Fréttablaðið - 19.12.2017, Síða 10

Fréttablaðið - 19.12.2017, Síða 10
TAKTU ÞÁTT Í AÐ BYGGJA BRUNNA Í AFRÍKU ÞINN STUÐNINGUR GERIR KRAFTAVERK! SENDU HJÁLP NÚNA MEÐ ÞVÍ AÐ - greiða valgreiðslu í heimabanka – 2500 kr. - hringja í söfnunarsíma 907 2003 – 2500 kr. - leggja til framlag á framlag.is - gefa gjafabréf á gjofsemgefur.is - leggja inn á söfnunarreikning okkar 0334-26-50886, kt. 450670-0499 PIPAR\TBW A - SÍA - 165297 Jólaklementínur 399 KR/KS Verð áður 599 KR/KS Bouquet Klementínur 2,3 kg 173 KR/KG Viðskipti Aukinn áhugi stórra alþjóðlegra fjárfesta á að fjárfesta í jarðvarmaverkefnum getur skapað mikil tækifæri fyrir Íslendinga, að mati Gísla Haukssonar, stjórnar- formanns GAMMA. Einn þekktasti fjárfestir í heimi, Bill Gates, hefur stofnað sjóð sem mun fjárfesta í slíkum verkefnum. „Notkun jarðvarma á heimsvísu er undir einu prósenti af orku sem við notum, þrátt fyrir vitneskju um mikla nýtanlega jarðvarmaorku víðs vegar um heiminn. Ástæðan fyrir þessu lága nýtingarhlutfalli er tvíþætt; annars vegar voru fram- farir í bortækni, að geta borað nógu djúpt, hægfara en mikil breyting er að verða þar á nú. Hins vegar er meiri óvissa á undirbúningsstigi þegar verið er að leita að nýtanleg- um jarðvarma samanborið við aðra orkukosti. Margar dýrar tilrauna- boranir þarf til að finna orkuna en þegar hún finnst er nýting hennar hlutfallslega ódýrari en aðrir orku- kostir, og stöðug,“ segir Gísli. „Um leið og þú veist að það er nýtanlegt heitt vatn og gufa sem getur knúið túrbínu eða hitað hús dregur hratt úr áhættu verk- efnisins. Óvissan er mest á fyrsta Áhugi fjárfesta á að nýta jarðvarma eykst Bill Gates, einn þekktasti fjárfestir í heimi, er byrjaður að fjárfesta í jarðvarma- verkefnum. Íslenskur fjárfestir telur áhugann á slíkri fjárfestingu eiga eftir að aukast. Helstu vísindamenn og verkfræðingar á sviðinu eru Íslendingar. stiginu,“ segir Gísli til útskýringar. Hann segir að á allra síðustu árum hafi stórir alþjóðlegir sjóðir, sem eru yfirleitt með einum eða öðrum hætti fjármagnaðir af hinu opin- bera, komið að rannsóknum á jarðhitasvæðum á fyrstu stigum. Þetta séu áhættusamar fjárfest- ingar. Það hafi mikla þýðingu að Bill Gates sé farinn að fjárfesta á þessu sviði, því reynslan sýni að aðrir öflugir fjárfestar feti jafnan í fótspor hans. „Þegar fjármögnun rannsókna á þessu sviði er ekki bara á hendi opinberra stofnana heldur jafn- framt fjársterkra einkaaðila opnast tækifæri fyrir hefðbundna fjárfesta, lífeyrissjóði, tryggingafélög og aðra til að fjárfesta í jarðvarmaverkefn- um,“ segir Gísli. Þessi áherslubreyt- ing feli í sér að draga úr áhættu í þessum fjárfestingum. Gísli bendir á að því hafi verið spáð að eftir tíu ár verði jarðvarminn jafn mikið nýttur og sólarorkan er í dag. Þetta hafi mikla þýðingu fyrir Ísland. „Heimurinn er í fyrsta lagi að átta sig betur á mikilvægi jarðvarma í aukinni nýtingu endurnýjan- legrar orku í framtíðinni og hversu hagkvæm tæknin er. En ekki nóg með það heldur eru margir helstu vísindamenn og verkfræðingar í jarðvarmatækni Íslendingar, sem annaðhvort starfa á Íslandi eða fyrir íslensk fyrirtæki erlendis. Íslendingar eru mjög framarlega í þessum geira,“ segir hann. jonhakon@frettabladid.is Fjármagna tilraunaboranir í Suður-Ameríku GAMMA Capital Management er í samstarfi á sviði jarðvarma­ fjárfestinga við Interlink Capital Strategies, bandarískt ráðgjafar­ fyrirtæki sem sérhæfir sig í fjármögnun og viðskiptaþróun í nýmarkaðsríkjum. Samstarfið felur í sér rekstur þróunarsjóðsins Geothermal Development Facility, sem veitir styrki til jarðvarmaverkefna í Suður­Ameríku. Sjóðurinn er að mestu fjármagnaður af þýska þróunarbankanum KfW í sam­ starfi við Evrópusambandið. Markmið sjóðsins er að fjár­ magna yfirborðskönnun og til­ raunaboranir í Suður­Ameríku. Gísli Hauksson forstjóri Gamma, segir miklu máli skipta að Bill Gates sé farinn að fjárfesta í jarðvarmaverkefnum. Aðrir muni fylgja á eftir. FréttABlAðið/GVA fræðslumál Nemendur 5. til 10. bekkjar og allir kenn- arar í Grunnskólanum á Þórshöfn fá spjaldtölvur frá Langanesbyggð samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar Langanesbyggðar. „Einnig verði unnið að fræðslu kennara í möguleik- um er varða tölvur, forrit, fjar- vinnu og annað sem spjald- tölvunotkun tilheyrir,“ segir í tillögunni sem samþykkt var. Bæta á fjórum milljónum króna við fjárhagsáætlun grunnskólans fyrir næsta ár vegna þessa. „Formleg innleiðing skal hefjast svo fljótt sem verða má, en ekki síðar en haustið 2018.“ – gar Spjaldtölvuvæðing á Þórshöfn Innleiðing hefst ekki síðar en haustið 2018. fjárlög „Rekstrarfé til Markaðs- stofanna verður 91 milljón en ekki 80 eins og stendur í fjárlagafrum- varpinu nú. Annað stóð aldrei til og markaðsstofum landshlutanna því tryggt þetta fjármagn,“ segir Elías Gíslason ferðamálastjóri. Fréttablaðið sagði frá því í gær að breyting hefði orðið í fjárlagafrum- varpi Bjarna Benediktssonar frá frumvarpi Benedikts Jóhannessonar á þá leið að fé til markaðsstofa lands- hlutanna í ferðaþjónustu færi úr 91 milljón niður í 80 milljónir. Ljóst er að þær breytingar eru ekki réttar og verður þessu kippt í liðinn fyrir aðra umræðu fjárlaga í þinginu. „Það sem meira er, að þarna er verið að semja til þriggja ára svo markaðsstofurnar eru að fá um 160 milljónir króna árlega frá okkur og hinu opinbera þannig að hér er um verulega aukningu að ræða. Það fara allir glaðir frá borði og rekstrar- grundvöllur markaðsstofanna styrk- ist verulega frá því sem nú er,“ segir Elías. Markaðsstofur landshlutanna vinna náið með fyrirtækjum og sveitarfélögum í því að markaðs- setja sín svæði sem ákjósanleg ferðaþjónustusvæði. Mikilvægt er að margra mati að auka veg ferða- þjónustunnar um allt land og dreifa ferðamönnum sem víðast til að nýta þær fjárfestingar sem til eru á landsbyggðinni til ferðaþjónustu. Því er hér um mikilvægt skref að ræða til að efla markaðsstofurnar enn frekar. – sa Markaðsstofum tryggt stóraukið fé í fjárlögum 91 milljón mun stofnunin fá samkvæmt frumvarpi til fjárlaga. 1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 Þ r i ð j u d A g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð 1 9 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :4 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 8 9 -E 2 9 8 1 E 8 9 -E 1 5 C 1 E 8 9 -E 0 2 0 1 E 8 9 -D E E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.