Skátablaðið Faxi - 01.12.1988, Síða 13
voru flestir sæmilega ánægðir
með það.
Klukkan sex lögðum við af stað
upp á Hraun og komurn við í
kofann þar klukkan kortér í sjö.
Pá hófumst við handa við að
grilla pylsur og gekk það mjög
vel. Eftir að við vorum búin að
borða leystum við verkefnin
sem okkur var úthlutað og
gerðunr svo nokkurgrunnnáms-
verkefni sem við völdum okkur.
Þegar við vorum búin að leysa
öll verkefnin, ákváðum við að
fara á Steinsstaði og heimsækja
flokkinn senr var þar. Við
héldum upp á Steinsstaði kl.
1 1:30 og vorunr við komin
þangað hálftíma síðar.
Þegar við komum á Steinsstaði
voru hinir tveir flokkarnir sem
áttu ekki að gista þar, þegar
komnir þangað. Báðir flokk-
arnir ætluðu að gista þarna,
annar flokkurinn átti að vera í
kofa í Stafsnesi, en krakkarnir
treystu sér ekki til að vera þar
vegna veðurs. En hinn flokkur-
inn ætlaði að gista á Steins-
stöðum vegna þess að þeir vildu
ekki sofa í Gamla golfskálanum.
það varð smá rifrildi, vegna þess
að sumir fengu að sofa á Steins-
stöðum. en sumir ekki. Endaði
allt vel að lokum með því að
sveitin Gúndar fór og gisti í
Yfirkokkurinn
Garnla golfskálanum og við
fórum upp á hraun. Þegar við
komum svo loksins upp á Eldfell
fórum við eiginlega strax að sofa
en sögðum nokkrar drauga-
sögur áður.
Næsta morgun vöknuðum við
klukkan 9 eins og ákveðið hafði
verið og tókum þá saman dótið
okkar og flýttum okkur svo
niður í skátaheimili. Við komum
þangað aðeins of seint en gerði
það ekki mikið því að hinir
flokkarnir voru líka seinir. Eftir
morgunmatinn var farið yfir
verkefnin og var námskeiðið
endurmetið. Meðal annars var
gerð könnun meðal skátanna
hvernig þeim fannst námskeiðið
takast og voru flestir sammála
um það að námskeiðið hefði
heppnast mjög vel. Um kl. 1 var
námskeiðinu slitið og fóru þá
allir heim til sín ánægðir eftir vel
heppnað námskeið.
Mér fannst þetta námskeið mjög
skemmtilegt og Iærði ég talsvert
rnikið á því en ég hefði getað
lært meira ef ég hefði farið fyrr
að sofa á föstudagskvöldið.
Hægt er að segja það sama um
flestalla sem voru á þessu
flokksforingjanámskeiði.
ÞVJ
X>-n 0-0>rD3>H>XB)