Fréttablaðið - 16.12.2017, Blaðsíða 14
TTil
Snæfellsjökull
Haraldur Sigurðsson
Til sölu í bókaverzlunum
Art, science and history of an Icelandic volcano
Einstök bók eftir þekktasta eldfjallafræðing Íslands.
Öll Jól
- SÍÐAN 1952 -
V
E
R
T
8
0
5
9
Samgöngur „Þessi verkefni snúa
flest að umferðaröryggi og eiga að
létta á umferðarþunganum,“ segir
Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra
samgöngumála, í samtali við Frétta-
blaðið. Í nýkynntu fjárlagafrumvarpi
ríkisstjórnarinnar er tæplega hálfum
öðrum milljarði króna varið auka-
lega til nýrra framkvæmda frá því
fjárlagafrumvarpi sem síðasta ríkis-
stjórn hafði kynnt. Ráðherrann segir
að um sé að ræða vísbendingar um
hvert ríkisstjórnin vilji stefna í sam-
göngumálum.
Hreinn Haraldsson vegamála-
stjóri segir ánægjulegt að ráðist
verði í þau verkefni sem fjármagnið
sé eyrnamerkt. Hann er hins vegar
vonsvikinn yfir að ekki skuli hafa
komið aukið fjármagn til að bæta
vetrarþjónustu á vegum landsins.
Fjármagn vegna viðhalds stendur
í stað – en í þann vasa var bætt
vel fyrir þetta ár. Sú upphæð helst
óbreytt.
Ný verkefni sem fjármögnuð eru
í frumvarpinu eru framkvæmdir
við Dýrafjarðargöng, tvöföldun
brúa yfir Kvíá í Öræfum og á Vatns-
nesi. Þá á að verja 600 milljónum til
framkvæmda við Reykjanesbraut
skammt frá Kaplakrika og 200 millj-
ónum til hringtorgs á Esjumelum á
Vesturlandsvegi. Ljúka á við upp-
byggingu vegarins yfir Fróðárheiði,
en þar hefur stuttur kafli verið skil-
inn eftir ómalbikaður lengi.
Sigurður Ingi segir að með þessum
verkefnum sé markmiðið að gefa
innsýn í það hvert ríkisstjórnin
hyggst stefna í samgöngumálum.
Áherslan verði á umferðaröryggi.
Hann segir að vinna við samgöngu-
áætlun til fjögurra ára og fjármála-
áætlun til fimm sé hafin. Þegar
þeirri vinnu ljúki sé betur hægt að
áætla hvaða framkvæmdir af brýn-
um framkvæmdum á stofnæðum
umhverfis höfuðborgarsvæðið verði
hægt að ráðast í. Á honum má skilja
að þessi verkefni gefi vart nema
nasaþefinn.
Sigurður Ingi vill ekkert gefa upp
um hug sinn í þeim málum; hvaða
stofnbrautir hann telur að þurfi að
efla á undan öðrum. Hann segir ljóst
að tvöfalda þurfi stofnæðarnar í allar
áttir út frá höfuðborgarsvæðinu og
þá standi hugur manna til að byggja
upp borgarlínu. Hann segir að allt
þetta verði ekki gert á næstu árum.
Verið sé að byggja tíu þúsund íbúðir
á höfuðborgarsvæðinu og ekki megi
skapa of mikla þenslu í samfélaginu.
Nýtt samgöngumannvirki var
tekið í notkun á föstudag, þegar
Hreinn og Sigurður Ingi klipptu
á borða í því skyni að opna með
formlegum hætti ný gatnamót
Krýsuvíkurvegar og Reykjanes-
brautar. Hreinn segir við Frétta-
blaðið að ákaflega ánægjulegt sé að
verkefninu sé lokið. Um sé að ræða
stórmál þegar kemur að umferðar-
öryggi á þessum slóðum. „Þetta eru
gatnamót þar sem umferðin hefur
aukist gífurlega, bæði þungaumferð
og umferð vegna nýrrar byggðar.
Þarna hafa orðið slys og þarna var
spurning hvenær yrðu mjög alvarleg
slys. Þetta er partur af því verkefni
að tvöfalda Reykjanesbraut,“ segir
Hreinn. baldurg@frettabladid.is
Framlögin sýnishorn af samgöngustefnu
Sigurður Ingi Jóhannsson segir að það skýrist fljótlega hvert ríkisstjórnin hyggist stefna í samgöngumálum. Hann segir ljóst að ekki sé
hægt að byggja upp allar stofnæðarnar í kring um höfuðborgarsvæðið samtímis. Vegamálastjóri vill auka vetrarþjónustu.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, vígir ný gatnamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar.
nOrEgur Norskt byggingafyrirtæki
hyggst reisa fjórar íbúðablokkir í Ósló
sem ætlaðar eru foreldrum sem hafa
skilið og börnum þeirra. Rými fyrir
börnin, með svefnherbergjum, baði
og gangi, verður mitt á milli íbúða for-
eldranna.
Við báða enda barnarýmisins verða
dyr, aðrar að íbúð móðurinnar og hinar
að íbúð föðurins. Gert er ráð fyrir að
dyrnar að íbúðum foreldranna verði
opnar til skiptis eftir samkomulagi.
Jafnframt er gert ráð fyrir heilli hæð
fyrir sameiginlegt rými íbúanna. Þeir
eiga sjálfir að koma með tillögur um
hvernig það verði nýtt. – ibs
Reisa blokkir fyrir fráskilda
Börnin fá rými milli íbúða foreldr-
anna í skilnaðarblokkunum.
NORDICPHOTOS/GETTY
iðnaður Bæjarstjórn Ölfuss segist
heilshugar munu styðja Omega
Algae í að koma á fót umhverfisvænni
örþörungaframleiðslu í Jarðhitagarð-
inum á Hellisheiði ef ríkið veitir félag-
inu fyrirgreiðslu samkvæmt lögum
um ívilnanir vegna nýfjárfestinga.
„Bæjarstjórn telur að jákvæðra
áhrifa muni gæta á samfélagið verði
af þessu verkefni,“ segir bæjarstjórnin
sem sér meðal annars fyrir sér aukinn
útflutning í gegnum Þorlákshöfn.
„Mikil framtíðartækifæri eru tengd
verkefninu og vexti þess sem jákvæð
áhrif geta haft á nær- og fjærsam-
félag.“ Verkefnið falli mjög vel að
áformum Orku náttúrunnar um starf-
semi Jarðhitagarðsins. – gar
Örþörungarækt í jarðhitagarði
1 6 . d E S E m b E r 2 0 1 7 L a u g a r d a g u r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
1
6
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:1
7
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
4
-0
A
8
8
1
E
8
4
-0
9
4
C
1
E
8
4
-0
8
1
0
1
E
8
4
-0
6
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K