Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.12.2017, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 19.12.2017, Qupperneq 14
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Aukið frelsi, betri möguleikar til að ráða lífi sínu, stóraukin tækifæri til sjálfstæðs lífs og til virkrar þátttöku í samfélaginu, þetta eru þau einkunnarorð sem fatlað fólk sem reynt hefur, gefur NPA-þjónustuforminu, þ.e. notendastýrðri persónu- legri aðstoð. Í ljósi þess hve NPA skiptir fatlað fólk miklu máli og hve lengi fólk hefur beðið þess að NPA verði hluti af sjálfsagðri þjónustu við fatlaða sem uppfylla skil- yrði til að njóta hennar er það afar ánægjulegt fyrir mig að fyrstu frumvörp mín sem ráðherra félags- mála snúa einmitt að þessu. Um nýliðna helgi lagði ég fram á Alþingi frumvarp til nýrra heildarlaga sem kveða á um þjónustu við fatlað fólk sem þarf á miklum stuðningi að halda og frumvarp um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir að lögfesting NPA á grundvelli þessara frumvarpa geti tekið gildi um mitt næsta ár. Til að brúa bilið lagði ég einnig fram frumvörp sem eiga að tryggja að unnt verði að veita NPA-þjónustu á grundvelli samninga fram að gildistöku heildarlaganna. Áherslan á NPA birtist einnig í fjárlagafrumvarpinu þar sem framlög til þjónustunnar eru aukin um 70 milljónir króna sem gerir kleift að fjölga samningum úr 55 á þessu ári í 80 samninga árið 2018. Þessi frumvörp eru nú komin til umfjöllunar í velferðarnefnd Alþingis. Þar er ég viss um að nefndarmenn taki höndum saman um að leiða þetta mikilvæga mál til lykta, hratt og örugglega í góðu samstarfi við helstu hagsmunaaðila og þvert á stjórnmálaflokka. Þetta er ekki aðeins mikilvægt hagsmunamál fatlaðs fólks, þetta er mál sem snýst um mannréttindi og að við sýnum í verki vilja okkar til að stuðla að jöfnum tækifærum fatlaðs fólks og ófatlaðra í samfélaginu eins og kostur er. Langþráður áfangi í þjónustu við fatlað fólk í augsýn Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismála- ráðherra Þetta er ekki aðeins mikilvægt hagsmuna­ mál fatlaðs fólks, þetta er mál sem snýst um mann­ réttindi. Jólin Veðurstofan spáir góðum líkum á hvítum jólum hér á landi. Frá því var greint í gær. En ekki er víst að allir komist til lands­ ins til að fagna jólunum með fjölskyldunni í tæka tíð vegna verkfalls flugvirkja hjá Ice­ landair. Þegar þetta var skrifað virtist að minnsta kosti ekkert benda til þess að það drægi saman með samningsaðilum. Verkföll eru rótgróið verkfæri vinnandi fólks til að berjast fyrir bættum kjörum og oftar en ekki hafa landsmenn samúð með þeim stéttum sem því verkfæri beita. Sú virðist ekki raunin nú, enda verkfallið á versta tíma. „Trúi því ekki að þið séuð að fara að eyðileggja jólin okkar,“ stóð í einum ummælum við frétt Vísis frá því í gær. Ofbeldi Fréttablaðið greindi frá því í gær að sveitarstjórar á Vest­ fjörðum fögnuðu umræðu um kynbundið ofbeldi. Það þykir þeim sem hér heldur um penna gott viðhorf. Það er nauð­ synlegt að horfast í augu við vandamálin í stað þess að líta fram hjá þeim. Vonandi mun #MeToo bylting hugrakkra kvenna verða til þess að útrýma því samfélagsmeini sem kyn­ bundið ofbeldi og kynferðisleg áreitni er. thorgnyr@frettabladid.is Ef ein stétt á rétt 20 prósenta launahækkun á einu bretti er greinilegt að Icelandair, sem greiðir launin, hefur látið reka á reiðanum – nema kröfur flugvirkja séu út úr kortinu. CELY PC-50 talningavog Áður 57.109,- NÚ 45.688,- gæði – þekking – þjónusta Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is TALNINGAVOGIR Mikið úrval af talningavogum, sem einfalda talningu á smáhlutum FÆRIBANDAVOGIR - RANNSÓKNAVOGIR - IÐNAÐARVOGIR - SMÁVOGIR VERÐÚTREIKNINGSVOGIR - FITUMÆLINGAVOGIR - KRÓKAVOGIR BAÐVOGIR - BARNAVOGIR - GÓLFVOGIR - LÍMMIÐAVOGIR GOTT VERÐ Verkfall flugvirkja hjá Icelandair hefur nú þegar raskað áætlunum þúsunda farþega og tugum ferða hefur verið aflýst. Örtröð hefur skapast hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli, þar sem örþreyttir ferðalangar hafa reynt að fá úrlausn. Gríðarlegt álag hefur verið á þjónustuveri flug- félagsins vegna innhringinga frá farþegum. Kvört- unum hefur rignt inn á samfélagsmiðla fyrirtækisins. Um tíma var álagið svo mikið að símkerfið lá niðri. Ferðamenn hafa eins og gefur að skilja borið sig illa undan skorti á upplýsingum. Sumir hafa talað um hreina vanrækslu. Verð hlutabréfa í Icelandair lækkaði um tvö pró- sent í gær. Skyldi engan undra í ljósi ringulreiðar síðustu tveggja daga. Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, hefur miklar áhyggjur af stöð- unni, eins og fram kom á Bylgjunni í gær. Hún segir óþolandi að svona verkföll eigi sér stað á nokkurra mánaða fresti. Hún benti á, að undanfarin sjö ár hefði fjórtán sinnum verið boðað til verkfalla, sem tengjast flugi til og frá landinu. Að meðaltali hefur því verið boðað til verkfalls á þessum sjö árum á sex mánaða fresti. Flugvirkjar hafa frá árinu 2009 boðað til verkfalls að meðaltali á eins og hálfs árs fresti. Verkfall, eins og þetta, er ekki einkamál þeirra sem deila. Það hefur keðjuverkandi áhrif út um sam- félagið. Traust glatast og orðspor lands og þjóðar bíður hnekki. Fjöldi fólks, sem ekkert hefur um deiluna að segja, bíður fjárhagslegt tjón. Ferðaþjónustan er burðarás í efnahagslífinu. Árið 2015 komu hingað til lands um 1,3 milljónir ferða- manna, sem var um 30 prósenta fjölgun frá árinu áður. Í fyrra voru ferðamennirnir um 1,8 milljónir, um 40 prósenta fjölgun frá fyrra ári. Og í ár er reiknað með að ferðamennirnir verði rúmlega tvær milljónir. Alda- mótaárið komu hingað um 300 þúsund ferðamenn. Talan hefur um það bil sjöfaldast frá aldamótum. Gjaldeyristekjur af ferðaþjónustunni á síðasta ári voru tæpir 500 milljarðar króna eða nálægt einum og hálfum milljarði á dag. Þá eru ónefnd alls konar óbein áhrif. Þetta snýst ekki bara um peninga heldur öryggi fólksins – samgöngur til og frá eyríki sem er gersam- lega háð því að fólk komist hnökralaust landa á milli. Ef ein stétt á rétt á 20 prósenta launahækkun á einu bretti er greinilegt að Icelandair, sem greiðir launin, hefur látið reka á reiðanum – nema kröfur flugvirkja séu út úr kortinu. Hér er ekki dómur lagður á það því sjaldan liggur sökin bara hjá öðrum deiluaðilanum. En stór stökk hafa áhrif á allan launamarkaðinn og geta kallað yfir okkur kollsteypur. Tal um að umsamdar launahækkanir á almenna markaðnum á næsta ári verði þrjú prósent hljómar afar óraunsætt í þessu ljósi. Það er nauðsynlegt að tryggja hér stöðugt rekstrar- umhverfi til lengri tíma. Ljóst er, að vinnustaða- líkanið, sem unnið er eftir, gengur ekki upp. Flug lækkað 1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U d A G U r14 s k o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð SKOÐUN 1 9 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :4 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 8 9 -D D A 8 1 E 8 9 -D C 6 C 1 E 8 9 -D B 3 0 1 E 8 9 -D 9 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.