Fréttablaðið - 19.12.2017, Page 4
„... leiftrandi skemmtileg ...
djúp og hreyfir við lesandanum.“
KRISTÍN HEIÐA KRISTINSDÓTTIR / MORGUNBLAÐIÐ
„Þessi líflega og skemmtilega
saga er sérlega vel sögð.“
STEINGERÐUR STEINARSDÓTTIR / VIKAN
HÚMOR, HLÝJA
OG INNLIFUN
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–19 | laugardaga 11–19
Heilbrigðismál Í umsögn Félags
lífeindafræðinga um fjárlagafrum-
varp Bjarna Benediktssonar segir
að „fjöldi lífeindafræðinga“ hafi
nú þegar beðið skaða af störfum
sínum í rannsóknarhúsi sex og
sjö á Landspítalanum, þar sem
starfsstöð lífeindafræðinga hafi
um langa hríð verið til húsa. Í
umsögninni er tekið fram að það sé
gleðilegt og nauðsynlegt að Land-
spítalinn fái sérstakt framlag vegna
viðhalds vegna myglu. Viðgerðin
sé löngu tímabær og hún þoli ekki
bið. Húsið hafi verið dæmt ónýtt
vegna myglu.
„Fjöldi lífeindafræðinga hefur
nú þegar beðið skaða af störfum
sínum í húsnæðinu og er til
skammar að ríkið skuli ekki taka
ábyrgð á því tjóni sem starfsmenn
verða fyrir en mygla er hvorki skil-
greind sem atvinnusjúkdómur né
fá starfsmenn nokkrar bætur fyrir
það líkamstjón sem þeir hafa orðið
fyrir vegna starfa sinna í ónýtu hús-
næðinu,“ segir í umsögninni. Þar
kemur fram að sumir þeirra eigi
ekki afturkvæmt á vinnumarkað
vegna þessa.
Fram kemur að 151 lífeindafræð-
ingur starfi á Landspítalanum en að
stjórn félagsins hafi lengi haft áhyggj-
ur af nýliðun í stéttinni. Þar vegi
launamál þungt. „Einn þáttur í lítilli
nýliðun lífeindafræðinga á Landspít-
ala er lág launasetning félagsmanna
en skortur á fjármagni hefur helst
staðið í vegi fyrir því að nauðsyn-
legar úrbætur verði gerðar þar til að
laða að unga lífeindafræðinga sem fá
mun betri kjör á almennum vinnu-
markaði og eru auk þess eftirsóttir
fagmenn,“ segir í umsögninni. Vonir
félagsins standi til að hluti þessa 300
milljóna króna framlags til að efla
mönnun í sjúkrahúsþjónustu verði
nýtt til að bæta nýliðun lífeinda-
fræðinga á Landspítalanum.
Í umsöginni segir einnig að æski-
legt hefði verið að fjármunum hefði
einnig verið ráðstafað til að ráðast
í slíkt átak á öðrum vinnustöðum
lífeindafræðinga; á Sjúkrahúsinu á
Akureyri og heilbrigðisstofnunum
víða á landsbyggðinni. – bg
Lífeindafræðingar orðið fyrir líkamstjóni vegna myglu
Lífeindafræðingar á samstöðufundi
2012. Skort hefur á nýliðun í stétt-
inni. FréttabLaðið/GVa
sTJÓrNsÝslA Dómnefnd um hæfni
umsækjenda í starf héraðsdómara
hefur ekki skilað umsögn sinni varð-
andi átta stöður héraðsdómara sem
skipað verður í um áramót. Vonast er
til að umsögnin liggi fyrir í vikulok.
Alls sótti 41 um stöðurnar átta sem
lausar eru. Sjö stöður losnuðu eftir að
sjö héraðsdómarar voru skipaðir við
Landsrétt en hið nýja dómstig tekur til
starfa um áramótin.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis-
ráðherra er settur dómsmálaráðherra í
málinu en Sigríður Á. Andersen dóms-
málaráðherra vék sæti í því.
Borgar Þór Einarsson, aðstoðarmað-
ur utanríkisráðherra, segir að nefndin
hafi ekki skilað af sér. Umsækjendum
hafi verið gefinn kostur á að koma að
andmælum við frumálit nefndarinnar.
Vonast sé til þess að endanlegt mat
liggi fyrir áður en vikan er á enda enda
stutt þar til nýtt ár gengur í garð. – jóe
Hæfnisnefnd
enn ekki skilað
KJArAmál Staðan í kjaradeilu flug-
virkja og Icelandair var viðkvæm
þegar Fréttablaðið fór í prentun í
gærkvöldi. Fundur deiluaðila hjá
sáttasemjara hófst klukkan 16 í gær
og stóð enn yfir undir lok kvölds.
Þeir fundarmenn sem Fréttablaðið
heyrði í sögðu að brugðið gæti til
beggja vona en að menn hefðu fullan
hug á að reyna að ljúka málinu fyrir
dagrenningu.
Verkfall flugvirkja sem starfa hjá
Icelandair hefur nú staðið yfir í rúma
tvo sólarhringa. Sáttafundur í fyrri-
nótt reyndist árangurslaus en fundað
var til klukkan fjögur um nótt. Engin
formleg sáttatillaga hefur verið lögð
fram af hálfu aðstoðarsáttasemjara.
Yfirlýsing, þar sem slíkt var áréttað,
var birt á heimasíðu embættisins í
gær. Líkt og áður hefur komið fram
stóð sáttafundur enn yfir í gærkvöld
þegar Fréttablaðið fór í prentun.
Flugfreyjufélag Íslands sem og
Félag íslenskra atvinnuflugmanna
sendu Flugvirkjafélagi Íslands stuðn-
ingsyfirlýsingu. Hljóðið í þeim flug-
virkjum sem Fréttablaðið ræddi við
var þungt vegna verkfallsbrota og
óvæginnar umræðu í þeirra garð.
Sem stendur nær verkfallið aðeins
til véla Icelandair enda gerir Flug-
virkjafélagið sérstakan samning við
hvert og eitt flugfélag. Samningar
þess eru hins vegar flestir lausir um
þessar mundir. Deilu félagsins og
Icelandair var vísað til sáttasemjara
í september og þann 3. nóvember
var deilu þess og Air Atlanta vísað
þangað líka. Þá eru samningar flug-
virkja og WOW Air útrunnir og
standa samningaviðræður yfir þó
enn séu þær ekki komnar á borð
sáttasemjara. Þá er við þetta að bæta
að 16. október sl. var deilu Félags
íslenskra atvinnuflugmanna og
Icelandair vísað til embættis Ríkis-
sáttasemjara.
Flug Icelandair til og frá landinu
hefur raskast umtalsvert sökum
vinnustöðvunarinnar, meðal annars
var öllum flugferðum í gær til og frá
Ameríku aflýst og þúsundir farþega
hafa þurft að bíða klukkustundum
saman á Keflavíkurflugvelli til að
fá leyst úr brottfararflækju sinni.
Áætlað er að verkfallið hafi áhrif á
10 þúsund farþega dag hvern meðan
það stendur yfir.
Eitthvað hefur verið um afbókanir
hjá Icelandair vegna verkfallsins en
ekki liggur fyrir hvort það hafi skilað
sér til keppinauta félagsins.
„Það er háannatími í flugi rétt fyrir
jólin. Sætanýting okkar er vel yfir
níutíu prósent á flestum flugleiðum
á þessum árstíma,“ segir Svana Frið-
riksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW
Air.
„Við höfum séð að síðustu tvo
daga hafa bókanir aukist lítillega en
það er ekki mikið svigrúm til þess að
bæta farþegum við þar sem það er nú
þegar mikið bókað hjá félaginu. Við
vonum að verkfallið leysist sem fyrst
en þetta er mjög erfiður tími enda
háannatími,“ segir Svana.
johannoli@frettabladid.is
Funduðu fram eftir kvöldi til
að reyna að ná samkomulagi
Fundur í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair stóð langt fram á kvöld. Hljóðið í flugvirkjum fyrir fund var
þungt. Kjaradeilur fleiri stétta í fluggeiranum eru komnar á borð Ríkissáttasemjara og samningar víða
lausir. Áætlað að verkfallið hafi áhrif á 10 þúsund farþega daglega. Langar raðir mynduðust í Keflavík.
Fulltrúar icelandair og flugvirkja áður en fundur hófst í gær. Eftir það var fjölmiðlafólki vísað á dyr þar sem nærvera
þess þótti hafa truflandi áhrif á fundarhöld. Fundarmenn vörðust allra frétta af gangi mála. FréttabLaðið/aNtON briNK
DÓmsmál Sveinn Gestur Tryggvason
var í gær dæmdur til sex ára fangelsis-
vistar fyrir líkamsárás sem leiddi til
dauða Arnars Jónssonar Aspar.
Sveinn Gestur neitaði því alfarið
að hafa ráðist á Arnar að fyrra bragði
og sagði Jón Trausta bera ábyrgð á
mestum hluta áverkanna. Jón Trausti
neitaði sök.
Í skýrslu réttarmeinafræðings kom
fram að í blóði Arnars hefði fundist
mikið magn amfetamíns sem og þung-
lyndislyfsins bupropion, en styrkur
þess hafi verið við eitrunarmörk.
„Svo mikið magn þessa lyfs í blóði
þýði að viðkomandi einstaklingur eigi
á hættu að aukaverkanir lyfsins komi
fram en þar á meðal sé mikill æsingur
og æsingsóráð,“ segir í dómnum.
Í málinu lágu fyrir símaupplýsingar
sem sýndu að átökin hefðu staðið í að
minnsta kosti sjö mínútur. – hh
Átökin stóðu yfir
í sjö mínútur
1 9 . D e s e m b e r 2 0 1 7 Þ r i ð J U D A g U r4 f r é T T i r ∙ f r é T T A b l A ð i ð
1
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
9
-E
7
8
8
1
E
8
9
-E
6
4
C
1
E
8
9
-E
5
1
0
1
E
8
9
-E
3
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K