Fréttablaðið - 16.12.2017, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 16.12.2017, Blaðsíða 26
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is Rekstrarland er hluti af Olís 100% JAFN HITIBETRI STJÓRN Á HITA STYTTRI ELDUNARTÍMI Í ALLRI VEÐRÁTTU MINNI GASNOTKUN ENGAR ELDTUNGUR SAFARÍKARI MATUR CHARBROIL ER KÆRKOMIN JÓLAGJÖF FYRIR HEIMILIÐ CrossFit Katrín Tanja Davíðsdóttir, tvö- faldur heimsmeistari í CrossFit, er komin til landsins og mun dvelja hér yfir jólin. Á morgun tekur Katrín þátt í Spartan Race, sólarhringslöngu hindrunarhlaupi þar sem verðlaunaféð er rúmlega 25.000 Banda- ríkjadalir, eða um 2,7 milljónir króna. „Mér bauðst að fara í þetta. Mér fannst ótrúlega gaman að fá að taka þátt í þessu hérna heima. Þetta er mikil og öðruvísi áskorun. Ég veit ekki við hverju ég á að búast og hef ekki gert þetta áður,“ sagði Katrín í samtali við Frétta- blaðið í gær. Hún dvelur að mestu í Bandaríkjunum við æfingar en ver jólunum í faðmi fjöl- s k y l du n n a r hér á Íslandi. K a t r í n Tanja varð heimsmeist- ari í Cross- F i t 2 0 1 5 og 2016 og fékk titilinn h r a u s t a s t a kona heims. Á h e i m s - leikunum í ár lenti hún hins vegar í 5. sæti og missti titilinn í hend- ur hinnar ástr- ölsku Tiu-Clair Toomey. „Síðasta ár fór ekki alveg eins og ég vildi en maður lærir alltaf. Svona eru íþróttirnar. Það að ég hafi ekki unnið í ár gefur mér mikið hungur og eldmóð. Ég er ótrúlega spennt fyrir næsta ári,“ sagði Katrín Tanja og bætti við að hún hefði lært mikið af síðasta ári. „Þetta sýndi mér hversu mikið ég vildi vinna. Það er auðvelt að vera með gott hugarfar og berj- ast í gegnum allt þegar maður er að vinna og allt gengur vel. En það gekk ekki allt eins og ég vildi. Ég var kannski ekki „on fire“ eins og ég var hin árin.“ Katrín stefnir ótrauð á að endurheimta heimsmeistaratitilinn á næsta ári og vinna hann í þriðja sinn. „Algjörlega. Ég hugsa að stærstu mistökin og erfiðustu tímarnir hafi verið þeir bestu fyrir mig. Þegar ég komst ekki á heimsleik- ana 2014 var það það besta sem gat komið fyrir mig því það sýndi hversu mikið mig langaði á þá og hversu mikið ég var tilbúin að leggja á mig til þess,“ sagði Katrín Tanja. Hún er langt í frá eina íslenska afreks- konan í CrossFit. Annie Mist Þórisdóttir varð til að mynda heimsmeistari 2011 og 2012 og var brautryðjandi í íþróttinni hér á landi. Katrín Tanja segist líta mikið upp til Annie sem er vinkona og æfinga- félagi hennar en jafnframt andstæðingur á mótum. „Ég hef þekkt Annie frá því ég byrjaði í CrossFit. Hún ruddi brautina fyrir okkur og ég hef alltaf litið mikið upp til hennar. Hún sýndi mér að það var ekki fjarlægur draumur að vinna. Ef hún getur þetta get ég þetta líka,“ sagði Katrín Tanja. „Það er erfitt að vera vinkonur og keppi- nautar en samband mitt við Annie er mér ótrúlega mikilvægt. Við gerum það sama daginn út og daginn inn og við fundum vináttu og virðingu fyrir hvor annarri. Ég vil vinna en ég vil að hún verði í 2. sæti En ég veit að hún vill það sama. Ég veit það hjálpar okkur báðum,“ sagði hún brosandi. Katrín Tanja er ein af stærstu stjörnunum í CrossFit-heiminum og er með meira en milljón fylgjendur á Instagram. Það hefur því mikið vatn runnið til sjávar síðan hún mætti á sína fyrstu CrossFit-æfingu. „Ég hef alltaf verið með mikið keppnis- skap og fór í CrossFit til þess að keppa. En það hvarflaði ekki að mér, fyrr en á leikun- um sem ég vann, að ég myndi vinna. Töfrar fara að gerast um leið og maður leggur sig allan í eitthvað, ekki smá, heldur allt,“ sagði Katrín Tanja sem leggur líf og sál í íþrótt- ina. „Ég geri ekkert annað. Ég tók mér frí frá skólanum og er ekki að þjálfa. Þetta er bara mín vinna og ég legg allt í þetta. Þá uppsker maður.“ ingvithor@frettabladid.is Erfiðustu tímarnir þeir bestu fyrir mig Katrín Tanja Davíðsdóttir, tvöfaldur heimsmeistari í Cross- Fit, segist hafa lært mikið af síðasta ári þar sem hún missti af heimsmeistaratitlinum. Hann ætlar hún að endurheimta. Laugardagur 12.20 Leicester - Cþ Palace Sport 14.25 Augsburg - Freiburg Sport 2 14.25 Stuttgart - Bayern Sport 3 14.55 Sunderland - Fulham Sport 16.20 Snæfell - Breiðablik Sport 3 17.00 Laugardagsmörkin Sport 17.15 Man. City - Tottenham Sport 17.25 Cardiff - Hull Sport 2 01.00 UFC: Lawler - D. Anjos Sport Frumsýningar leikja 17.15 Arsenal - Newcastle Sport 3 18.30 Watford - Huddersf. Sport 4 18.55 Chelsea - S’ton Sport 3 19.30 Stoke - West Ham Sport 2 19.35 Brighton - Burnley Sport Sunnudagur 14.05 WBA - Man. Utd. Sport 16.20 B’mouth - Liverpool Sport 17.45 Stjarnan - Grótta Sport 2 18.00 Panthers - Packers Sport 3 19.45 Stjarnan - Aftureld. Sport 2 20.30 Raptors - Kings Sport 21.05 Steelers - Patriots Sport 3 Domino’s-deild kvenna 16.30 Haukar - Skallagr. Ásvellir 16.30 Njarðvík - Keflavík Njarðvík 16.30 Snæfell - Breiðabl. Stykkish. 16.30 Stjarnan - Valur Ásgarður Olísdeild karla 16.00 ÍBV - Grótta Vestmannaeyjar 17.00 ÍR - Víkingur Austurberg 17.00 Valur - Fjölnir Valshöll 20.00 Stjarnan - Afture. TM Höllin 20.00 Selfoss - Fram Selfoss Olísdeild kvenna 13.30 ÍBV - Fram Vestmannaeyjaar 18.00 Selfoss - Fram Selfoss 18.00 Stjarnan - Grótta TM Höllin 20.00 Fjölnir - Valur Dalhús Í dag Ágúst Elí fEr til Króatíu Geir Sveinsson tilkynnti í gær hvaða sextán leikmenn skipa landsliðshóp Íslands sem fer á EM í Króatíu í janúar. Tveir stórmóts- nýliðar eru í hópnum, Ágúst Elí Björgvinsson, markvörður úr FH, og Ýmir Örn Gísla- son, línumaður úr Val. Ágúst Elí og Björgvin Páll Gústavsson skipa markvarðateymi Íslands á EM sem þýðir að hvorki Aron Rafn Eðvarðs- son né Hreiðar Levý Guðmundsson eru í hópnum að þessu sinni. Hópinn allan má sjá á Vísi en þar má einnig finna viðtöl við Geir og Ými Örn um landsliðshópinn sem fer til Króatíu. 1 6 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r24 s p o r t ∙ F r É t t A b L A ð i ð sport 1 6 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :1 7 F B 1 2 8 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 3 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 8 4 -3 B E 8 1 E 8 4 -3 A A C 1 E 8 4 -3 9 7 0 1 E 8 4 -3 8 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 2 8 s _ 1 5 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.