Fréttablaðið - 19.12.2017, Page 15

Fréttablaðið - 19.12.2017, Page 15
Ég vil ekki gera lítið úr árangri starfsmanna Google og forrits þeirra Alpha Zero sem, að þeirra sögn, kenndi sjálfu sér að tefla í fjóra tíma og rústaði svo besta skákforriti heims. Liðið hjá Google var örugglega að gera eitthvað sniðugt. Markaðnum fannst það allavega sniðugt og hlutabréf fyrir- tækisins tóku góðan kipp í kjölfarið. Þótt það sé vissulega frískandi að sjá PR-herferðir stórfyrirtækja vera drifnar áfram af árangri í nörda- skap þá má ekki gleyma því þetta er samt PR-herferð. Og ekki sú fyrsta þar sem notast er við skák. Fyrir 20 árum sigraði tölvan „Deep Blue“ frá IBM Garrí Kasparov í sex skáka einvígi með 3,5 vinningum gegn 2,5. Kasparov vildi annað einvígi en IBM teymið sagði „Nei, takk!“. Þeirra afskiptum af skák var lokið, frekari þróun var hætt og tölvan send í sveit. Takmarkinu var náð. Fjórir tímar af sjálfsnámi Rifjum aðeins upp opinberu útgáfuna: Alpha Zero, forrit á vegum Google fyrirtækisins, fékk að vita reglurnar í skák, tefldi við sjálft sig í fjóra klukkutíma og vann í kjölfarið sterkasta skákforritið hingað til, Stockfish 8, í hundrað skáka einvígi. Alpha Zero vann 28 skákir, gerði 72 jafntefli og tapaði engri. Flestir fjölmiðlar heimsins, stórir sem smáir, hafa endurbirt þessa frétt, eða öllu heldur fréttatilkynn- ingu, nokkuð gagnrýnislítið. En án þess að maður geri lítið úr árangri starfsmanna Google þá þarf lík- legast að setja þó nokkrar fótnótur á frásögnina til að allrar sanngirni sé gætt. Byrjum til dæmis á þessu með að tölvan hafi teflt við sjálfa sig í einungis fjóra klukkutíma. Þetta eru fjórir klukkutímar á einhvers konar ofurtölvuneti, vélbúnaði sem Google ræður yfir og fáir aðrir. Tíminn sem sambærilegir útreikningar tækju á venjulegri far- tölvu hleypur vafalaust á vikum eða mánuðum, ef ekki árum. En þetta er grípandi: Fjórir klukkutímar. Fólk man svoleiðis. Ójafnt einvígi Einn af höfundum Stockfish, Tord Rom stad, benti á nokkur atriði í tengslum við „einvígið“. Ekki hefði verið notuð nýjasta útgáfa af Stock- fish, sumt í uppsetningunni hefði hugsanlega komið niður á spilagetu forritsins og tímareglurnar hefðu verið fremur furðulegar. Skákirnar hundrað voru tefldar þannig að mínúta var gefin á hvern leik. Með því nýttist ekki sú vinna sem lögð hefur verið í tímastjórnunarkerfi forritsins. Það að gefa eina mínútu á leik er fremur óhefðbundin nálgun í keppnisskák. En hún hentar vel í samhliða reikningum. Þannig geta margir örgjörvar reiknað hver sinn hluta í leikjatrénu og „gefið skýrslu“ eftir 59 sekúndur, áður en besti leikurinn er valinn. Aftur, árangur Google er alveg merkilegur, en það verður ekki endilega sagt að þeir hafi unnið andstæðinginn í sinni sterkustu mynd, og á jafnréttis- grundvelli. Það eru til vefsíður sem halda utan um gæði ólíkra skákforrita, etja þeim saman í skákum oft á dag og birta niðurstöðurnar. Þá er auð- vitað reynt að gæta þess að forritin hafi úr jafnmiklu minni og reikni- getu að moða. Ekki er hægt að setja Ofurtölva buffar fartölvu Pawel Bartoszek Í dag Alpha Zero inn í þann samanburð enda forritið engum aðgengilegt og keyrir á sérstökum vélbúnaði. En auðvitað er aðalpælingin hjá Google ekki að búa til heimsins besta skák- forrit. Markmiðið er að búa til þá ímynd að fyrirtækið hafi náð lengra en aðrir í gervigreind. Í von um að sölumenn þess geti hringt eftir- farandi símtöl: Sölumaður Google hringir í for- stjóra. „Halló, er þetta forstjóri stórfyrir- tækis?“ „Já.“ „Ég heiti Daníel og er sölumaður hjá Google. Hefurðu heyrt um Alpha Zero forritið?“ „Já! Þetta sem kenndi sjálfu sér skák, tefldi við sjálft sig í fjóra tíma og dró svo besta skákforrit í heimi sundur og saman í háði? Að sjálf- sögðu! Ég er búinn að horfa á þessar skákir á YouTube. Þvílík snilld!“ „Einmitt, og nú hefurðu dottið í lukkupottinn! Okkur langar að bjóða þér að taka þátt í smá verkefni með okkur. Okkur datt í hug að nota hugbúnaðinn bak við Alpha Zero til að kíkja á gögnin þín og segja þér hvernig þú getur selt meiri ís / bíla / líftryggingar / bensín / offitulyf / hvað það nú er sem þú selur.“ „Snilld. Tvær spurningar: Hvað kostar þetta og hvert á ég að senda peninginn?“ Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 ALLA DAGA TIL JÓLA OPIÐ10-19 WPB2500 DB100 GSC100 14.990 12.990 23.9908” MYNDARAMMIRollei Degas DPF-800 digital myndarammi T-65 X-WING Vertu meðlimur í and- spyrnunni og fljúgðu þessum einstaka safn- grip í Laser-Tag orustu SPEEDER BIKE Einn flottasti Laser-Tag dróninn með hand- máluðum klón á hröðum og liprum flug dróna HLEÐSLU VESKI Leðurveski með innbyggðri rafhlöðu 6.990 DISKÓ PERA Jólaballið verður alvöru í ár :) 1.990 VÍSINDA KANNA Flott fyrir jólaglöggið eða bara kakó 1.990 SNES CLASSIC MINI Mini Super Nintendo með 20 innbyggðum leikjum TIE ADVANCED Nú getur þú loksins flogið um í háþróaðri stjörnu-orustu-flaug Svarthöfða til sigurs! Sjálfvirk Árekstrar vörn Næsta Kynslóð LI-FI Einstök Spaða Tækni Allt að 50km hraði 19.990 74-Z Speeder Bike Star Wars dróni 19.990 Tie Advanced X1 Star Wars dróni 19.990 T-65 X-Wing Star Wars dróni Sem nötrar þegar dróni er skotinn, hljóð effectar og Star Wars tónlist, festing fyrir síma með Appi fyrir Android eða IOS. MÖGNUÐFJARSTÝRING Star Wars drónar með Laser keppnisham • Númeraðir og handmálaðir safngripir Hægt að nota inni eða úti í byrjenda og keppnisham • Sjálfvirkt flugtak og lending 6-Ása stöðuleikatækni • 360° áhættu hreyfing • Allt að 50km hraði á 3 sekúndum VERÐ ÁÐ UR 29.990 JÓLA TILBOÐ MIGHTY SPOTIFY SPILARI Mighty spilar tónlistina þína af Spotify án snjallsíma MYNDARAMMAR VERÐ FRÁ 9.990 Allt að 1.000 lög 5 tíma hleðsla MIGHTY AUDIO SPILARINN LOKSINSKOMINN Sjá myndband hér! Twitch01 TW!TCH KUBBUR 12 hliða fikt kubbur með fjölda möguleika 2.990 FLIX FLIX SPINNER Flott fiktisnerla slær á jólastressið 490 JÓLI MÆLIR MEÐ HEITUSTU PAKKARNIR Í ÁR AÐ MATI JÓLA;) 19. desem ber 2017 • B irt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl En auðvitað er aðalpælingin hjá Google ekki að búa til heimsins besta skákforrit. Markmiðið er að búa til þá ímynd að fyrirtækið hafi náð lengra en aðrir í gervigreind. S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15Þ R i ð J u d a g u R 1 9 . d e S e m B e R 2 0 1 7 1 9 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :4 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 8 9 -E C 7 8 1 E 8 9 -E B 3 C 1 E 8 9 -E A 0 0 1 E 8 9 -E 8 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.