Skátablaðið Faxi - 01.04.1997, Síða 8

Skátablaðið Faxi - 01.04.1997, Síða 8
SKÁTABLAÐIÐ 8 Samhengi í skátastarfi Verkefni fyrir skáta koma þeim fyrir sjónir í margvíslegum búningi í bókum, heftum og bæklingum, en þegar grannt er skoðað er þess gætt að í þeim sé ákveðið samhengi. Á ferðum sínum austur, suður, vestur og norður kemur skátin aftur og aftur að skyldum verkefnum. Þau varða hæfni hans til að bjarga sér og hjálpa öðrum, samskipti við fólk og náttúru og þekkingu hans á eigin þjóðfélagi og öðrum þjóðum. Skátastarf felur í höfuðdráttum hið sama í sér á hvaða aldri sem skátin er. Hann lærir að verða sjálfbjarga í nán- asta umhverfi sínu og úti í náttúrunni, lærir að taka tillit til annarra og virða skoðanir þeirra og þroska afstöðu sína til skáta-hugsjónarinnar. Kröfurnar og leiðirnar eru hinsvegar mismunandi eftir aldri skátans og þroska. Verkefnin stigþyngjast og gera auknar kröfur til skátans, en þótt leiðin liggi til allra átta má líkja henni við ferðir skátans til að safna steinum í vörðu - vörðu þekkingar og kunnáttu. Það gefur skátastarfinu mikið gildi að allir, sem kynnast skátastarfi að eigin raun, tengjast innri böndum. Það gerist með þvf að skátarnir fást við verkefni af sama toga þótt þau séu miserfið, tileinka sér sömu siðvenjur, skátakveðjurnar og skátasöng- vana, vinna sama skátaheitið og leitast við að lifa eftir sömu skátalögunum. Myndgátan

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.