Fréttablaðið - 16.12.2017, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 16.12.2017, Blaðsíða 54
Við erum ekki aðeins með jóla- markað heldur líka með jólaskóg þar sem við bjóðum fólki að koma og höggva sitt eigið jólatré og vera skógarhöggs- maður í einn dag. Gestir fá afnot af sög, leiðbein- ingar frá skógarhöggs- mönnum og aðstoð við að pakka inn trjánum til að taka þau með heim. Í jólaskóginum kveikjum við varðeld og jólasveinninn kemur í heimsókn. Okkur finnst þetta vera indæl fjölskyldustund, þar sem allir fara saman út í náttúruna og finna sitt jólatré í rólegheitum. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@365.is Við leggjum mikið upp úr því að skapa ævintýraveröld þar sem fólki gefst tækifæri til að koma úr ys og þys borgarinnar og njóta kyrrðar úti í náttúrunni. Jólamarkaður Skógræktarfélagsins er á yndislegum stað við Elliða­ vatnsbæinn í Heiðmörk og þetta er síðasta helgin í ár sem hann er opinn. Við seljum jólatré, tröpputré og eldivið og erum með litla kaffistofu þar sem boðið er upp á menningardagskrá og ljúfa tónlist. Um helgina koma rithöf­ undarnir Unnur Jökulsdóttir og Kristín Eiríksdóttir og lesa upp úr bókum sínum,“ segir Gústaf Jarl Viðarsson, skógfræðingur hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur, sem síðustu vikur hefur höggvið ófá jólatré sem munu standa fallega skreytt á mörgum heimilum yfir jólahátíðina. „Báða dagana verður líf og fjör, jólasveinarnir verða á staðnum og það verður logandi varðeldur. Svo er barnastund í rjóðrinu, sem er einstaklega notaleg. Barna­ bókahöfundar koma og lesa fyrir börnin. Um helgina koma Gunnar Helgason og Sigrún Eldjárn og lesa úr sínum bókum,“ bætir Gústaf við. Fastur hluti af jóla­ undirbúningnum Skógræktarfélagið hefur staðið fyrir jólamarkaðnum í meira en áratug og segir Gústaf hann orðinn fastan lið á aðventunni hjá mörgum fjölskyldum. „Við erum líka með handverksmarkað þar sem lagt er upp með að vörunar séu einstakar úr náttúrulegum efnum og handunnar. Þar fæst líka eitt og annað matarkyns – beint frá býli. Með jólamarkaðnum fáum við tækifæri til að kynna félagsstarf­ semi Skógræktarfélags Reykjavíkur og það mikilvæga starf sem unnið er í Heiðmörk og Esjuhlíðum. Skóg­ ræktarfélag Reykjavíkur starfar ekki í hagnaðarskyni heldur er um að ræða frjáls félagasamtök svo allur ágóði af sölunni rennur beint til uppbyggingar útivistarskóga. Við gróðursetjum 50 tré fyrir hvert tré sem við seljum,“ upplýsir hann. Stafafuran vinsælust Inntur eftir því hvaða jólatré sé vinsælast segir Gústaf að stafa­ furan sé alltaf eftirsótt en það séu líka margir sem kjósi sitkagreni, blágreni, rauðgreni og jafnvel fjallaþin. „Við erum ekki aðeins með jólamarkað heldur líka með jólaskóg þar sem við bjóðum fólki að koma og höggva sitt eigið jólatré og vera skógarhöggsmaður í einn dag. Gestir fá afnot af sög, leiðbein­ ingar frá skógarhöggsmönnum og aðstoð við að pakka inn trjánum til að taka með heim. Að þessu sinni er jólaskógurinn inni í Almannadal á Hólmsheiði. Við skiptum um stað á hverju ári því það er ekki alltaf hægt að vera með jólaskóginn á sama stað. Það geta ekki öll trén í skóginum verið jólatré,“ segir hann brosandi. „Í jólaskóginum kveikjum við líka varðeld, jólasveinninn kemur í heimsókn, hægt er að kaupa heitt kakó og grilla sykurpúða. Okkur finnst þetta vera indæl fjölskyldu­ stund, þar sem allir fara saman út í náttúruna og finna sitt jólatré í rólegheitum.“ Hápunktur starfseminnar Jólamarkaðurinn og ­skógurinn er hápunkturinn í starfsemi Skóg­ ræktarfélags Reykjavíkur yfir vetrartímann en á sumrin eru haldnir skógarleikar þar sem keppt er í axarkasti og fleiri greinum sem tengjast skóginum. „Okkur hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur finnst mikilvægt að kynna skógar­ menningu fyrir fólki,“ segir Gústaf og bætir að lokum við að íslensku jólatrén séu sjálfbær, vistvæn, hafi ekki verið flutt á milli landa og skilji því ekki eftir sig kolefnisspor. Jólamarkaðurinn er opinn frá 12­17 og er ekið að Elliðavatns­ bænum hjá Rauðhólum. Jólaskógurinn er opinn frá 11-16 og leiðarlýsingu má finna á heima- síðunni www.heidmork.is Jólastemming í skóginum Gústaf Jarl Viðarsson skógfræðingur stendur vaktina um helgina á jólamarkaði Skógræktarfélags Reykjavíkur. Hann segir að fyrir hvert selt tré verði 50 tré gróðursett í staðinn. „Við leggjum mikið upp úr því að skapa ævintýraveröld þar sem fólki gefst tækifæri til að koma úr ys og þys borgar­ innar og njóta kyrrðar úti í náttúrunni,“ segir Gústaf Jarl skógfræðingur. MYND/ERNIR 20% AFSLÁTTUR AF YFIRHÖFNUM Í JÓLAPAKKANN HENNAR 10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . D E S E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 1 6 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :1 7 F B 1 2 8 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 8 4 -7 C 1 8 1 E 8 4 -7 A D C 1 E 8 4 -7 9 A 0 1 E 8 4 -7 8 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 2 8 s _ 1 5 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.