Morgunblaðið - 05.05.2017, Side 44
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 125. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Áfall þegar hann var kominn með aðra
2. Filippus drottingarmaður hættir
3. Hvað verður tilkynnt í höllinni?
4. Bað sömu konunnar tvisvar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur
nýja Múmínsöngva með Agli Ólafs-
syni og Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur,
ásamt Stúlknakór Reykjavíkur, í Eld-
borg í Hörpu á morgun á tvennum
tónleikum, kl. 14 og 16. Söngvarnir
voru samdir af Soili Perkiö í tilefni af
70 ára afmæli Múmínálfanna og heyr-
ast í meðförum hljómsveitarinnar í
þýðingu Þórarins Eldjárns. Hljóm-
sveitarstjóri er Erkki Lasonpalo.
70 ára afmæli Múmínálfanna var
fagnað í Finnlandi með útkomu
Múmínálfa í söngvaferð, nýrrar
söngvabókar með geisladiski, sem
hlaut finnsku Emma-verðlaunin 2014.
Fílharmóníusveitin í Helsinki frum-
flutti Múmínálfa í söngvaferð eftir
Soili Perkiö & Hannele Huovi vorið
2015 í útsetningum Matta Kallio og
verður Sinfóníuhljómsveit Íslands
fyrst hljómsveita utan Finnlands til
að flytja þá.
Egill og Jóhanna
syngja Múmínsöngva
Norski spunahópurinn Lemur
heldur tónleika í Mengi í kvöld kl.
21. Meðlimir Lemur eru fjórir og í
tónlistarsköpun þeirra renna ótal
áhugaverðir þræðir úr tónlist sam-
tímans saman, m.a. hávaðatónlist
og frídjass og skrifuð
og spunnin tónlist,
en hópurinn vinn-
ur mikið með
spuna. Lemur
skipa Bjørnar
Habbestad, Hild
Sofie Tafjord,
Lene Grenager
og Michael
Duch.
Ótal þræðir renna
saman í tónlist Lemur
Á laugardag Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Skýjað og þoku-
loft með norður- og austurströndinni og hiti 5 til 8 stig. Víða létt-
skýjað sunnan- og vestanlands, einkum í uppsveitum, með hita að
18 stigum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægviðri í dag með björtu og hlýju veðri, en
sums staðar þokuloft við sjávarsíðuna og svalara.
VEÐUR
„Við byrjuðum ekki alveg
nógu vel en komumst inn í
leikinn og vorum í séns, en
náðum ekki að keyra í gegn
það sem við gerðum mjög vel
fyrstu tíu mínúturnar í seinni
hálfleik. Mér fannst við spila
þær frábærlega. Þetta virtist
ætla að snúast með okkur en
svo snerist það bara aftur í
hina áttina,“ sagði Guðjón
Valur meðal annars að
loknum leiknum við Make-
dóna. »1
„Virtist ætla að
snúast með okkur“
„Mér líður afar vel innan Stjörnunnar.
Við höfum á að skipa afar góðum
hópi leikmanna auk þess að hafa
mjög færa þjálfara og
aðra í kringum liðið.
Leikmenn liðsins á þeim
tíma sem ég hef
verið í Stjörnunni
hafa verið miklar
fyrirmyndir, utan
vallar sem inn-
an,“ segir Ana
Cate, knatt-
spyrnukona frá
Níkaragva, sem
leikur sitt fjórða
ár á Íslandi og átti
mjög góðan leik í 2.
umferð Pepsi-
deildarinnar. »4
Leikmenn Stjörnunnar
miklar fyrirmyndir
Ævintýri handknattleiksliðs Fram á
Íslandsmótinu í handknattleik karla
lauk í gærkvöldi þegar liðið tapaði
þriðja sinni í undanúrslitum fyrir Val,
31:21, á heimavellinum í Safamýri.
Valur vann rimmuna samtals 3:0 og
mætir FH í úrslitum um Íslandsmeist-
aratitilinn. Mætast þá bikarmeist-
ararnir og deildameistararnir í úrslit-
unum. »2
Valur vann alla þrjá
leikina gegn Fram
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ingvar Jónsson og Sjoerd de Waal hafa undirritað
samning um útgáfu bókarinnar The Whole Brain
Leader við Creative Crest í Nýju-Delí á Indlandi.
Þeir hafa notað bókina á námskeiðum um leið-
togaþjálfun hérlendis, í Evrópu og Suður-Afríku
og sjá nú fram á verkefni á Indlandi.
Útgáfufyrirtækið sér um alla markaðssetningu
bókarinnar á Indlandi. „Ef þetta þróast með sama
hætti og hefur gerst annars staðar er líklegt að
námskeið fylgi í kjölfarið auk þess sem þetta opn-
ar á alþjóðlega markaði,“ segir Ingvar, en þeir eru
nýbúnir að halda námskeið fyrir stjórnendur á Ír-
landi og verða meðal annars í Namibíu í haust.
Mikil eftirspurn
Ingvar segir að mikil eftirpurn sé eftir mark-
þjálfun á Indlandi og í Suður-Ameríku um þessar
mundir og því sé þetta mjög spennandi. „Það er
eitthvað sem segir mér að ef við herjum á þennan
markað með námskeiðum og fyrirlestrum sé eftir-
spurnin svo sannarlega til staðar.“
Markþjálfunin opinberaðist Ingvari fyrir um
sjö árum. „Árið 2007 ákvað ég að fara að læra, þá
orðinn 37 ára. Ég hafði enga menntun en fór í há-
skólanám og tók alþjóðamarkaðsfræði og svo
MBA-nám í CBS-viðskiptaháskólanum í Kaup-
mannahöfn. Þar urðu ákveðin þáttaskil, ég komst
að tilganginum og ákvað að fara þessa braut.“
Á undanförnum tveimur árum hefur Ingvar
gefið út tvær bækur. Fyrst The Whole Brain
Leader og síðan kennslubók í markþjálfun. Hann
er að skrifa þriðju bókina, 49 daga áskorun, skoð-
aðu sjálfan þig í víðara samhengi, sem er byggð á
aðferðafræði markþjálfunar og kemur væntan-
lega út um næstu áramót.
Í bókinni sem kemur út á Indlandi er fjallað um
stjórnendur sem vilja tileinka sér nútímastjórn-
unarhætti. „Stjórnunarhætti sem vísindin hafa
leitt í ljós að skila mun meiri árangri en þessar
gömlu, hefðbundnu aðferðir,“ segir Ingvar. Hann
segir að margir stjórnendur meðalstórra og
stórra íslenskra fyrirtækja hafi sótt námskeiðin
og tekið þeim vel. Það geti vissulega verið erfitt
og sé talsverð áskorun fyrir reyndan stjórnanda
að breyta um stjórnunarhætti, að átta sig á því að
þessi mýkri leið skili betri árangri þegar til lengri
tíma sé litið, en það sé aldrei of seint. „Nútíma-
heilarannsóknir sýna okkur betur og betur hvern-
ig við bregðumst við og af hverju við bregðumst
við eins og við gerum,“ útskýrir Ingvar. „Það að
skilja hvernig annað fólk hugsar er forskot sem
erfitt er að keppa við þegar upp er staðið.“
Þrjár meginstoðir
Fjallað er um þrjár meginstoðir í bókinni. Í
fyrsta lagi raunveruleikann eins og hann er. Í
öðru lagi þá staðreynd að engir tveir einstaklingar
eru eins og það sé á ábyrgð stjórnandans að laga
sig að sínu fólki en ekki öfugt. Í þriðja lagi eru það
hæfnisþættir markþjálfunar, sem lúta beint að
stjórnun, hlustun, að átta sig á því hvað er í gangi
undir niðri og taka málin þaðan.
Ingvar bendir á að sex af hverjum tíu starfs-
mönnum, sem segja upp starfi, geri það vegna
óánægju með næsta yfirmann. „Helgun í starfi
hefur mun meira með stjórnandann að gera en
starfsmanninn og er síst meiri hér en annars stað-
ar í hinum siðmenntaða heimi,“ segir hann.
Blendnar tilfinningar
„Þetta eru fá lykilatriði en atriði sem vega
gríðarlega þungt vegna þess að þegar upp er stað-
ið eru það samskipti á vinnustað sem skilja á milli
þeirra fyrirtækja sem ná árangri og þeirra sem
eftir sitja. Margar rannsóknir sýna að mark-
þjálfun á vinnustað skilar sér margfalt til baka.“
Ingvar segir að tilgangurinn með útbreiðslunni
sé að hafa jákvæð áhrif. „Ég verð samt að viður-
kenna að ég svitnaði svolítið þegar samningurinn
var í höfn vegna þess að ég er fjölskyldumaður og
ef þetta vindur upp á sig þýðir það að við verðum
að leggja land undir fót. Þetta eru því blendnar
tilfinningar en starfið er gefandi og það er spenn-
andi að ná svona samningi.“
Opnar á alþjóðlega markaði
Hafa undirritað samn-
ing um útgáfu bókar um
markþjálfun á Indlandi
Morgunblaðið/RAX
Markþjálfun Ingvar Jónsson með bókina, sem verður gefin út á Indlandi og opnar nýjar dyr.