Skátablaðið Faxi - 01.12.1988, Qupperneq 8
x>-n O — 0>i— ro>—l >7s cn
ELLIREYJARFERÐ
Þaö var þannig, að við sem erum
í Foringjaráði skátatelagsins,
vorum oft búin að velta því fyrir
okkur hvort ekki væri möguleiki
á því að skátafélagið gæti farið í
útilegu í einhverja úteyju. Svo
var það einn fundinn að félags-
foringinn, Páll Zóphóníasson,
lýsti því yfir að skátarnir hefðu
farið árlega út í Ellirey og kom
þá upp áhugi um að endurvekja
þennan gamla sið. Var þá byrjað
að undirbúa ferðina, talað var
við þá félaga í Ellireyjarfélaginu
og tóku þeir mjög vel í þessa
heimsókn.
Þegar allt var orðið klappað og
klárt var mannskapnum sagt að
mæta næsta dag, sem var
laugardagur. Ákveðið var að
krakkar sem voru á fermingarári
og eldri fengju aðeins að fara
með. Var það ákveðið af
öryggisástæðum.
Farsæll, bátur Hjálparsveitar-
innar skutlaði okkur út í eynna
og þegar þangað var komið voru
þeir sterkustu látnir bera allt
það þyngsta. Þegar upp var
komið byrjaði liðið að tjalda og
búa um sig. Fararstjóri ferðar-
innar var Mari pípari.
Brátt var dagur að kveldi
kominn og byrjaði þá undir-
búningur fyrir varðeld. Kókó
var búið til, og var Ellireyingum
boðið á kvöldvökuna og í
hressingu. Kvöldvakan var með
hefðbundnu sniði, söngur og
hlátur.
Þegar líða fór á kvöldið fór
mannskapurinn að sofa.
Vaknaði liðið snemma um
morguninn og var farið í
skoðunarferð um eynna undir
leiðsögn Mara. Farið var á
marga fallega staði, en einn
staður skar sig þó útúr af fegurð
og glæsileika en það voru
Háubæli.
Að skoðunarferðinni lokinni fór
mannskapurinn að pakka
saman. Þegar það var búið fengu
þeir félagar í Ellireyjarfélaginu
skinn í virðingarskyni og fyrir
góðar móttökur. Þegar því var
lokið var klukkan orðin 5 og
kominn tími til að fara niður
með farangurinn. Eftir smá
stund kom Farsæll og sótti
okkur.
Þegar heim var komið, voru allir
sammála að ferðin hefði tekist
með eindæmum vel.
Viktor Ragnarsson
Dagana 8.-9. og 15.-16.október
fór fram dósasöfnun hjá okkur
skátunum. Petta hreinsunarátak
var fjáröfluriarleið hjá Banda-
lagi íslenskra skáta. Það var
keppni á milli flokkanna hver
safnaði flestum dósum.
Pöddur sigruðu glæsilega með
2416 dósir.
Ömmur urðu í öðru sæti með
2001 dós.
Sægarpar urðu í því þriðja með
1570 dósir.
Viðurkenningar voru veittar
seinasta söfnunardaginn. Bæjar-
stjórinn þakkaði skátunum
þetta framtak. Bærinn gaf verð-
laun fyrir efstu flokkana og
verða þau veitt á jólafundum
sveitanna. í þessari söfnun kom í
ljós að Skátafélagið Faxi varð
efst yfir landið með 11.100 dósir
og verður það að teljast nijög
gott, því 100.000 dósir
söfnuðust yfir allt landið.
EG
8