Fréttablaðið - 19.12.2017, Síða 38

Fréttablaðið - 19.12.2017, Síða 38
H E I L S U R Ú M FORTE Þægilegir rafdrifnir hægindastólar og sófar með leðri á slitflötum. FORTE 1 FORTE 2 JÓLATILBOÐ 67.760 kr. JÓLATILBOÐ 109.038 kr. Fullt verð: 96.800 kr. Fullt verð: 155.768 kr. A R G H !!! 2 11 21 7 Það líður að jólum Laugavegur 8 Íslensk hönnun & þjóðlegar vörur fyrir alla fjölskylduna Landsl iðsbún ingur Í slands Lopavö rur Hálsme n og ar mbönd Slaufur Húfur o g trefla r Geysiv insælu tré-só lglerau gun og mar gt mar gt fleir a. Verið mee..lkomin Bækur Ekki gleyma mér HHHHH kristín Jóhannsdóttir Bjartur Kápa: Jón Ásgeir 283 bls. Prentuð í Finnlandi Árið 1987 bjó ung, íslensk stúlka í Austur- Þýskalandi í nokkra mánuði og kynntist manni sem hún lýsir svo á bókarkápu: „Hann hafði verið maðurinn í lífi mínu, með honum átti ég fallegustu og æðisgengnustu daga og nætur ævinnar á dögum undirliggjandi ótta og einræðis- stjórnar Þýska alþýðulýðveldisins. Af hverju hvarf hann fyrirvaralaust úr lífi mínu?“ Í bókinni Ekki gleyma mér lýsir Kristín Jóhannsdóttir þessu ástar- ævintýri sem átti eftir að hafa djúp- stæð áhrif á líf hennar, kynnum sínum af hinum dularfulla og ómót- stæðilega Sebastian sem var heill og sannur þegar hann var með henni en aðrir hlutar lífs hans voru óræðir og leyndardómsfullir sem varð til þess að þegar hún leit til baka mörgum árum síðar varð henni ljóst að hún yrði að fá svarið við því af hverju hann hvarf þegar hún þarfnaðist hans mest. Hún leggur því af stað til Leipzig til að rekja þræði og slóðir úr hinu gamla Austur-Þýskalandi þar sem allt var skrásett og enginn vissi hver fylgdist með öðrum. Þetta er sönn saga og mjög per- sónuleg bók, má jafnvel segja að hún sé ævisöguleg, þó hún reki kannski ekki nema hluta lífs höfundar þá er það sá hluti sem mest áhrif hefur haft á líf hennar. Höfundur styðst við nákvæmar dagbækur sem hún hélt á þessum árum og tekst þann- ig að draga upp mjög áhugaverða og sannfærandi mynd af daglegu lífi í Austur-Þýskalandi á árunum áður en Berlínarmúrinn féll. Hún lýsir fábreyttu vöruúrvali, jafnvel skorti, á meðan voru starf- ræktar verslanir þar sem allt fékkst en aðeins var hægt að versla fyrir erlenda gjaldmiðla. Öllu alvarlegri voru þó njósnirnar sem allir vissu af en enginn ræddi um, sú stað- reynd að haldnar voru skýrslur um minnstu hreyfingu hvers og eins, bæði erlendra gesta sem heima- manna, og út frá því teknar ákvarð- anir um framtíð og tækifæri við- komandi. Það er eiginlega þessi hluti bók- arinnar sem er áhugaverðastur þó sagan af elskendunum sem hefði næstum verið hægt að líma utan á umslagið af Heroes David Bowie sé vissulega markverð fyrir margra hluta sakir. Höf- undur starfaði árum saman sem blaðamaður og pistlahöfundur og henni lætur betur að lýsa umhverfi, st a ð h átt u m o g atburðum en til- finningum. Stund- um leyfir hún dag- bókinni að tala og það er einna helst í þeim köflum sem lesandinn kemst næst því að hrífast með af tilfinningum og persónuleika elskendanna. Bókin er eins og áður sagði sjálfsævi- söguleg og eins og stundum vill verða í slíkum bókum gerist það að eins konar glufa eða eyðiland verður milli sannleik- ans og frásagnarinnar sem lesandinn finnur fyrir, einhver fjarlægð sem stundum verður til þess að lesandinn nær ekki að lifa sig inn í atburðarásina. Dagbækur Kristínar hjálpa henni vafalaust að halda sig við sannleikann og stað- reyndirnar en það má aðeins velta fyrir sér hvort frásögn þar sem heitar og sterkar tilfinningar leika svo stórt hlutverk hefði þurft aðeins meira krydd eða safa þó slíkt hafi mögu- lega ekki verið fyrir hendi í hinum skrásetta veruleika. Það breytir því ekki að sagan er spennandi og ríg- heldur lesandanum, ekki hvað síst vegna sögu elskendanna og örlaga þeirra. Brynhildur Björnsdóttir Niðurstaða: Áhugaverð bók en hefði þurft aðeins meira krydd í tilfinningalíf persónanna. Rómeó og Júlía í Leipzig V i ð m u n u m f a ra misvel með ýmsa þekkta jólasmelli, bæði gamla og nýrri, popp og  djass. Það er svo mikið af tón- list  sem  tilheyrir þessum árstíma sem gaman er að fara með í ýmsar áttir,“  segir  djassarinn Sigurður Flosason sem leiðir jóladjasssveit Flosason fjölskyldunnar á Kexi Hosteli í kvöld. Hann nefnir lögin Jólin eru að koma, Ég hlakka svo til, Ó Grýla, Þú komst með jólin til mín og fleiri kunnugleg lög sem munu lenda í djasshakkavélinni og kannski aldrei bíða þess bætur, að sögn Sigurðar. „Jólakötturinn verður líka fyrir djassofbeldi og það er óvíst að jólasveinarnir beri nokk- urn tíma aftur sitt barr,“ segir hann hlæjandi. Með Sigurði er Anna Gréta dóttir hans,  píanóleikari, og auk þeirra feðgina er sveitin að þessu sinni skipuð þeim Þorgrími Jónssyni og Gunnlaugi Briem, sem Sigurður titlar jólasvein og jólakött! Anna Gréta býr í Stokkhólmi. Þar er hún á fjórða og síðasta ári í fram- haldsnámi í djasspíanóleik  en er komin heim í jólafrí. „Við reynum alltaf að nota tækifærin þegar við hittumst og spila saman, ýmist hér heima eða úti.  Við höfum  komið fram í klúbbum í Stokkhólmi og í sumar vorum við í seríu með djass í almenningsgörðum, það er gaman þegar gott er veður en minna gaman þegar mikið rignir sem gerist  stund- um líka.“ Ekki segir Sigurður Önnu Grétu þó koma með sænskt þema inn í Litlu Kexdjassjólin  heldur sé dag- skráin meira íslensk/amerísk. „Þetta eru  allt lög sem sungin eru með íslenskum textum  en eru nú flutt instrúmentalt og spunnið út frá þeim eins og fara gerir í djassinum, settir einhverjir nýir ryþmar og svo- leiðis.“ Spurður hvort allt sé blandað á staðnum svarar hann: „Nei, þetta eru litlar útsetningar sem við höfum gert og  endurhljómsett, æft og undirbúið – rándýrt alveg! En alltaf er viss partur sem gerist á staðnum, eðli málsins samkvæmt. Kex Hostel er á Skúlagötu 28. Tón- leikarnir hefjast klukkan 20.30 og aðgangur er ókeypis. gun@frettabladid.is Kunnugleg jólalög lenda í djasshakkavélinni Litlu Kexdjassjól Flosason fjölskyldunnar verða haldin í kvöld á Kexi Hosteli. Feðginin Sigurður og Anna Gréta, ásamt Þorgrími Jónssyni jólasveini og Gunnlaugi Briem jólaketti, ætla þá að ganga í skrokk á jólalögunum. Feðginin Anna Gréta og Sigurður nota hvert tækifæri sem gefst til að spila djass saman. Mynd MAGnúS AnderSen JóLAKötturinn verður LíKA Fyrir dJASSoFBeLdi oG ÞAð er óvíSt Að JóLASveinArnir Beri noKKurn tímA AFtur Sitt BArr. 1 9 . d E s E m B E r 2 0 1 7 Þ r i ð J u d a G u r26 m E N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð menning 1 9 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :4 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 8 9 -D 3 C 8 1 E 8 9 -D 2 8 C 1 E 8 9 -D 1 5 0 1 E 8 9 -D 0 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.