Fréttablaðið - 19.12.2017, Síða 12

Fréttablaðið - 19.12.2017, Síða 12
Austu r r í ki Samsteypustjórn Frelsisflokksins og Þjóðarflokksins í Austur ríki tók við völdum í gær. Hinn 31 árs gamli Sebastian Kurz er því orðinn kanslari og þar með yngsti þjóðarleiðtogi álfunnar, og þótt víðar væri leitað. Á dagskrá hinnar nýju stjórnar er meðal ann- ars að herða útlendingalöggjöf. Þjóðarflokkurinn fékk flest atkvæði í nýafstöðnum kosningum og uppskar 62 þingsæti af 183. Því er Kurz, formaður flokksins, í forsvari fyrir hina nýju ríkisstjórn. Frelsis- flokkurinn undir forystu Heinz- Christian Strache, fékk hins vegar 51 sæti og því hafa flokkarnir ríflegan meirihluta á þinginu saman. Ríkisstjórnin hafði þó ekki verið sekúndu við völd áður en fyrstu mótmælin gegn henni hófust. Stjórnarandstæðingar höfðu fylkt liði fyrir utan Hofburg-höllina í Vín og létu vel í sér heyra á meðan ríkis- stjórn Kurz tók við. Um 6.000 mót- mælendur voru á svæðinu og var fyrirhuguðum breytingum á útlend- ingalöggjöf sem og umdeildri sögu Frelsisflokksins mótmælt. Báðir eru flokkarnir þjóðernis- hyggjuflokkar en Kurz beitti þeirri hugmyndafræði óspart í kosninga- baráttunni fyrr á árinu. Þótti Frelsis- flokksmönnum hann til að mynda vera að stela stefnumálum sínum. Frelsisflokkurinn er mun rótgrónari í þjóðernishyggju sinni en fyrsti leið- togi flokksins, Anton Reinthaller, var landbúnaðarráðherra nasista og SS-liði. Þá var flokkurinn einnig stofnaður af nasistum. Tengingin við nasisma innan Frelsisflokksins dó þó ekki út með Reinthaller, langt í frá. Jörg Haider, sem tók við formannssætinu 1986, sagði til að mynda í kosningabarátt- unni árið 1990 að ýmislegt hefði verið með ágætum í Þýskalandi nas- ismans, til að mynda atvinnumálin. Frelsisflokkurinn hefur einu sinni áður verið í ríkisstjórn. Það var árið 2000. Voru viðbrögð alþjóðasam- félagsins þá harkaleg og greinir BBC frá því að Austurríkismenn hafi upp- lifað sig einangraða í Evrópu. Við- brögðin nú séu hins vegar daufari. Á meðal þess sem ríkisstjórn Kurz ætlar að beita sér fyrir er að við komu hælisleitenda til Austur- ríkis verði allt fé tekið af þeim við hælisumsóknina svo hægt sé að fjármagna aðstoð til þeirra. Einnig verða símar hælisleitenda og flótta- manna teknir af þeim svo hægt sé að rekja ferðir þeirra til Austurríkis og hverja þeir hafi átt í samskiptum við. Símarnir verði ekki gerðir varan- lega upptækir heldur skoðaðir með reglulegu millibili. Trúnaðarskylda lækna gagnvart flóttamönnum verður einnig tak- mörkuð. Þá verður mökum flótta- manna sem eiga í fjölkvænis- eða þvinguðu hjónabandi ekki heimilt að koma til Austurríkis. „Flóttamenn sem hafa hvorki unnið stakan vinnudag né greitt til velferðarkerfisins munu ekki lengur fá þúsundir evra í bætur. Við þetta loforð sitt hefur Frelsisflokkurinn staðið,“ sagði Strache á Facebook í gær. Tveir af valdamestu ráðherra- stólum ríkisstjórnarinnar féllu Frelsisflokknum í skaut. Þannig verður Herbert Kickl, sem var ræðu- höfundur fyrir Jörg Haider, innan- ríkisráðherra og hin átttyngda Karin Kneissl, fyrrverandi starfsmaður utanríkisráðuneytisins, verður utan- ríkisráðherra. thorgnyr@frettabladid.is Hert útlendingalöggjöf efst á dagskrá nýrrar ríkisstjórnar Sebastian Kurz er orðinn kanslari Austurríkis. Þjóðernishyggjuflokkar í ríkisstjórn. Annar þeirra stofnaður af nasistum. Hörð mótmæli voru fyrir utan Hofburg-höll á meðan ríkisstjórnin tók við völdum. Á dagskrá er að herða reglur um móttöku flóttafólks og hælisleitenda. Flokkarnir hafa ríflegan meirihluta á þinginu. Sebastian Kurz og Heinz-Christian Strache í Hofburg-höll í gær. NordiCpHotoS/AFp EþíópíA Að minnsta kosti 61 hefur látist í átökum Sómala og Oroma- fólks í Eþíópíu. Frá þessu greindu þarlend yfirvöld í gær en óljóst er hvað veldur þessari nýju hrinu átaka þjóðflokkanna. Reuters greindi frá því í gær að átökin hefðu brotist út þegar hermenn skutu sextán úr þjóð- flokki Oroma-fólks til bana við mótmæli á þriðjudaginn í síðustu viku. Adisu Arega, ríkisstjóri Oro- miu í Eþíópíu, sagði á Facebook í gær að alls 29 Oromar hefðu verið drepnir á milli 14. og 17. desember í átökum og 32 Sómalar hefðu verið drepnir í hefndarskyni. Héruð Oroma-fólks og Sómala í Eþíópíu liggja hlið við hlið. Í gegnum tíðina hafa átök þjóð- flokkanna verið tíð og segir BBC að einkum hafi verið barist um beitiland. – þea Tugir látist í hörðum átökum þjóðflokka BAndAríkin Að minnsta kosti fjórir öldungadeildarþingmenn Demó- krata í Bandaríkjunum hafa hvatt Al Franken, fráfarandi öldungadeildar- þingmann, til að draga afsögn sína til baka. Tvær vikur eru liðnar frá því að Franken tilkynnti um afsögn sína eftir að hann hafði gengist við ásök- unum um kynferðislega áreitni. Frá þessu greindi Politico í gær. Joe Manchin, samflokksmaður Frankens, hefur verið einna hávær- astur um málið. Í viðtali við Politico í gær sagði hann framkomu Demó- krata í garð Frankens hneykslan- lega. „Þetta er mesta hræsni sem ég hef séð nokkurn sýna annarri manneskju. Að hafa það í sér að sitja og hlusta á hann tilkynna um afsögnina og fara svo til hans og faðma hann. Mér verður illt af því að hugsa um þetta,“ sagði Manchin. Sagði Manchin enn fremur að Franken sjálfur hefði viljað undir- gangast rannsókn siðanefndar og taka svo ákvörðun byggða á niður- stöðunni. Við það ætti hann að standa, óháð þrýstingi frá öðrum Demókrötum. – þea Vilja ekki að Franken segi af sér Al Franken. NordiCpHotoS/Getty 61 hið minnsta hefur látist í átökum á milli Sómala og Oroma-fólks. Selá er enn ein perlan í bókaflokknum um laxveiðiár á Íslandi. Hérna er í fyrsta sinn fjallað um Selá, og veiðisvæðinu lýst á einstaklega skemmtilegan og aðgengilegan hátt. Bókin er ómissandi viðbót í flokknum um veiði sem Litróf hefur staðið að á metnaðafullan hátt. Bókina prýðir fjöldinn allur af vönduðum ljósmyndum sem varpa ljósi á stórkostlegt umhverfi Vopnafjarðar ásamt kortum af veiðisvæðinu. Bókin Selá er langþráð viðbót í safnið um laxveiðibækur. Fæst í öllum helstu bókaverslunum. SELÁ Í VOPNA- FIRÐI VEIÐIPERLAN SELÁ Sími 563 6000 • www.litrof.is Flóttamenn sem hafa hvorki unnið stakan vinnudag né greitt til velferðarkerfisins munu ekki lengur fá þúsundir evra í bætur. Heinz-Christian Strache, formaður Frelsisflokksins 1 9 . d E s E m B E r 2 0 1 7 þ r i Ð J u d A G u r12 f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A Ð i Ð 1 9 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :4 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 8 9 -C E D 8 1 E 8 9 -C D 9 C 1 E 8 9 -C C 6 0 1 E 8 9 -C B 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.