Morgunblaðið - 05.05.2017, Side 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2017
Áárum áður var það viðtekinvenja að börn væru send ísveit til að vinna yfir sum-artímann, enda miðaðist
skólaárið löngum við þetta unga vinnu-
afl. Þó að börn nútímans hafi fæst
reynslu af slíkri sumarvist geta þau
vafalítið heyrt sögur um slíkt frá ömm-
um og öfum. Leikstjórinn Agnes Wild
leitar einmitt í reynslubrunn ömmu
sinnar, Signýjar Óskarsdóttur sem
kölluð er Ninna, í brúðusýningunni Á
eigin fótum sem frumsýnd var í Tjarn-
arbíói á nýafstaðinni Barnamenning-
arhátíð og ætlunin er að sýna víða um
lönd.
Í sýningunni birtist Ninna áhorf-
endum sem sex ára stúlka sem send er
í afskekkta sveit fjarri foreldrum sín-
um yfir sumartímann á fyrri hluta síð-
ustu aldar, en smekklegir og fallegir
búningar Evu Bjargar Harðardóttur
staðsetja söguna vel í tíma og rúmi.
Ninna er túlkuð af svonefndri
Bunraku-brúðu, einnig úr smiðju Evu
Bjargar, sem byggir á japanskri hefð,
þar sem þrír brúðustjórnendur stjórna
höfði, höndum og fótleggjum brúð-
unnar, sem yfirleitt er í raunstærð, án
þess að notast sé við strengi. Þau
Rianna Dearden, Olivia Hirst og Nick
Candy/Þorleifur Einarsson stýra
Ninnu af miklu öryggi á sviðinu og
gefa henni nauðsynlegt líf.
Eftir leik- og söngstund með föður
Ninnu, sem Þorleifur túlkar af góðri
innlifun, leggja þau feðgin upp í langt
ferðalag á hestvagni, bát og hjóli áður
en á leiðarenda er komið. Kveðju-
stundin er þungbær og ótrúlegt
hversu sterkum tilfinningum brúðu-
leikararnir geta miðlað gegnum Ninnu
með einföldum hljóðum og nákvæmri
stjórn útlima þar sem titrandi fótur og
ein höfuðhreyfing segir meira en þús-
und orð.
Söknuðurinn eftir pabba er sár og
reiðin yfir því að vera skilin eftir hjá
ókunnugum mikil og því neitar Ninna í
fyrstu að taka þátt í bústörfunum.
Ábúendur, í túlkun Sigrúnar Harðar-
dóttur og Nick Candy, bjóða Ninnu
ýmist mjólkurfötu eða hrífu til afnota
við störfin, sem hún hafnar jafn-
harðan.
En sveitin býður ekki bara upp á
vinnu. Hún er líka ævintýraheimur
fyrir forvitna og lífsglaða stúlku sem
ekki hefur áður notið náinna samvista
við hvort heldur er húsdýr eða frjálsa
fugla náttúrunnar. Áhorfendur fá að
fylgjast með því þegar Ninna kynnist
m.a. Snata, hinum glaðværa hundi á
bænum, og kálfi sem þarf að gefa pela,
en við þau kynni breytist afstaða
Ninna til bústarfanna og einmanaleik-
inn víkur fyrir nýjum vinskap, sem
mun áður en yfir lýkur bjóða stórviðri
birginn.
Dýrin í sýningunni eru listilega vel
útfærð hjá Evu Björgu og iðulega
samsett úr þeim fáu hlutum sem þjóna
sem leikmynd í sýningunni. Sem dæmi
breytist ferðataska Ninnu með aðstoð
einnar fötu í kálf, Snati er samsettur
úr slitnum skó og ullarsjali en svanir
sem synda meðal áhorfenda eru vafðir
úr hvítum lökum. Sviðsgólfið breytist á
svipstundu úr mýri í spegilslétta tjörn
með hjálp ímyndunaraflsins, sem
virkjað er með fallegri og hugvitsam-
legri lýsingu Kjartans Darra Krist-
jánssonar og einföldum leikhljóðum úr
munni leikara. Hér ræður einfaldleik-
inn ríkjum í bland við óhefta sköpunar-
gleði sem kveikir hreinræktaða leik-
hústöfra og hvetur unga áhorfendur til
að gefa hversdaglegum hlutum í nær-
umhverfinu nýtt líf í leikjum sínum.
Sýningin, sem tekur um 40 mínútur
í leik og ætluð er börnum frá tveggja
ára aldri, er afar myndræn og að
mestu leikin án orða, en meðal örfárra
orða sem heyrast á sviðinu eru
„Ninna“, „pabbi“, „já“ og „nei“. Vel er
til fundið að láta útvarpsþulinn á Guf-
unni babla á óskiljanlegu máli, enda
veðurfréttir og dánartilkynningar
sennilega hreinasta latína fyrir ungum
börnum sem skilja ekki dálæti full-
orðna fólksins á slíku efni þegar
hressileg tónlist er annars í boði.
Valdabarátta bóndans og Ninnu um
útvarpstækið er einstaklega skemmti-
lega útfærð.
Hljóð- og tónlistarheimur Sigrúnar
Harðardóttur fiðluleikara og Mar-
grétar Arnardóttur harmóníkuleikara
þjónar sýningunni vel og setur ávallt
rétta tóninn. Þakklátt er einnig að tón-
listin yfirgnæfir aldrei náttúruleg leik-
hljóð úr munni leikara sem gefa leik-
persónum aukið líf.
Samstilling leikhópsins undir stjórn
Agnesar Wild er til mikillar fyrir-
myndar. Leikurinn er áreynslulaus og
sviðsumferðin bæði öguð og stílhrein,
en samtímis ávallt full af snerpu og lífi.
Á eigin fótum er falleg og fræðandi
sýning sem gleður auga jafnt sem
hjarta.
Töfrar hversdagsleikans
Tjarnarbíó
Á eigin fótum bbbbn
Eftir Leikhópinn Miðnætti og Lost
Watch Theatre Company. Leikstjórn:
Agnes Wild. Höfundur tónlistar og tón-
listarflutningur: Sigrún Harðardóttir og
Margrét Arnardóttir. Leikmynd, bún-
ingar og brúðugerð: Eva Björg Harðar-
dóttir. Lýsing: Kjartan Darri Krist-
jánsson. Leikarar: Nick Candy, Olivia
Hirst, Rianna Dearden og Þorleifur
Einarsson. Frumsýning í Tjarnarbíói
laugardaginn 29. apríl 2017.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Vinátta „Á eigin fótum er falleg
og fræðandi sýning sem gleður
auga jafnt sem hjarta.“
Sýning á bókverkinu Sameindir eftir Höllu Birgisdóttur
verður opnuð í dag kl. 17 í Ekkisens og útgáfu þess fagn-
að um leið. Með bókverkinu „skoðar Halla það fyrirbæri
sem við köllum ást sem er, eins og myndlist, dularfull og
vandmeðfarin“, eins og því er lýst í tilkynningu en það er
Rasspotín sem gefur verkið út.
Halla Birgisdóttir er fædd árið 1988 og býr og starfar í
Reykjavík. Hún útskrifaðist frá myndlistardeild
Listaháskóla Íslands árið 2013. „Halla notar texta og
teikningar sem rannsakandi athöfn, gerða til þess að
skoða ýmis hugðarefni. Hún skapar brotakennd frá-
sagnarrými af einlægni,“ segir um listakonuna í tilkynn-
ingu. Frá útskrift hafi hún unnið í marga miðla, s.s. bók-
verk, teikningar, innsetningar og hreyfimyndir, og mörg
þeirra verka hafi hún unnið sérstaklega fyrir rýmin sem
þau hafi verið sýnd í. Halla kallar sig myndskáld. Forlag-
inu Rasspotín stýrir myndlistarmaðurinn Héðinn Finns-
son, sem gengur undir listamannsnafninu Íbbagoggur.
Halla skoðar fyrirbærið
sem kallað er ást
Myndskáld Halla Birgisdóttir, höfundur Sameinda.
Ísafjarðarbær og Kómedíuleik-
húsið hafa endurnýjað samstarfs-
samning sinn og er samningurinn
til tveggja ára, að því er fram
kemur á vef Bæjarins besta, bb.is.
„Það ríkir mikil ánægja í her-
búðum Kómedíuleikhússins og um
leið má segja að endurnýjun á
vorum samstarfssamningi við bæ-
inn sé viðurkenning á okkar
starfi,“ er þar haft eftir Elfari
Loga Hannessyni kómedíustjóra,
sem segir að samstarfið hafi verið
farsælt og ef eitthvað sé vilji
hann tryggja það enn frekar.
„Með þessum samningi gefst æsk-
unni færi á að sjá leiksýningar
minnst einu sinni á ári og sérlega
ánægjulegt er að nú eru einnig í
samstarfinu tryggðir tveir list-
viðburðir á Hlíf,“ segir Elfar.
Fram kemur í fréttinni að fleiri
verkefni Kómedíuleikhússins séu
í samningnum, m.a. leikatriði á
17. júní og jólasveinadagskrá í
Safnahúsinu. Elfar Logi segir í
samtali við BB að samningurinn
tryggi betur mánaðamótin, sem
hið kómíska leikhús sé sannar-
lega enn að fást við eins og svo
mörg önnur apparöt. Hann vonist
til að starfsemi Kómedíuleikhúss-
ins vestra og um allt land eigi
þátt í að vekja athygli á sköpun
og menningu í Ísafjarðarbæ.
Ísafjarðarbær og Kómedíuleikhús end-
urnýja samstarfssamning til tveggja ára
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Kómedíuleikhússstjóri Elfar Logi Hann-
esson fer fyrir Kómedíuleikhúsinu.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Nýja sviðið)
Fös 5/5 kl. 20:00 aukas. Mið 17/5 kl. 20:00 aukas. Þri 6/6 kl. 20:00 aukas.
Lau 6/5 kl. 20:00 19. sýn Fim 18/5 kl. 20:00 30. sýn Mið 7/6 kl. 20:00 48. sýn
Sun 7/5 kl. 20:00 20. sýn Fös 19/5 kl. 20:00 31. sýn Fim 8/6 kl. 20:00 49. sýn
Mið 10/5 kl. 20:00 21. sýn Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn Fös 9/6 kl. 20:00 50. sýn
Fim 11/5 kl. 20:00 22. sýn Sun 21/5 kl. 20:00 33. sýn Lau 10/6 kl. 20:00 51. sýn
Fös 12/5 kl. 20:00 23. sýn Fim 1/6 kl. 20:00 43. sýn Sun 11/6 kl. 20:00 52. sýn
Lau 13/5 kl. 13:00 aukas. Fös 2/6 kl. 20:00 44. sýn Mið 14/6 kl. 20:00 53. sýn
Sun 14/5 kl. 20:00 aukas. Lau 3/6 kl. 20:00 45. sýn Fim 15/6 kl. 20:00 54. sýn
Opnar kl. 18:30, frjálst sætaval. Panta verður veitingar með dags fyrirvara.
Úti að aka (Stóra svið)
Fös 5/5 kl. 20:00 28. sýn Fim 11/5 kl. 20:00 30. sýn Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn.
Sun 7/5 kl. 20:00 29. sýn Fim 18/5 kl. 20:00 31. sýn
Sprenghlægilegur farsi! Síðustu sýningar leikársins komnar í sölu.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 6/5 kl. 20:00 166 s. Fim 25/5 kl. 20:00 174 s. Mið 7/6 kl. 20:00
Sing-along
Fös 12/5 kl. 20:00 167 s. Fös 26/5 kl. 20:00 175 s. Fim 8/6 kl. 20:00 183 s.
Lau 13/5 kl. 13:00 168 s. Lau 27/5 kl. 20:00 176 s. Fös 9/6 kl. 20:00 184 s.
Sun 14/5 kl. 20:00 169 s. Sun 28/5 kl. 20:00 177 s. Lau 10/6 kl. 20:00 185 s.
Fös 19/5 kl. 20:00 170 s. Mið 31/5 kl. 20:00 178 s. Sun 11/6 kl. 20:00 186 s.
Lau 20/5 kl. 13:00 171 s. Fim 1/6 kl. 20:00 179 s. Mið 14/6 kl. 20:00
Sing-along
Sun 21/5 kl. 20:00 172 s. Fös 2/6 kl. 20:00 180 s. Fim 15/6 kl. 20:00 188 s.
Mið 24/5 kl. 20:00 173 s. Lau 3/6 kl. 20:00 181 s.
Allra síðustu sýningar komnar í sölu!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 7/5 kl. 13:00 aukas. Sun 14/5 kl. 13:00 aukas. Sun 21/5 kl. 13:00 aukas.
Fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Elly - haustið 2017 (Stóra sviðið)
Fim 31/8 kl. 20:00 1. sýn Lau 2/9 kl. 20:00 3. sýn Fös 8/9 kl. 20:00 5. sýn
Fös 1/9 kl. 20:00 2. sýn Fim 7/9 kl. 20:00 4. sýn Sun 10/9 kl. 20:00 6. sýn
Sýningar í haust komnar í sölu.
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 7/5 kl. 13:00 Lau 13/5 kl. 13:00 Sun 21/5 kl. 13:00
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Húsið (Stóra sviðið)
Lau 6/5 kl. 19:30 Mið 17/5 kl. 19:30 Lau 27/5 kl. 19:30
Fös 12/5 kl. 19:30 Lau 20/5 kl. 19:30
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Fös 5/5 kl. 19:30 16.sýn Fös 12/5 kl. 19:30 18.sýn Fös 19/5 kl. 19:30 19.sýn
Lau 6/5 kl. 19:30 17.sýn Fim 18/5 kl. 19:30 20.sýn Fös 19/5 kl. 19:30 21.sýn
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Lau 6/5 kl. 20:00
Edinborgarhúsið Ísafirði
Sun 14/5 kl. 19:30 Sun 21/5 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 5/5 kl. 20:00 Lau 6/5 kl. 20:00
Fös 5/5 kl. 22:30 Lau 6/5 kl. 22:30
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Lau 13/5 kl. 17:00 15.sýn Lau 20/5 kl. 17:00 17.sýn
Sun 14/5 kl. 17:00 16.sýn Sun 21/5 kl. 17:00 18.sýn
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.
Álfahöllin (Stóra sviðið)
Fös 5/5 kl. 19:30 8.sýn Sun 14/5 kl. 19:30 9.sýn Fim 18/5 kl. 19:30 10.sýn
Ný sýning eftir Þorleif Örn Arnarsson!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200