Skátablaðið Faxi - 01.04.1997, Blaðsíða 2

Skátablaðið Faxi - 01.04.1997, Blaðsíða 2
SKÁTABLAÐIÐ 2 Vel að verki staðið Hvert bæjarfélag á mikið undir því, að vel sé staðið að æskulýðs-, tóm- stunda- og íþróttastarfi, hvort heldur að það sé unnið af opinberum aðilum eða af hinum ýmsu félögum sem hafa slíka starfsemi með höndum. Hér í Vestmannaeyjum er unnið mjög öflugt starf, í þessum málaflokki, af fjölmörgum aðilum og það af stærstum hluta í sjálfboðavinnu. Vart er á nokkurn hal- lað þó að fullyrt sé að í þessu bæjar- félagi, og líklega í öðrum, eru það félögin og félagarnir í þeim sem vinna mesta æskulýðstarfið. Starfið er ómetanlegt og í reynd gera sér ekki allir nægilega mikla grein fyrir því, hvaða grunn er verið að leggja, fyrir betra lífi í óráðinni framtíð. Með óyggjandi hætti hefur verið sýnt fram á, að því öflugri sem starfsemi félag- anna er og þátttaka barna og unglinga er meiri í því starfi sem boðið er uppá, eru minni líkur á því að viðkomandi leiðist út í vandræði. Eða eins og það var orðað, því meiri sem þátttakan er í góðu málunum, því minni í þeim slæmu. Kannanir hafa verið gerðar, meðal annars þar sem þátttaka í íþróttum, skátastarfi, trúarstarfi, félagsmiðstöð- varstarfi, félagslífi í skólum o.fl. var könnuð og gerður samanburður út frá því hvað nám snerti. I ljós kom að þeir sem stunduðu starfsemi félaganna mest, gekk nær undantekningarlaust betur í skóla og stunduðu námið betur en þeir sem lítinn þátt tóku í starfinu. Auðvitað verður alltaf að fara varlega í að alhæfa um hlutina, en í könnum sem gerð var árið 1992 og oft er vitnað í, þóttu niðurstöður vera svo skýrar að fullyrða mætti um hlutina. Könnun þessi “Ungt fólk 92” og niðurstöður úr henni, voru um margt nokkuð merki- leg og fræðandi. Að könnun lokinni var unnið sérstakt úrtak fyrir Vestmannaeyjar, þar sem Eyjarnar voru bornar saman við landið í heild annarsvegar og hinsvegar við höfuðborgarsvæðið. Niðurstöður voru nokkuð á einn veg okkur í hag. Þátttakan í því sem boðið var uppá, var mest hér. Mér er minnistæð súlan sem mældi þátttökuna í skátastarfinu. Hún var með slíkum eindæmum að við fyrstu sýn virtist sem um innsláttar- villu hafi verið að ræða, en svo var ekki. Um 15,8 % þeirra sem spurðir voru hér í Eyjum, tóku þátt í skáta- starfinu, á móti 7,2 % á landinu öllu og 4,1 % á höfuðborgarsvæðinu. Ef ein- hverjar breytingar hafa orðið síðan könnunin var gerð, þá er það til aukninnar þátttöku, hér í Eyjum. Á það hefur verið bent, að í þeim sveitar- félögum þar sem lítið framboð er í þeim málaflokkum sem að ofan er getið, hafa kannanir sýnt að verra ástand ríkir í málefnum unglinga. Með þetta í huga og eftir að vera búinn að starfa við málaflokkinn í mörg ár, hefur mér oft verið hugsað til þess hversu mikið við eigum að þakka, þeim fjölmörgu aðilum sem standa undir starfsemi hinna ýmsu félaga og bera þar hita og þunga. Það er ómetanlegt sem þar er verið að skila til samfélagsins og gott að allir geri sér grein fyrir því. Skátafélagið Faxi hefúr verið eitt öflug- asta félag bæjarins og hefur lagt sitt af mörkum við að gera góðan bæ betri. Megum við sem lengst njóta krafta skátanna, samfélaginu til heilla. Guðmundur Þ. B. Ólafsson, tómstunda - og íþróttafulltrúi. Með sínu lagi Dýrlegt kemur sumar með sól og blóm, senn fer allt að vakna með lofsöngsróm, vængjaþytur heyrist í himingeim, hýmar yfir landi' af þeim fuglasveim. Hærra’ og hærra stígur á himinból hetjan lífsins sterka - hin milda sól, geislastraumum hellir á höf og fjöll, hlær, svo roðna vellir og bráðnar mjöll. Gróðurmagnað lífsaflið leysist skjótt, læsir sig um fræin, er sváfu rótt, vakna þau af blundi’ og sér bylta' í mold, blessa Guð um leið og þau rísa’ úr fold. Guði sé lof, er sumarið gefur blítt, gefur líka í hjörtunum sumar nýtt, taka að vaxa ávextir andans brátt, eilíft þar sem náðin fær vöxt og mátt. Blessuð sumardýrðin unt láð og lá, lífsins færir boðskap oss himnum frá: “Vakna þú, sem sefur, því surnar skjótt sigrað kuldann hefur og vetramótt”. Friðrik Friðriksson. Útgefið í april 1997 Utgefendur: Skátafélagið Faxi Abyrgðarmaður: Sigursteinn Marínósson Ritstjóri: Páll Arnar Georgsson Auglýsingar: Sigríður Guðmundsdóttir Prófarkarlestur: Hannes G. Guðnason Ritnefnd: Sveitarforingjar í Faxa Upplag: 1600 eintök Prentun: Prentsmiðjan Eyrún

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.