Skátablaðið Faxi - 01.12.1988, Page 15
Efst: Óli Tótu og
Beddi í Upp-
sölum. Miðröð:
Garðar í Tréverk,
Dísa í Stakka-
gerði, Kjarri á
Múla, Olli á
Hvanneyri og
Gunnar Jóns.
Neðst: Ásta Halla
og Hanna Gunna
í Vegg.
SKÁTAFLOKKURINN
Skriðu nú allir í pokana. Sagðar
voru skemmtilegar sögur og
skrítlur til klukkan fjögur um
nóttina, en þá voru allir sofn-
aðir. Eftir kiukkutíma eða kl. 5
voru allir vaknaðir. Var þá
brugðið á það ráð að elda. Síðan
sofnuðu allir aftur. Kiukkan 8
um morguninn voru allir vaktir í
kakó sem þeim var fært í rúmið.
Síðan var farið í leiki svo sem
millu, pílu og fleiri leiki sem
voru mjög spennandi. Nú vorum
við orðnir banhungraðir og
maturinn kominn á borðið. í
matinn var ægilega gott kjöt
með sósu, kartöflumús og rófu-
stöppu. Þá kom grautur sem
sumum þótti þunnur. Þeim sem
kvörtuðu og vildu hafa grautinn
þykkari var bent á að eitthvað
væri af kartöflumjöli í ösku-
tunnunni.
Eftir matinn komu Bláklukkur í
heimsókn og hvíldu sig um
stund, en héldu síðan áfram
göngunni.
Þegar maturinn var búinn fórum
við í göngu vestur á Hamar. Þar
urðum við holdvotir og þótti
gott að komast aftur í bústaðinn.
Hitað var kakó sem drukkið var
af áfergju. Síðan var farið að
huga að heimferð eftir skemmti-
lega útilegu.
Útilegunni slitið kl. 5 e.h. Á.H.
fyrr um daginn með kol og aðrar
nauðsynjar. Þvoðu þeir bústað-
inn hátt og lágt, og skipuðu
síðan svo fyrir að hver sem færi
inn á skítugum skóm yrði að
borga tvær krónur í flokkssjóð.
Nú gengum við frá öllu okkar
dóti í röð og reglu, og gekk það
ágætlega. Síðan fórum við að
spila. Ekki höfðum við spilað
lengi er skyndilega var knúið
dyra. Utan úr myrkrinu komu
fjórar yngismeyjar og báðu
okkur um vetursetu. Auðvitað
tókum við þeim með opnum
örmum og buðum þeim að
ganga inn í höllina. Síðan var
stiginn dans og spilað á
grammófón, gítar, munnhörpu
að ógleymdri greiðunni. Síðan
fórum við í einn leik sem heitir
blindingsleikur.
Þegar allir höfðu leikið sér nóg,
SKÁTAPÓSTUR
Móttaka jólakorta verður í
Skátaheimilinu við Faxastíg
og að Kirkjuvegi 19.
Opnunartími verður sem hér segir:
(Sami og hjá verslunum)
16. des. föstudagur
17. des. laugardagur
18. des. sunnudagur
19. des. mánudagur
20. des. þriðjudagur
21. des. miðvikudagur
22. des. fimmtudagur
23. des. föstudagur
kl. 09:00-17:00
kl. 09:00-18:00
kl. 14:00-18:00
kl. 09:00-18:00
kl. 09:00-18:00
kl. 09:00-22:00
kl. 09:00-18:00
kl. 09:00-22:00
Komið og sendið jólakortin
innanbæjar hjá okkur
— við berum kortin út á aðfangadagsmorgun.
Gleðileg jól!
Skátafélagið Faxi
Fyrsta útilegan
Farið var í fyrstu útileguna á
árinu 1953. Lagt var af stað frá
Straum kl. 8 e.h. Einum gesti,
Bjarna Jónassyni, var boðið að
slást í hópinn. Þegar við fórum
yfir hraunið á leið í skátabú-
staðinn, hrösuðu margir og
duttu því myrkur var mikið. Að
öðru leyti gekk ferðin slysalaust.
Þegar við loks komum í bú-
staðinn var þar funheitt því tveir
strákar úr flokknum höfðu farið
drukkum við sæmilegt kakó, og
borðuðum góðar kökur með.
Eftir þessi veisluhöld fórum við í
leikinn „Tunglið og tíeyringur-
inn” við mikinn fögnuð við-
staddra. Eftir þetta var sungið
og spilað. Þá var klukkan farin
að ganga tólf og heimasætur
hugsuðu til heimferðar.
Auðvitað fylgdu þeim vaskir
sveinar gegnum hættur hrauns
og myrkurs.
I
15
x>-n O — 0>i~ co>—l >7*7 oo