Fréttablaðið - 19.12.2017, Side 15
Ég vil ekki gera lítið úr árangri starfsmanna Google og forrits þeirra Alpha Zero sem, að
þeirra sögn, kenndi sjálfu sér að
tefla í fjóra tíma og rústaði svo besta
skákforriti heims. Liðið hjá Google
var örugglega að gera eitthvað
sniðugt. Markaðnum fannst það
allavega sniðugt og hlutabréf fyrir-
tækisins tóku góðan kipp í kjölfarið.
Þótt það sé vissulega frískandi að
sjá PR-herferðir stórfyrirtækja vera
drifnar áfram af árangri í nörda-
skap þá má ekki gleyma því þetta er
samt PR-herferð. Og ekki sú fyrsta
þar sem notast er við skák. Fyrir 20
árum sigraði tölvan „Deep Blue“
frá IBM Garrí Kasparov í sex skáka
einvígi með 3,5 vinningum gegn 2,5.
Kasparov vildi annað einvígi en IBM
teymið sagði „Nei, takk!“. Þeirra
afskiptum af skák var lokið, frekari
þróun var hætt og tölvan send í
sveit. Takmarkinu var náð.
Fjórir tímar af sjálfsnámi
Rifjum aðeins upp opinberu
útgáfuna: Alpha Zero, forrit á vegum
Google fyrirtækisins, fékk að vita
reglurnar í skák, tefldi við sjálft sig í
fjóra klukkutíma og vann í kjölfarið
sterkasta skákforritið hingað til,
Stockfish 8, í hundrað skáka einvígi.
Alpha Zero vann 28 skákir, gerði 72
jafntefli og tapaði engri.
Flestir fjölmiðlar heimsins, stórir
sem smáir, hafa endurbirt þessa
frétt, eða öllu heldur fréttatilkynn-
ingu, nokkuð gagnrýnislítið. En án
þess að maður geri lítið úr árangri
starfsmanna Google þá þarf lík-
legast að setja þó nokkrar fótnótur
á frásögnina til að allrar sanngirni
sé gætt.
Byrjum til dæmis á þessu með
að tölvan hafi teflt við sjálfa sig í
einungis fjóra klukkutíma. Þetta
eru fjórir klukkutímar á einhvers
konar ofurtölvuneti, vélbúnaði
sem Google ræður yfir og fáir
aðrir. Tíminn sem sambærilegir
útreikningar tækju á venjulegri far-
tölvu hleypur vafalaust á vikum eða
mánuðum, ef ekki árum. En þetta er
grípandi: Fjórir klukkutímar. Fólk
man svoleiðis.
Ójafnt einvígi
Einn af höfundum Stockfish, Tord
Rom stad, benti á nokkur atriði í
tengslum við „einvígið“. Ekki hefði
verið notuð nýjasta útgáfa af Stock-
fish, sumt í uppsetningunni hefði
hugsanlega komið niður á spilagetu
forritsins og tímareglurnar hefðu
verið fremur furðulegar. Skákirnar
hundrað voru tefldar þannig að
mínúta var gefin á hvern leik. Með
því nýttist ekki sú vinna sem lögð
hefur verið í tímastjórnunarkerfi
forritsins.
Það að gefa eina mínútu á leik
er fremur óhefðbundin nálgun í
keppnisskák. En hún hentar vel í
samhliða reikningum. Þannig geta
margir örgjörvar reiknað hver sinn
hluta í leikjatrénu og „gefið skýrslu“
eftir 59 sekúndur, áður en besti
leikurinn er valinn. Aftur, árangur
Google er alveg merkilegur, en það
verður ekki endilega sagt að þeir
hafi unnið andstæðinginn í sinni
sterkustu mynd, og á jafnréttis-
grundvelli.
Það eru til vefsíður sem halda
utan um gæði ólíkra skákforrita,
etja þeim saman í skákum oft á dag
og birta niðurstöðurnar. Þá er auð-
vitað reynt að gæta þess að forritin
hafi úr jafnmiklu minni og reikni-
getu að moða. Ekki er hægt að setja
Ofurtölva buffar fartölvu
Pawel
Bartoszek
Í dag Alpha Zero inn í þann samanburð
enda forritið engum aðgengilegt og
keyrir á sérstökum vélbúnaði. En
auðvitað er aðalpælingin hjá Google
ekki að búa til heimsins besta skák-
forrit. Markmiðið er að búa til þá
ímynd að fyrirtækið hafi náð lengra
en aðrir í gervigreind. Í von um að
sölumenn þess geti hringt eftir-
farandi símtöl:
Sölumaður Google hringir í for-
stjóra.
„Halló, er þetta forstjóri stórfyrir-
tækis?“
„Já.“
„Ég heiti Daníel og er sölumaður
hjá Google. Hefurðu heyrt um
Alpha Zero forritið?“
„Já! Þetta sem kenndi sjálfu sér
skák, tefldi við sjálft sig í fjóra tíma
og dró svo besta skákforrit í heimi
sundur og saman í háði? Að sjálf-
sögðu! Ég er búinn að horfa á þessar
skákir á YouTube. Þvílík snilld!“
„Einmitt, og nú hefurðu dottið
í lukkupottinn! Okkur langar að
bjóða þér að taka þátt í smá verkefni
með okkur. Okkur datt í hug að nota
hugbúnaðinn bak við Alpha Zero
til að kíkja á gögnin þín og segja þér
hvernig þú getur selt meiri ís / bíla
/ líftryggingar / bensín / offitulyf /
hvað það nú er sem þú selur.“
„Snilld. Tvær spurningar: Hvað
kostar þetta og hvert á ég að senda
peninginn?“
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
ALLA DAGA TIL JÓLA
OPIÐ10-19
WPB2500 DB100 GSC100
14.990 12.990 23.9908” MYNDARAMMIRollei Degas DPF-800 digital myndarammi
T-65 X-WING
Vertu meðlimur í and-
spyrnunni og fljúgðu
þessum einstaka safn-
grip í Laser-Tag orustu
SPEEDER BIKE
Einn flottasti Laser-Tag
dróninn með hand-
máluðum klón á hröðum
og liprum flug dróna
HLEÐSLU VESKI
Leðurveski með innbyggðri rafhlöðu
6.990
DISKÓ PERA
Jólaballið verður alvöru í ár :)
1.990
VÍSINDA KANNA
Flott fyrir jólaglöggið eða bara kakó
1.990
SNES CLASSIC MINI
Mini Super Nintendo með
20 innbyggðum leikjum
TIE ADVANCED
Nú getur þú loksins
flogið um í háþróaðri
stjörnu-orustu-flaug
Svarthöfða til sigurs!
Sjálfvirk
Árekstrar
vörn
Næsta
Kynslóð
LI-FI
Einstök
Spaða
Tækni
Allt að
50km
hraði
19.990
74-Z Speeder Bike
Star Wars dróni
19.990
Tie Advanced X1
Star Wars dróni
19.990
T-65 X-Wing
Star Wars dróni
Sem nötrar þegar dróni er
skotinn, hljóð effectar og
Star Wars tónlist, festing
fyrir síma með Appi fyrir Android eða IOS.
MÖGNUÐFJARSTÝRING
Star Wars drónar með Laser keppnisham • Númeraðir og handmálaðir safngripir
Hægt að nota inni eða úti í byrjenda og keppnisham • Sjálfvirkt flugtak og lending
6-Ása stöðuleikatækni • 360° áhættu hreyfing • Allt að 50km hraði á 3 sekúndum
VERÐ ÁÐ
UR
29.990
JÓLA
TILBOÐ
MIGHTY SPOTIFY SPILARI
Mighty spilar tónlistina þína
af Spotify án snjallsíma
MYNDARAMMAR
VERÐ FRÁ 9.990
Allt að 1.000 lög
5 tíma hleðsla
MIGHTY AUDIO SPILARINN
LOKSINSKOMINN
Sjá myndband hér!
Twitch01
TW!TCH KUBBUR
12 hliða fikt kubbur með fjölda möguleika
2.990
FLIX
FLIX SPINNER
Flott fiktisnerla slær á jólastressið
490
JÓLI MÆLIR MEÐ
HEITUSTU PAKKARNIR Í ÁR AÐ MATI JÓLA;)
19. desem
ber 2017 • B
irt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabrengl
En auðvitað er aðalpælingin
hjá Google ekki að búa til
heimsins besta skákforrit.
Markmiðið er að búa til þá
ímynd að fyrirtækið hafi náð
lengra en aðrir í gervigreind.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15Þ R i ð J u d a g u R 1 9 . d e S e m B e R 2 0 1 7
1
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
8
9
-E
C
7
8
1
E
8
9
-E
B
3
C
1
E
8
9
-E
A
0
0
1
E
8
9
-E
8
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K