið - 05.05.2017, Qupperneq 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það mun hjálpa þér að ræða málin við
vinkonu þína í dag. Pældu í hversu miklu
sterkari þú yrðir með fleiri þér við hlið á leið til
fyrirheitna landsins.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er engin ástæða til þess að setja sig
á háan hest þótt þú hafir rétt fyrir þér. Mars
hefur mikil áhrif á merkið þitt og það gerir það
að verkum að þú hefur mikla umframorku.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú sérð heiminn í einstaklega bjart-
sýnu ljósi um þessar mundir og finnur fyrir
vellíðan. Notið tækifærið og talið við aðra um
sameiginlegar eignir og leiðir til úrbóta.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ekki freistast til þess að festast í ein-
hverju píslarvætti. Nú ertu hins vegar komin/n
á gott ról í því sem þú ert að gera og það veitir
þér ákveðna hugarró.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Kannski nennirðu ekki að vinna af því að
þú veist ekki til hvers er ætlast af þér. Það
sem lætur þér líða betur er svo augljóst að
stundum gleymir þú því.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur úr fjölmörgum tækifærum að
velja og þarft hvergi að óttast það að þú ráðir
ekki við hlutina. Hverju skyldi vera að þakka?
Skiptu út skoðun sem þú hefur haft lengi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef eitthvað sem þú tekur þér fyrir hendur
er leiðinlegt er eitthvað að. Röng áhrif láta þig
framkvæma hluti ólíka þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að gæta þess vel að fá
nægan svefn því of miklar vökur fara illa með
sál og líkama. Ekki hafna hjálp sem þér er
boðin.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er líklegra en ekki að þú vekir
á þér athygli með einhverjum hætti í dag.
Láttu ekkert verða til þess að koma þér úr
jafnvægi svo þú getir haldið í stjórnartaum-
ana.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Skínandi hlutir eru oft bara endur-
kast af einhverju öðru, eins og sólinni. Van-
ræktir hlutar sjálfs þín lifna við. Það er eðlilegt
að finna til afbrýðisemi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Einhver kemur þér svo á óvart að
þú verður að játa þá staðreynd að aldrei skyldi
dæma eftir útlitinu einu saman. Leyfðu tím-
anum að vinna með þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Álitlegt viðskiptatækifæri skýtur upp
kollinum. Náðu sambandi við einhvern áhuga-
verðan hinum megin á hnettinum í gegnum al-
netið.
Ólafur Stefánsson heldur mjög
upp á Heinz Erhardt hinn þýska
og spreytir sig á því að þýða ljóð
hans og gerir það oft vel. – „Er-
hardt orti margt um dýr, frá
smæstu lirfum og upp í fíla og
krókódíla, en líklega aðeins einu
sinni um dauða skepnu og það um
sjálfa jólagæsina, frosna með
„gæsahúð“ á leið í ofninn til steik-
ingar:
Hélustokkin, heil í frysti
er holdagæs úr Mosfellssveit.
Haldin vel – en höfuð missti,
harla lítið til sín veit.
Tilreidd þar sér tekur lúrinn,
týnd er löpp, af fjöðrum snauð.
Ætli’ að hún sé eitthvað stúrin,
að hér liggi slögtuð, dauð ?
Kúrir ein í kulda og frera,
kroppur þakinn gæsahúð.
Úr henni ég ætla að gera,
afbragðs steik með kryddi úr búð.
---
Steikin kraumar, indæl angan,
frá ofni berst – ei svíkur neinn.
Ilmur þessi ærir svangan,
– úti stendur jólasveinn.
Við Ólafur erum á svipuðum
aldri og auðvitað söknum við hey-
bandslestanna og fjörsins í hlöð-
unni þegar leyst var úr böggunum.
Að þessu snýr limra Ólafs:
Ein háöldruð, heiðvirð og trú,
harmar það sárlega nú,
að af Hallbirni missti,
og Hlölla ei kyssti,
í hlöðunni ’43.
Helgi R. Einarsson var kannski í
svipuðum þönkum þegar hann orti:
Á ráðin Rögnvaldur lagði
reis upp við dogg og sagði.
„Hefur þú
séð haldinni kú?“
Það var þá sem jómfrúin þagði.
Steinunn P. Hafstað orti að
morgni 1. maí – „þegar vart var
stætt í Hveragerði í veðrahamn-
um“:
Úrhelli með hryllings hrolli
hrellir sólskinsbörn, sem vona
að veðurblíða við þau tolli
og vorið leiki engan svona.
Jóhannes Kristjánsson skemmti-
kraftur yrkir á Boðnarmiði:
Lífið það er hringur,
og í þeim hring
hringir.
Og þar hringir
og þar hringir
hver í annan.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af holdagæs, heyhlöðu og
hringrás lífsins
Í klípu
„ÞETTA ER BARA VARÚÐARRÁÐSTÖFUN.
UM LEIÐ OG VIÐ GETUM FUNDIÐ
ORSAKIR SÝKINGARINNAR GETUM VIÐ
HLEYPT ÞÉR ÚR EINANGRUNINNI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HEYRÐU, LAGSMAÐUR, ÉG ÞARF AÐ SKIPTA SMÁ
PENING. GEFÐU MÉR TVO FIMMÞÚSUNDKALLA
Í STAÐINN FYRIR ÞENNAN FIMMHUNDRUÐKALL.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... kletturinn þinn.
FÓRSTU AFTUR
Í HÁTTINN?
ALLT
VIRTIST
VERA UNDIR
STJÓRN
ÞETTA MUN VERÐA EINN DÝRASTI
BARDAGI OKKAR TIL ÞESSA! ÞAÐ ER
RÉTT!
ÉG GET BARA RÉTT SVO ÍMYNDAÐ MÉR
HVAÐ SAUMAKONAN MUN RUKKA FYRIR
AÐ GERA VIÐ ÖLL ÞESSI GÖT!
Það er ekkert grín að sjá um smá-hund sem fer ekki úr hárum. Í
raun fylgir því mikil ábyrgð og eng-
inn ætti að taka slíkt að sér án þess
að vita hvað því fylgir.
x x x
Miklu máli skiptir að fæðið sé réttog það gefið á ákveðnum tím-
um. Hundar eiga ekki að vera við
matarborðið heldur hafa sitt fæði.
Það lítur ekki út fyrir að vera lystugt
að drekka bara vatn og borða sömu
tegund af korni dag eftir dag en það
er þeim fyrir bestu, segja sérfræð-
ingarnir, og eins gott að fylgja því.
x x x
Þessi dýr þurfa að gera þarfir sínarog fara út á um fjögurra tíma
fresti frá morgni til kvölds. Á því er
enginn afsláttur nema fólk vilji að
hundurinn mígi og skíti inni. Það get-
ur verið erfitt að venja hann af því.
x x x
Í skítugri borg eins og Reykjavíkverður hundurinn enn skítugri en
ella og því þarf að þvo honum reglu-
lega. Hann þarf líka að fara í klipp-
ingu á um þriggja til fjögurra mán-
aða fresti.
x x x
Hundurinn þarf helst að eiga regn-kápu og hlýja kápu til að vera í á
gönguferðum á köldum vetrar-
dögum. Ekki má sleppa honum laus-
um nema þar sem lausaganga hunda
er leyfð.
x x x
Hundurinn er félagsvera og villvera með sínu fólki. Honum leið-
ist að vera einn heima og líður best
með öðrum. Þykir líka við hæfi að fá
að sofa upp í rúmi hjá öðrum. Komist
hann upp á bragðið verður ekki aftur
snúið.
x x x
Sé ekki hægt að taka hundinn meðí frí þarf að gera ráðstafanir í
tíma. Hundahótel eru fljót að fyllast
og ekki er hægt að treysta á að ætt-
ingjar og vinir geti hlaupið í skarðið.
Víkverji er á leið í fjögurra daga orlof
frá hundinum og fjórir einstaklingar
skiptast á um að sjá um hann á með-
an. Og veitir ekki af. vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er góður, athvarf á degi
neyðarinnar, hann annast þá sem
leita hælis hjá honum
(Nahúm 1:7)
Frá
morgnifyrir allafjölskylduna í
þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Laugarnar í Reykjavík
NÆRING FYRIR LÍKAMA OG SÁL